Alþýðublaðið - 10.11.1984, Síða 3
Laugardagur 10. nóvember 1984
3
Vanskilasaga
úr Garðabœ
í 8 hús af 12
Alþýðublaðið hefur ítrekað
greint frá stórauknum vanskilum
fyrirtækja og einstaklinga í þjóð-
félaginu, stórauknum gjaldþrotum
og nauðungaruppboðum. Er það
mál manna að sjaldan eða aldrei
hafi ástandið verið jafn slæmt hjá
mönnum og nú og tengja auðvitað
flestir það við stjórnarstefnuna.
Alþýðublaðið hefur fregnað af
heldur óskemmtilegri dæmisögu
um hversu víðtækt og almennt
þetta ástand er hjá fólki. Hún sýnir
að ekki einu sinni fólk í Garðabæ
sleppur við ástandið, en í því bæjar-
félagi eru meðaltekjur einna hæstar
á landinu.
Fyrir skömmu voru innheimtu-
menn Garðabæjar á ferð í því skyni
að „skrifa upp á“ eins og það heitir:
Vara fólk við vegna vanskilanna og
skrifa niður eigur ef til uppboðs
þyrfti að koma. í einni götu þar sem
eru 12 einbýlis- og tvíbýlishús
þurftu þeir í þessum erindagjörðum
að koma við í alls 8 húsanna!
Verkakvennafélagið
Framsókn 70 ára
Hinn 25. október sl. varð Verka-
kvennafélagið Framsókn 70 ára. Af
ófyrirsjánlegum ástæðum var ekki
hægt að minnast afmælisins á þeim
degi.
Stjórn félagsins hefur nú ákveðið
að efna til opins húss í Átthagasal
Hótels Sögu 25. nóvember nk. Eru
félagskonur hvattar til að líta inn og
þiggja kaffi í tilefni þessa merka af-
mælis.
Skattsvik 1
það sé mikil brotalöm að því er
þetta ákvæði varðar og þetta þurfi
endurskoðunar við, þær viðmiðun-
arreglur sem ríkisskattstjóri notar
varðandi það að reikna laun við eig-
in atvinnureksturþ sagði Jóhanna.
„Það kom fram á sl. þingi að menn
meta það svo, þó að það sé ekki
staðfest . . . að skattsvikin gætu
numið 10-11%, af þjóðartekjum.
Hér er vissulega um stórar fjárhæð-
ir að ræða!‘
í umræðum á Alþingi hefur einn-
ig komið fram það mat manna að
skattsvikin nemi um þriðjungi af
fjárlögum, en það gera yfir 5 millj-
arða miðað við fjárlög 1984. Og eru
þá söluskattssvik undanskilin.
Þrátt fyrir umræður um þessi mál
og ítrekaðar samþykktir liggur fyrir
að innan við 1% af framtölum fé-
laga og einstaklinga í atvinnurekstri
lenda í ítarlegri skoðun hjá skatta-
eftirlitinu. Skattyfirvöld búa enda
við fjárskort og eru illa búin af
mannskap. Tillögur alþýðuflokks-
manna sem samþykktar voru í vor
lutu að úttekt á og aðgerðum gegn
skattsvikum, en í umræðum um
fyrirspurnir Jóhönnu Sigurðardótt-
ur um afdrif þessara tillagna kom
berlega í ljós að enginn pólitískur
vilji er fyrir hendi hjá stjórnarherr-
unum fyrir því að gera átak til að
bæta hér úr.
Albert varð á Alþingi öskuillur
yfir því að þessar upplýsingar úr
fórum skattrannsóknarstjóra
skyldu koma fram. „Við skulum
átta okkur á því að það er ekki
alltaf hægt að sækja gull í greipar
annarraþ sagði Albert. „Við skul-
um þá bara rannsaka okkur um leið
og við látum rannsaka aðra!‘
Fannst honum það ekki nógu gott
að það væri gert tortryggilegt að
atvinnurekendur skuli hafa minni
meðaltekjur en launþegar! Að öðru
leyti vildi hann lítt tjá sig, en viður-
kenndi þó að hann „efaðist ekkert
um það að það er þarna brotalöm
sem þarf að athuga“. Hins vegar
hefur ítrekað komið fram að lítið
sem ekkert hefur verið gert til úr-
bóta og öllum tilmælum um aukið
fjármagn og meiri mannskap í
skattrannsóknir hefur verið vísað
frá við undirbúning fjárlagafrum-
varpsins.
Útboð —
Viðbygging
Hafnarfjaröarbær leitar tilboöa í viðbyggíngu
Hafnarborgar, Strandgötu 34. Húsinu á að
skila fokheldu og frágengnu aö utan, 20.
ágúst 1985.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Bæjar-
verkfræöings, Strandgötu 6, gegn 3000 kr.
skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama
staö þriðjudaginn 20. nóv. kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Heimilishjálp
Starfsfólk óskast í heimilishjálp, tilvalið fyrir hús-
mæður og skólafólk sem hefur tíma aflögu, geta
unnið 2 saman ef óskað er. Upplýsingar veittar í
síma 18800.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
DROPLAUGARSTAÐIR — SNORRABRAUT 58 - SÍMI 25811
Félagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa á verndaða vinnustaðnum
Örva í Kópavogi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. nóv. n.k. Umsóknum og
upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila
á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Stjórn Örva.
Hugmynda-
samkeppni
Iðnaðarbankans
Ytf/ mnhi
n\tt tákn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iðnaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið,. að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.__________________________________
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra augiýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtáknkr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Pátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafntjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
H ugmy ndasam keppn i
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
Iðnaöarbankmn
-nútímabanki