Alþýðublaðið - 14.06.1984, Side 17
Fimmtudagur 14. júní 1984
17
Ný vél Sœlgœtisgerðarinnar Freyju:
Stóreykur
framleiðslu
Hjá Freyju hf í Kópa-
vogi hittum við fram-
kvæmdastjórann, Skúla
Sigurðsson að máli og
inntum hann eftir því hvað
væri efst á baugi hjá fyrir-
tækinu um þessar mundir.
„Við erum einmitt núna að taka
nýja fullkomna vélasamstæðu í
gagniðý sagði Skúli. Hún er sú full-
komnasta sem gerist á markaðinum
í dag. Hún getur steypt allar mögu-
legar tegundir af súkkulaði og sett í
allar þær fyllingar sem við óskum,
auk þess sem hún býr til konfekt
með öllum tegundum af fyllingum.
Það kemur sér vel að fá þessa
Skúli Sigurðsson, framkvœmdastjóri
Freyju hf, í Kópavogi.
Rcett við Skúla
Sigurðsson, fram-
k væmdastjóra
um sœlgœtisgerð,
íslenskan iðnað
og þjóðhagslegt
mikilvœgi hans
fullkomnu vél núna, því salan er
mikil. Alls framleiðum við 51 vöru-
tegund, sem skiptast í sex aðalfram-
leiðsluflokka.
Séu tekin dæmi þá má fyrst nefna
átsúkkulaði, en þar í er t.d. hið sí-
vinsæla Valencia súkkulaði og rís-
stangirnar. Þá eru konfektvörur og
suðusúkkulaði og það sem við
flokkum undir sykurvörur, sem eru
m.a. hinar þjóðfrægu Freyjukara-
mellur og brjóstsykurinn. Þá er
súkkulaðikexið en þar í eru hinir
vinsælu staurar og hrísið. Að lokum
má svo nefna það sem við köllum
markaðspoka en í þeim eru blöndur
af ölium framleiðslutegundunum á
tilboðsverði.
Auk alls þessa erum við svo um-
boðsaðilar fyrir norska sælgætis-
fyrirtækið Freia a.s. og þar getum
við boðið uppá fjölda tegunda af
heimsfrægu gæðasælgæti.
Hér hjá okkur vinna nú yfir 20
manns og sala fyrirtækisins á síð-
asta ári var mjög góð.
Ég legg áherslu á það, að þetta
fyrirtæki er eins og önnur íslensk
iðnfyrirtæki í framleiðsluiðnaði
bæði atvinnuskapandi og sparar
þjóðinni dýrmætan gjaldeyri auk
þess sem það þjónar henni með
gæðaframleiðslu aðlagaðri að
neysluháttum fólksins í landinu.
Þetta er atvinnugrein sem hefur
sýnt sig að því að vera fullkomlega
samkeppnisfær við framleiðslu
hvaða þjóðar sem er. Svona iðnað-,
ur á auðvitað fyrst og fremst heima
í landinu sjálfu og því ríður á að
ráðamenn íslensku þjóðarinnar
setji ekki fótinn fyrir hann með
skammsýnni efnahagsstjórn eða
óraunsærri gengisskráningu. Það
er augljóst þjóðahagslegt atriði, að
þau störf, sem við íslendingar sjálf-
ir getum unnið jafn vel og útlend-
ingarnir, séu unnin í landinu sjálfu
og sú verðmætasköpun sem af
þeirri framleiðslu rennur hafni hér
hjá okkurý sagði Skúli Sigurðsson
að lokum.
Hin fullkomna súkkulaðigerðarvél,
sem Freyja er að taka í gagnið, getur
steypt allar gerðir af súkkulaði og sett i
allar þœr fyllingar, sem óskað er, auk
þess að gera konfekt. Ljósm.: G.T.K.
Hér er verið að vinna við vélina.
öflug hmðflutningspjónusta
Fm verksmiðjuch/rum eriendis
alla leið heim í hlað
Nýja hraðflutningsþjónustan okkar, „EIMSKIP -
EXPRESS" tryggir þér mesta mögulegan flutn-
ingshraða á sjóoglandi. „EIMSKIP - EXPRESS"
sér um að sækja vöru þína við verksmiðjudyr
erlendis og annast flutning hennar til útskipunar-
hafnar, þar sem skip Eimskips taka við.
Nú þegar bjóðum við „EIMSKIP - EXPRESS" í
Bretlandi, Belgíu, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu,
Þýskalandi og Danmörku, og auðvitað höldum við
áfram útbreiðslu Express-þjónustunnar víðar um
heim.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100