Alþýðublaðið - 02.06.1984, Page 7
7
Laugardagur 2. júní 1984
Fiskeldi Grindavíkur hf — nýstofnað:
Hlutafélag um fiskrækt og hafbeit
Stofnað hefur verið í Grindavík
hlutafélag um fiskrækt og hafbeit.
Nafn félagsins er Fiskeldi Grinda-
víkur h/f.
Að stofnun félagsins standa vel-
flest fyrirtæki í Grindavík, þau er
útgerð stunda og fiskverkun, auk
Hagvirkis h/f og Vélsmiðju Orms
og Víglundar s/f í Hafnarfirði og
fiskeldisfyrirtækisins Eldis h/f,
Húsatóftum við Grindavík.
Félagið hyggst koma á fót eldis-
stöð á næstu árum, sem framleitt
getur 800-1000 t af laxi árlega.
Fengist hafa jákvæðar undirtektir
Iandeigenda um athafnasvæði til
handa félaginu vestan Grindavíkur.
Jafnframt er fyrirhugað að nýta
jarðvarmaorku til upphitunar sjáv-
ar, þannig að vaxtarskilyrði verði
sem best allt árið um kring og er
þess vænst að samningar takist við
Hitaveitu Suðurnesja um varma- og
raforkuviðskipti. Fyrsti áfangi
eldisstöðvarinnar, 100 t að stærð,
byggður á þessu og næsta ári,
þannig að starfsemi mun hefjast á
miðju næsta ári. Hér er um nokkurs
konar tilraunaáfanga að ræða, sent
notaður verður til að þróa tilhögun
og aðferðir áður en lagt er í stærri
framkvæmdir.
Félagið hyggst einnig beita sér
fyrir hafbeit á laxi og eldi annarra
fisktegunda í framtíðinni auk
krabba- og skelfiskræktunar.
Sömuleiðis hefur félagið huga á
þátttöku í innlendri fóðurfram-
leiðslu, sem nýtir íslenskt sjávar-
fang og jarðgufu til framleiðslunn-
ar. Einnig er áhugi á úrvinnslu-
greinum í tengslum við tramleiðsl-
una svo sem reykingu og niðursuðu.
Stofnkostnaður við fyrsta áfanga
er áætlaður um 35 Mkr á verðlagi i
jan. sl.
Stjórn félagsins skipa: Guð-
mundur Þorbjörnsson, Gjögri h/f,
formaður, Aðalsteinn Hallgríms-
son, Hagvirki h/f og Björgvin
Gunnarsson, Fiskanesi h/f, með-
stjórnendur og Ágústa Gísladóttir,
Gullvík h/f, varamaður. Fram-
kvæmdastjóri er Jónas Matthías-
'son, verkfræðingur, Hafnarfirði.
Óskar 1
hirða ekki einu sinni um að greiða
atkvæði, þá er eitthvað meira en lít-
ið að. Það spilar nú auðvitað veru-
lega inn í að sjómenn eru í erfiðri
aðstöðu. Það var slegið veigamikið
vopn úr höndum okkar með kvóta-
kerfinu og svigrúmið því ekki sem
skyldi. En hitt er víst, að ef ekki
verður hlustað á okkar mál og veru-
leg breyting verður ekki komin til á
haustdögum, þá stefnir í stórfelld
átök.
Ég vil að lokum skora á útgerðar-
menn að fara að tilmælum hæst-
virts sjávarútvegsráðherra um að
lofa sjómönnum að taka þátt í sín-
um hátíðarhöldum. Þá vil ég nota
tækifærið i tilefni dagsins og færa
hinni íslensku sjómannastétt kveðj-
ur og árnaðaróskir“, sagði Óskar.
Q TRAUST h£
Sími 91-83655
Sjálfvirk
saltdreifing
Snigilmötun á salti í
dreifikassa.
Sérstakur umsöltun-
arbúnaður, auðveld-
ur og öruggur í notk-
un.
• Enginn mokstur
• Spararerfiöi
• Spararvinnu
• Spararsalt
• Sparartíma
• Sparar húsrými
• Eykurgæði
• Eykur þrifnað
Box 4413, Knarrarvogi 4
124 Reykjavík
Tökum að okkur
hverskonar
verkefni
í setningu,
umbrot og
plötugerð.
Ármúla 38 —
Sími 81866
Opnum upp a gatt
I tilefni 30 ára afmælis ISARN HF,
SCANIA umboðsins á fslandi, verður SCANIAbflasýning
laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. júní kl. 10“-17“
að Skógarhlíð 10 Reykjavík.
Við sýnum fvrsta
bílinn sem ÍSARN HF flutti
inn fvrir 30 árum.
Það nýjasta sem er að
gerast í vörubílum, steypu-
bílum, flutningabílum,
olíubílum og gámabílum.
Nýjustu rútur, sem gera
ferðalagið mun þægilegra.
ÍrattN M.F.
SKÓGARHLÍÐ 10 • SÍMI 2 07 20