Alþýðublaðið - 03.01.1985, Page 1
alþýöu
inFrnmMa
Stuðningsmönnum
stjórnarinnar fækkar
Fimmtudagur 3. janúar 1985
1. tbl. 66. árg.
Þær eru ekki fallegar kveðjurnar
sem ríkisstjórninni eru vandaðar
um þessi áramót. Gildir þá einu
hvort kveðjurnar koma frá yfirlýst-
um stjórnarandstæðingum, eða
mönnum, sem hingað til hafa verið
taldir stuðningsmenn hennar.
í Morgunblaðinu sl. sunnudag
Stœrstu fyrirtœki landsins 1983:
Peningavaldið blómstrar
I tímaritinu Frjáls verslun var
fyrir áramót birtur að venju listi yf-
ir stærstu (veltuhæstu) fyrirtæki og
stofnanir landsins, árið 1983. Ljóst
er að það ár hefur komið misjafn-
lega út hjá hinum einstöku fyrir-
T óbaksrey kingar
takmarkaðar
Á þessu ári sem nú er að hefjast
er vissara fyrir tóbaksreykinga-
menn að glenna upp skjáinn og lita
vel í kringum sig áður en kveikt er í
sígarettu, vindli eður pípu. Nú eru
nefnilega gengin í gildi ný lög um
tóbaksreykingar sem takmarka
Framhald á bls. 2
tækjum, en þetta er sem sé fyrsta
árið sem nokkurn veginn má eigna
núverandi ríkisstjórn.
Sem fyrr var það Samband ís-
lenskra samvinnufélaga sem trón-
aði á toppnum. Veltuaukningin hjá
SÍS nam á því ári 95,3%, en til sam-
anburðar skal nefnt að verðbólga
ársins frá upphafi til enda nam
71,1%. Veltan hjá þessum risa ís-
lensks atvinnulífs nam á árinu rúm-
lega 7 milljörðum króna. I öðru
sæti lenti síðan Landsbankinn með
um 4,5 milljarða kr. veltu og 98,7%
aukningu frá árinu áður.
Sem áður segir var gengi fyrir-
tækjanna mjög misjafnt árið 1983,
en ekki er hægt að segja að það hafi
fylgt ákveðinni atvinnugreinaskipt-
ingu. Þó nrá sjá að orkufyrirtæki
og peningastofnanir hafi gert það
einna best. Mesta veltuaukningin
varð hins vegar hjá Samlagi skreið-
arframleiðenda (445%), íslensku
útflutningsmiðstöðinni (229,6%),
Sig. Ágústssyni, Stykkishólmi
(211,5%) og hún jókst um yfir
150% hjá Landsvirkjun, íslenska
járnblendifélaginu, Vikur/Saltsöl-
unni og Sölustofnun lagmetis. Af
öðrum fyrirtækjum sem gerðu það
ansi gott á árinu má nefna til dæmis
ÍSAL, Rarik, íslenska aðalverk-
Franrhald á bls. 2
var rætt við nokkra forystumenn
atvinnurekenda og launþegasam-
taka og flutti hver þeirra smá ára-
mótapistil.
Páll Sigurjónsson, formaður
Vinnuveitendasambands Islands
hafði eftirfarandi m. a. að segja um
efnahagsstefnu núverandi ríkis-
stjórnar: „Að áliðnu sumri kom í
Ijós að ríkisstjórninni bafði mistek-
ist að framfylgja í eigin herbúðum
þeirri aðhaldsstefnu sem nauðsyn-
leg var í kjölfar febrúarsamning-
anna og fóru þá vonir að dofna um
varanlegan árangur í verðbólgubar-
áttunni og við gerð kjarasamning-
anna í haust komu vonbrigðin."
Seinna í hugvekjunni segir Páll,
að nú gæti vonleysis og uppgjafar
bæði hjá almenningi og stjórnvöld-
um.
Ragnar Halldórsson, formaður
Verslunarráðs íslands hafði þetta
að segja: „Þegar líða tók á árið sló
hins vegar í bakseglin. Efnahagsleg-
ar þversagnir komu fram, svo sem
að ýmsar þjónustugreinar blómg-
uðust á höfuðborgarsvæðinu á
sama tíma og sjávarútvcgur leið
fyrir tckjumissi vegna minnkandi
Framhald á bls. 2
Sigurður E. Guðmundsson:
Upplýsingaskrifstofu
fyrir neytendur
Á næsta fundi borgarráðs verður
tekin til afgreiðslu tilluga stjórn-
kerfisnefndar Reykjavíkurborgar
um stofnsctningu embættis upplýs-
ingafulltrúa og um leið sú breyting-
artillaga Sigurðar E. Guðmunds-
sonar, borgarfulltrúa Alþýðu-
flokksins, að fulltrúinn hafi jafn-
framt umsjón með rekstri á upplýs-
ingaskrifstofu neytenda.
Að sögn Sigurðar er hugmyndin
sú með upplýsingaskrifstofuna að
þar gefist borgarbúum tækifæri á
að afla sér upplýsinga um verð,
þjónustu og vörugæði á sem flest-
um sviðum.
„Fyrirmyndina sæki ég til Stokk-
hólmsborgar, þar sem borgaryfir-
völd reka sk. Konsum-lnformation
í stóra Kultur-huset. Þar er jafnan
stöðug umferð fólks sem afgreiðir
sig að mestu sjálft á upplýsingunt,
en starfsmannahald er í lágmarki.
