Alþýðublaðið - 08.09.1984, Side 6
6
Laugardagur 8. september 1984
Dómsdagur 1
Samvinnubankanum 20% en út-
lánsaukning hans er í hærri kantin-
um, 51,5%.
Þar sem þrengst hefur mjög um
lausafjárstöðu bankanna hafa þeir
nú gripið til þess ráðs að taka svo til
algjörlega fyrir ný útlán, nema
reglubundin rekstrarlán til atvinnu-
veganna. Einnig er ætlunin að
herða mjög hvers konar innheimtu-
aðgerðir vegna vangoldinna lána.
Ennfremur verður framvegis ekki
hægt að semja um lengingu lána í
þeim mæli, sem áður hefur tíðkast.
Og verður ekki vikið frá þessari
nýju stefnu fyrr en ljóst er að sparn-
aður hefur aukist, eftirspurn eftir
lánum minnkað og lausafjárstaða
bankanna komist í eðlilegt horf.
Þessar aðgerðir setja eðlilega
mikinn ugg í fólk nú. Svo hefur ver-
ið þrengt að efnahag manna í tíð
núverandi ríkisstjórnar að fólk á
erfitt með að standa í skilum, eins-
og berlega kemur fram í því hvernig
staða bankanna er nú.
Hætt er við að margur, sem stað-
ið hefur í íbúðarframkvæmdum á
undanförnum árum og tekið
á sig skuldabagga, sem hægt hefur
verið að rúlla áfram, sjái nú allt í
einu dómsdag framundan. Hvað
gerist eiginlega? Verður fjöldi heim-
ila gerður upp á næstunni? Það er
eðlilegt að menn séu svartsýnir á
framtiðina.
En hversvegna koma þessar að-
gerðir bankanna nú? Það er langt
síðan séð var hvert stefndi. Það
gerðu allir sér grein fyrir því að að-
gerðir ríkisstjórnarinnar í banka-
málum komu alltof seint. Vaxta-
frelsið, sem átti að örva innlán var
dauðadæmt þar sem litlir sem engir
peningar eru í umferð.
Hver er þá hinn eiginlegi tilgang-
ur þessara hörkulegu aðgerða?
Einsog alþjóð veit þá stefnir í
hörkuleg átök á vinnumarkaðinum
í haust. Fjöldi verkalýðsfélaga hef-
ur sagt upp samningum, BSRB hef-
ur boðað til verkfalls og bókagerð-
armenn leggja niður vinnu á mánu-
daginn ef ekki semst.
í ljósi þessa fá þessar aðgerðir
nýja merkingu. Getur verið að til-
gangurinn sé sá að skjóta launþeg-
um skelk í bringu með því að taka
fyrir öll útlán? Fari launþegar í
verkfall missa þeir sínar stöðugu
tekjur og eiga því erfitt með að
standa í skilum við lánveitendur
sína. Þegar svo lánveitendur hóta
öllu illu fara eðlilega að renna tvær
grímur á fólk. Gæti verið að þetta
sé hugsunin á bak við aðgerðir
bankanna nú? Að þeir vonist til að
geta lamað baráttuþrek launafólks
með þessu?
Sé þetta ástæðan, sem ekkert
verður um fullyrt hér, er langt síðan
gripið hefur verið til jafn lúalegra
baráttuaðferða.
Ráðherrar 1
lega hvað varðar landbúnaðarmálin
og Framkvæmdastofnun innan
þingflokks Framsóknarflokksins.
Sérstaklega hefur verið tekið til
þess, að ekki mun vera stafkrókur
um húsnæðismálin í hinum nýja og
„endurbætta" stjórnarsáttmála,
enda þótt ástand þeirra mála sé með
ósköpum. Þá er ekkert um mennta-
mál í pakkanum, ekkert um kjara-
málin, utan þess að boðað er að
kjaraskerðingin haldi áfram á
næsta ári, þegar lög um bann við
verðbótum á Iaun á að ganga ,úr
gildi; það bann á að framlengja.
Hitt er athyglisvert að forystu-
menn stjórnarflokkanna hafa loks
viðurkennt það fullum fetum að
60% markið varðandi erlendar lán-
tökur er fokið út í veður og vind.
Hlutfall erlendra lána á þessu ári
verður á bilinu 62-63 % og stefnt er
að því að það hlutfall verði 61% á
næsta ári.
Margt fleira er ástæða til að tí-
unda í þessu sambandi. Það mun
Alþýðublaðið gera síðar. Vonandi
strax eftir helgi, ef verkfall bóka-
gerðarmanna setur ekki strik í þann
reikning.
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Embætti útvarpsstjóraer laust til umsóknar. Embættiö
veitist frá 1. janúar 1985 að telja.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík, fyrir 20. október 1984.
