Alþýðublaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 4
alþýðu- blaöiðV Laugardagur 5. maí 1984 Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guómundur Árni Stefánsson. TJlaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 DagurEvrópu — 35 ár liðin frástofnun Evrópuráðsins: Mikið starf unnið á sviði, félags— menn- ingar- vísinda- og stjórnarfarsmála Evrópuráðið var fyrsta pólitíska fjölþjóðastofnunin, sem sett var á fót í Vestur-Evrópu eftir heimstyrj- öldina síðari. í dag eru öll lýðræðis- ríki Evrópu aðilar nema Finnland. Eru aðildarríkin nú 21 með yfir 380 Ávarp Evrópuráðsins: Frelsi og Frelsi er frelsi til skoðanamynd- unar og tjáningar, ferðafrelsi, og frelsi gagnvart óréttmœtum ríkis- afskiptum. Frelsi er að búa í rétt- arríki, sem verndar einnig hags- muni minnihlutahópa. Frelsiþýð- ir réttindi til að taka þátt í mótun og vörslu lýðrœðisþjóðfélags. Sá sem játar frelsinu, er einnig sam- þykkur alþjóðahyggju og marg- háttaðri menhingu. Það er já við Evrópu. Evrópuráðið, sem samanstend- ur af 21 ríki, tryggir með mann- milljónir íbúa. Stofnsamningurinn var gerður 5. maí 1949 og gerðist ís- land aðili ári síðar. Hefur aðsetur stofnunarinnar frá upphafi verið í Strasborg í Frakklandi. Þótt margt. hafi breyst á þessum 30 árum í Evr- ópu eru markmið Evrópuráðsins svipuð og í upphafi, en ráðið hefur unnið mikið starf á sviði félags-, menningar-, vísinda-, stjórnarfars- mála og laga. Mannréttindamál eru ávallt í sviðsljósinu, en þar byggir Evróp- uráðið á langri reynslu. Sáttmáli að- ildarríkjanna um verndun mann- réttinda og mannfrelsis hefur stuðl- að að auknum skilningi víða um veröld á gildi og varðveislu þeirra mannréttinda, sem eru grundvöllur frelsis og lýðræðis. Evrópuráðið er eina starfandi fjölþjóðastofnunin, þar sem aðilar eru sammála um og hafa skipulagt samvinnu um ráð- stafanir til að tryggja það, að staðið sé við skuldbindingar aðildarríkja um verndun mannréttinda og mannfrelsis. Mannréttindanefnd og Mannréttindadómstóll Evrópu hafa frá upphafi fengið fjölda mála til afgreiðslu og dæmdi dómstóll- inn árið 1978 í fyrsta skipti í milli- ríkjamáli, en það var dómur í kæru írlands gegn Bretlandi um brot á mannréttindasáttmálanum. lýðræði réttindasáttmálanum vernd og þróunfrjáls svœðis sem yfirstígur landamæri. Ibúar þessa svæðis geta, gagnstœtt því sem tíðkast hjá meirihluta jarðarbúa beitt sér á opinskáan hátt fyrirpersónuleg- um, staðbundnum, þjóðlegum eða alþjóðlegum málum. Með þessu frelsi á ungt fólk möguleika á að taka sjálft framtíðina I sínar hendur. Virk þátttaka I lifandi lýðræði gefur hinum ófrjálsa heimi vonir — ogfrelsinu framtíð. Starfsemi Evrópuráðsins er stjórnað af ráðherranefndinni, sem utanríkisráðherrar aðildarríkjanna eiga sæti í og fer hvert ríki með eitt atkvæði, en ráðherranefndin kem- ur að jafnaði saman tvisvar í mán- uði í Strasborg. Þar af eru tveir ut- anríkisráðherrafundir, en fastafull- trúar sitja aðra fundi hennar í um- boði ráðherra. Ráðgjafarþingið er annar hluti Evrópuráðsins, en þar sitja þing- menn kosnir eða tilnefndir af þjóð- þingum aðildarríkja. Á Alþingi þrj- á fulltrúa á ráðgjafarþinginu og jafnmarga til vara. Ráðgjafarþing- ið kemur að venju saman þrisvar á ári. Er ráðgjafarþingið umræðu- þing Evrópuráðsins og elsta starf- andi