Alþýðublaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.07.1984, Blaðsíða 4
alþýðu blaðið Þriðjudagur 24. júlí 1984 Útgefandi: Alþýöuflokkurinn. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. ~Blaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson. Gjaldkeri: Halidóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúia 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðurnúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 T!L UMHUGSUNAR Pólitísk eða fagleg verkföll Vinnustöðvanir eru tíðari þegar hœgri stjórnir ríkja, en er um pólitískan þrýsting að rœða eða réttmœta óánœgju? ISt vinnustöðvunum beitt í póli- tískum tilgangi? Þegar litið er á töl- ur yfir verkföll og aðrar vinnu- stöðvanir síðustu 25 árin eða svo kemur vissulega í ljós að fjöldi vinnustöðvana og þátttaka í þeim er með meira móti þá er „hægri“ stjórnir hafa setið við völd, borið saman við „vinstri“ stjórnir. Hægri sinnar vilja auðvitað túlka þetta sem svo að verkalýðshreyfingunni sé beitt gegn „sínum“ stjórnum. Þannig var fyrir nokkrum mán- uðum birt stutt grein í gamla Tím- anum þar sem greint var frá því að fjöldi vinnustöðvana hefði 1970- 1973 verið 82 (4ár), 1974-1977 verið 631 (4 ár), en 1978-1981 verið 50 (4 ár). Þá spurði blaðið í fyrirsögn hvort vinnustöðvunum væri beitt í pólitískum tilgangi, en forðast var hins vegar að reyna að svara spurn- ingunni eða leggja fram tilgátur. Hins vegar hefði fyrirsögnin allt eins getað hljóðað sem svo: Er verkalýðshreyfingin óánægðari þá er „hægri“ stjórnir ríkja? r A fyrri hluta valdakeiðis Viðreisn- arstjórnarinnar var talsverður upp- gangur í efnahagslífinu. Stjórnin beitti sér meðal annars fyrir því að stórauka framlög til almannatrygg- ingakerfisins og til hins almenna Byggingasjóðs auk þess sem stofn- aður var Byggingasjóður verka- manna (í tengslum við Breiðholts- framkvæmdirnar meðal annars). 1960-1964 voru vinnustöðvanir að jafnaði um 50 á ári, sem stóðu að meðaltali yfir í um 15 daga. 1965- 1969 harðnaði hins vegar í ári, at- vinnuleysi jókst sem og óánægja. Þá urðu vinnustöðvanir að jafnaði nálægt 100 ár ári, en stóðu hins veg- ar að meðaltali aðeins yfir í 5 daga. Sérstaklega voru árin 1968 og 1969 launþegum erfið, þá fór vísitala kaupmáttar greidds tímakaups úr um 125 í 115stig(miðað við lOOárið 1963), en það var nokkuð í sam- ræmi við lækkun á vísitölu þjóðar- tekna. Á móti kom hins vegar átak í útgjöldum til almannatrygginga. Aftur tók að rétta úr kútnum og ár- ið 1970 varð fjöldi vinnustöðvana 65. Á valdatíma „vinstri“ stjórnar Ólafs Jóhannessonar 1971-1974 var talsverður uppgangur í efnahagslíf- inu, þjóðartekjur fóru ört vaxandi og kaupmátturinn fylgdi með upp á við. Kaupmáttur kauptaxta fór úr 100 vísitölustigum 1971 í 116.4 stig 1974 og aðeins „handfylli“ af vinnustöðvunum (5-7) árlega. Nema hvað 1974 (stjórnin fór frá í lok ágúst) fjölgaði vinnustöðvun- um í 94. Þegar ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar tók við völdum lét hún það verða sitt fyrsta verk að ráðast harkalega á kjör launafólks, kaup- máttur kauptaxta hrapaði úr 116.4 stigum í 99.3 stig og enn í 94.2 stig árið 1976. Þrátt fyrir að vísitala þjóðartekna hafði aðeins lækkað örlítið 1975 og vaxið 1976. Fyrir þennan tíma hafði þróun þjóðar- tekna og kaupmáttar haldist þokkalega að, en nú var sem sagt búið til hyldýpi þar á milli, sem ekki hefur enn verið brúað, heldur þvert á móti víkkað og dýpkað og þá einkum og sér í lagi í tíð núverandi stjórnar. Ríkisstjórn Geirs Hall- grímssonar réðist því að tilefnis- lausu á kjör launafólks og er nema von að það hafi viljað láta óánægju sína í ljós? 1975 fór fjöldi vinnu- stöðvana upp í 122, var svipaður 1976. 