Alþýðublaðið - 25.10.1983, Page 3
Þriðjudagur 25. október 1983
3
Heimur framliðinna
43. ára miðilsþjónusta Bjargar S. Ólafsdóttur
Árnesútgátan het'ur sent frá sér
bók um dulræna hæfileika Bjargar
S. Ólafsdóttur og miðilsstarf í 43 ár.
En um hana hefur fátt eitt verið rit-
að áður. Bókin er samin og skrásett
af Guðmundi Kristinssyni, og er
hún í sjö köflum.
í fyrsta kaflanum, sem ber heitið
„Sex landa sýn“, eru 20 frásagnir af
skyggni Bjargar og dulheyrn í
skemmtiferð með dönsku ferða-
skrifstofunni Tjæreborg um sex
Evrópulönd sumarið 1976.
Þá er sagt frá uppvexti hennar á
Þingeyri við Dýrafjörð og miðils-
þjálfun hennar hjá Guðrúnu
Guðmundsdóttur frá Berjanesi.
Lýst er tilhögun fundanna og gerð
grein fyrir stjórnendum hennar að
handan og sambandi hennar við þá.
Þá er kafli, sem heitir „Sýnir við
dánarbeð“. Þar eru sex frásagnir af
sýnum Bjargar og dulheyrn við
dánarbeð og brottför af þessum
heimi.
Siðustu fjórir kaflarnir eru
byggðir á 14 miðilsfundum, sem
Björg hélt á Selfossi sumarið 1980
og 1981. Þar koma fram þrír þjóð -
kunnir menn, löngu látnir, ásamt
aðalstjórnanda hennar og veita
svör við því, hver örlög mönnum
eru búin við líkamsdauðann, hvað
við taki og lýsa hinum nýju heim-
kynnum.
Fyrst er frásögn séra Kristins
Daníelssonar, þá frásögn séra
Jóhanns Þorkelssonar og loks frá-
sögn Einars Loftssonar. Er hún
mest að vöxtum eða helmingur
bókarinnar. Hann lýsir þar andláti
sínu og hvað við tók, segir frá för
sinni um lægri sviðin og hærri svið-
in og samræðum við fjölda fólks,
sem hann hitti þar. Frásögn hans
lýkur með skemmtisiglingu í heimi
framliðinna.
Tímaritið Þroskahjálp:
Ýmislegt
um málefni
þroskaheftra
Tímaritið Þroskahjálp 3. hefti
1983 er komið út. Útgefandi er
Landssamtökin Þroskahjálp.
í ritinu er að finna ýmsar greinar,
upplýsingar og fróðleik um málefni
fatlaðra.
Sem dæmi má nefna:
Frásögn af starfsemi Alfa
klúbbsins Árseli. — Hér er um að
ræða tómstundastarf þroskaheftra
unglinga á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavikur. Greinina skrifa Krist-
ín Lilliendahl, Sjöfn Þráinsdóttir
og Sigríður Gunnarsdóttir.
Dóra S. Bjarnason ritar grein sem
hún nefnir Réttur eða aumingja-
gæska, og segir hún tilefnið verða
framsöguerindi sem hún flutti á
borgarafundi um málefni þroska-
heftra á Hótel Sögu í desember síð-
ast liðnum.
í tilefni 25 ára afmæli Styrktar-
félags vangefinna, R.vík birtist er-
indi sem Sigríður Thorlacius flutti á
aðalfundi félagsins í mars síðast
liðnum. Erindið nefndi hún Minn-
ingar frá fyrstu starfseminni.
Þá má nefna þýdda grein er nefn-
ist þannig upplifa mikið vangefnir
veruleikann.
Fasta þætti s.s. Raddir foreldra
og Bókakynning er að finna i ritinu
svo og ýmislegt fleira.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út
fjórum sinnum á ári. Það er sent á-
skrifendum og er til sölu á skrif-
stofu samtakanna Nóatúni 17, 105
R.vík., sími 29901. Á sama stað er
tekið á móti áskriftarbeiðnum svo
og ábendingum um efni í ritið.
Guðmutulur w VY'V w # 'fc'*
Kristinsson JlJL kZM M HJLM
framliöi nna
m iMlxþjórt uviu
Bókin er 236 blaðsíður að stærð
og var prentuð í Prentsmiðju
Suðurlands, en káputeikningu
gerði Gísli Sigurðssön.
