Tíminn - 18.05.1967, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 18. maí 1967.
TÍMINN
Tómas Katisson, ritstjórnarfulltrúi:
Fyrirtækin, „flokkur einka-
framtaks" og stjórnarstefnan
Atvinnufyrirtækin eru undir-
staða hvers þjóðfélags. Þar fer
fram sú verðmætasköpun, sem
allir þjóðfélgasþegnar fá beint
eða óbeint lífsframfæri sitt af.
Vel rekin og öflug fyrirtæki eru
því forsenda velmegunar þjóð-
félagsþegnanna í heild. Aukin
velmegun fæst ekki nema með
eflingu fyrirtækjanna, bættum
rekstri þeirra, aukinni verð-
mætasköpun, þar sem verðmæta
aukningin er meiri en aukning
tilkostnaðarins við framleiðsl-
una, þ. e. aukinni framleiðni.
Aðeins þannig kemur meira til
skipta á hverja vinnandi hönd.
Framleiðniaukningin í nútíma-
fyrirtækjum byggist fyrst og
fremst á aukinni tækni, vélvæð
ingu og hvers konar hagræð
ingu í rekstri. Þennan undir
stöðuþátt þjóðfélagsins kepp-
ast nú þjóðirnar við að efla
sem mest með hvers konar ráð-
um.
Áróðurinn gegn
fyrirtækjunum
urs gegn eigendum þeirra. Hag
ur launþega á íslandi mun ekki
batna við það og hann verður
ekki bættur nema með betri og
öflugri rekstri fyrirtækjanna
og réttlátari skiptingu þjóðar
tekna. Til þess að tryggja það
verður að knýja fram stefnu-
breytingu því núverandi stjórn
arstefna er að sliga atvinnu-
fyrirtækin. Það verður að taka
upp nýja stefnu, þar sem ríkis
valdið hafi foxystu um samstarf
við einkaframtakið og félags-
framtakið og launþegasamtök
um skipulega og markvissa
aukningu framleiðni í fyrir-
tækjunum og uppbyggingu
nýrra arðvænlegra atvinnu
greina og ríkisvaldið tryggi síð
an fjármagn, fyrirgreiðslu og
forgangsstuðning við það, sem
samkomulag verður um að í
fyrirrúmi eigi að sitja.
Það er þessi stefna, þessi
knýjandi og jákvæða stefnu-
breyting, sem Framsóknarflokk
urinn vill beita sér fyrir, sem
Morgunblaðið kallar nú hafta-
stefnu.
Það, sem hér hefur verið
sagt eru að vísu augljós sann-
indi, sem flestum ætti ekki úr
minni að falla, þegar um at-
vinnu- og efnahagsmál er rætt.
Byrðar á bök
launþega
Æ fleirum verður það nú
Því miður virðist þetta þó oft
gleymast í hita baráttunnar hér
á landi og á það sjálfsagt sín-
ar orsakir.
Hér á landi liafa kommúnist-
ar og til skamms tíma Alþýðu
flokkurinn rekið heiftúðugan
áróður gegn atvinnufjTÍrtækjun
um og eigendum þeirra al-
mennt. Rætur þessa áróðurs
standa í stjómmálastefnum
þessara flokka, sem eiga upp-
runa sinn og orsök í lénsskipu-
laginu. Kommúnistar hafa
stefnt að byltingu. Þeir hafa
viljað velta í rúst til að skapa
grundvöll hennar og alveldi
ríkisins. Sósíal demókratar hafa
til skamms tíma stefnt að víð-
tækum ríkisrekstri fyrirtækja.
Áróður þessara flokka hefur því
beinzt um áratugi gegn einka-
fyrirtækjum og eigendum
þeirra.
