Alþýðublaðið - 10.05.1984, Blaðsíða 19

Alþýðublaðið - 10.05.1984, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 10. maí 1984 19 skref í rétta átt, þótt þær leystu ekki ætíð þann vanda sem við væri að fást“. Látin var í ályktuninni í ljós von um að kosningarnar sem þoðaðar hafa verið í Nicaragua í nóvember mundi verða spor í rétta átt. „Á hinn bóginn verða menn að hafa í huga að þar hafa aldrei farið fram kosningar, manntal er ekki til og frelsi er takmarkað" Varðandi kosningarnar í El Salvador var bent á að þær mundu ekki leysa ágrein- ingsmálin þar í landi, enda geta þær ekki talist frjálsar, þegar sumum er meinuð þátttaka og mannréttindi öll fótum troðin. í ályktuninni var tekið undir kröfuna um að beinar, frjálsar for- setakosningar fari strax fram í Brasilíu, látin var í ljós von um já- kvæða þróun í Hondúras og Panama og fagnað þeirri þróun sem átt hefur sér stað í Argentínu og Venzúela, en kúgunin í Haiti harðlega fordæmd, svo dæmi séu tekin. Að endingu var fjallað um hið lélega efnahagsástand í þessum heimshluta og þvi hafnað að Al- þjóðagj aldeyrissj óðurinn þj armaði svo að þessum þjóðum sem raun ber vitni. Mikilvæg samskipti Af öðrum umræðuefnunum á fundinum má nefna ástandið í Mið- austurlöndu og á Kýpur, en um það kom til harðra orðaskipta milli Búlent Ecevit fyrrv. forsætisráð- herra Tyrklands og grískra Kýpur- búa. Þá var vígbúnaðarkapphlaupið nokkuð rætt, en um takmörkun víg- búnaðar og afvopnun hafði áður verið samþykkt ítarleg ályktun, svo að því var ætlaður lítill tími á þing- inu. ,,Þetta þing var mjög fróðlegt,“ sagði Kjartan. „Þarna komu fram margar mikilvægar upplýsingar og þarna gafst tækifæri milli þing- funda til þess að ræða margvísleg málefni í persónulegum samtölum við ýmsa forystumenn jafnaðar- manna viðs vegar að úr heiminum. Ég tel okkur mjög mikilvægt að taka þátt í þessum þingum alþjóða- sambands jafnaðarmanna, eftir því sem við höfum frekast tök á.“ Uppgjöf 1 heilög vé að dómi ríkisstjórnar- innar, við þeim kemur ekki til greina að hrófla. Sannleikurinn er sá að ríkisstjórnina skortir þrek og siðferðisstyrk til þess að taka á efnahagsmálunum með skynsam- legum og réttlátum hætti. Árangurinn af efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar blasir við, það hefur tekist að ná verðbólgunni niður og vel er það, en við búum við hörmulega léleg lífskjör. Kaup í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við, muna vera um 30-40% hærra en á íslandi, en verðlag á nauðsynjum er 15-20% hærra hér. Það gengur ekki að hafa hér langtum verri lífskjör en' í grannlöndum okkar og það gengur ekki að halda áfram að safna upp erlendum skuldum. Með því móti er hætt við því að ýmsum detti í hug að fylgja for- dæmi fjármálaráðherra og flytj- ast með honum til Frakklands eða annars útlands. Varla getur það verið markmiðið að aðrir segi eins og hann að ætlunarverkinu þeirra hér sé senn lokið og að þeir hafi ekki meira að gera á íslandi til frambúðar. Það er umhugsunarefni ef stefna ríkisstjórnarinnar væri rétt. Hvað myndi gerast ef kaupið hækkaði. Samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar þá mundi það einungis þýða það að verðbólgan yxi á ný og það væri ómögulegt með öllu að bæta hér lífskjör. Ríkisstjórnin er sem sagt með stefnu sinni að dæma þjóðina til lélegra lífskjara. En það er rangt að þetta þurfi að vera svona. Þessi örlagadómur byggist nefnilega á rangri efnahagsstefnu. Það sem vantar eru kerfisbreytingar. Kerf- isbreytingar í atvinnumálum, í fjárfestingarmálum, í ríkisbú- skapnum, í velferðarmálum og í byggðastefnu. Og það vantar við- horfsbreytingar gagnvart at- vinnuvegunum, gagnvart fyrir- Framhald á bls. 22 Sjálfsbjörg í Reykjavík og nágrenni Minnir félaga sína á félagsfundinn í kvöld kl. 20 I félagsheimilinu Hátúni 12. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsambandsþing. 2. Önnur mál. MÆtið vel. Stjórnin. Innlegarþakkirfæri ég öllum þeim, sem glöddu ■ mig í orði og verki á sextugs afmæli mínu þann . I22. apríl sl. Vinátta ykkar verður mér ógleymanleg. \ Lifið heil Ólafur Björnsson Keflavík. L ■ m—mmmm m mmmmmmm m mm^mmmm m mmm—mmm m mmmmmmmmm m t^m^mmm m •m—mmmm m hJ| Utboð Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboðum f: RARIK-84007 Stauradreifispennar. Opnunardagur: mánudagur25. júní 1984, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opn- unartíma og verða þau opnuð á sama stað að við- stöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna rfkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 10. maí 1984 og kosta kr. 100,00 hvert eintak. Reykjavik 8. maí 1984 Rafmagnsveitur ríkisins Okkar menn íRotterdam (ef þú hringir beint) öfugt) er einfaldast og áhrifaríkast að nýta sér símatæknina og ofangreinda þjónustu Hafskips. Starfsfólk Rotterdam skrifstofunnar þau Bragi Ragnarsson, Bonnie Looijenga, Rob Rohde og Anneke de Jong munu svara spurningum þín- um og leysa málin. Viljirðu frekar nota telex er númerið 62301 hskip nl. Þessi þjónusta er til þæginda fyrir þig. Notfærðu þér hana. Okkar menn,- þinir menn SS HAFSKIP HF. Hafskip hf. hefur opnað eigin skrifstofu í Rotterdam. Það er liður í flutningi markaðsstarfsemi til stærstu sam- gönguhafnanna félagsins erlendis. Hagræði af þessu er ótvírætt. Þú getur verið í beinu sambandi við þann stað sem þér hentar þegar þér hentar. Okkar menn hafa sérþekkingu á flutn- ingum hver á sínu svæði. Það sparar tíma og eykur öryggi. Slíkt er ómetan- legt því tíminn í vöruflutningum er dýrmætur. Þá er mikilvægt að vita að íslenskir aðilar gæta íslenskra hagsmuna erlendis. Þurfir þú að afla þér nákvæmra upp- lýsinga samstundis um vöruflutninga milli staða á meginlandi Evrópu og áframhaldandi flutningatil íslands (eða

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.