Tíminn - 13.04.1967, Qupperneq 9

Tíminn - 13.04.1967, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 13. aprfl 1967. 9 Útgefandl: PR AMSOKNARFLOKKURINN FramJrvæmdastjórl: Krlstján Benediktsson. Rltstjórar: Pórartnn Þórarlnsson (áb). Andrés Krtstjánsson, Jón Helgason og IndriBl G Þorsteinsson FulltrúJ ritstjórnar: Tómas Karlsson Ang- lýslngastj. Steingrimur Gíslason Ritstj.skrlfstofur 1 fiddu- húslnu simar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastræt) ? Al- greiðsluslml 12323 Auglýsingaslml 19523 Aðrar skrifstofur, siml 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán tnnanlands — I lausasðlu fcr. 7.00' eint. — Prentsmiðjan EDÐA n. t. Jákvæð leið - eða enn meiri lánahöft Fyrri dagur eldhúsdagsumræðnanna á Alþingi færði mönnum greinilega heim sanninn um það, að ríkisstjórn- arflokkarnir hafa enga stefnubreytingu að boða þjóðinni, engin nýmæli, engin ný ráð, enga nýja leið út úr þeirri geigvænlegu efnahagskreppu, sem óðadýrtiðin, úreltur hugsunarháttur og öfug peningamálastefna hefur leitt yfir atvinnuvegi þjóðarinnar, og sem birtist hvern dag, bæði í rekstrarfjárskorti fyrirtækjanna sjálíra og þeirri uppmáluðu uppgjöf ríkisstjórnarinnar að geta ekki einu sinni samið fjárlög fyrir heilt ár að því er varðar nauð- synlegan stuðning við atvinnuvegina og verða að láta 10 raánaða fjárlög um þetta duga í stað 12. Slík afgreiðsla er í senn furðulegt einsdæmi og alger gjaldþrotayfir- lýsing ríkisstjórnar. Og þá gjaldþrotayfirlýsingu inn- siglaði forsætisráðherrann síðan með því að segja, að það kæmi í hlut þeirra, sem stjórna mundu á haust- mánuðum að leysa þennan vanda. Betur var ekki unnt að játa haldieysi bráðabirgða- káksins í „verðstöðvuninni“ svonefndu og að vandanum væri aðeins velt á undan sér fram yfir kosningar. Það var ekki unnt að segja, að það vottaði fyrir tilraun til varnar fyrir efnahagsöngþveitið eða bólaði á nokkrum afsökunum. í stað þess hófu talsmenn stjórnarinnar upp einhvern sjálfsdýrðarsöng, þar sem týnd voru til ýmis einstök verk og athafnir og skrautlýst, eftir því sem orðgleði hrökk til. > Þá vakti ekki síður athygli neyðaróp kommúnista um hjálp kjósehda og óhróður þeirra um Framsóknarflokk- inn. Lögðu þeir allt kapp á að telja fólki trú um, að Framsóknarflokkurinn gæti hvergi bætt við sig þing- manni, og þvi væri eina leiðin til þess að fella stjórnina, að kjósa kommúnista. Slíkt neyðaróp er ef til vill eðli- legt, þegar höfð er í huga hin algera upplausn í þessu liði. sem komið hefur greinilega á daginn síðustu daga og beinlínis er sundrun Alþýðubandalagsms og yfir- taka hreinna kommúnista. En Oisli Guðmundsson svaraði kommúnistum eftirminnilega, er hann minnti á, að það hefði einmitt verið þessi áróðui kommúnista, sem bjarg- aði ríkisstjórninni í síðustu kosningum, eins og Mbl. lýsti svo greinilega í frægum leiðara. Jón Skaftason minnti kommúnista einnig á þá staðreynd, að úrslit síð- ustu bæjarstjórnarkosninga sýndu, að Framsóknarflokk- urinn hefði ekki aðeins augljósa möguleika á að vinna kjördæmaþingsæti, heldur einnig uppbótarþingsæti, ef það tækist ekki. Einu nýju úrræðin, sem öent var á í umræðunum, komu frá Framsóknarmönnum og þá fyrst og fremst frá Eysteini Jónssyni, sem gerði glögga grein fyrir þeirri jákvæðu leið og úrræðum, sem Framsóknarflokkurinn bendir nú á. Hann dró upp skýra mynd af því hættulega ástandi og öngþveiti, sem þjóðm býr nú við eftir ranga s'tjórnarstefnu og öfug tök í sjo ár og benti á hið algera úrræðaleysi stjórnarinnar, þar sem hún játar í orði og verki mistökin, en heldur enn :ast fað sömu ófarnaðar- ráðin. Hann sagði, að nú yrðu kjósendur að gera upp við sig, hvort þeir vildu styrkja b-ssa öfugu stjórnarstefnu með atkvæði sínu halda áfram i femnu, eða snúa við inn á þá jákvæðu ieið, sem Framsoknarflokkurinn hefur bent á. TÍIVIINN________ Dr- Oddur Guðjönsson: Tuttugu ára störf Efnahagsmála- nefndar í dag er þess minnzt í Genf og raunar víða annars staðar, að fyrir rúmum 20 árum kom Efna hags- og félagsmálaráð Samein uðu þjóðanna á fót sérstakri stofn un eða nefnd til að fjalla um viðskipta- og efnahagsmál Evr- ópu. Stofnun þessi hlaut nafnið United Nations Economic Comm ission for Europe eða Efnahags málanefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu, venjulega skamm- stafað ECE. Á þeim tuttugu ár- um, sem síðan eru liðin hefir vernefni þessarar nefndar beinzt að þvi að rannsaka efnaihags- ástand álfunnar almennt og ein- stakra landa eða svæða sérstak lega, safna hvers konar hagskýrsl um, ræða efnalhagsvanda líðandi stundar og síðast en ekki sízt beita sér fyrir aukinni milliríkja verzlun og þar með stuðla að auknum hagvexti þátttökuríkj- anna. Aðild að þessari stofnun eiga öll lönd Evrópu, sem eru meðlim ir S. Þ. auk Bandaríkja Norður Ameríku. Sviss er ekki þátttak andi í S. Þ., en hefir frá upp- hafi tekið þátt í störfum nefnd arinnar. Eru þátttöku ríkin nú 31. ísland hefir frá upphafi átt aðild að þessum samtökum. Náin tengsl eru og milli ECE og annarra stofnanna á vegum S. Þ., svo sem við Alþjóða Mat- væla- og landbúnaðarstofnunina (FAO), Alþjóða Vinnumálastofn unina (ILO), Alþjóða Heilbrigð ismálastofnunina (WHO) o. .s frv. Þá má geta þess, að sam- starf er einnig við ýmsa starf- andi viðskiptabandalög og ríkja samtök, svo sem við Efnahags- bandalag Evrópu (EEC), Frí- verzlunarsvæði Evrópu (EFTA), Viðskiptabandalag Austur-Evr ópuríkjanna (CMEA), Efnahags- og Framfarastofnun Evrópu (OECD) o.s.frv. Hafa þessir að- ila aðstöðu til að senda áheyrn arfulltrúa á fundi Efnahagsmála nefndarinnar og þannig fylgjast með störfum hennar. Um starfstilhögun og starfs- háttu ECE er þetta að segja í sem skemmstu máli: Störf ECE fara að langsamlega mestu leyti fram á vegum margra fastra und- imefnda, sem hver um sig fjall ar um tiltekin mál eða viðfangs efni. Efnahagsmálanefndin sjálf kemur saman til fundar einu sinni á ári, venjulega í apríl eða maí. Mæta þar fulltrúar ríkis- stjórna þeirra landa, er aðild eiga að samtökunum, ásamt áheyrnar fulltrúum, er þar eiga rétt til setu. Á þessum fundum eru rædd viðskipta- og hagþróunarmál álf unnar, ályktanir gerðar um marg vísleg málefni, sem ýmist eru sendar til ríkisstjórna þátttöku ríkjanna eða til Efnahags- og félagsmálaráðs S Þ. Þá er samin og samþykkt starfsáætlun fyrir næsta tímabil og felast jafnan í henni fyrirmæli og ábendingar til hinna ýmsu undimefnda í sambandi við verkefni þau, er þeim hefir verið falin til úr- lausnar. Af fastanefndum þeim, er hér koma til greina, skulu m. a. þessar tilgreindar: Nefnd um landbúnaðarmál og vörur. Nefnd um járn- og stálvörur.Nefnd um kol og gas. Nefnd um timbur og pappír. Nefnd um kemískar vör ur. Allar þessar nefndir safna og S.Þ. fyrir Dr. OiSdur Guðjónsson fá til meðferðar skýrslur um fram leiðslu, birgðir, verzlun, verðlag og söluhórfur á framangreindum vörum. Er að þessu hið mesta hagræði fyrir þá, er annast fram leiðslu og fást við verzlun með framangreindar vörur. Þessar nefndir beita sér einnig m a. fyrir stöðlun í verzlun og fram leiðslu áðurnefndra vara, þar sem því verður við komið, leitast við að fá staðfestar almennar reglur um sölu þeirra, hafa milli göngu um skipti á tæknilegum nýjungum o.s.frv. Þá má geta nefndar, er fjallar um raforkumál. Hefir hún leyst af hendi mikið starf í sambandi við hvers konar upplýsingar um framleiðslu á raforku í álfunni, fyrirkomulag um sölu á raforku í sveitum og borgum, auk kynn ingu á margháttuðum tæknileg um nýjungum. Nefnd, er fjallar um hvers konar flutningamál. Lætur hún m. a. til sín taka vöru flutninga á vegum, með járn- brautum og á skipum eftir ám, einkum með tilliti til reglna um tollmeðferð þessa