Framsóknarflokkur-
inn og fyrirtækin
Þessi áróður, svo og lygaáróð-
ur gegn Framsóknarflokknum
af hálfu Sjálfstæðisflokksins
vegna stuðnings hans við sam-
vinnufélögin, hefur valdið því,
að mönnum, sem komizt hafa
yfir atvinnutæki, hefur þótt
allt að því óhugsandi annað en
skipa sér undir merki Sjálfstæð
isflokksins —• og það jafnvel
þótt það hafi verið fyrir atbeina
og áhrif Framsóknarflokksins á
atvinnumála- og efnahagsmála
löggjöf landsins, að þeim var
«fært að eignast fyrirtæki. Af
þessu stafa m. a. ócðlilega mikil
áhrif Sjálfstæðisflokksins á ís-
landi borið saman við t. d.
íhaldsflokkana á Norðurlönd-
um.
Atvinnufyrirtækin á íslandi
þurfa svo sannarlega annars
frekar við nú en hatursáróð
ljóst, að standi fyrirtæki lands-
manna höllum fæti og fái þau
ekki eðlilega og sjálfsagða fyr-
irgreiðslu af ríkisvaldsins hálfu,
versnar hagur þjóðarinnar. Fyr-
irtækin geta þá ekki greitt það
kaup, sem fólkið þarf að fá og
verður að fá og gjaldþol fyrir-
tækjanna til opinberra gjalda,
skatta og útsvars, minnkar- Þar
sem ákveðnum upphæðum til
opinberra þarfa þjóðarinnar er
jafnað niður á einstaklinga og
fyrirtæki þýðir slæmur hagur
fyrirtækjanna það, að meira af
gjaldabyrðinni færist af þeim
yfir á bök launþeganna eins og
glöggt kom fram við síðustu
útsvarsálagningu hér í Reykja-
vík. Efling fyrirtækjanna ir
því ekki síður hagsmunamál
launþegans og hins almenna
skattgreiðenda en atvinnurek-
andans og þar skiptir aukin
framleiðni öllu og hví skyldi
einbeittri forystu ríkisvaldsins
ekki takast að laða þessa aðila
til raunhæfs samstarfs um að
auka hana, þar sem tryggt yrði,
að báðir fengju sína réttmætu
hlutdeild í hinum aukna arði?
„Flokkur einkafram-
taksins og stjórnar-
stefnan
Frá 1927 allt fram til 1959
hafði Framsóknarflokkurinn
mikil áhrif á stjóm landsins.
Framsóknarflokkurinn átti mik
inn þátt í þeirri margháttuðu
löggjöf, sem sett var á þessum
áram til að styðja að uppbygg-
ingu íslenzkra fyrirtækja.
Stefna Sjálfstæðisflokksins í
atvinnu- og efnahagsmálum hef
ur ekki kornið ómenguð fram í
stjórn landsins fyrr en síðustu
árin. 1960 gerist Alþýðuflokkur
inn hækja Sjálfstæðisflokksins
og stefna Sjálfstæðisflokksins
Tómas Karlsson
sem, hefur haldið því fast fram
og fengið menn til að trúa, að
hann væri eini flokkurinn, sem
styðja vildi framtak einstakl-
inganna, hefur loks nú fengið
að sýna sig áþreifanlega í fram
kvæmd. Menn skyldu ætla að
hagur fyrirtækjanna stæði með
einstökum blóma éftir þennaii
7 ára reynslutíma stefnu
„flokks einkaframtaksins".
Nú hafa menn rekið sig á, og
vonandi ekki til að reka sig á
aftur, því að sú reynsla, sem
fengizt hefur, hefur reynzt fyr-
irtækjunum og landsmönnum
öllum dýrkeypt.
Hvernig er nú komið?
Eitt iðnfyrirtækið af öðru
hrynur. Sjávarútvegur og fisk
iðnaður, undirstaða útflutnings-
verzlunarinnar, á heljarþröm.
