Tíminn - 29.01.1967, Page 1
23. tbL — Laugardagur 28. janúar 1967 — 51. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Sýning iðnaðarmanna
/ _ /■-. /
22 þús. manns
RfSBBP
í fangageymslu
f i
'
í gær var opnuð á vegum Iðn-
aðarmannafélags Reykjavíkur sýn
ing í máli og myndum í tilefni
af 100 ára afmæli félagsins 3.
febr. n.k. Sýning þessi er til húsa
í samkomusal Jðnskólans, gengið
inn frá Vitastíg og er hún opin
fram til 5. febrúar daglega kl. 17
—22.
A sýningu þessari er brugðið
upp myndum úr sögu félagsins,
sem jafnframt er stór hluti af
þróunarsögu Reykjavikur. Þannig
réðst Iðnaðarmannafélagið í það
stórvirki árið 1896 að reisa Iðnó,
og 10 árum síðar Iðnskólann við
Lækjargötu. Félagið átti mikinn
þátt í byggingu Iðnskólans á Ekála
vörðuholti. Á sýningunni sem nú
stendur yfir í Iðnskólanum eru
meðal annars margar myndir
tengdar iðnaðarmönnum og Iðn-
aðarmannafélaginu, og meðal
þeirra var þessi, sem hér birtist
af Miðbæjarbaroaskóíanum í smíð
um, sem þótti mikið mannvirki á
sinum tíma, og stendur reyndar
vel fyrir sínu enn þann dag í dag.
3 GEIMFARAR STIKNA
SITJANDI í GEIMFARt
NTB-Kennedyhöfða, laugardag.
í gærkvöldi að staðartíma varð
sá atburður í geimrannsóknastöð
Bandaríkjamanna á Kennedyhöfða
á Floridaskaga, að þrir banda-
rískir geimfarar fórust í eldsvoða
á einum skotpallanna þar. Geim-
fararnir hétu, Virgil Grissom, 39
ára gamall, Edward White, 35 ára
og Roger Schaffee, 31 árs að
aldri. Geimfararnir voru spenntir
fastir í sæti sín í geimfarj tilbún-
ir til æfinga í sambandi við fyrir-
nugaða sendingu Apollo-geimfars
á loft þann 21. febrúar n.k. Má
segja að geimfararnir hafi hrein-
lega stiknað lifandi í hinum ógur-
lega hita, sem varð í klefa þeirra,
þar sem hreint súrefni var inni.
Johnson, Bandaríkjaforseti hefur
|vst yfir djúpri sorg sinni vegna
liessa hörmulega atburðar.
Geimferðin 21 febr. átti að verða
fyrsta ferð Chaffee, en félagar
hans tveir eru báðir heimsþekktir
fyrir afrek sín í geimferðum.
Grissom fór fyrstur Bandaríkja-
manna tvær geimferðir og White
framkvæmdi fyrstu „geimgöngu“
bandarísks geimfara.
Atburðurirjn varð á sama tíma
jog Johnson, Bandaríkjaforseti og
60 erlendir sendifulltrúar héldu
upp á undirritun samningsins um
friðun geimsins. Er Johnson var
| tilkynnt um slysið sendi hann
þegar frá sér yfirlýsingu, þar sem
lýst er harmi hans og banda-
rísku þjóðarinnar yfir því, að þrír
fræknir menn hafi farizt á svo
hörmulegan hátt við störf sín' í
þágu þjóðarinnar.
— Við syrgjum þennan mikla
missi okkar og hugar okkar dvelja
hjá aðstandendum hinna ungu
manna, sagði Johnson.
Yfirstjórnin á Kennedyhöfða,
gaf fyrst skipun um, að lík geim-
faranna skyldu ekk: fjarlægð fyrr
en fram hefði fiarið ýtarleg ra;.n
sókn á eldsvoðanum. Eft ’ö
klukkustunda rannsóknarstarf sér-
fræðinga voru líkin leyst úr sætis-
ólunum. Talið er, að geimfararnir
hafi látizt samstundis og ekki tek-
ið eftir, að ekki var allt með
felldu. Geimfararnir höfðu súrefn
Framhald a bls. 15.
á þremur árum
KJ-Reykjavík, laugardag.
Fólki finnst það kannski ótrú-
legt þegar sagt er frá þýi að
22-385 manns hafi verið tekið úr
umferð og „settir inn“ í fanga-
geymslur lögreglunnar í Reykja-
vík á s.l. þrem árum.