Hugmynd mín er sú að Reykjavik-
urborg taki upp svipað fyrirkomu-
lag, þannig að ekki yrði um bákn að
ræða, því ég ætla að starfsmaður í
hálfu starfi myndi duga. Það er mín
skoðun að upplýsingaskrifstofa
sem þessi gæti orðið mikilvægur
vettvangur og stuðningur fyrir al-
menning á tímum lækkandi launa,
hækkandi verðlags og stöðugt
sterkari upplýsingaáróðursý
Sigurður tók það fram að til
þessa hefði verið unnið prýðilegt
starf hjá aðilunt eins og Leiðbein-
ingastöð húsmæðra, Verðlagsstofn-
un og Neytendasamtökunum, en
ótvírætt væri þó tímabært að borg-
in kæmi inn í það starf með umtals-
verðum stuðningi.
Ávarp forsœtisráðherra:
Djúpstæður skoðanamunur
milli stjórnarflokkanna
„Með það í huga, að ekki er leng-
ur að vænta afla á íslandsmiðum
umfram það hámark, sem þegar
hefur náðst, virðist mér ljóst, að
40 ára framfaraskeiði sé lokið.
Það nýja, sem við skal taka, verð-
ur að byggja á nýjum grunni hag-
vaxtar. Þessi breyting markar
mikil tímamót"
Þetta sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra m.a. í
ávarpi sínu í sjónvarpi og útvarpi
á gamlárskvöld. Hann ræddi að-
allega í upphafi ræðu sinnar
nauðsyn þess að landsmenn gerðu
sér grein fyrir grundvellinum, at-
vinnulífinu sjálfu. Hann lagði
áherslu á það, að enda þótt ljóst
væri að nýjar háþróaðar atvinnu-
greinar yrðu að koma til í auknum
mæli, þá yrðu gömlu atvinnu-
greinarnar áfram jafnmikilvægar.
Síðan sagði Steingrímur orð-
rétt: „Ég get ekki látið hjá líða að
lýsa þeirri skoðun minni, að í raun
ætti okkur íslendingum, sem svo
mjög höfum efnast á undanförn-
um árum, að vera auðvelt að kom-
ast yfir það skeið samdráttar, sem
við höfum nú átt við að stríða.
Allar tölur um innflutning og
einkaneyslu sýna, að í þjóðfélag-
inu er mikið fjármagn. Það sér
hver maður. Því miður virðist hins
vegar sem byrðunum sé misskipt.
Líklega er það rétt, sem fullyrt er
og stutt fjölmörgum dæmum, að
þeir eru margir í þjóðfélaginu,
sem ekki taka þátt t því eins og
þeim ber að gera; greiða kostnað-
inn af hinu mikilvæga velferðar-
kerfi. Hvaða íslendingur vill ekki
góðar samgöngur, gott mennta-
kerfi, fullkomna heilsugæslu og
öryggi öllum til handa? Sú alvar-
lega meinsemd, sem lýsir sér í því,
að forðast með ólögmætum hætti
að taka eftir efnum og ástæðum
þátt í kostnaðinum við rekstur
þjóðfélagsins, er ekki íslending-
um eðlileg. í þessu hygg ég, að
komi fram mesta meinsemd lang-
varandi verðbólgu, siðferðisbrest-
urinn. íslendingar hafa fengið orð
fyrir að vera hreinskiptir og heið-
arlegirl'
Steingrímur sagði loks um
skattamálin: „Ef allir greiða sín
gjöld, verður byrðin létt. Þá væri
unnt að lagfæra meira en gert hef-
ur verið fyrir þá, sem búa við lök-
ust kjörin, og reyndar eflaust að
lækka gjöld þorra landsmanna.
Þetta verður að breytast."
Forsætisráðherra fór síðan
nokkrum orðum um samdráttar-
skeið, sem sótt hafa þjóðina heim.
Sagði hann eitt slíkt samdráttar-
skeið undanfarin þrjú ár hafa náð
hámarki sínu nú. Sagði Stein-
grímur næstu ár verða örlagarik
fyrir okkur íslendinga og að efna-
hagsbatann yrði að nota til að
bæta kjör þeirra sem við lökust
kjör búa og einnig til að renna
stoðum undir íslenskt atvinnu- og
efnahagslíf.
Þá sagði forsætisráðherra það
mikið áfall að endurvakin verð-
bólga væri nú og á fyrstu mánuð-
um ársins 1985. „Það er áfall fyrir
ríkisstjórnina og efnahagsstefnu
hennar, en þó fyrst og fremst fyrir
þjóðarbúið og þjóðina í heildþ
sagði hann.
Steingrímur Hermannsson
sagðist ekki skorast undan ábyrgð
á þeirri sök, að efnashagslegum
markmiðum hefði ekki verið náð.
Hann sagði að ríkisstjórnin
myndi ekki hlaupa frá borði þótt
skipið hallaðist. Stjórnarflokk-
arnir myndu endurskoða stefn-
una á öllum sviðum.
Forsætisráðherra fór nokkrum
orðum um heimsmálin og drap
einkanlega á skugga kjarnork-
unnar, sem hvílt hefði sem ógn-
valdur yfir heiminum öllum. Orð-
rétt sagði liann m.a. um þau mál:
„Ef til almenns kjarnorkuófriðar
kemur, munu allir tortímast,
einnig þeir, sem eru hlutlausir og
saklausir. Eindregin andstaða
gegn kjarnorkuvopnum á ís-
lenskri grund er fyrst og fremst til
þess að undirstrika þá skoðun
okkar, að kjarnorkuvopn eigi
hvergi að heimila, hvorki á landi,
í sjó né í geimnum. Að því ber
okkur að stuðla með opinberri af-
stöðu, hvar sem við fáum því við
komiðf
í lok ræðu sinnar sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætis-
ráðherra: „Að sjálfsögðu er skoð-
anamunur í þjóðfélaginu mikill.
Hann er m.a. á mörgum sviðum
djúpstæður milli stjórnarflokk-
annaí1