Tíminn - 29.01.1967, Page 8

Tíminn - 29.01.1967, Page 8
8 TÍMINN SUNNUDAGUR 29. janúar 1967 : S Tíminn heimsækir öldutúnsskóla í Hafnarfirði: ÞAR ERU BÖRNIN SJÁIF LÁTIN ANNAST KENNSLU Talsvert hefur verið hnýtt í hið íslenzka skólakerfi á und- anfömum árum, og ekki að ástæðulausu, því að margir, sem bezt til þekkja eru sam- dóma um, að það sé um margt úrelt orðið, og standist ekki samanburð við það, sem aj- mennt gerist hjá nágrannaþjóð unum. Þó hefur ýmissa breyt- inga í betri átt orðið vart í seinni tíð, og framsýnir skóla- stjórar og kennarar háfa leit- azt við að brjótast út fyrir hinn þrönga ramma, og tekið upp nýtizkulegri og lífrænni kennsluháttu í ýmsum grein- um. Barnatími sjónvarpsins hef- ur sýnt nokkra þætti um kennsluaðferðir í Öldutúns- skóla í Hafnarfirði. Eru börn in látin skynja liti eftir tón- um, kynnast æðri tónlist, lát- in halda fyrirlestra, og þar fram eftir götunum. Okkur fannst þetta æði forvitnjlegt og lagði blaðamaður Tímans leið sína suður í Fjörð til að kanna, hvað þarna væri að gerast. Nýjungar I lesgreina- og tónlislarkennslu. Öldutúnsskóli er annar tveggja barnaskóla í Hafnar- firði, og hefur starfað í 6 vet- ur. Húsakynnin eru björt og vistleg, eins og yfirleitt í nýjum skólum, en þau eru ekki meginatriðið, heldur það, að innan veggja skólans þrifst lífrænt og blómlegt starf, sem þróskar börnin ög kennir þeim hagnýt vinnubrögð og tækni, svo að notuð 'séu orð hins unga skólastjóra Hauks Helgasonar. Hiann tók á móti blaðamann- inum á skrifstofu sinni og greiddi fúslega úr öllum spurn ingum. — Við hérna í Öldutúnsskól anum höfum verið að þreifa fyrir okkur og kynna okkur nýjungar í kennsluháttum er- lendis. Við höfum tekið það upp, sem okkur hefur bezt þótt henta hér, og heldið á- fram sjálfstætt, en við erum - og skynja liti eftir tónum og kynnast verkum eldri tónsnilHnga engan veginn einir um þetta, heldur hefur þetta verið tíðk- að í mörgum barnaskólum. En það, sem einkum hefur verið lögð áherzla á hér, eru nýj- ungar í sambandi við les- greina- og tónlistarkennslu, og hafa þær gefið góða raun. Kennarar hér við skólann eru flestir ungir og mjög áhuga- samir og sýndu þegar í upp- bafi mikinn áhuga á að taka upp annað form við kennslu lesgreina en almennt hafði tíðkazt Þeir fóru að þreifa fyrir sér eftir erlendum fyrir- myndum og upp á eigin spýt- ur, og fyrir fáum árum feng- um við Sigurþór Þorgilsson til að haida hér námskeið utn þessi efni, en hann var á sín- um tíirra"sendur utan af Reykja víkurborg gagngert til að kynna sér nýjungar i lesgreina kennslu. — í hverju em þesar nýj- ungar einkum fólgnar? — Það er erfitt að úrskýra í stuttu máli, en mikil áherzla er lögð á að auka námstækni barna, kenna þeim að nota hjálpargögn við lesturinn og tengja íslenzkunámið starfinu við lesgreinarnar og ■ teikni- námi. í reyndinni er þetta þannig, að aðalkennarinn út- hlutar börnum verkefni í ein- hverri lesgreinanna, og lætur nolfkur vera saman um hvert. Börnunum er þá gert að viða að sér gögnum um viðkomandi efni, ekki einungis úr náms- bókunum sjálfum heldur og úr ýmsum uppsláttarbókum, ritum, dagblöðum og fleiru. Úr þessum gögnum vinna síð- an börnin alveg upp á eigin spýtur, skrifa ritgerðir og teikna tilsvarandi myndir und- ir handleiðslu teiknikennarans. Þetta er gert í vinnubækur, og að tilskildum tíma loknum eru börnin látin lesa upp úr vinnubókunum fyrir bekkj- arféLaga sína, og í lok skóla- ársins eru þessar bækur sýnd- ar foreldrum og forráðamönn um barnanna. Börnin taka sjálf þátt I kennslunni. — Mér er sagt, að þið látið börnin annast kennsluna sjálf að einhverju leyti. — Já við höfum gert tilraun jr með það. Nokkrir krakkar eru fengnir til að vinna í sam- einingu að undirbúningi einn- ar kennslustundar, til dæmis í landafræði. Kennarinn kveð- , ur á um,' hvaða efni eigi að taka fyrir, útvegár uppsláttar- baekur og fleiri gögn um þetta ákveðna