Menntamálaráðuneytið,
7. september 1984.
Verkamenn — Hafnarfiröi
Áhaldahús Hafnarfjarðar vantar menn á loft-
pressu og til almennrar útivinnu (mötuneyti á
staðnum). Upplýsingar í síma 53444.
Yfirverkstjóri.
ffl Bókari
In'nkaupastofnun Reykjavíkurborgaróskareftirað ráða
bókara. Upplýsingar veitir Sigfús Jónsson, Fríkirkju-
vegi 3, í síma 25800.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublööum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 17. september 1984.
flAUSAR STÖÐUR HJÁ
j REYKJAVÍKURBORG
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur vill ráða starfsfólk til
eftirtaiinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamn-
ingum.
Hjúkrunarfræðinga við barnadeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur og eftirtalda skóla;
Austurbæjarskóla, Álftamýrarskóla, Langholtsskóla,
Laugalækjarskóla, Laugarnesskóla, Vogaskóla, Selja-
skóla og Olduselsskóla.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í sima 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 17. september n.k.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Reykjavikurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Skrifstofumenn I hálfsdags störf viö hinar ýmsu stofn-
anir hjá Reykjavfkurborg.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri Reykjavíkurborg-
ar í sima 18800.
Uppeldisfulltrúa á meðferðarheimiliö að Kleifarvegi 15.
Staðan er laus frá 1. sept. og veitist til 4ra mánaða, eða
til 31. des. 1984.
Upplýsingar veitir forstöðumaður I sfma 82615.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vfkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 17. september n.k.
SÆNSKA OG NORSKA TIL PRÓFS
í STAÐ DÖNSKU
Nemendur í grunnskóla og framhaldsskóla sem
vilja læra norsku eöa sænsku í stað dönsku eru
beðnir að mæta með stundatöfluna sína í Mið-
bæjarskóla sem hér segir:
Miðvikudag 12. sept.:
5. bekkur kl. 17
6. bekkur kl. 18
7. bekkur kl. 18
Fimmtudag 13. sept.:
8. bekkur kl. 17
9. bekkur kl. 18
Framhaldsskólanemendur kl. 19
ATHUGIÐ að kennslan er einungis ætluð nem-
endum sem hafa undirstöðu í sænsku eða
norsku.
Námsflokkar Reykjavíkur.
77/ námsmanna á fyrsta ári,
í lánshæfu námi
Sækið um
námslánin
strax!
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna veiti námsmönnum á fyrsta ári
ekki víxillán í haust, heldur verða þeir að leita á náðir
banka og sparisjóða.
Vilji námsmenn á fyrsta ári að Lánasjóður veiti þeim
lán eftir áramót til að greiða aftur það sem bankar og
sparisjóðir kunna að lána, verða þeir að sækja um nú
þegar.
Lán fyrir haustmisseri verður ekki veitt nema sótt sé
um áður en nám hefst. Sækið því um strax. Sé það
ekki gert fæst aðeins lán fyrir vormisseri!
Ennfremur skal námsmönnum á fyrsta ári bent á að
hafa samband við samtök námsmanna, vanti uppiýs-
ingar eða komi til einhverra vandræða, til dæmis í
viðureign við banka og sparisjóði.
Stúdentaráð Háskóla íslands
Bandalag íslenskra sérskólanema
Iðnnemasamband íslands
Samband ísl. námsmanna erlendis
Tilkynning til söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að
gjalddagi söluskattsfyrirágústmánuðer15. sept-
ember. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þrí-
riti.
Fjármálaráðuneytið.
PRÓFADEILDIR
Eftirtaldar prófadeildirverðastarfræktará vegum
Námsflokka Reykjavíkur í vetur:
í Laugalækjarskóla:
Hagnýt verslunar- og skrifstofudeild.
Viðskiptabraut: 1. og 3. áfangi hefjast á haustönn.
Almenn menntadeild: íslenska, stærðfræði,
danska og enska, 1. og 3. önn á framhaldsskóla-
stigi.
í Miðbæjarskóla:
Forskóli sjúkraliða. Bóklegar greinar sjúkraliða-
náms.
Fornám. Samsvarar námi 9. bekkjar grunnskóla.
Aðfaranám. Samsvarar námi 7. og 8. bekkjar
grunnskóla.
Innritun í allar prófadeildir mun fara fram 10. og
11. september i Miðbæjarskóla kl. 17—20.
Innritun í almenna flokka mun fara fram 18. og 19.
september.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á Husavík óskar að ráða hjúkrunar-1
deildarstjóra og hjúkrunarfræðinga í fastar stöð-
ur nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333 alla virka daga.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf