Tíminn - 26.02.1967, Page 3

Tíminn - 26.02.1967, Page 3
I SUNNUDAGUR 35. febrúar 1967 TÍMINN J5 í NÓTQNDM Sjónvarpið og unga fólkið Nú er komiS á laggirnar ís- lenzkt sjónvarp og . þrátt fyrir allar bölspár hefur því tekizt að komast í gegnum hreinsun areld almenningsálitsins nokk um veginn hnökralaust og er það vel. WHO. Mjög athyglisverS og aS sama skapi vinsæl hljómsveit. Sjónvarp er miðlari skemmt- unar og fróðleiks, sem altir í fjölskyldunni __ eiga að geta haft not af. íslenzt:.. sjónvarp- inu hefur tekizt þetta furðu vel, en áberandi er að einn aðiiinn hefur orðið heldur bet- ur út undan, en hér á ég við unga fólkið. Fljóttega eftir að sjónvarpið hóf útsendingar sín ar hleypti Andrés Indriðason af stokkunum þættinum Við ertun ung. Eins og nafnið gef- ur til kynna var hér um að ræða þátt, sérstaklega ætlaður ungu fólki, en þessir þættir Andrésar urðu fáir og rislitlir. Hvers vegna urðu þeir ekki fleiri? Einfaldlega vegna þess að ekki hefur enn verið samið við Féiag íslenzkra hljómlistar- manna, en meginuppistaða í síákum þætti hlýtur að vera vinsæl lög, flutt af íslenzkum hljómsveitum. Þá stjórnaði Andrés einnig þættinum Æskan spyr og var það sérstaklega góður þáttur. Umræðum s'jórnaði af rögg- semi Baldur Guðlaugsson, en nú er kominn á skerminn þátt- ur í svipuðu formi, sem he.ttir Sjónarmið en nú er það ekki ' eingöngu ungt fólk, se.n spyr og að mínu áliti gerir það gæfu muninn. Sá fyrsti með þessu sniði var að mínu viti ákaflega hvim-leiður, svipaði alltof mik- ið til þáttarins Á blaðamanna- fundi. En til að ráða bót á þessum efnisskorti fyrir unga fólkið hefur verið farið út í það að kaupa erlendan þátt, sem snið- inn er gagngert fyrir umrædd- an aldursflokk og miðvikudag- inn 15. febrúar birtist sá fyrsti af Hullabaloo. Hvort nafnið sé ættað frá Kongó er mér ókunn ugt um, allavega er þátturinn sjátfur bandarísk framleiðsla. Þarna komu fram ýmsir þar- lendir söngvarar og hljómsveit ir, en í heild var þáttur þessi ákaflega stakur að gæðum, t.d. voru flestar skiptingarnar hroðalega illa unnar, hvað sem veldur. Nú og þeir, sem komu fram voru flestir lítt þekktir í heimi dægurlaganna og flutn ingur þeirra hvimleiður. Kynn ir var Georg Hamilton, sjálf- umglaður ungur maður. Bros- ið hans er upplagt minnismerki fyrir ameríska tannkremsfram- leiðslu. En hinar snjöllu Supremes björguðu því, sem bjargað varð. Flutningur þessa heimsfræga kvensöngtríós var með afbrigð- um góður. Að lokum hefði mátt sleppa því í sjónvarpsdagskránni, að fullyrða að í þættinum yrðu flutt nýjustu dægurlögin. Væntanlegar S.G. hljómplötur í síðasta þætti var ræt.t um væntanlegar hljómplötur frá U. F.-útgáfunni. Hér verður þráðurinn tekinn upp að nýju og nú er fjallað um S.G. hljóm- plötur. London virðist vera vinsæll staður til hljómptötuupptöku. í apríl mun koma út mjög vönduð hljómplata með Sa- Um þessar mundir er i und- irbúningi plata með hljómsveit Ingimars Eydal. Þetta verður þriðja ptata þeirra jiorðan- manna. Vonandi lætur Ingimar okkur Reykvikinga njóta góðs af, er hann kemur með iið sitt til upptökunnar, en stað- reyndin er sú, að þeir félag- ar hafa aðeins einu sinni leik ið fyrir dansi í Reykjavík og það var í Glaumbæ. Ragnar Bjaranson hefur ekki sungið inn á E.P. hljómplötu í altlangan tíma, en ó» get glatt hina mörgu aðdáendur hans með því að það er ákveð- ið, að hann syngi mjög bráð- lega fjögur lög inn á hljóm- plötu, þar af munu að öllum líkindum verða tvö íslenzk lög. S.G.