efni, en að öðru leyti sjá bömin alveg um þetta sjálf. Þau vinna úr gögnunum fyrirlestra gera spurninga- þætti og semja smáleikþætti um efnið og þetta flytja þau bekkjarfélögum sínum, sem hlýða á með athygli, óg punkta niður hjá sér, það sem þeim finnst mest um vert. Með þessu þjálfast börnin mjög í þvi að setja hugsanir sínar og skoð- anir fram á létt og lipurt mál, og hér er enn á ný um að ræða sameiningu á íslenzku- og lesgreinanámi því að íslenzk una notum við jú fyrst og fremst til að tjá okkur á töl- uðu máli. — Er þetta ekki erfitt við- fangs? — Nei, alls ekki. Það er byrjað á þessu strax og les- greinakennslan er tekin upp í 9 og 10 ára bekkjum og börn- in taka því eins og sjálfsögðum hlut. Það, sem aðallega gerir okkur erfitt fyrir, er skortur- inn á íslenzkum uppsláttarbók- um fyrir börn. Við höfum reynt að notast við danskar og sænskar bækur, en það er engan veginn gott, því að börn in skilja þær illa eða ekki. Ef halda á áfram með þessa kennsluaðferðir verður að gera stórt átak í bókaútgáfu fyrir börn og unglinga. — Hafa allir kennarar við skólann tileinkað sér þessar kennsluaðferðir? — Allflestir hafa gert það í einhverjum mæli, og þetta fyrirkomulag er bæði notað við góða bekki og slaka, en vitaskuld verður að miða verk- efnin við hæfileika nemend- anná og getu. — Hvernig er prófum hag- að við þessar aðstæður? — Þetta fyrirkomulag útt heimtir að kennararnir hafi mjög frjál&ar hendur með próf in og' miði þau við það, sem nemendurnir hafa verið látn- ir gera um veturinn. Þetta á þó ekki við um fullnaðarpróf í stafsetningu og reikningi, því að þau eru þau sömu í öllum skólum. Við höfum held- ur ekki tekið upp neinar nýj- ungar við kennslu í þeim greinum. Söngtímarnir eru vinsælustu kennslustundirnar. — Og svo er það tóhlistax- kennslan. — Já, hún hefur verið á margan hátt nýstárleg hér við skólann, einkum hvað snertir kynningu á æðri tónlist. Við erum svo heppinn að hafa hér við skólann frábæran tón- listarkennara, sem hefur vak- ið svo mjög tónlistaráhuga hjá börnunurq, að söngtímar eru líklega vinsælustu kennslu- stundirnar. Ég var einu sinni að furða mig á því, hvers vegna þeir krakfear, sem voru að fara í söngtíma, voru alltaf fyrst í röðina eftir frimínút- ur. En skýringuna fékk eg hjá þeim, jú, söngkennarinn hafði sagt, að ef þau værtt ekki fljót að koma sér í röð- ina, fengju þau ekki að hlusti á tónverk í söngtímanum. Þetta mundi eflaust mörgum þykja ótrúlegt. Ýmsir foreldr- ar hafa sagt mér, að 7—8 ára gömul börn þeirra kannist við tónverk, sem flutt eru í út- varpi, enda þótt sjálfir hafi þeir aldrei heyrt þau. Hugmyndina um að skynja liti eftir tónum fékk ég úr sænsku skólablaði og var svo heppinn, að fá til mín einmitt um þær mundir mann, sem bæði var menntaður teikni- og tónlistarkennari. Þessi að- ferð hefur gefið góða raun og margar Ijómandi skemmtileg- ar myndir hafa krakbarnir gert undir áhrifum af tónlist. Mig langar tii að taka það fram, að við höfum notið góðs skilnings bæjaryfirvaHanaa varðandi kaup á tækjum og fleiru, sem hefur gert okkur kleyft að taka upp þessar rý- stárlegu kennsluaðferðir. Kennurunum hefur verið búin prýðileg aðstaða til að nýta sem bezt hæfileikia sína, krafta og kunnáttu. Þeir eru yfirieitt allir frábærlega áhugasamir í starfinu. Þau vilja gjarnan leggja á sig aukavinnu. Að lokum þessum fróðlegu viðræðum við Hauk Helgason skólastjóra, ræddi bLaðamaður stundarkorn við Kristínu Tryggvadóttur kennara, en hún hefur mjög tileinkað sér hina nýju aðferðir við les- greinakennsluna. — Hefur þetta kennsluform ekki í för með sér mjög mikla aukavinnu fyrir bömin? — Jú, að sjálfsögðu, en þau eru áfjáð í þetta sjálf. Þau hafa ekki fyrr lokið stóru verk- efni en þau biðja um það næsta. — Hversu mörg verkefni eru að meðallali á vetri? — Það er nokkuð misjafnt Öldutúnsskóli I Hafnarfirðl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.