Alþýðublaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 5. maí 1984 ■RITSTJORNARGREIN- Útvarpið og hlutverk þess Utvarpið er ein merkasta stofnun þessa lands. Um áratuga skeið hefur það frætt og menntað, stytt þjóðinni stundir og veriö félagi I sorg og gleði. Þaö hefur tengt saman fámenna þjóð i stóru landi, og þjónað henni á marga vegu. Útvarþið er jafn ómiss- andi og náinn vinur. Útvarþið er alltaf til umræðu. Menn eru ánægðir með fjöimargt efni, sem það flytur okkur. Annað er harkalega gagnrýnt, og starfsmenn útvarpsins þurfa að leggja verk sln I dóm hlustenda á hverjum einasta degi. Þessi verk eru svo aftur spegilmynd af öðrum mannanna verkum. Það skyldi þvl engan undra þótt Útvarpiö hafi verið og verði umdeilt. Þannig á það að vera. Stofnunin mun aldrei geta gert öilum til hæfis. Utvarpið á að baki svo merkilega sögu, að reynast mun erfitt að skrá hana sómasamlega. Það verk þyrfti að hefja hið fyrsta og velja til þess hæfustu menn. Þar mun koma skýrt fram, að þrátt fyrir mikil- vægi stofnunarinnar, sem einn helsti miðill menn- ingar, fræðslu og skemmtunar á landi hér, hefur Útvarpinu ávallt verið búið hlutverk Öskubusku. Útvarpið hefur frá fyrstu tlð búið við einhver verstu skilyrði sem nokkurri opinberri stofnun hefur verið gert að búavið hérá landi. Þrenpsli og slakur tækjabúnaóur hefur verið hlutskipti Utvarpsins og það svo, að háö hefur verulega eðlilegri þróun til að koma til móts við kröfur nútímans. Þó hefur Útvarþið náð verulegum árangri. Stærstu skrefin hin slðari ár er aukin tækni I dreifikerfi, stereo-útsendingar, RÁS-2 og slðast en ekki slst Útvarþið á Akureyri, sem mjög er til fyrirmyndar. En þessi þróun hefur verið of hæg og hún hefur kailað á kröfur um frjálsan útvarpsrekstur. Þær kröfur eiga talsverðan hljómgrunn. En Útvarpið mun áfram þjóna mjög mikilvægu hlutverki. Þvl er gert aö nátil allra íslendinga með sendingum slnum, vera mikilvægur hlekkur I al- mannavarnakerfi, vera óhlutdrægt I frétta- og menn- ingarmiðlun og sjá þjóðinni fyrir fjölbreyttum og veigamiklum uþplýsingum. Mikilvægi Útvarpsins mun þvl ekkert minnka, þótt frjáist útvarp veröi að veruleika. Þaö verður þvl aö tryggja, að betur verði búið að Útvarþinu en veriö hefur. Nú loks eftir áratuga bar- áttu hillir undir að stofnunin eignist eigiö hús. Hún hefur alltaf búið I leiguhúsnæði. En þá gerist hið merkilega! Þingmaðureinn flytur tillögu um að nýja útvarþshúsið verði selt. Þetta er einhver furðuleg- asta tillögugerð, sem fram hefur komið á þingi um langt árabil. Þingamanninum hefði verið nær, að leggja til sölu á Seðlabankahúsinu, eða eignarhlut rlkisins I Islenskum aðalverktökum. En hann kýs fremur, að sneiða af einni helstu menningarstofnun þjóðarinnar, sem aldrei hefur notið sannmælis hjá stjórnvöldum. Væntanlega fær þessi tillaga þá með- ferð, sem hún á skiliö; að henni verði fleygt I rusla- körfuna. AG Kópavogsbúar Kópavogsbær mun starfrækja sumardvalarstað og skammtlma vistun fyrir þroskahefta á kom- andi sumri. Um er aö ræða dvöl fyrir einstaklinga á ýmsum aldri. Dvalartfmi hvers einstaklings fer eftir þörfum og getur bæði verið um styttri eða lengri dvöl að ræða. Tillgangur þessarar sumardvalar er fyrst og fremst að gera aðstandendum kleift að fara í sumarleyfi eða njóta skemmri hvildar. Nauðsynlegt er að umsóknir berist sem fyrst vegna skipulagningar þessa starfs. Upplýsingar veitir vinnumálafulltrúi I síma 41570. Félagsmálastjóri Lyfjatæknaskóli íslands Auglýsing um inntöku nema Lyfatækninám er þriggja ára nám. Umsækjandi um skólavist skal hafa lokið tveggja ára námi í framhaldsskóla (fjölbrautaskóla). Umsækjendur, sem lokið hafa prófi tveggja ára heilsugæslubrautar framhaldsskóla eða hliö- stæðu eða frekara námi að mati skólastjórnar, skulu að öðru jöfnu sitja fyrir um skólavist. Skóla- stjórn er heimilt að meta starfsreynslu umsækj- anda og er einnig heimilt að takmarka fjölda þeirra nema, sem teknireru í skólann hverju sinni. Vlsað er til Regiugerðar um Lyfjatæknaskóla ís- lands, nr. 196/1983, um námsgreinarog námsskip- an. Einnig eru allar upplýsingarveittar í skólanum f.h. alla virka daga. Umsókn skal fylgja eftirfarandi: 1. Staðfest afrit af prófskírteini. 