Stjómlaus óðaverðbólga ríkir
þótt reynt sé nú að leyna
straumþunga hennar um stund
arsakir eða fram yfir kosning-
ar með sjónhverfingum svokall
aðrar verðstöðvunar. fslenzk
fyrirtæki eru látin búa við
miklu lakari aðstoð og fyrir-
greiðslu frá ríkisvaldi og banka
kerfi en fyrirtæki nágranna-
þjóða sem íslenzkum fyrirtækj
um er ætlað að keppa við á
innlendum og erlendum mörk
uðum. íslenzkt fyrirtæki búa
við vaxtaokur og stranga rekst-
urslánaskömmtun. Sérstakar
ráðstafanir til að stuðla að auk
inni framleiðni eru nær engar
gerðar af ríkisvaldsins hálfu og
ódýrt fjármagn til þessa vaxtar
brodds efnahagslífsins er lítið
sem ekkert fáanlegt ólíkt þvi,
sem hjá nágrannaþjóðum ger-
ist.
En hvernig stendur á því, að
„flokkur einkaframtaksins“
leikur „sína menn“ svona grátt?
Ástæðan
Svarið er tvíþætt. f fyrsta
lagi er það fáránleg oftrú á
gömul íhaldsmeðul í stjórn pen
lnga- og efnahagsmála, sem
stjórnar forystumönnum Sjálf
stæðisflokksins.
f öðru lagi eru það hagsmun
ir áhrifamestu mannanna inn-
an Sjálfstæðisflokksins. Mann-
anna, sem eiga og gera út Sjálf
stæðisflokkinn og hafa jafnan
yfirhöndina, þegar hagsmunir
einstakra hópa innan flokksins
rekast á við þeirra hagsmuni.
Þeir hafa borið sigur úr býtum
í skiptum við iðnrekendur, út-
gerðarmenn, frystihúsaeig-
endur og launþega.
Það eru vissir stórir innflytj
endur og eigendur fjármagns,
sem ráða ferðinni og þeir hagn
ast af ófremdarástandinu, með
an gjaldeyririnn lirekkur til.
Augu fjölda atvninurekenda
eru nú að opnast fyrir því, að
með Sjálfstæðisflokknum geta
þeir ekki átt samleið að ó-
breyttri stefnu.
Ungir menn í
atvinnurekstur
Framsóknarflokkurinn er í
rauninni eini flokkurinn, sem
styðja vill hið almenna og
frjálsa einstaklingsframtak
fjöldans og það sýnir reynslan
og áhrif Framsóknarflokksins á
löggjöf undanfarna áratugi, er
beinzt hefur í þessa átt. Fram
sóknarflokkurinn vill búa þann
ig um hnúta, að ungum og efni
legum dugnaðarmönnum, sem
hafá yfir þekkingu og tækni-
kunnáttu að ráða, sem er lyk-
illinn að framförum I nútíma-
þjóðfélagi, verði gert kleift að
hefja rekstur Iífvænlegra fyrir
tækja, þótt þeir hafi ekki full-
ar hendur f jár.
Framsóknarflokkurinn er
hins vegar andvígur því, að
stórfyrirtæki, sem úrslitaþýð-
ingu geta haft fyrir afkomu
þjóðar eða byggðarlaga séu
í höndum fárra auðmanna og
flokkurinn vill styðja að því að
sett verði skynsamleg löggjöf
er tryggi beilbrigða samkeppni
á innanlandsmarkaði og setji
hömlur við hvers konar einokun
artilhneigingum eða samtökum
um að halda uppi verðlagi.
Framsóknarflokkurinn trúir
því, að með því að styðja ein-
staklingsframtak fjöldans, séu
leyndir kraftar leystir úr Iæð-
ingi er auki þjóðarframleiðsl-
una, stuðli að meiri hagkvæmni
í rekstri og þar með aukinni
framleiðni og betri nýtingu at-
vinnutækjanna.
