Tíminn - 13.04.1967, Side 2

Tíminn - 13.04.1967, Side 2
I TÍMINN FIMMTUDAGUR 13. apríl 1967. Hjálparbeiðni HJÁLPARBEIÐNI Á bæ einum við innan- verðan Breiðafjörð búa ung hjón ásamt sex börnum sín um. Á s. 1. fjórum árum hafa þau verið að byggja upp öll hús á jörð sinni. Allir sem þekkja til slíkra fram- kvæmda, fara nærri um hvernig fjárhag þeirra muni komið. Eitt barna þeirra er 9 ára gömul telpa og hefur hún aldrei á þessu stutta æviskeiði gengið heil til leiks né starfa. ítrekuð rann sókn lækna hefur leitt í Ijós, að litla telpan hefur þjáðst og þjáist af meðfædd um hjartagalla. Æðaþrengsli eru að og frá hjartanu. Einn ig ætla læknar, að auka op sé á milli hóifa vinstra meg in í hjartanu. Sérfræðingar, sem- litlu telpuna hafa rannsakað, telja að eina leiðin til að lækna hana sé sú, að hún gangi undir læknisaðgerð vestur í Bandaríkjunum. Kostnaður við þessa för og skurðaðgerð hefur verið áætlaður um 300 þúsund krónur. Hjartaverndarsjóður og aðrir aðilar leggja fram kr. 80.000,— Framhald á bls. 15. ........... l SÍÐASTA DANSSÝNINGIN IFB-Reykjavík, mióvikudag. Nemendasýning Danskennara sambands íslands sú þriðja og síðasta að þessu sinni verður í Austurbæjarbíói á morgun, fimmtudag kl. 7. Nemendur frá Idans- og ballettskólum borgar innar taka þátt -t'sýningunni, eða samtals um 110 manns. Skólarnir sem þarna eiga full- trúa eru Ballettskóli Sigríðar Ármann, Ballettskóli Katrínar Guðjónsdóttur, Listdansskóli Guðnýjar Pétursdóttur og Ball ettskóli Eddu Scheving, og Dansskólar Heiðars Ástvaldsson ar, Hermanns Ragnars og Sig- valda Þorgilssonar. Sýningin stendur í einn og hálfan tíma og eru sýndir ballettdansar, barnadansar og samkvæmisdans ar, nýjasti táningadansinn og sýningin endar á sameiginleg um vínarvals frá samkvæmis- dansskólunum. Þetta er í fyrsta sinn, sem skólarnir taka sig saman og efna til sýningar sem þessarar, en vonir standa til að nemendasýningin eigi eftir að verða árlegur viðburður í starf semi skólanna. Myndina tók GE á sýningu um helgina. Skemmtun til styrktar „Minn- ingarsjóði Dr. V. Urbancic" Nýstárleg hressingar- snyrti- og fegrunarstofa er áð opna FB-Reykjavík, miðvikudag. Á föstudaginn tekur til starfa hressingar- snyrti- og fegrunar- stofa af nýju tagi hér í borg, og nefnist hún Heilsulindin og er að Hverfisgötu 50, 3. hæð. Eigendur stofunnar eru Sigríður Gunnars- dóttir og Jóhann M. Jónasson. Stof an er ætluð bæði körlum og konum og eru á henni ýmis tæki, sem aklrei hafa verið í notkun hér á landi áður. Þegar viðskiptavinur fyrirtækis ins hefir afklæðzt og farið í steypibað, getur hann valið á milli gufubaðs og þurrhitabaðs, en 'að því búnu getur hann fengið nudd af ýmsu tagi. Þeir, sem þess óska, geta fengið handnudd með venju legum hætti, en auk þess stendur til boða notkun ýmissa nuddtækja. Má t. d. nefna tæki, sem kallað er G—5 en því fylgja ýmis aukatæki, sem notuð eru við nudd ýmissa líkamshluta. Grenningarbekkur, „Relax-a- tron‘“ stendur einnig viðskipta- vinum til boða. Nuddbekkur þessi var fundinn upp með margra ára samstarfi og tilraunum lækna og tæknifræðinga, og eru á honum tíu reitir, knúðir rafmagni, sem ná til hinna ýmsu hluta líkamans, þeg ar legið er á bekknum. Er hægt að láta einhvern einstakan reit vera að verki t. d. ef þörf er á að nudda aðra öxl viðskiptavinar ins — en hœgt er að beita fleiri reitum í senn, ef þarf, því að alls geta níu starfað samtímis. Þá hefir Heilsulindin rafmagns tæki til að hreinsa andlitshúð, og í því sambandi er hægt að fá fullkomið andli'tsnudd. Auk þess er tæki til lagfæringar á æðasliti í andliti, og Imís er rétt að geta geysimikils ljósalampa til baða. Gefur hann bæði heita og kalda geisla, innrauða og útfjólubláa. Konum er þinnig veitt sérstakt brjóstnudd til þess að styrkja brjóstin. Ráðunautur við skipulag og til- högun Heilsulindarinnar hefir ver ið ensk kona, Pota Hancock, sem hefir unnið við uppsetningu á slík um stofum víða um lönd á undan förnum árum. Loks má geta nýjungar, sem stendur til boða verðandi mæðr um, og segir frú Hancock svo um hana: „Fyrir nokkru var tekin upp sú nýjung á Englandi, að við veitt um verðandi mæðrum sérstakt nudd. Hefir þetta orðið vinsætl, bæði meðal verðandi mæðra og lækna, þvi að með þessu móti er slí'kum konum gert fært að varð veita vöxt sinn og þær verða einn ig léttari á fæti á þessu erfiða tímabili. Þær fá nudd fram að 7. mánuði meðgöngutímans, og byrja aftur 3—4 vikum eftir barnsburð inn. Aðeins sex eða sjö vikum eft ir fæðinguna getur móðirin klæðzt á ný þeim fötum, sem hún notaði fyrir meðgöngutímann. Heilsulindin verður opnuð al- menningi kl. 9 á föstudag, en unnt er að panta tíma nú þegar í síma 20743. Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar Kosningaskrifstofa Framsóknar- flokksins er í Framsóknarhúsinu Suðurgötu 3. Sími 204. Vinsamleg ast hafið samband við skrifstofuna. SÖNGFÉL. HREPPAMANNA GÞE-Reykjavík, miðvikudag. Þjóðleikhúskórinn hefur kaffi- solu og fjölbreyttan kabarett í Sulnasal Hótel Sögu n.k. sunnu- dag kl. 15—18, og um kvöldið verða skemmtiatriðin endurtekin og hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Er þetta gert til ágóða fyxir „Minningarsjóð Dr. Victors Ur- bancic," sem kórinn stofnaði að Urbancic látnum, en hlut- verk sjóðsins er að styrkja lækna til sérnáms i heilaskurðlækijing- um. Hefur kórinn selt minningar- spjöld til ágóða fyrir sjóðinn, og fyrir nokkrum árum hélt hann j tónljika í Kristskirkju í fjáröflun-j arskyni, en þessi skemmtun sem! hér um ræðir er með allt öðru sniði. Skemmtiatriðin eru við allra hæfi, ungra sem gamalla, og mjög til þeirra vandað á alla lund. 9 óperusöngvarar korna fram og syngja einsöng og tvísöng, mest- megnis létt lög, þá leika Björn Ólafsson og Ingvar Jónasson tví- leik á fiðlu og víólu. Þá syngur Þjóðleikhúskórinn atriði úr óper- unni Mörtu, stúlkur úr tízkuskóla Andreu sýna fatnað frá verzlun- inni Eros, og nemendur úr Dans skóla Hermanns Ragnars sýna dansa. Tvær balletdansmeyjar sýna listdans, efnt verður j til skyndihappdrættis, með fjölda j glæsilegra vinninga, og á milli at- Framhald á bis. 15. SKÁKIN Svart: Reykjavík: Jónas Þorvaldsson Hlnn mikli Ijósalampi Hellsultndarinnar. EFNIR TIL SAMSÖNGS Hvítt: Akureyri Gunnlaugur Guðmundsson. Margeir Steingrímsson. 27. Hb2—a2 ! Stjas-Vorsabæ, miðvikudag. j Söngfélag Hreppamanna hefur i æft lög eftir innlenda og erlenda | höfunda að undanförnu og verður ; fyrsti samsöngur kórsins að þessu ! sinni í Félagsheimili Hrunamanna i næst komandi föstudagskvöld kl. 21,30. Söngstjóri er Sigurður Ágústssson í Birtingarholti. Undir leik annast Skúli Halldórsson tón- , skáld og Sigfús Ilalidórsson tón skáld, en eftir nann eru nokkur lög á söngskránni. Mikil þátttaka í Sæluvikuskemmtunum FB-Reykjavík, miðvikudag. Sæluvika Skagfirðinga stend ur yfir, og hafa allar skemmtan ir sem haldnar eru í sambandi við hana verið mjög fjölsóttar enda er fært um allar sveitir Skagafjarðar og veður hefur verið ’gott. í dag var barnasýn ing á Deleríum Búbónis og í kvöid var sýnt leikritið Hve gott og fagurt, sem Leikfélag Sauðárkróks sýnir. Myndin er úr þeim leik og er hún af Höllu Jónasdóttur í hlutverki Viktoríu og Kristjáni Skarp- héðinssyni í hlutverki Willi- ams stríðshetju. Sæluvikunni lýkur á sunnudaginn, og eru margbreytilegar skemmtanir og leiksýningar á hverjum degi. Auk einsöngvara úr kórnum sjálfum syngur Guðmundur Guð- jónsson óperusöngvari með kórn um. Söngfélag Hreppamanna er blandaður kór og telur nú milli 30 og 40 starfandi félaga flest bændur og húsfreyjur úr Hruna manna og Gnúpverjahreppum. Kór inn var stofnaður áiið 1961 og hefur haldið söngskemmtanir víða á Suðurlandi síðari hluta vetrar að einu ári undanskildu. Einnig hef ur kórinn sungið á samkomum annarra félagssamtaka m. a. á af- mælishátíð Héraðssambandsins Skarphéðins og að Laugarvatni á landsmótinu þar, og einnig komið fram i útvrapi. Söngstjóri kórsins frá upphafi hefur verið Sigurður Ágústson i Birtingar'holti. Sigurður varð sex tugur í síðasta mánuði og hefur verið söngstjóri í sínu byggðarlagi óslitið síðan hann var 17 ára. i þessu tilefni verður sérstaklega til söngskrárinnar vandað að þessu sinni. Næsti samsöngur kórsins verður i Aratungu n. k. sunnu dagskvöld kl. 21,30.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.