Alþýðublaðið - 10.05.1984, Síða 18

Alþýðublaðið - 10.05.1984, Síða 18
18 Fimmtudagur 10. maí 1984 Fundur Alþ jóðasambands jafnaðarmanna í Danmörku: Alþjóðasamband jafnaðar- manna hélt fund í Skagerup í Danmörku dagana 24,21. apríl sl. undir forsæti Willy Brandt for- manns alþjóðasambandsins. Meginefni fundarins voru þrjú, efnahagsástandið í heiminum, mál- efni suðurhluta Afríku og sú kyn- þáttastefna sem þar ríkir, og í þriðja langi ástand og horfur í Suður- og Mið-Ameríku. Meðal þátttakenda á fundinum voru Anker Jörgensen, Olof Palme, Gro Harlem, Brundtland, Erkki Liikanen, ritari finnska jafnaðar- mannaflokksins, Whitlam fyrrum forsætisráðherra Ástralíu, Claes fyrrum forstæisráðherra Belgíu, Jospin, ritari franska jafnaðar- mannaflokksins, Wischnewsky frá Þýskalandi, Harrington frá Banda- ríkjunum og Biilent Ecevit fyrrum forsætisráðherra Tyrklands. Kjart- an Jóhannsson formaður Alþýðu- flokksins sat fundinn fyrir íslands hönd. Á fundinum voru allmargir full- trúar frá Mið- og Suður-Ameríku annars vegar og Afríku hins vegar, til þess að afla sér þekkingar, reynslu eða menntunar á íslandi. Þetta virtist koma báðum mjög á óvart og er til marks um það að stofnsetning sjóðsins hefur lítið sem ekki verið kynnt á Grænlandi, enda hefur nú verið ákveðið að kynna sjóðinn í grænlenskum blöð- um.“ Kjartan sagðist ráða það af samtölum sínum við Lynge að mikill áhugi væri á því í Grænlandi að auka samskiptin við okkur og Ieitast við að koma á meiri sam- vinnu. Nú væri mikið undir því komið að íslendingar sýndu áhuga sinn í verki og sýndu þessari grann- þjóð okkar ræktarsemi og stuðn- ing. Rennur efnahagsbatinn í Bandaríkjunum út í sandinn Eitt af meginumræðuefnunum á fundinum var efnahagsástandið í heiminum. Framsögn um þessi mál höfðu Jospin frá Frakklandi og Perez frá Venezúela. Jospin ræddi einkum um hlutverk Kjartan Jóhannsson með Ecevit, leiðtoga tyrkneskra jafnaðarmanna Kjartan Jóhannsson sat fundinn af hálfu Alþýðu- flokksins og mun það meðal annars skýra þá samninga, sem þau hafa þrátt fyrir allt gert við Suður-Afríku. „Um þetta var þó engin ákvörun tekin og líklega eiga svona hugmyndir langt í landý sagði Kjartan. Mikilvæg og gagnleg samvinna jafnaðarmanna um allan heim enda voru málefni þessara heims- hluta meðal umræðuefna. Úr þess- um hópi fulltrúa frá Suður- og Mið- Ameríku má nefna Manuel Ungo frá E1 Salvador og Perez fyrrum forseta Venezuela. Einnig voru fulltrúar frá Barba- dos, Jamaica og Guatemala og áheyrnarfulltrúar frá Brasilíu, Hondúras og Nicaragua. Úr hópi Afríkuríkja má nefna Senghor forseta Senegal og áheyrn- arfulltrúa frá SWAPO, Tansaníu, Zambíu og Angóla. í heild sátu fundinn fulltrúar 44 þjóða víðs vegar að úr veröldinni, þar á meðal frá Grænlandi, en það bar m.a. til tíðinda á fundinum að SIUNUK flokknum grænlenska var veitt aðild að Alþjóðasamband- inu. Rætt um samskipti við fulltrúa Grænlands. Kjartan Jóhannsson gat þess í viðtali við Alþýðublaðið í þessu sambandi að hann hefði notað tækifærið til þess að ræða sam- -skipti íslands og Grænlands við Finn Lynge, fulltrúa Grænlend- inga. Sagðist Kjartan hafa látið í ljós áhyggjur íslendinga vegna heimil- aðrar veiði útlendinga við Græn- land og