Tíminn - 26.05.1967, Side 1

Tíminn - 26.05.1967, Side 1
BLAÐ II Framboð Framsóknarflokks- ins í Austurlandskjördæmi 3. Vilhjálmur Hjálmarsson, bóndi, Brckku. . Tonias Arnason, hæstaréttarlögmaður, Kópavogi. 5. Kristjan ingoltsson, skólastjóri, Eskifirði. 1. Eysteinn Jonsson, alþingismaður, Reykjavík. 2. Páll I»orsteinsson, alþingismaður, Hnappavöilunt G. Víglundur Pálsson, bóndi, Vopnafirði 7. Guðmundur Magnússon, múrari, Egilsstöðum. 9. Sveinn Guðntundsson, kennari, Hrafnabjörgum 8. Asgríntur Halldórsson, kaupfélagsstjóri, Höfn í Homaf, 10. Hjalti Gunnarsson, útgerðarniaður, Reyðarfirði. , Fyigi Framsóknarflokksins í Ansturlandskjördæmi hefur jafnsn verið mjög mikið, svo að hann hefur stundum haft nokkuð á fjórða þingmann en ætíð meira en allir aðrir flokk ar samanlagt. Öllum ber sam- an um, að fylgi Framsóknar- flokksins sé enn vaxandi á Auscurlandi og kosningahorf- ur flokksins þar hinar beztu. í siðustu kosningum hlaut Alþýðuflokkurinn þar 250 at- kvæði og engan kjörinn, Fram sóknarflokkurinn 2804 atkv. og þrjá menn kjörna, H-listi óháðir kjósendur 143 atkv. og er.gan kjörinn. Sjálfstæðis- flokkurinn 1104 atkv. og einn mann kjörinn og Alþýðubanda lagið 905 atkv. og einn kjör- inn. A Iista Framsóknarflokksins þar eystra hafa nú orðið þær breytingar, að Halldór Ás- grírnsson hefur dregið sig í hlé íyrir aldurs sakir. Hann hefur átt sæti á Alþingi í rúma tvo áratugi, var kjörinn á þing fyrir Norðmýlinga 1946 og var þingmaður þeirra til 1959 en síðan þingmaður Austurlands- kjö”aæmis. Hann hefur verið hinn mikilhæfasti þingmaður, traustur og stefnufastur í þjóð málvm og óbilandi baráttu- maður fyrir framfaramál kjör dæmis síns. í efsta sæti á lista Fram- sóknarflokksins á Austurlandi er nu sem fyrr Eysteinn Jóns- son formaður Framsóknar- flokksins. Hann þarf hvorki að kynna Austfirðingum né þjóðinni í heild. Svo mikil er saga hans i islenzkum stjórn- málum í fjóra áratugi, og Austfirðingar vita, hvern þeir hafa þar í fyrirsvari. Annar maður á listanum er Páll Porsteinsson. sem setið hefur á þingi aldarfjórðung, fyrst fyrir Austur-Skaftfell- inga og síðan fynr Austfjarða- kjördæmi. Hann hefur aflað sér sívaxandi trausts sem snjail og drengilegur baráttu- maður í framfaramálum kjör- dæmis og þjóðar, vel máli farinn og rökfastur. Hann hef- ur mjög látið menningarmál til sín taka á þingi. Þriðji maður listans er Vil- hjálmur Hjálmarsson bóndi í Mjóafirði. Hann hefur setið á Alþingi hvað eftir annað, ýmist sem Kjörinn þingmaður Aust'irðinga eða varaþingmað ur, prautreyndur stjórnmála- maður, ekki sízt í málefnum bændastéttarinnar. Hann er víðsýnn félagsmálamaður, sem nýtur óskoraðs trausts og vinsælda í kjördæminu. Fiorði maðui listans er Tómas Árnason, hæstaréttar- lögmaður, Austíirðingur að ætt og upprunninn á Seyðis- firði Hann þekkir menn og máletni Austurlands sem heimamaður, enda var hann varaþingmaður Norð-Mýlinga um skeið. Flann var um skeið ieilaarstjóri: varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins og vann hið mikilvægasta forystu starf við að koma á viðhlít- andi skipan á sambúð hins er- lenda varnarliðs og íslend- inga, undir stjórn Kristins Guðmundssonar, utanrí'kisráð- herra, en þau mál voru áður í hinum mesta ólestri. Tómas hefur og unnið mikilvæg störf í féxagsmálum Framsóknar- flokksins fyrr og síðar. Þvi er óhætt að treysta, að hann verð; i senn mikilhæfur þing- maður og ötull fulltrúi Aust- urlands. Fimmti maður á lista Fram- sóknarflokksins er Kristján Ingólfsson, skólastjóri á Eski- firð’ sem undanfarin ár hefur verið einn athafnamesti leið- togi i félagsmálastarfi á Aust urlandi ungur og efnilegur for ystumaður og harðsækinn bar áttumaður í hverju framfara- máli. Sjötti maður listans er Víg- lundur Pálsson, ungur myndar bóndi úr Vopnafirði, áhuga- samur í félagsmálum og hinn líklegasti til forustu í fram- faramálum stéttar sinnar og kjördæmis. Aðrir á lista Framsóknar- flokksins á Austurlandi eru þrautreyndir forystumenn, hver á sínu sviði í framfara- og félagsmálum Austurlands. Austfirðingar finna það nú vel, hve stjórnarstefnan þreng ir narkalega að hinni miklu uppbyggingu þeirra við hrað- vaxandi framleiðslu síðustu ára. Samdráttur opinberra framhvæmda t.d. í vega- og hafnamálum, bitnar mjög illa á þeim. Lánakreppan og rekstrarvandræðin, sem af henrd stafa, er þeim nú hinn erfiðasti fjötur um fót. Þeir hafa því fullan hug á að fylkja liði saman um breytta stjórnarstefnu. Framsóknarmenn á Austur- landi stefna að þvi að fá fjóra Framhald á bls- 23.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.