2. Heilbrigðisvottorð á eyðublaði, sem skólinn lætur I té. 3. Sakavottorð. 4. Meðmæli skóla og/eða vinnuveitenda. Umsóknarfrestur er til 16. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans. Umsóknir skal senda til: Lyfjatæknaskóla íslands, Suðurlandsbraut 6, 105 Reykjavík. Skólastjóri Sigurður E. 1 Fjalakötturinn Aðalstræti 8 er eitt þeirra húsa, sem ofangreind ummæli eiga við . Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að þrátt fyrir 40 ára umleitanir eigenda hússins, hafa borgaryfirvöld aldrei viljað taka af skarið um málefni þess. Því síður hefur rikisvaldið látið sig nokkru skipta hver yrðu örlög þess. Til þessa hefur enginn aðili fengist til að taka á sig ábyrgð af endurreisn þess og framtíðarnotum og því er ekki sjáanlegur fjárhagslegur grundvöllur þar að lútandi. Virðast því örlög þess ráðin. í þessu sambandi er nauðsynlegt að minna á, að í bókun meirihluta Borgarráðs hinn 1.2. sl., er gerð var að tillögu Borgarstjóra, segir m.a., að „á það beri jafnframt að leggja áherslu, að það standi Þjóðminja- safni og / eða menntamálaráðu- neyti næst að friða húsið, ef þau rök, sem færð hafa verið fram fyrir friðun þess, standast“. í skýrslu Borgarstjóra til Borgarráðs um við- ræður viðræðunefndar við mennta- málaráðherra um varðveislu húss- ins, dags. 2.4. sl.., segir m.a., að fram hafi „komið af hálfu ráð- herra, að engin efni stæðu til þess af ríkisins hálfu, að það hefði atbeina að því að leysa til sín húsið og/eða ákveða friðun þess með þeirri kostnaðarþátttöku, sem því myndi óhjákvæmilega fylgja fyrir ríkið“. Af þessu er ljóst, að báðir þeir lykil- menn, sem hér um ræðir, vísa mál- inu frá sér. í stað þess að standa saman um björgun þess vill hvorug- ur hafast að og því blasir ekki nema eitt við. Með vísan til þessa er Ijóst, að fjárhagslegan grundvöll skortir fyr- ir varðveislu hússins. Ég er heldur ekki reiðubúinn til að standa að því, að Borgarsjóður einn fjármagni kaup þess og endurreisn. Því sit ég hjá við afgreiðslu málsinsþ segir í lok bókunar Sigurðar E. Guð- mundssonar. Ert þú undir áhrifum LYFJA? Lyf sem hafa áhrif á athyglisgáfu og viöbragösflýti eru merkt með LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Forstöðumaður Reykjavikurborg óskar eftir að ráða forstöðu- mann við Leikskólann Fellaborg við Völvufeil. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri eða um- sjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar barna, Forn- haga 8, i síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavikurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð ásér- stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 14. mai 1984. Tilkynning frá Hollustuvernd ríkisins Garðaúðun Þeir einir mega stunda garðaúðun, er fengið hafa' til þess leyfi Hollustuverndar rlkisins, samanber nánar 4. grein reglugerðar nr. 50/1984 um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar meindýra, með síðari breytingum. Leyfi til garðúðunar með efnum og efnasamsetningum í X og A hættuflokkum verða einungis veitt þeim er hafa gild leyfi til að mega kaupa og nota efni og efnasamsetningar i X-hættuflokki. Umsókn um leyfi til að mega stunda úðun garða skal sendatil heilbrigðiseftirlits viðkomandi heil- brigðiseftirlitssvæðis eða Hollustuverndar rfkis- ins, Síðumúla 13, 105 Reykjavík. ||| Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavfkur' tekur til starfa um mánaðamótin maf — júní n.k. í skólann verða teknir unglingar fæddir 1969 og 1970 og voru nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla Reykjvíkur skólaárið 1983 — 1984. Umsóknareyðublöð fást ( Ráðningarstofu Reykja- víkurborgar, Borgartúni 1, simi: 18000 og skal um- sóknum skilað þangað eigi slðar en 21. mai n.k. Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki hægt að tryggja skólavist. Vinnuskóli Reykjavikur. Borgarmálaráð Alþýðu- flokksins í Reykjavík Borgarmálaráðið er hvatt saman til fundar á venjuleg- um stað Austurstræti 16 n.k. þriðjudaginn 8. mai kl. 5 slðdegis. Vinsamlegast mætið vel og stundvlslega. Formaður.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.