1977 voru kjörin aftur á móti orðin það óbærileg að verkalýðs- hreyfingin sá sig tilneydda til að knýja fram úrbætur með aðgerð- um, fjöidi vinnustöðvana fór upp í 292. Árangurinn varð sá að kaup- mátturinn fór upp í 105.2 stig, sem þó var langt frá því sem hann var bestur 1974. Árið 1978 rættist enn úr kaupmættinum, en stjórnin fór frá völdum í byrjun september. Á árinu fór kaupmátturinn upp i 113.1 stig. Miðað við 1971 höfðu þá þjóð- artekjur vaxið um 34<7o en kaup- mátturinn var aðeins 13% meiri. Verkalýðshreyfingin hafði náð fram takmarkaðri leiðréttingu 1978 (sem eignast ríkisstjórn Geirs) og slíðraði vopnin í bili, því vinnu- stöðvanir urðu það árið aðeins 7 og stóðu almennt yfir í mun skemmri tíma að auki. Árið 1979, þegar vinstri stjórnin sat við völd, stóð vísitala þjóðartekna nánast í stað og kaupmáttur kauptaxta launþega lækkaði lítillega, einkum þó er líða tók á árið og óánægja innan stjórn- arinnar óx (Alþýðuflokkurinn fór þá úr stjórninni vegna þess að ekki tókst samkomulag um aðgerðir). Það árið fjölgaði vinnustöðvunum upp í 13, en urðu síðan sárafáar í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thorodd- sens. Segja má að verkalýðshreyf- ingin hafi svo sannarlega sýnt þeirri stjórn biðlund þrátt fyrir að hún hafi byrjað á því að skerða kjörin og þau hafi síðan skerst enn er líða tók á valdatímann. Frá 1979 til 1982 fór meðalkaupmátturinn úr 112.1 stigi í 104.3 stig, en vísitala þjóðar- tekna í heildina stóð nokkurn veg- inn í stað. En ef verkalýðshreyfingin sýndi þeirri sjórn biðlund og þolin- mæði, hvað er þá hægt að segja um afstöðu hennar gagnvart núverandi ríkisstjórn það sem af er? Sáttfýsi hennar hefur verið með eindæmum þegar litið er til þess að kaupmátt- urinn hefir verið skertur um fjórð- ung. Samið hefur verið um óbreytt ástand til að gefa stjórninni tæki- færi á að sýna hvort hún myndi treysta undirstöðurnar og gera eitt- hvað annað en að skerða kjörin. Nú er hins vegar þolinmæðin að bresta vegna aðgerðarleysis stjórnarinnar, en þrátt fyrir það er ekki hægt að segja að þær kröfugerðir sem settar hafa verið fram séu „róttækar“ nema síður sé. Það er sagt að verkalýðshreyfingin sé vond við „hægri“ stjórnir. Til- tekið er sem dæmi að hún hafi beitt ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar hörðu 1977 og 1978, þannig að stjórnin hafi nánast hrökklast frá völdum. Er það einsdæmi ef túlka- má aðgerðir verkalýðshreyfingar- innar á þennan hátt? Hvað er þá að segja um þá staðreynd að fyrsta „vinstri" stjórnin hrökklaðist frá völdum 1958 einkuúi og sér í lagi vegna þess að verkalýðshreyfingin hafnaði þeirri beiðni stjórnarinnar um að fresta hluta verðbótahækk- unar launa? Það er vissulega sitthvað til í því að verkalýðshreyfingunni kunni að vera beitt í pólitískum tilgangi. En ástæðanna fyrir því að verka- lýðshreyfingin grípi til verkfalla og vinnustöðvana hlýtur þó fyrst og fremst að vera að leita í þeirri ein- földu staðreynd að „hægri“ stjórn- ir, samstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ráðast í aðgerð- um sínum mun harkalegar á kjör launafólks en aðrar stjórnir. Það sýnir reynslan af ríkisstjórn Geirs 1974-1978 og það sýnir jafnvel enn betur reynslan af núverandi ríkis- stjórn. Ef slíkar