flutnings, um meðferð hættulegs vamings eða vara, sem hætt er við að liggi fljótt undir skemmdum o.s.frv. í gildi eru þegar ýmsir alþjóða samningar um þessi mál, sem komið hefur verið á fyrir atbeina ECE. Þá má nefna nefnd er fjallar um húsnæðismál. Var starf þessarar nefndar sérstak- íega þýðingarmikið fyrst eftir stríðið, þegar orðatiltækið „borgimar hrundar og Iöndin auð“ áttu víða við í bókstaflegri merkingu. Nú beinist starf þess arar nefndar einkum að tillög um um margs konar tæknilegar nýjungar á sviði íbúðabygginga, skipulagsmál borga og þorpa, samræmingu eða stöðlun, á gerð íbúðarhúsa í fjöldafram- leiðslu o.s.frv. Á vegum ECE er öðru hverju stofnað til ráðstefnu sérfræðinga um hagskýrslugerð. Er þar leit azt við að samræma vinnuaðferð ir og þar með tryggja réttari statistiskan (eða tölulegan) sam anburð hagskýrslna. Er á þess um vettvangi unnið hið mikil- vægasta stárf. Áður en hér er látið staðar numið við upptalningu fasta nefnda ECE, þykir rétt að geta Evrópu hér enn einnar nefndar, og þá ekki þeirrar þýðingarminnstu. Er það: Committee on the Development of Trade eða við- skiptanefnd ECE, eins og hún er kölluð í daglegu tali. Eins og nafnið bendir til er viðfangsefni þessarar nefndar, einkum að vinna að aukinnj verzlun milli þátttökuríkjanna, en einnig að aukinni milliríkjaverzlun al- mennt. Er ærið verkefni fyrir , þessa nefnd, þegar þess er gætt., að hluti þátttökuríkja ECE í heimsframleiðslu iðnaðarvarnings er nálega 80% nálega helmingur af heimsframleiðslu landbúnaðar vara og um 65% af alheimsverzl uninni. Frá upphafi hefir einn af þýð ingarmestu þáttum í starfi við- skiptanefndar ECE beinzt að at- hugun á viðskiptum þjóða, er búa við ólíkt efnahagskerfi — m.ö.o. að viðskiptum Vestur- Evrópu við socíalistísku löndin í Austur-Evrópu — Austur/Vest- ur viðskiptum og verður nánar vikið að því síðar. Fundir viðskiptanefndarinnar heíiast að venju með umræð- um um viðskiptaþróun álfunn- ar almennt og einstakra landa eða svæða sérstaklega. Virðast þær umræður oft kærkomið til- efni til að koma á (ramfæri gagn kvæmum umkvörtunum eða klögumálum af hálíu þátttöku- ríkjanna hvers í annars garð — en pess er einnig oft getið, sem vel er talið hafa verið gert í við- skiptum einstakra ianda. En auk þessara almennu viöræðna, fjall ar nefndin um margvísleg önn- ur málefni, sem greiða eiga fyrir miiiiríkjaverzlun. Skulu hér nefnd nokkur viðfangsefni,. sem nefndin hefur ’.átið til sín taka og fcún fjallar að staðaldri um: Reglur um gerð kaup- og sölu- samninga. Samræmingu og stöðlun útflutningsskjala. Reglur um gerðardóma almennt og að því er snertir einstakar vöruteg- undir. Alþjóða vörusýningar og toilmeðferð sýningarmuna. — Samræmingu um reglur um tryggingar á vörum í milliríkja- verzlun. Gerð viðskiptasamninga \til langs tíma. Afnám viðskipta oálmana almennt og að því er snertir einstakar vörur sérstak- lega. Ráðstafanir til að greiða fyrir yfirfærslum milli jafn- kevpisreikninga (clearing-reikn- inga). Má í þessu sambandi geta þe.ss, að ísland hefur fyrir meðlil göngu ECE nokkrum sinnum fengið yfirfæ.-ðar verulegar upp hæðir frá einu jafnkeypislandi til armars, enda þótt viðkomandi viðskiptasamningar hafi ekki gert ráð fyrir slíkum greiðslum. Heiur verið af þessu miklð hag ræði. Að sjálfsögðu mætti tilgreina hér fleiri verkefni, sem við- ski-nanefndin fjallar um, en hér skal þó láta staðar numið. Bein þátttaka íslands í störf- um ECE eða einstökum undir- nefndum hefur ekki verið miikl, enda þótt íslenzka ríkisstjórnin hafi þó jafnan síðan 1953 árlega senr fulltrúa á funai viðskipta- neíndarinnar Hefur þar ráðið mastu um, að nefndir: hefur lát- ið viðskiptin við sóslallstísku löndin i Austur-Evrópu sérstak- lega til sín taka. Má raunar Framhald á h’s 12

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.