Alþýðublaðið - 14.06.1984, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 14.06.1984, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 14. júní 1984 * Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamaður: Kriðrik Þór Guðmundsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Kitstjórn og auglýsingar eru að Árrnúla 38, Reykjavik, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 QITCT IfiDMfl DODCIK Albert svíkur enn eitt loforðið Mlbert Guðmundsson fjármáiaráðherra greip til þess hálmstrás þegar Ijóst var að fjárlögin hans voru á sandi byggð og ríkisfjármálin öll í kaldakoli, að slá sig til riddara sem fjármála- ráðherrann, sem segir þjóðinni sannleikann, hversu óþægilegur hann væri. Albert hældi sjálfum sér í hástert fyrir það að segja fólki frá því að fjárlögin hans væru plat og staða ríkis- fjármála langtum erfiðari, en hann hafði upp- lýst áður. Og víst fékk Albert plús hjá fólki fyrir það að reyna ekki að draga fjöður yfir sannleikann. ( Sannleikurinn var sá, að stórt gat var í ríkisfjár- máladæminu, gat upp á tvo milijarða. Ríkis- stjórnin og Albert voru hins vegar ekki jafn- upplýsingaglöð', þegar að því kom að ráða þurfti bót á fjárlagagatinu, því sannleikurinn var sá að stjórnvöld stóðu á gati yfir gatinu. Og niðurstöður mála þekkja allir: Slegin voru er- lend lán til að gatfylla. En hvar skyldi sannleiksástin liggja hjá fjár- málaráðherra um þessar mundir? í Útvarpinu í fyrrakvöld var leitað frétta af ástandi ríkisfjár- málanna núna, þremur mánuðum eftir siðasta uppgjör. Nú hins vegar brá svo við að fjármála- ráðherra, sem hafði lofað þjóðinni nákvæmri skýrslugerð reglulega um ástand ríkisfjármái- anna, sneri upp á sig og sagðist ekki tilbúinn með neitt slíkt í sínum fórum. Albert sagði í útvarpsviðtalinu, að það væri spurning hvort hann væri nokkuð að standa í slíkri upplýs- ingaþjónustu gagnvart almenningi vegna þess að fjölmiðlar og blaðamenn hefðu ráðist svo harkalega á sig, þegar han.n birti slíkar tölur síðast. Albert ætlar sem sé að kenna blaðamönnum og fjölmiðlum um það, að hann ætlar að ganga á bak orða sinna; ætlar ekki að leyfa fólki að fylgjast með gangi fjármála hjá hinu opinbera. Það er æði lélegt hald í þessari skýringu fjár- málaráðherra og hætt við að lítið kæmi í fjöl- miðlum frá embættismönnum og stjórnmála- mönnum, ef þeir ætluðu fyrirfram að biðja um einhverja silkihanskameðhöndlun hjá blaða- mönnum, þegarákveðin mál væri til umfjöllun- ar. Það sem er að gerast, er einfaldlega það, að fjármálaráðherra er að svíkja gefin fyrirheit. Út af fyrir sig þarf það ekki að koma neinum á óvart. Núna svíkur Albert það að koma hreint fram við fólkið í landinu og segja því sannleik- ann umbúðalaust. Áður hafði hann svikið það loforð sitt, að erlend lán hækkuðu ekki. Hann hafði einnig svikið það loforð sitt, að skattar hækkuðu ekki. Honum hefur mistekist það ætlunarverk sitt að spara, því óðafjárfestingar haldaáfram innan ríkisgeirans, en niðurskurð- ur á sér stað einvörðungu á hinu félagslega sviði. Þau eru æði mörg feilspörkin hjá fjármálaráð- herraáaðeins rúmlegaeins árs valdaskeiði. Út af fyrir sig hef.ur mistakaferillinn ekkert verið skrautlegri hjá honum en öðrum ráðherrum þessarar makalausu ríkisstjórnar, því allir standa þeir framarlega í keppninni um mesta mistakaráðherrann. Allír hafa þeir verið dug- legir við að vinna sér prik á þeim vettvangi. Mest voru þó mistökin í byrjun; nefnilega þau að þessi rikisstjórn komst á laggirnar. Það hefur þegar sannast áþreifanlega á síðustu tveimur misserum og á eftir að verða fólki enn Ijósara eftir þvi sem lengri tími líður og núver- andi ríkisstjórn er að völdum, að ríkisstjórn Steingrlms Hermannssonar hefði betur aldrei orðið að veruleika. — GÁS. 40 ára afmœli lýðveldisins 17 júní: Fjölbreytt hátíðarhöld Skartið íslenskum þjóðbúningum