stjórnir sýndu það áþreifanlega að þær gætu gert eitt- hvað annað en að ráðast á kjörin mættu þær vafalaust skilningi verkalýðshreyfingarinnar, eins og sýnt hefur sig hingað til hjá núver- andi stjórn. F- MOLAR Hvemig væri aö gera Jón Pétursson í Botnskálan- um að heiöursfélaga Reglunnar, strákar? Úr umferðinni Nýjasta bráðabirgðaskráning Umferðarráðs, sem nær yfir fyrstu 6 mánuði ársins, sýnir með- al annars að goðsögnin gamla um að karlmenn séu betri ökumenn en konur er ekki einasta úr lausu lofti gripin, heldur á leið með að snúast við. Af þeim ökumönnum er lentu í umferðaróhöppum 1983 (fyrri hluta) reyndust 248 vera karlmenn en 74 konur (77% á móti 23%). í ár hefur karlkynsökumönnum í óhöppum hins vegar fjölgað upp í 281 (13% fjölgun) en kvenkyns- ökumönnum fækkað í 60 (19% fækkun). Hlutföllin kynjanna á milli urðu því nú 82.4% karlar en 17.6% konur. Svipaða sögu er að segja af slös- uðum.Þar fjölgaði körlum frá ár- inu áður úr 180 í 204 en konum f- ækkaði úr 112 í 104. • Árás á SÍS fyriskipuð Málgagn sjálfstæðismanna við Eyjafjörð birtir fyrir helgi átakan;- legan Ieiðara þar sem fram kemur mikill ótti og harmur yfir velgeng- ni/auðsöfnun Sambandsveldis- ins. Segir þar að meðal hugsandi manna („einkum sjálfstæðis- manna“) gæti nú vaxandi ug£s vegna stöðugt aukinna áhrifa SÍS á atvinnulíf í landinu. Óþekkt er að samvinnufélög leggi upp laup- ana, ósýnilegur „stóri bróðir“ kemur alltaf til hjálpar. Veigamesta ástæðan fyrir vel- gengninni/auðsöfnuninni er talin 13 ára samfelld seta Framsóknar- flokksins í ríkisstjórn. Og hver er dagskipunin hjá leiðarahöfundi gagnvart samflokksmönnum sín- um sem verma ráðherrasætin með frömmurum? „Það er ósann- gjarnt að ætlast til þess að sjálf- stæðismenn í ríkisstjórnarsam- starfi, nú upphefji og svipti burt í einni svipan þeim peningavöldum og viðskiptaaðstöðu sem SÍS hef- ur tekist að afla sér á meir en ára- tug — á löglegan þó ef til vill sið- lausan hátt ... en menn mega ekki missa sjónar af þjóðfélagsmark- miðum ... glöggt dæmi um slíkan ótta er í sambandi vió uppgjör á nokkrum erfiðustu útgerðarfyr- irtækjum Iandsins. Sambandsfyr- irtæki eru stærstu aðilar í u.þ.b. helmingi þeirra skipa, sem lenda munu á uppboði skv. nýjustu reglugerð um skuldbreytingar út- gerðar. Það er óheppilegt og óheilbrigt ef sjálfstæðismenn færu að reyna að draga úr því að reglugerðinni verði framfylgt. Þvert á móti er það skylda þeirra að sjá til þess að svo verði gert. Óttinn við SÍS hjálpar Framsókn við að ganga á lagið og forðar Sambandsfyrirtækjum frá því að standa við eigin skuldbindingar. Það er ólíft í þrælsótta SÍS-veldis- ins. Það verður að mæta út- þenslustefnu þess af fullri hörku og taka frekar einhverjum áföíl - um í eigin garði.“ Má ég koma með? Víkurfréttir eru létt og skemmti- legt blað, að minnsta kosti á köfl- um. Nú er blaðið að fara í sumar- frí, en eftir að því lýkur hefst dreifing á blaðinu í Grindavík og um leið verður það „vikublað allra Suðurnesjamanna“T Frá þessu er meðal annars sagt í með- fylgjandi tilkynningu um sumar- fríið og ekki ber á öðru en að starfsmenn ætli aldeilis að hafa það gott í fríinu ... SUMARFRÍ Vegna sumarleyfa fellur útkoma Víkur- frétta niöur 2. og 9. ágúst n.k. Er næsta blaö, sem út kemur fimmtudag- inn 26. júli, þvi síö- asta blað fyrir sumarleyfi. Frá og meö 16. ágúst hefst dreifing á blaö- inu i Grindavik og um leiö veröa Víkur- fréttir vikublaö

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.