Stefna Framsóknarflokksins
finnur nú æ sterkari hljóm-
grunn með öllum stéttum þjóð-
félagsins. Aukin velmegun fæst
aðeins með eflingu og bættum
rekstri fyrirtækjanna og rétt-
látri MutdeOd launþeganna í
auknum arði. Menn gera sér nú
æ fleiri ljóst, að Framsóknar-
Hokkurinn hefur möguleika til
að verða það afl, er laðar laun
þega og atvinnurekendur til
samstarfs um heObrigða mark-
vissa stefnu, sem líklegust er
til að skila sem mestum og
skjótustum arði til beggja að-
ila.
EfnahagsbandalagiB
En þegar rætt er nú um fyrir
tækin og íslenzkt einstaklings-
og félagsframtak, verður ekki
komizt hjá að gera að umtals-
efni það mál, sem kann að
verða hið örlagaríkasta fyrir
íslenzkan atvinnurekstur og ís-
Ienzka þjóð í þeim kosningum,
sem nú fara í hönd. Það er efna
hagsbandalagið. Það er
nær víst, að þeir menn, sem nú
eru að brjótast í atvinnurekstri
á fslandi, munu ekki kemba
hærumar sem íslenzkir atvinnu
rekendur, ef ekki verður farið
með fullri gát í þeim málum.
Stjórnarflokkarnir hafa nú
ákveðið að sækja um aðUd að
EFTA, fríverzlunarbandalaginu.
Um það var m. a- ályktað á ný-
loknum landsfundi Sjálfstæðis
flokksins þvert ofan í þá vitn-
eskju, er þá' lá fyrir, að Bretar
myndu sækja um aðild að Efna
hagsbandalaginu og aðeins væri
spurning um tíma hvenær þeir
fengju fulla aðUd, — en vitað
er að nær öll EFTA-ríkin munu
fylgja í kjölfar Breta inn í Efna
liagsbandalagið og EFTA þar
með leysast upp. De GauUe
hefur nú lýst því yfir, að hann,
muni ekki beita neitunarvaldi
gegn aðUd Breta og önnur um
mæli hans bera aðeins vott
um hygginn samningamann,
sem setur ítrustu kröfur sínar
fram áður en hann seri;£fiað
samningaborðinu. Með slíkri
ályktun og gerð var á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins virð
ist því eiga að smygla íslandi
inn í EBE með því að láta það
tengjast EFTA áður en EFTA-
ríkin gerast aðilar og við látnir
fljóta þannig með. Þannig á að
smeygja okkur inn bakdyrameg
in á næsta kjörtímabili, ef þjóð
in heldur ekki vöku sinni í kosn
ingunum 11. júní.
Að bera okkar iðnað og at-
vinnurekstur eins og nú er að
honum búið, iðnað, sem aðeins
hefur þróazt í tvo til þrjá ára
tugi, saman við báþróaðan iðn-
að þeirra þjóða, sem hyggjast
taka þátt I Efnahagsbandalag-
inu og eru tugfallt og hundrað n
faUt stærri en við, er hreinn tí
barnaskapur. 1
Bjartsýni og kjarkur |
Ef við höldum á utanríkis- 9
málum okkar af einbeitni, stað
festu og hyggindum, er engin
ástæða til að ætla annað en við
inunum fá þá viðskiptasamn-
inga við þá viðskiptaheild, sem
nú er í mótun I Evrópu, sem
okkur munu henta sem sjálf-
stæðri þjóð. Meðan þessum
samruna er ekki að fullu lokið
í Evrópu verðum við að sýna
þolgæði og stillingu og umfram
allt bjartsýni og kjark og ganga
ejjki uudir samstjórn í nokkurri
mynd eða takmörkun á fullveldi
okkar fyrir ímyndaða efnahags
lega ávinninga. Þann tíma, sem
líður meðan þjóðir Evrópu eru
að sameinast í eina viðskipta-
heild, eigum við einmitt
að nota til þess að vél-
væða og tæknibúa okkar iðnað
sem bezt, m. a. með hverskon-
ar ráðum og fyrirgreiðslu af
ríkisvalds og löggjafa hálfu,
til þess að við verðum þess
umkomin að standast sam-
Framhald á 15. síðu.