hins vegar ósk fslendinga um nánari samvinnu þjóðanna m.a. varðandi fiskveiðar og hafrann- sóknir. „Sömu atriði gerði ég einnig að umtalsefni við blaðamann frá Grænlandspóstinumý sagði Kjart- an „ um leið og ég vakti athygli á því að stofnsettur hefði verið sérstakur Grænlandssjóður á íslandi með því markmiði að efla samskipti þjóð- anna og styrkja m.a. Grænlendinga Evrópu í að stuðla að hagvexti í heiminum og nauðsyn þess að Evrópuþjóðir stæðu saman að efnahagslegum aðgerðum, enda taldi hann hæpið að sá efnahags- bati sem fram hefði komið í Banda- ríkjunum yrði sú lyftistöng fyrir efnahagsástandið í heiminum, sem oft væri gert ráð fyrir, nema Evrópuríki sameinuðu krafta sína. Um þetta atriði sagði Kjartan að það hefði komið glöggt fram að það sem skorti væri skilningur þeirra íhalds- og hægristjórna sem væru við stjórn í Evrópu á því, að þær yrðu að fylgja hagvaxtar- stefnu. Átakið yrði nefnilega að vera til sömu áttar í öllum löndun- um, annars kæmi árangur ekki fram nema í mjög takmörkuðum mæli. Hættan væri sú að Evrópu- þjóðirnar yrðu of seinar á sér og hagvaxtarkippurinn í Bandaríkjun- um fjaraði út. í þessu sambandi var líka varað við því að núverandi hagvöxtur í Bandaríkjunum mundi líklega ekki endast nema fram á árið 1985. Skuldaþjóðirnar hafa misst, efnahagsstjórn úr eigin höndum Perez, fyrrverandi forseti Venezúela, gerði á hinn bóginn sér- staklega að umræðuefni ástandið í þróunarlöndunum og skuldabagga þeirra. Hann benti m.a. á að margar þeirra þar á meðal sum ríki Suður- Ameríku yrðu nú að taka ný lán, meira að segja fyrir vöxtunum af þeim lánum sem á þeim hvíldu. Þessar aðstæður væru gjörsamlega óviðunandi fyrir fólkið í þessum löndum. Þetta ásamt ströngum efnahagsskilyrðum, sem Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn setti fyrir lán- um sínum, hindraði efnahagslegar framfarir. í því fælist mikil hætta. Perez taldi, að grípa yrði strax í taumana og viðurkenna þörf þess- ara ríkja fyrir mikilli lengingu á lánstíma. Ef ekki yrði strax leyst úr málinu gætu hlotist af hinar verstu afleiðingar, ekki bara í þessum þróunarlöndum heldur einnig hjá iðnríkjunum. Hann taldi að þetta ástand gæti sprungið í höndunum á mönnum með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. Kjartan sagði, að í máli Perezar hefði komið glöggt fram, að vegna þessarar skuldasöfnunar væru mörg þessara landa búin að missa raunverulega efnahagsstjórn úr eig- in höndum og í hendur erlendra peningastofnana og Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. Sjóðurinn og pen- ingastofnanir settu alls konar skil- yrði fyrir lánum sínum sem þýddu að enn frekar væri þrengt að fólk- inu og lífskjörin stórlega rýrð. „í þessu felst mikil og alvarleg áminning til okkar íslendinga,“ sagði Kjartan. „Við höfum sökkt okkur í erlendar skuldir eins og þessar þjóðir. Hingað til hefur þetta bjargast hjá okkur af því að lán okkar hafa verið til lengri tíma heldur en hjá þessum bræðrum okkar í skuldasöfnun. Nú er hins vegar fylgt þeirri stefnu hér að taka ný lán fyrir afborgunum af gömlum lánum og bæta sífellt við meiri og meiri erlendum lánum. Ríkisstjórn- in ætlar að bæta 4000-5000 milljón- um við erlendu skuldirnar á þessu