Alþýðublaðið - 08.09.1984, Qupperneq 7
Laugardagur 8. september 1984
Þeir grínast 2
farið þrátt fyrir allt. I þeirri um-
ræðu veit ég ekki hvorum á að trúa.
Ef fjárlagahalli er slæmur hvað
varðar vaxtaþróun og viðskipti, þá
skulum við minnka hann. Ef minni
halli þýðir hærri skatta, þá skulum
við hækka þá. Og ef leiðtogar okk-
ar eru ekki hreinskilnir við okkur,
þá skulum við skipta um leiðtoga".
Snemmbær sigurvíma?
Sem áður segir eru Bandaríkja-
menn ekki þekktir fyrir að hafa
mikinn áhuga á stjórnmálum. í ferð
undirritaðs til Seattle-borgar og ná-
grennis varð hann yfirhöfuð ekki
var við mikinn stjórnmálaáhuga,
en þó sögðu mér kunnugir að það
væri nokkuð að breytast. I Seattle
gætir talsverðra áhrifa frá Skandi-
navíubúum sem sest hafa þar að. Ef
til vill er áhuginn þar meiri en tíðk-
ast víða annars staðar í Bandaríkj-
unum. Hvað sem því líður er óhætt
að segja að ef Gerry Ferraro heldur
áfram að hrífa áheyrendur með sér
eins og hún gerði í Seattle þennan
fagra ágústdag, þá er langt í frá að
Reagan geti farið að fagna sigri.
Það var einmitt talsvert til umræðu
í fjölmiðlum að Repúblikanar ættu
á hættu að vera of sigurvissir og
gleyma sér í snemmbærri sigur-
vímu. Það er engan veginn hægt að
afskrifa Mondale- og Ferrarofram-
boðið þó kannanir sýni Reagan og
Bush með gott forskot nú í septem-
ber. Repúblikanar hafa gefið á sér
höggstað, sem felst í öfga hægri-
sinnaðri útkomu flokksþings þeirra
í Dallas, Texas. Oft hefur verið sagt
að enginn raunverulegur munur sé á
flokkunum tveimur í Bandaríkjun-
um. Með öfgasinnaðri stjórn Reag-
ans hafa skilin orðið gleggri en
nokkurn tímann áður. 6. nóvember
munu kjósendur í Bandaríkjunum
standa frammi fyrir skýrum val-
kosti. Flestir, Repúbljkanar með
taldir, reikna með því að Demókrat-
ar muni markvisst minnka það-
mikla bil sem nú er milli fylgis
frambjóðendanna. Hitt er annað
mál að flestir búast við því að Reag-
an-framboðið muni sigra, en að
munurinn verði mun minni en nú
lítur út fyrir.
FÞG
ítölsk
myndlist
Laugardaginn 8. september kl.
14.00 mun verða opnuð sýning á
grafíkverkum, vatnslitamyndum,
silkiþrykkmyndum og verkum unn-
in í svonefndri upphleyptri aðferð,
„relievografía", eftir 13 listamenn
sem starfa í Mílanó á Ítalíu að
mestu leyti.
Sýningin verður í Listamiðstöð-
inni h.f. við Lækjartorg, annarri
hæð. Flest verkin á sýningunni eru
eftir Giovanni Leombianchi
Giovanni hefur málað
margar myndir hér á landi, mynda-
seríu frá Grímsá í Borgarfirði auk
þess sem hann er að vinna seríu af
myndum frá Norðurá.
Þá er ein mynd eftir hvern hinna
12 listamannanna og vinna þeir
myndir þessar í kringum tölustaf-
inn sjö. Hver listamaður túlkar hina
magísku tölu sjö, hver eftir sínum
stíl.
Myndasería þessi er öll unnin í
vinnustofu Giovanni Leombianchi í
Mílanó.
Allir listamennirnir eiga það
sameiginlegt eins og áður var nefnt
að starfa að mestu leyti í Mílanó og
telja sig vera „ítalska" listamenn,
þótt í hópnum sé einn Breti, einn
Kínverji og einn Frakki.
Frumkvöðull að þessum sam-
skiptum er Friðrik Á. Brekkan.
Samskipti listamanna og gallería
verðuríframtíðinniunninígegnum S
Listamiðstöðina h.f. í Reykjavík. S
Sýningin er opin daglega milli kl. e
14.00 og 22.00 og lýkur henni |
sunnudagskvöldið 16. september.
Á miðvikudaginn verða sett i umferð
NÝR PENINGASEÐILL
OGNÝMYNT
Á grundvelli laga um gjaldmiðil íslands nr. 22 frá 23. apríl 1968 mun Seðlabanki íslands
gefa út og setja í umferð hinn 12. september nk. eitt þúsund króna
peningaseðil og tíu króna mynt af svofelldri gerð:
10 KRÓNA MYNT
Stærð myntarinnar er 27,5 mm í þvermál og 1,78 mm að þykkt,
og hún er 8 g að þyngd. Myntin er slegin úr kopar/nikkel,
og er rönd hennar riffluð.
Á framhlið myntarinnar eru landvættirnar eins og á 5 króna myntinni,
verðgildi í bókstöfum, „ísland“ og útgáfuár.
Á bakhlið er mynd af fjórum loðnum og vérðgildi myntarinnar í tölustöfum.
1000 KRÓNÁ SE:
Stærð: 150 x 70 mm
E00003801
SAMKVÆMT LÖGUM NR 10
29. MARS1961
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
FRAMHLIÐ Aðallitur: fjólublár
Á spássíu (upptalning efnis ofan frá og niður):
Á myndfleti (upptalning frá vinstri):
Upphæð í tölustöfum
Númer seðilsins með bókstafnum E fyrir framan,
svart
Vatnsmerki ber mynd Jóns Sigurðssonar forseta
Tilvísun í lög Seðlabanka Islands
Undirskriftir tveggja bankastjóra í senn
Utgefandi Seðlabanki Islands
Borði, unninn út frá myndefni á rekkjurefli í
Þjóðminjasafni Islands
Blindramerki, 2 lóðrétt upphleypt strik
Oryggisþráður þvert í gegnum seðilinn
Upphæð í bókstöfum, leturgerð af skírnarfonti úr
Brynjólfskirkju, Skálholti
Grunnur, fjöllita
Mynd af Brynjólfi Sveinssyni Skálholtsbiskupi
(1605-1675)
Númer, prentað í rauðu, neðst til hægri
Upphæð í tölustöfum, lóðrétt, efst til hægri
BAKHLIÐ Aðallitir: fjólublár og gulbrúnn
Á myndfleti (upptalning frá vinstri):
Á spássíu (upptalning ofan frá):
Upphæð í tölustöfum neðst til vinstri
Sneiðing af Brynjólfskirkju efst til vinstri
Brynjólfskirkja í Skálholti, séð að vestan
Grunnmynstur sama og í borða á framhlið
Upphæð í tölustöfum
Vatnsmerki
Mynd af hring úr eigu Brynjólfs Sveinssonar