fjölþjóðaþingið. Það ræðir þau mál, sem ofarlega eru á baugi í samskiptum aðildarríkja auk mál- efna Evrópu almennt. Ráðgjafar- þingið afgreiðir ályktanir og gerir tillögur til ráðherranefndarinnar um ýmisleg málefni og framkvæmd þeirra. Að venju starfar Evrópuráðið mikið að félagsmálum og er ísland virkur aðili að félagsmálasáttmála Evrópu. Er m.a. sérstaklega fjallað um félagsleg vandamál fatlaðra og endurhæfingu þeirra, öryggi á vinnustöðum, vandamál farand- verkamanna, fjölskylduvandamál og málefni neytenda. Þess má geta, að Viðreisnarsjóður Evrópuráðs- ins, hefur sl. 15 ár veitt veruleg lán til byggðamála á íslandi, eða sam- tals um 35 milljónir dollara. Mennta- og menningarmál hafa frá upphafi verið viðfangsefni Evr- ópuráðsins. Sett hefur verið á stofn sérstakt ráð, er nú fjallar um sam- vinnu á sviði menningarmála. Á vegum þess starfar sérstök nefnd um vandamál háskóla almennt og önnur stjórnarnefnd fjallar um íþróttamál. Menntamálaráðherrar aðildarríkja hittast auk þess reglu- lega. Æskulýðsmál eru orðin snar þáttur í starfsemi Evrópuráðsins, en sett hefur verið á stofn í Stras- borg Æskulýðsmiðstöð og Æsku- lýðssjóður. Báðum þessum stofn- unum er stjórnað af jafnmörgum fulltrúum ríkisstjórna og æskulýðs- samtaka. Nýtt hús fyrir æskulýðs- starfsemina var tekið í notkun í Strasborg á árinu 1978. Evrópuráðið starfar einnig að. umhverfis- og náttúruverndarmál- um. Samþykktar hafa verið ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir mengun vatns og sjávar og á þessu ári verður haldin í Sviss þriðja ráðstefna ráð- herra Evrópuráðsríkja um um- hverfismál. I þessu sambandi hefur verið lögð áhersla á þýðingu menn- ingararfleiðar Evrópu og unnið hefur verið að því að vekja áhuga almennings á verndun fornminja þ.á m. fornminja neðansjávar. Heilbrigðismál lætur Evrópuráð- ið verulega til sín taka, en aðalverk- efnin á þessu sviði eru samræming löggjafar og skipulagning heil- brigðismála i aðildarríkjum. Þess má geta, að starfræktur er í Amsterdam blóðbanki sjaldgæfra Framhald á bls. 3 Vöraskiptajöfimðuriim ó- hagstæðari í ár en Hagstofan hefur sent frá sér fréttatilkynningu um verðmæti út- flutnings og innflutnings á tímabil- inu janúar- mars 1984. Þar kemur fram að vöruskiptajöfnuðurinn er mun óhagstæðari í ár en á sama tíma í fyrra. Útflutningsverðmætin voru rúm- lega 4,9 milljarðar króna, en á sama tíma í fyrra rúmlega 3,2 milljarðar. Innflutningsverðmætin voru hins- vegar tæpir 6 milljarðar króna, en í fyrra tæpir 3,5 milljarðar. Vöru- skiptajöfnuðurinn er því óhagstæð- ur um tæpar 542 milljónir, en var á sama tíma í fyrra óhagstæður um rúmar 233 milljónir. Hallinn á vöruskiptajöfnuði er því rúmum 300 milljónum meiri í ár en í fyrra. Sé hinsvegar litið á mars einan kemur i ljós að vöruskiptajöfnuð- urinn var hagstæður um 207 millj- ónir króna, en í mars í fyrra var hann óhagstæður um 109,7 millj- ónir. Ál, álmelmi og kísiljárn eru stærstu útflutningspóstarnir ÁI og álmelmi voru flutt út fyrir um 750 milljónir og kísiljárn fyrir rúmar 257 milljónir króna. Á hitt ber að Iíta að sömu aðilar eru stærstu inn- flytjendurnir. íslenska álfélagið flutti inn fyrir 398,28 milljónir króna og íslenska járnblendifélagið fyrir 124,45 milljónir króna. Til fróðleiks má geta þess að Landsvirkjun flutti inn vörur fyrir tæpar 6 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra höfðu þeir flutt inn fyr- ir rúmar 13 milljónir. Kröfluvirkj- un hafði þá flutt inn fyrir rúmar 8 í fyrra milljónir en í ár fyrir aðeins 668 þúsund krónur. Þo hallinn á vöruskiptajöfnuði aukist sjáum við að það er ekki vegna stórframkvæmda í landinu. Rétt er að hafa í huga þegar þess- ar tölur eru skoðaðar, að meðal- gengi erlends gjaldeyris í janúar- mars 1984 er 41,5% hærra en á sama tíma í fyrra. Mýs eru nagdýr. Efnahagsaðgerðir ríkissjórnarinnar lítil mús. Á að redda gat- inu með því að láta músina naga í kant- ana! MOLAR Hróarskelduhátíðin Dagana 29. júní til 1. júlí verður Hróarskelduhátíðin haldin 13 ár- ið í röð. Óhætt er að fullyrða að hátíðin er einn stærsti alþýðutón- listarviðburður í Evrópu, hvort sem litið er á hana út frá peninga- sjónarmiði, fjölda áhorfenda, fjölda Iistamanna og þekktra fíytjenda alþýðutónlistar. Áætlaður kostnaður við hátíðina er um 10,5 milljónir danskra króna og búist er við 35.000 - 40.000- gestum. í fyrra voru gest- irnir rúm 50.000. Meðal þeirra listamanna, sem munu skemmta áhorfendum, eru Lou Reed, Poul Young, New Order, The Band og Johnny Winter. Alls munu um 50 lista- menn troða uppi á þrem sviðum mótsins. Ágóðanum af hátíðinni er varið • til að skapa atvinnu í þágu barna og unglinga og til annarrar mannúðarstarfsemi. í fyrra var ágóðinn af hátíðinni um 1,8 millj- ónir danskra króna. Jesús í kvenlíki. Var Jesús kona? Ameríski mynd- höggvarinn Edwina Sandy hefur þá skoðun að minnsta kosti. Hún hefur nú gert höggmynd af Jesús á krossinum í kvenmannslíki. Höggmyndinni hefur verið komið fyrir í dómkirkju • heilags Jóhannesar í New York. Og hver eru svo viðbrögð kirkjugesta? Yfirleitt jákvæð, að sögn James Park Morton, formanni safnað- arins, sem hefur ekkert á móti kvennlegum Jesús í kirkju sinni. • Listaverkafjársjóður frá nasistum Eftir því sem tyrkneskt dagblað segir er mikið af listaverkum sem nasistinn Hermann Göring lagði eignarhald á í heimstyrjöldinni síðari, geymt í hólfi í aðalbanka TVrklands. G ör ing hafði gefið frænku sinni, sem heitir Lora, listaverkin. Kon- an var gift velþekktum viðskipta- jöfri í Týrklandi. Hann hét Habib Adip Torehan og hafði auðgast á bómullarflutningum til þriðja ríkisins. Torehan dó í lok sjöunda áratugarins eftir að hafa flúið Tyrkland vegna fjármálahneyksl- is. Nýlega fór Lora Torehan á fund sendiráðs Týrklands í Genf, og vildi fá afhent það sem fyrrver- andi eiginmaður hennar hafði sett í geymslu í Ottoman-bankanum í Ankara. Er álitið að hér sé um listaverkafjársjóð Görings að ræða. Dýrkeypt fyllerí. Þó vodkinn sé ódýr í Sovét getur samt verið ansi dýrt að drekka hann þar. Tveir finnskir mennta- skólanemar komust að því nýlega. Þeir fóru í skólaferðalag^ til Leningrad og dvöldu þar á fínu hóteli. Um kvöldið duttu þeir í það ásamt félögum sínum og í hita leiksins voru þeir manaðir til að afklæðast og baða sig í gos- brunni hótelsins. Klukkan var tvö að nóttu en einsog allir vita þá er Sovéska lögreglan sjaldan sofandi á verðinum. Menntaskólanem- arnir voru handteknir og færðir fyrir rétt. Þeir voru dæmdir sam- kvæmt 206 grein laga um gróft brot á friði og spekt á opinberum stöðum. Dómurinn hljómaði upp á eins árs þrælkunarvinnu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.