Alþýðublaðið - 02.06.1984, Síða 2

Alþýðublaðið - 02.06.1984, Síða 2
2 Laugardagur 2. júní 1984 ‘.RITSTJ ÓRNARGREIN "■ . Njótum lands, níðum ei „Viö islendingareigum engadýrmætari eign en landið okkar, þjóöerni og tungu. Um þá þrenningu erum við reiðubúin að standa vörð. Okkur ber því að gefa henni gaum alla daga og skila tii vaxandi fjölda landsins barna svo ó- snortna sem kostur er. Okkur ber einnig skylda til að miðla öllum nýjum þegnum af reynslu okkarog þekkingu um það hvernig best verð- ur staðið að varðveislu og uppbyggingu." • Þannig kemst forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, aö orði í ávarpi sinu vegna „Átaks ’84“, sem Ferðamálaráð íslands efnir til og beinist að auknum ferðalögum íslendinga um eigið land og bættri umgengni. Helsta slagorð þessa átaks er „Njótum lands, níðum ei“ og annað er: „Arfleiðum börnin að enn betra landi“. í orðum forseta íslands kemurfram hvatning til þjóðarinnar allrar að fara vel með þá verð- mætu eign, sem okkarkynslóð hefurverið falin til gæstu og umhirðu, og að skila henni enn betri til komandi kynslóða. Þetta var einnig rauði þráðurinn i rökstuðningi fyrir þjóðargjöf- inni miklu, þegar ákveðið var að bæta þær skemmdir, sem fólk, fénaðurog náttúruöfl hafa unnið á landinu frá landnámsöld. Þá var tak- markið að komagróðri í svipað horf og var, þeg- ar fyrstu norrænu mennirnir stigu hér á land. En það er margt sem hjálpast að til að gera þessa baráttu erfiðari. Nútíma samgöngur eru slíkar, að hver maður kemst hvert sem hann vill á góðum ökutækjum. Enginn reitur er óhultur. Takmörkuð beitarstjórn hefur valdið því, að víða hefur beitarþungi stórskemmt land. Upp- blástur og eldgos hafa hjáipað til. Almennri umgengni hefur mjög verið ábóta- vant. Þettaá bæði við um þéttbýli og dreifbýli. Hverskonar plastefni gera mikinn usla í náttúr- unni, og notkun þeirra gerir kröfu til mun meiri umhirðu og þrifa. Víða er sorpeyðing í slæmu horfi, umgangurvið stóra vinnustaði slakurog einnig við marga sveitabæi. Aksturskeppnir af ýmsu tagi krefjast betra skipulags, og ekki má gleyma stöðugt auknum fjölda erlendra ferðamanna, sem kemur til landsins með eigin bifreiðir, oft voldugar fjalla- bifreiðir. — Boð og bönn er ekki aigild aðferð til að draga úr gróðurskemmdum; miklu f remur fræðsla og leiðbeining. Einmitt að þessum þætti beinist sú herferð, sem Ferðamálaráð beitir sér fyrir. íslendingar verða að taka þátt i þeirri viðleitni að gæta þess dýrmætasta, sem þeir eiga. Takmarkið felst í lokaorðum ávarps forseta íslands: „Það átak sem nú skal gert í gróðurvernd og gróðuraukningu er ekki nema brot af því, sem við skuldum landinu. Það er aðeins upphaf skrefs á langri leið að settu marki: að gera ís- land eins gróðurríkt og það var er menn völdu það af frjálsum vilja sem ættjörð sína.“ - ÁG - er frjáls og óháð félagssamtök hraðfrystihúsaeigenda. Fyrirtækið er stofnað árið 1942 í þeim tilgangi að sjá um eftirfarandi fyrir félagsaðila: Tilraunir með nýjungar í framleiðslu og sölu sjávarafurða Markaðsleit Innkaup nauðsynja Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna Áheit og gjafir til Stokkseyrarkirkju á árinu 1983 Seld Minningarspjöld Kr. 7.890,00 Áheit: G.J. Kr. 100,00 N.N. — 300,00 Hjördís I. — 300,00 Guðrún Sturlaugsdóttir — 100,00 Bjarnþór Bjarnason — 300,00 Ingólfur G. — 300,00 S.H. — 100,00 Dúa frá Sæborg — 500,00 G.V.J. — 250,00 N.N. — 200,00 G.J. — 100,00 R.J. — 200,00 B.G.B. — 300,00 — 3.050,00 Gjafir: N.N. Kr. 200,00 Ágúst Bjarnason — 500,00 Árni Ólafsson — 100,00 Ingóifur Gunnarsson — 300,00 Til minningar um Sigurð Ingiberg Gunnarsson frá Strönd Stokkseyri frá I.E. — 500,00 Sætún — 200,00 — 1.800,00 Samtals Kr. 12.740,00 Séra Jónas Jónasson frá Hrafnargili, segir í bók sinni íslenskir ÞjóðhEéttir á bls. 373 meðal annars. „Menn trúðu lengi á helga og vigða hluti, t.d. Gvendarbrunna, Strandakirkju Dg Stokkseyrar- kirkju og fl. einnig segist hann hafa heyrt að gott væri að heita á nefndar kirkjur" Margir hafa heitið á Stokkseyrarkirkju undanfarin ár og oft er það sama fólkið og virðist sem áheitin hafi gengið eftir. Sóknarnefnd Stokkseyrarkirkju færir öllum bestu þakkir. Tæknifræðingur óskast til starfa úti á landi. Umsóknum skal skila til Vegagerðar ríkisins, Borgar- túni 7, 105 Reykjavík, fyrir 20. júní n.k. Vegamálastjóri. Aðalfundur S.I.F. Aðalfundur Sölusambands íslenskra fiskfram- leiðenda fyrir árið 1983 verður haldinn að Hótel Sögu 7. júní n.k. og hefst kl. 10 f.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.