-hljómplötur hafa um all langt skeið verið eina starf- andi hljómplötuútgáfan, en nú er sem kunnugt er orðin þar breyting á og er vonandi að það verði báðum aðilum t.il góðs, því heilbrigð samkeppni er góð, jafnt fyrir neytendur og framleiðendur. L.P. hljómplata með Who. „í einum grænurn" heitir nýjasta L.P. hljómplata tlie Savannatríóið. Þremenningarnir hafa fyrir löngu sannað snilli sina. vannatríóinu, hljóðrituð i ste- reo, að sjálfsögðu í London. Platan hefur að geyma þjóð- lög frá ýmsum löndum. fyrir utan nokkur lög eftir Þóri Baldijrsson. Hafa piltarnir pLtt eitthvað af þeim í sínum vin- sælu sjónvarpsþáttum og auka þar við í næsta þætti, sem verður fluttur í marz n k. Þetta verður L.P. plata eins og þær tvær síðustu. Who, á frummálinu A quick one. Þetta er reyndar nafnið á einu laganna og eitt það Iengsta, i-m ég hef heyrt. Það nær næstum þvi yfir helming plötusíðunnar, en því miður eru gæði lagsins ekki samsvarandi lengd þess. Who er sérstaklega eftirtekt- arverð hljómsveit. Þeir urðu fyrst vinsælir hér heima fyrir flutning sinn á „My genera- i&w Supremes. Þær stöllur standa á- vallt fyrir sínu. tion“ fyrir rúmu ári. Um þess- ar mundir er lag þeirra „Happy Jaok“ mjög ofarlega á íslenzka vinsældarlistanura, ef marka má_ óskalagaþátt unga fólksins. í janúarlok komst þetta umrædda lag udp í 7. sæti í Bretlandi. Víkjum þá aft- ur að L.P. hljómplötunni og mun ég ræða lítillega um þau lög, sem mér þóttu eftirtektar- verðust. Þá er fyrst „Run, run, run.“ Þetta er hratt lag, þar sem hinn skemmtilegi stíll Who nýt ur sín vel. Bezta lagið á plöt- unni er tvímælalaust „Boris the spider,“ drungalegt lag, minnir mann óneitanlega á Yardbirds lagið „Still I‘am sad.“ Útsetningin er vel unn- in og athyglisvert, hvernig pilt arnir skipta með sér söngn- um. „Heat way“ er lag, sem ftestir ættu að kannast við. Útsetning Who er dálítið frá- brugðin frumútsetningunni, en flutningur þeirra er mjög góð ur. „Cabwebs and strange" er vægt til orða tekið frumlegt og um leið bráðskemmtilegt lag. Hér bregða Wfao á leik og nota hin ótrúlegustu hljóð- færi tit að ná takmarki sínu. „So sad about us“ er leikandi létt og skemmtilegt lag. Text- inn er einfaldur og auðlærður Að lokum legg ég til að að- dáendur Who leggi leið sína í Hljóðfærahúsið, bvi þar fæst þessi plata. Benedikt Viggosson. Á síðasta borgarstjórnartnndi urðu athyglisverðar umræður um atvinnusjúkdómadeild við Heilbrigðismálastofnunina í Reykjavík. í þeim umræðum kom greinitega í ljós, að rann- sókn á, og aðgerðir t;l varnar atvinnusjúkdómum, era van- ræktar hér svo, að til skammar er. VirSist lítið annað an nafnið eitt Fulltrúar meirihlutans í borgarstjórn fullyrtu, að at- vinnusjúkdómadeild væri til í borginni. Mun ég ekki bera upp á þá ósannindi, en ljóst er, ef deild þessi er til, þá er tilvist hennar þei-m ókunnug, sem hana þurfa helzt að not-a, og hú-n lítið ann-að en nafnið eitt. í skýrslu, sem upp var lesin í borgarstjórn, kom í ljós, að deildin hafði tekið til rann sóknar nokkra launþega, som þegar höfðu orðið fyrir barð- inu á atvinnusjúkdómum. Þetta á auðvitað líka að vera starf atvinnusjúkdómadeildar, en starfsemi hennar á þó fyrst og fremst að beinast að rano sókn á atvinnusjúkdómum og pví, hvernig hægt er að verja launþega gegn þeim. Þetta á við t.d. um hávaöa, sem vafalaust leiðir til sjúk- dóma, m.a. heyrnardeyfðar, i ýmsum starfsgreinum. Þetta er eitt þeirra mála, sem rann- saka þarf ítarlega á viinnustöð- unum, og síðan þarf að grípa til ráðstafana