Borgaryfirvöld hafa faliö Æsku- lýðsráði Reykjavíkur að annast störl' þjóðhátíðarnefndar og sjá um dagskrárgerð og framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna. Dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík 1984 verður með hefðbundnum hætti fram að hádegi. Markús Örn Antonsson, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju- garðinum við Suðurgötu og hefst athöfnin kl. 10.00. Síðan verður dagskrá við Austurvöll og hefst hún kl. 10.40. Þórunn Gestsdóttir, vara- formaður Æskulýðsráðs Reykja- víkur, setur hátiðina. Forseti ís- lands leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, flytur ávarp. Þá verður ávarp fjall- konunnar og Karlakórinn Fóst- bræður syngur og Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Kl. 11.15 verður guðþjónusta í Dómkirkjunni, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir predikar og dómkórinn syngur ásamt Elísabetu F. Eiríksdóttur. Dagskrá í miðbæ Reykjavíkur hefst kl. 13.30 og fara öll hátíðar- höldin fram í miðbænum. Dag- skránni lýkur síðan með dansleik á tveimur stöðum, í miðbænum og í Höllinni. Af einstökum atriðum má nefna að félagar úr Fornbílaklúbbi ís- Iands aka bifreiðum sínum um borgina og að Kolaporti þar sem fram fer sýning á gömlum bifreið- um. í Hljómskálagarðinum sýna skátar tjaldbúðar- og útistörf. I Lækjargötu skemmta Tóti trúður og Breakbræður og félagar úr Félagi tamningarmanna sýna hesta sína. Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir þjóðdans og þjóðbúninga á Kjarvalsstöðum. Kl. 15.20 hefst skrúðganga frá Hlemmtorgi undir stjórn skáta og Lúðrasveitar verka- lýðsins, og verður gengið að Arnar- hóli þar sem fjölskylduskemmtun hefst kl. 16.00. Á skemmtuninni, sem er í umsjón Leikfélags Reykja- víkur, koma fram 13 leikarar leik- félagsins auk hljóðfæraleikara. I Gerðubergi verður sýning á munum og listaverkum, tengt sögu lýðveldisins. Sýningin er unnin af nemendum Fossvogsskóla. Sýning- in stendur yfir til 1. júlí. Um kvöld- ið kl. 20.00 hefst síðan kvöld- skemmtun í miðbænum. Lúðra- sveitin Svanur leikur létt lög í Lækjargötu og síðan hefst kvöld- skemmtun og dansleikur á Lækjar- torgi. Hljómsveit Magnúsar Stefánssonar ásamt Jóhanni Helga- syni, Ernu Gunnarsdóttur og H-L—H flokknum skemmta til kl. 23.30. Leikhúsið „Svart og sykurlaust" býður þjóðhátíðargestum í ferðalag inn í Laugardalshöll þar sem mið- næturdansleikur í samvinnu Lista- hátíðar og Æskulýðsráðs Reykja- víkur hefst kl. 23.00. Fram koma Hjómsveitirnar Stuðmenn og Pax Vobis auk leikhópsins „Svart og sykurlaust". Gert er ráð fyrir að skemmtun- inni Ijúki kl. 03.00. Strætisvagnar Reykjavíkur aka frá Lækjartorgi að Laugardalshöll kl. 23.30 og síðan aka vagnarnir til kl. 03.30 um nóttina frá Laugar- dalshöll í hverfi borgarinnar. í tilefni 40 ára afmælis Iýðveldis- ins er það ósk margra að íslenskir þjóðbúningar setji sérstakan svip á hátíðarhöldin um allt land. í Reykjavík er fyrirhuguð skrúð- ganga frá Hlemmtorgi að Lækjar- torgi og viljum við hvetja alla þá sem eiga þjóðbúning að fara að huga að búningnum og koma hon- um í Iag og fylkja svo liði kl. 3.30 e.h. á Hlemmtorgi og ganga með í skrúðgöngunni niður í miðbæ. Munið eftir að vera i svörtum sokkum og svörtum skóm við upp- hlutinn og peysufötin. Upplýsingar um þjóðbúningana verða fúslega veittar í Leiðbeining- arstöð um íslenskraþjóðbúninga að Laufásvegi 2 í síma 15500 miðviku- daginn 13. júní frá kl. 4-6 e.h. Heimilis- peningarnir Hagurheimilisins byggistáfjárhagsleguöryggi. Sparibaukurinn, sparisjóðsbókin, ávísanareikningurinn og verðtryggðu reikningarnir eru þar nauðsynleg hjálpargögn, auk þess tryggja þau arðbær bankaviðskipti. Gott yfirlit heimilisútgjalda og reglubundinn sparnaður er hverju heimili nauðsyn. WP LANDSBANKINN xK/ Banki allva landsmanna

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.