Alþýðublaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 18
18
Fimmtudagur 14. júní 1984
B.B. byggingavörur
Nýtt útibú í
Ártúnsholti
í tilefni þessara tíma-
móta tókum við hjónin
Sigríði og Birgi Bernhöft
tali og inntum þau nánar
um þróun fyrirtækisins.
Þau sögðu okkur að þau hefðu
fengið lóðina að Nethyl 2 um síð-
ustu áramót. 12. maí sl fluttu þau
svo hús það sem verslunin er í á lóð-
ina og 2. júní opnuðu þau verslun-
ina. Má segja að vel hafi tíminn ver-
ið nýttur á þeim bæ.
„Þetta er alhliða byggingavöru-
verslun og er útibú frá verslun okk-
ar að Suðurlandsbraut 4“ sögðu
þau og lögðu áherslu á að allar
sömu vörurnar fengjust á nýja
staðnum eins og í versluninni niður
á Suðurlandsbraut, sem að sjálf-
sögðu verður starfrækt áfram.
„Við erum hér í miðri þjóðbraut-
inni en þjónum sérstaklega nýju
hverfunum í Grafarvoginum, Ar-
túnsholtinu, Selásnum, Árbænum
og Breiðholtinu.
Það eru núna sjö ár síðan við
opnuðum verslunina niður á Suð-
urlandsbraut og skipuðum okkur
fljótlega meðal helstu bygginga-
vöruverslana í Reykjavík.
Hjá okkur er opinn viðskipta-
reikningur fyrir alla húsbyggjend-
ur. Við veitum öll sömu greiðslu-
kjör og aðrar verslanir, auk þess
sem við bjóðum lán í formi víxla og
skuldabréfa.
Rœtt við hjónin
Sigríði og Birgi
Bernhöft um
horfurnar í
hyggingariðn-
aðinum, þjónustu
við greinina og
unga fólkið á
uppleið, sem er
að byggja
Við erum nýlega byrjuð með
„fittingsdeild" og öllu sem því við-
víkur á Suðurlandsbrautinni. Sé
um pantanir að ræða þá keyrum við
það, ásamt öðru byggingarefni á
byggingarstað"
Þau hjón vinna saman að rekstr-
inum og sér Sigríður um skrifstofu-
störfin en Birgir um rekstur verslan-
anna. Birgir var áður verslunar-
stjóri í Byggingarvöruverslun H.
Ben. en hóf sjálfstæðan rekstur I
húsnæðinu þar, þegar H. Ben.
hætti. Foreldrar Sigríðar aðstoða
einnig við reksturinn.
Lxjð sú sem fyrirtækið fékk út-
hlutað er 6.200 fermetrar og er
framtíðarlóð fyrir fyrirtækið. Gert
er ráð fyrir því að hefja frekari
framkvæmdir á lóðinni á næsta ári.
Þau Birgir og Sigríður voru mjög
bjartsýn með framtíð byggingar-
iðnaðarins á höfuðborgarsvæðinu.
Aldrei hafi verið byggt eins mikið
og nú. Samkeppnin hefði þó aukist
mikið í versluninni fyrir byggingar-
iðnaðinn og það væri auðvitað gott
fyrir greinina, því þjónusta og vöru-
úrval hefði stóraukist og lánakjör
einnig.
Þau sögðust að lokum vonast til
þess að geta verið eins og svo margir
sem eru að byggja, ungt fólk á upp-
leið með bjarta framtíð, tilbúin að
takast á við vandamálin. Auðvitað
væri þetta allt gífurleg vinna en á-
huginn væri fyrir hendi og starfs-
fólkið allt væri sem einn maður að
hjálpa þeim að byggja fyrirtækið'
upp og veita góða þjónustu.
— G.T.K.
Hjónin Sigríður og Birgir Bernhöft við gaflinn á nýju verslun sinni að Nethyl 2. Ungt fólk a uppleið, eins og allir þeir
sem eru að byggja. Ljósm.: G.T.K.
Nýlega flutti B.B, bygg-
ingarvörur h.f. í nýtt útibú
að Nethyl 2 í Ártúnsholt-
inu og er þá verslunin
komin á tvo staði í borg-
inni, en eldri verslunin er
að Suðurlandsbraut 4 í H.
Ben. húsinu.
COROLIA
Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur
jafn mikilla vinsælda og Toyota Corolla,
- bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda
bifreið í heimi. —
Nú er komin ný Corolla sem sannar
að enn má bæta það sem best
hefur verið talið. Viðhönnun
hennar hefur þess verið gætt, að
hún hafitil aðberaalla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en
aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis-
eyðslu og bæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur
Corolla verið búin þverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur
verið aukið, gólf ækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft-
mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftbackj.Corolla-Breyttur og Betri Bíll.
KÝMÍ!
Corolla DL 5 dyra 349.000.-