til þess að fyrir- byggja að starfsmem verði fyrir áföllum af þessum sök- um. Bráðnauðsynleat að úr verði bætt Bráðnauðsynlegt er, að sem skjótast verði bætt hér úr og að sérstök atvinnusjúkdóma- deild, með sérþjálfuðu starfs- liði, góðu húsnæði og nægi- legu fjármagni geti sem fyrst tekið til starfa. Nauðsyn fræðslustarfsemi Þeir, sem koma vilja á fram- færi við almenning skoðunum sínum og hugmyndum, verða að halda uppi upplýsingastarf- se-mi, annað hvort í gegnum dagblöð og önnur fjölmiðlun- artæki, eða með eigin útgáfu- s-tarfsemi. Þetta á ekki hvað sízt við um hagsmunasamtök eins og Alþýðusamband íslands og hin stærri verkalýðsfélög. Því miður er útgáfustarf- semi verkalýðshreyfingarinnar ekk-ert til að státa sig af. Alþýðusambandið gefur út tímaritið „Vinnan.“ Á þingum sambandsins hafa verið gerð- ar stórfauga samþykktir um út- gáfu blaðsin-s, en framkvæmd- ir hafa ekki orðið mifclar. „Vinnan" kemur ek-ki út nema endrum og eins. Alþýðu sambandið hefur í rauninni ekkert fast málgagn til þess að láta skoðanir sínar á hin- um helztu þáttum þjóðmála, og verkalýðsmála, í Ijósi. Sl-íikt er ófært. Ljóst ætti að vera, að það er Verfcalýðssamtökunum mik- il nauð-syn að hafa málgagn, sem kemur út reglulega og flytur efni, sem snertir laun- þega sérstaklega. Kostnaður við útgáfu mánaðarrits er að vísu al-1 mifcill, en þó alls ekki óyfirstígantegur. Að láta heyra í sér An-nar þáttur í upplýsmga- starf-semi verkalýðshreyfingar- innar, og hinna einstöku fé- laga, er að láta fréttamiðlun- artækjum þjóðarinnar í té fregnir af starfsemi sinni og skoðunum. Á þessu sviði mun eitt félag hafa náð lengst. Er það H-líf í Hafnarfirði. Hlíf tekur virkan þátt mál- efnum Hafnarfjarðar, og kem- ur ávallt á framfæri við blöð og útvarp ályktunum er það stendur að, um hin ýmsu mál- efni bæjarins, Almenningur heyrir því oft um st-arfsemi o-g afstöðu fé-lagsins, og fær að heyra að hér sé á ferðinni lif- andi hagsmunafélag launþega, sem láti allt, sem á félagssvæði launþega sinna varðar, til sín tak-a. Ýmis önnur verkalýðsfélög munu vafalau-st taka jafn mik- inn þátt í atburðum og vanda- málum bæjarfé-laga sinna og Hlíf, en ekkert þeirra rækir upplýsingastarfsemi í sam- bandi við það eins vel. Því er það, að ýmis félög, sem reka öfluga starfsemi, fá hjá almenningi þann dóm, að þau séu „dauð“ að ekkert líf sé í starfinu. Upplý-sin-gastarfsemin er þvf bráðnauðsynleg, hvort sem hún á sér stað í hinum al- mennu fjölmiðlunartækjum eða í eigin útgáfust-arfsemi. Og verkalýðshreyfingin þarf mjög að efla starfsemi sína á þessu sviði. Það er henni nauðsyn að ná til fólksins, og þá sér- s-taklega unga fólksins, iafn- framt því, sem hún þarf að ú-tskýra afstöðu sín-a til fjöl- margra mála. Deilt um eftirvinnu- kaup í Færeyjum Færeysk verkalýðsfélög nafa nú sagt upp samningum sín- um, en þeir renna út 1. anríl næstkomandi. Það er haft eftir formanni Föroya Arbeiderafelag — stærstu verkalýðssamtökum Færeyja — að félagið hafi áhu-ga á að framlengja samn- inga sína með nokkrum breyt- ingum. Sérstaklega mun félag- ið hafa hug á breytingum í sambandi við eftirvinnukaup, en vinnuveitendur munu ekki te-lja slíkt koma til mála. Hafa samningaviðræður oor- ið litlan árangur, þegar petta er ritað. Utan við Föroya ar- beiderafelag standa tvö féiög, Hav-nararbeidsmannafelag og Klakksvikar arbeid-smannafe- lag, en samstarf er milli þess- ara félaga í samningaviðræð- unum. Elías Jónsson (

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.