Þetta er geigvænleg tala, og
til jafnaðar hafa 21 eða þar um bil
gist í fangageymslum lögreglunn-
ar á sólarhring. í þessu sambandi
er vert að gefa þess að á árinu
1964 gistu tæp átta þúsund manns
hjá lögreglunni en á s.l. ári tæp
sjö þúsund. í mörgum tilfellum
er það sama persónan sem gistir
hjá lögreglunni aftur og aftur, og
dæmi eru þess að kvenpersóna
nokkur hafi gist að jafnaði aðra
hverja nótt hjá lögreglunni, en
kvenmanni þessum hefur nú verið
ftaút
Vellinum
\
án leyfís
ICI-Reykjavík, laugardag.
Hjá lögreglustjóraembættinu á
Keflavíkurflugvelli er nú í rann
sókn mál, vegna stórrar jarðýtu í
eigu varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, sem lánuð hefur verið
í sandnám í Höfnum, án vitundaf
yfirvalda á Keflavíkurflugvelli og
án vitundar Varnarmálanefndar.
Er’ talið að vél þessari hafi verið
komið út af Vellinum nokkrum
sinnum til notkunar í sandnáminu,
en allavega var komið með hana
þangað í gær, og var hún þar í
morgun greinilega merkt hernum
eins og öll áhöld og tæki á hans
vegum.
Rannsókn þessa máls er rétt að
hefjast, og lítið annað hægt að
segja um það á þessu stigi.
komið úr landi til dvalar á heimili
fyrir drykkjusjúklinga í Noregi.
Að yísu er það margir sem lög-
reglan verður að geyma í geymsl-
um sínum vegna sérstakrar beiðni
frá aðstandendum, vegna geðveikl,
þjófnað^r og annarra slíkra
hluta, en þá kemur á móti áð oft
er mönnum ekið heim til sín, sem
annars ættu að gista hjá lögregl-
unni, vegna plássleysis eða ann-
ars.
Þetta er gatið á peningaskáp
Síldarverksmiðja ríkisins á Seyðis
firði, sem þjófur skar á skápinn
í fyrri viku og liafði síðan á brott
með sér úr skápnum og peninga-
kassa verðmæti að upphæð í kring
um 120 þúsund krónur. Skera
| varð skápinn upp með logs: 5u-
tækjum til þess að komast inn í
hann eftir þjófinn, og er gatfð,
því aðeins stærra á eina hliðina,
en eftir þjófinn var það í kring-
um 16x23 sentimetrar að stærð.
I (Tímamynd I.H.)
Hvassviðri um sunnanvert landið:
VIKINGASKIP STJORNLAUST I FRDARKOFK
I FIB-Reykjavík, laugardag.
i Mikið hvassviðri liefur verið um
allt sunnanvert landið í gærk. iildi
nótt og morgun, Klukkan itta í
morgun voru 13 vindstig á Stór-
höfða og um tíma voru þar 14
vindstig, eða fárviðri. Klukkan 11
í morgun hafði heldur Iægt, og
var þá vindhraðinn kominn 'ður
í 12 vindstig-’ Herjólfur, sem lá
við Básaskersbryggju í Eyjur. í
gær slitnaði upp og lagði t 1
ankeri úti á höfninni, og er það
heldur óvenjulegt, nema veður sé
einstaklega vont. i
Vfkingaskipið, sem frægast hef-
ur orðið fyrir þátttöku sína í kvik-
myndinni Sigurður fáfnisbani, og
veriið hefur í Vestmannaeyjum
síðan kvikmyndatökunni .auk í
haust slitnaði einnig upp jg sigidi
mannlaust inn i Friðarhöfn hálf
fullt af sjó, og mun það nu vera
heldur illa á sig komið.
Fréttaritarinn i Vík j Mýrdal
sagði í dag, að þar hefðu verið
10 og 11 vindstig í nótt. Rafniagn-
ið fór þar um stund í gærkvöldi,
en kom fljótlega affur. Símasam-
bandslaust er austud yfir' Mýrdais-
sand, en ekki fafið að kanna enn.
hverju það sætir, enda |veðrinu
varla tekið að slota.
Fréttaritarinn i Skógum u'idir
Eyjafjöllum sagði, að geysilegy o-
veðu^ hefði verið (i gærkvöldi cg
nótt og allt lauslegt fokið, en
engar skemmdir hefðu orðið a
mannvirkjum, að því er bezt væri
vitað. Símasambandslaust er tra
Skógurp og austur í Vík. Tölu-
verð úrkoma var samfara bessu
hvassviðri.