Líf og Land 1
viðurkenning á vanmætti íslend-
| inga til að meta þörf ýmissa fram-
kvæmda er snertu varnir Iandsins,
en hann lýsti því jafnframt yfir að
hann myndi beita sér fyrir úrbótum
á þessu meðan hann gegndi stöðu
utanríkisráðherra.
Þar næst sátú fyrir svörum full-
trúar hinna ýmsu félagasamtaka
sem hafa friðarmálin á stefnuskrá
sinni, Samtök herstöðvaandstæð-
inga, Varðberg, friðarhreyfing lista-
manna, lækna, framhaldsskóla-
nema og fleiri. Þá voru fulltrúar
Stjórnmálaflokkanna teknir á bein-
ið af sérstökum spyrlahópi sem í
voru þeir Séra Gunnar Kristjáns-
son, Kjartan Ragnarsson, Magnús
Torfi Olafsson og Þórður Harðar-
son. Sömu aðilar tóku síðan þátt í
pallborðsumræðum á eftir. Fyrir
Alþýðuflokkinn tók þátt í umræð-
unum Árni Gunnarsson. Taldi hann
að frystingarleiðin væri nú sú eina
færa á þessu stigi, en síðan ættu
stórveldin stig af stigi að afvopnast
á grundvelli SALT og START við-
ræðnanna. Hann sagði það ekki
þjóna neinum tilgangi að bæta við
kjarnorkuvopnaforðann í Vestur-
—-Evrópu og hann minnti á sam-
þykkt Éokksþing Alþýðuflokksins
sem bar yfirskriftina „Friður, frelsi,
framtíð", þar sem samþykkt var að
jafnaðarmenn ættu að hafa forystu
um stofnun Islenskrar friðarhreyf-
ingar. Hann taldi að svo væri komið
nú að tæknikerfið í kringum kjarn-
orkuvopnin væri orðið svo flókið
að stigvaxandi hætta væri á styrjöld
vegna mistaka. Áhyggjur af þessu
hafa komið fram í álitsgerðum fjöl-
margra sérfræðinga sem undir-
strikuðu nauðsyn þess að skera nið-
ur þetta kerfi hið allra fyrsta. í því
sambandi væri nauðsynlegt að ýta
undir samningaleiðina og stuðla að
vaxandi skilningi.
Þess má geta að sjónvarpið sýndi
frá ráðstefnunni þar sem fulltrúi
herstöðvaandstæðinga sat fyrir
svörum og var að úthúða utanríkis-
ráðherra, en sá fréttaflutningur
sýndi mjög villandi mynd af ráð-
stefnunni, því á ráðstefnunni rikti
mjög þverpólitískur andi, enda
voru ráðstefnuþátttakendur
almennt sammála um að umræðan
skyldi vera á breiðum grundvelli, en
ekki snúast fyrst og fremst um
hvort menn væru með her eða á
móti.
Davíð 1
götu Björgvins, þegar hann svo not-
ar fyrsta tækifæri sem gefst til ein-
mitt þess, spurði hann.
Alþýðublaðið vill því nota þetta
tækifæri til að spyrja borgarstjóra,
hvað hafi breyst frá þeim tíma, er
hann tjáði Björgvin að hann myndi
ekki leggjast gegn því að hann yrði
framkvæmdastjóri BÚR. Og ef af-
staða borgarstjóra hefur breyst frá
1981 hvaða ástæður liggja þar að
baki?
Söluverð hrossa 1
áður fyrr voru hrossin send út eftir
pöntunum frá samtökum úti. Aðrir
hér reyndu síðan að útvega upp í
þessar pantanir og var yfirleitt ekki
hægt að fara á bak við hlutina. Nú
er orðið algengt að útlendingar
komi sjálfir og þeir eru farnir að
þekkja vissa hestakaupmenn og þá
byrjaði þessi ólukka," sagði Þor-
kell.