ári. Mig hryllir við því að við getum lent í sömu aðstæðum og þessar hinar skuldaþjóðirnar og Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn og aðrar er- lendar peningastofnanir setji okkur stólinn fyrir dyrnar í efnahagsmál- um og fyrirskipi okkur aðgerðir, sem við ráðum engu um. Þá er sjálf- stæði okkar í landstjórn raunveru- lega glatað. Við verðum að læra af því sem er að gerast í kringum okk- ur, en ekki að fljóta sofandi að feigðarósi." Ráðstefna um kynþáttaaðskilnað Annað aðalumræðuefnið var ástandið í suðurhluta Afríku. Full- trúar þjóða þaðan létu í ljós bitur- leika og hryggð yfir því að ekkert miðaði í því að afnema kynþáttaað- skilnað í Suður-Afríku, né heldur að fá blökkum íbúum þar og í Namibíu sjálfsákörðunarrétt. Ákveðið var á fundinum að Al- þjóðasambandið efndi til ráðstefnu í september n.k. í Tanzaníu um þessi málefni. Mundu þar hittast fulltrú- ar ýmissa jafnaðarmannaflokka og fulltrúar þjóða á þessu svæði. Ráð- stefnunni er ætlað að sýna stuðning við frelsishreyfingarnar í Suður- Afríku jafnframt því að veita tæki- færi fyrir fulltrúa jafnaðarmanna- flokkanna til þess að gaumgæfa með hvaða sérstökum aðgerðum þessir flokkar geti stutt þessar frelsishreyfingar með sem bestum hætti. Kjartan sagði að í þessu sam- bandi hefði verið reifað annars veg- ar sú hugmynd að koma á fjárfest- ingarbanni erlendra fyrirtækja í Suður-Afríku og hins vegar að styrkja grannríkin sérstaklega t.d. til endurbyggingar í samgöngumál- um, en staðreyndin er sú að þau eru háð Suður-Afríku við að koma afurðum sínum á erlendan markað Nokkur bjartsýni í Suð- og Mið-Ameríku Þriðja aðalefni fundarins var málefni Suður- og Mið-Ameríku. Umræðan fór fram í skugga þess að Bandaríkjamenn höfðu þá einmitt komið fyrir tundurduflum við strendur Nicaragúa. Var það harð- lega fordæmt sem brot á alþjóða- lögum og var óspart vitnað í banda- ríska lögfræðinga því til stuðnings og reyndar hægri þingmenn banda- ríska eins og t.d. Goldwaters. Bent var á að ekki gætu fengið að gilda ein lög fyrir stórþjóðir og önnur fyrir smáþjóðir og neitun Banda- ríkjastjórnar að hlíta alþjóðalögum og alþjóðadómstólum í Haag í þessu sambandi væri með öllu forkastanleg. f Um málefni Suður- og Mið- Ameríku var samþykkt mjög ítarleg ályktun, þar sem meðal annars var fjallað sérstaklega um ástandið í hinum einstöku ríkjum mörgum hverjum. í henni gætti þrátt fyrir allt nokkurrar bjartsýni á þá þróun, sem framundan væri. Bent var á að megin orsök vandans í þessum þjóðlöndum lægi í misrétti og skorti á raunverulegu lýðræði, er hvoru tveggja væri rótgróið í þess- um heimshluta. Alþjóðasamband- ið ályktaði að eina leiðin til árang- urs væri fólgin í raunverulegum frjálsum Iýðræðislegum kosning- um og félagslegu, efnahagslegu og pólitísku lýðræði. „í ályktuninni og umræðunum kom framý sagði Kjartan, „að menn teldu að þær kosningar sem hefðu verið haldnar og fyrirhugað- ar væru sums staðar núna mættu ekki þessum lýðræðisskilyrðum í reynd. Á hinn bóginn væru þær Bandaríkjamaðurinn Harrinton, ásamt kanadískum Kjartan ásamt Manuel Lengo frá El Salvador jafnaðarmönnum Whitlam og fleiri leiðtogum jafnaðarmanna.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.