í fyrrnefndri skýrslu Þorkels seg-
ir hann frá fróðlegum blaðamanna-
fundi sem hann sótti:
„Hinn 31. mars var ég boðaður á
blaðamannafund í Mosfellssveit
ásamt þýsku hjónunum Becker frá
Soorbruken. Fram kom í máli
þeirra, að við íslendingar mættum
alls ekki banna útflutning kynbóta-
hrossa. Þau lofuðu og sögðust geta
fullvissað okkur um, að þótt opið
væri að flytja kynbótahross úr
landi. mvndu Þjóðverjar alls ekki
kaupa nein slík hross, við mættum
trúa því, enginn áhugi væri fyrir
öðru en góðum reiðhestum, en þá
væri erfitt að fá hér, og engin hætta
á að skoðanabræður Þ.B. þyrftu
neitt að óttast, bara að við vildum
hafa stefnuna í útflutningsmálum
óbreytta. Þetta þótti mér skrýtið tal
og barnalegt, kynnti mína skoðun
og spurði m.a. hvers vegna nauðsyn
væri að flytja út kynbótahross til að
fullnægja þörfum á sporthesta-
markaði. Fékk þau svör, að þetta
væri tilfinningamál og Þjóðverjar
vildu ekki lúta bönnum. „Við látum
ekki banna okkur fleira“ sagði
Claus Becker“
Aðspurður um þetta sagði Þor-
kell að það hafi verið vægast sagt
undarlegt hvernig Þjóðverjinn tal-
aði. Hann hafi sagt að þeir þyldu
ekki fleiri bönn, hefðu fengið ímug-
ust á þeim á Hitlerstímabilinu og að
Islendingar ættu að halda sölumál-
unum opnum og frjálsum, en jafn-
framt sagði hann að Þjóðverjar
hefðu engan áhuga á því að nýta sér
það.
„En þar með er ekki sagt að allir
Þjóðverjar séu sömu skoðunar og
þessi Becker. Þessumfortölum var
einkum beint að mér þar sein ég
hef beitt mér fyrir því að takmarka
sölu á kynbótahrossum“
En telur þú þá að stofninum stafi
hætta af útflutningnum?
„Eins og ég sagði er lítil sala um
þessar mundir og hefur verið und-
anfarin 3-4 ár. En það er búið að
flytja mikið út og þeir eiga orðið
feiknarlegan stofn úti. Það má
segja að þar sem þetta var ekki tak-
markað strax í upphafi þá skipti
þetta héðan af minna máli. En ég tel
þó, að eftir nokkur ár kannski ára-
tugi þurfi útlendingarnir á endur-
nýjun að halda, nýju blóði. Þegar
þeir gera sér betur grein fyrir því, að
þeir eiga ekki eins góðan stofn og
við munu þeir sækja í að bæta úr
því. Nú fá þeir ekki bestu hestana
og þeir vita af því!‘
Hvernig vilt þú að þessum mál-
um verið háttað?
„Ég vil fyrst og fremst að það séu
íslenskir bændur sem njóti góðs af
hestakyni sinu, en að það séu ekki
auðugir kaupsýslumenn erlendis
sem græða fyrst og frenist. Ég vil að
vöruvöndun sé höfð í fyrirrúmi og
hef ekki sagt mitt síðasta í þessu
efni. Ýmislegt í útflutningnum er að
mínu áliti afar hæpið, við erum t.d.
að flytja út „óunna vöru“ ef svo má
að orði komast. Ég tel þannig að við
ættum að banna útflutning á tripp-
um og ótömdum hrossum. Við eig-
um að takmarka útflutninginn við
að minnsta kosti fjögurra vetra
hross og þá tamið. Þetta var t.d.
samþykkt á búnaðarþingi, en það
er ekki nóg, þetta þurfa að vera
landslög" sagði Þorkell Bjarnason,
hrossaræktarráðunautur Búnaðar-
félags íslands.
Fjölbrautarskólinn
Breiöholti
Umsóknir um skólavist í dagdeild FB á vorönn 1984
skulu hafa borist skrifstofu skólans Austurbergi 5, fyr-
ir 15. nóvember næstkomandi. Nýjar umsóknir um
kvöldskóla FB (öldungadeild) á vorönn 1984 skulu
berast skrifstofu skólans fyrir sama tíma.
Tekiö veröur á móti umsóknum nemanda sem eru í
samningsbundnu iönnámi hjá meistara en þeir
sækja þá um bóklegar og fagbóklegar greinar. Staö-
festa skal fyrri umsóknir meö símskeyti eða símtali á
skrifstofu FB sími 75600.
Skólameistari
Burstafell
er flutt...
í nýtt rúmgott húsnæði að Bíldshöfða 14.
Nú erum við í næstu nálægð við öll helstu
nýbyggingasvæði Reykjavíkur og með bættri aðstöðu
bjóðum við aukna þjónustu og vöruval.
Góð aðkeyrsla — Næg bílastæði.
Eftir 20 ára veru í Smáíbúðahverfi
þökkum við íbúum hverfisins ánægjuleg
samskipti á liðnum árum og bjóðum þá velkomna
til viðskipta á nýjum stað.
BURSTAFELL
Byggingavöruverslun Bíldshöfða 14,
Símar: Verslun 38840/Skrifstofa 85950