Alþýðublaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 4
alþýðu-
blaðið
Laugardagur 5. janúar 1985
Útgefandi: Blað h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Heimurinn í dag:
Vopnin
fram yfir
félagsmálin
Gagnvart hungursneyð og sjúk-
dómum í heiminum er ekki óeðli-
legt að mönnum verði hugsað til
hernaðarútgjalda. Flestum verður
þá sjálfsagt hugsað til þeirra millj-
arða sem iðnríkin eyða i drápstæk-
in. Frn því miður eyða þjóðir þriðja
heimsins ekki síður sínum tak-
mörkuðu sjóðum í vopn.
Þannig má t.d. sjá í skýrslu Al-
þjóðabankans fyrir árið 1984. Þar
er gerður samanburður á útgjöld-
um iðnríkja og þróunarlanda til
hermáfa, heilbrigðismála og
menntamála. Reyndar er tekið fram
að erfitt sé að meta hvað skilgreina
beri sem hernaðarútgjöld eða út-
gjöld til varnarmála. En með tals-
verðri nálgun kemur í ljós að áætl-
að er að hernaðarútgjöld í heimin-
um öllum hafi hækkað úr um 300
milljörðum dollara í 600 milljarða á
síðustu tveimur áratúgum, miðað
við fast verðlag 1982. Á þessu tíma-
bili hækkuðu hernaðarútgjöldin í
þriðja heiminum úr 30 milljörðum
dollara í rúmlega 138 milljarða. Til
saman teljast iðnríkin hafa varið
um 4,9% af vergri þjóðarfram-
leiðslu sinni til varnarmála, en aftur
á móti aðeins um 0,3% til þróunar-
samvinnu og þróunaraðstoðar árið
1981.
Bandaríkjamenn vörðu þannig
árið 1980 5,6% vergrar þjóðarfram-
leiðslu sinnar til varnarmála — þ.e.
nálægt 170 milljörðum dollara —
og 0,28% eða 8,2 milljörðum doll-
ara í þróunaraðstoð og samvinnu.
Með samanburði kemur í ljós að
hlutfallslega verja þjóðir þriðja
heimsins nærfellt sömu upphæð til
varnarmála og samanlagt til heil-
brigðis- og menntamála. Sjálfsagt
eru margar skýringar á þessum
dökka veruleika, en óneitanlega
gæti þessum peningum verið betur
varið, eins og dæmin staðfesta.
Iðnríkin eru auðvitað misjafn-
lega dugleg við að verja fjármagni
sínu í varnarmálin. Ef litið er til
þjóða Atlantshafsbandalagsins ár-
ið 1981 kemur þannig í ljós að
Grikkir eru einna ósínkastir þeirra í
fjárútlátum til þessa málaflokks,
með 7% af þjóðarframleiðslunni
og skáka Bandaríkjunum, þar sem
hlutfallið var þá 5,9%. Hlutfallið
hjá Bretum var 5%, Tyrkjum 4,9%
og hjá Frökkum 4,2%, en einna
minnst (utan íslands auðvitað) var
hlutfall varnarmálaútgjaldanna hjá
Luxemburg (1,2%) og Kanada
(1,9%).
Fjölgar fátœkum í heiminum á nœstu árum?
Hægari fólksfjölgun
— fækkun fátækra
Sem kunnugt er fjölgar jarðarbú-
um ört, einkum i þriðja heiminum.
Um leið fjölgar þeim ört sem teljast
undir ákveðnum fátækramörkum.
Alþjóðabakinn veltir því fyrir sér
í nýjustu skýrslu sinni hver þróunin
verður til aldamóta og reynir að spá
þar um eftir gefnum forsendum.
Tölvur voru mataðar á ýmsum upp-
lýsingum, þar sem annars vegar var
miðað við hægan samdrátt í frjó-
semi, en hins vegar við það dæmi að
það tækist að draga verulega úr
frjóseminni og þar með fólksfjölg-
uninni í þriðja heiminum.
í rannsókn Alþjóðabankans
miðaði hann fátækramörkin við
þjóðartekjur á mann upp á 135
dollara (verðlag 1980) og náði rann-
sóknin til 40 þjóða þriðja heimsins,
þar sem um 80% íbúa hans búa.
Miðað var við almenna reynslu fjöl-
margra þjóða um áhrif fólksfjölg-
unar á tekjur snauðustu hópanná.
Niðurstöður þessa uppsetta
dæmis voru í grófum dráttum þær
að hlutfall teknanna sem færi til
hinna láglaunuðustu 40% íbúanna
myndi vart breytast að ráði, til
þeirra færi um 15% tekna árið
2000, miðað við 14% árið 1980.
Hins vegar var ætlað að fjöldi
snauðra myndi lækka vegna auk-
inna þjóðartekna almennt. Miðað
við hæga minnkun frjósemi var
áætlað að fjöldi snauðra í þessum
40 þjóðum myndi fara úr 630 millj-
ónum árið 1980 í 410 milljónir árið
2000. Þegar hins vegar var miðað
við hraða minnkun frjósemis var
áætlað að hinum snauðu myndi
fækka um 100 milljón í viðbót, nið-
ur í um 321 milljón. Þetta er auðvit-
að enn há tala, hún samsvarar
fólksfjölda í Bangladesh, Nigeríu
og Pakistan til samans.
Alþjóðabankinn leggur hins veg-
ar áherslu á að þróunin yrði ærið
misjöfn eftir landssvæðum, t.d. eru
horfur í efnahagsmálum svo tak-
markaðar í kringum Saharasvæði
Afríku að þar benti allt til áfram-
haldandi fjölgunar snauðra, en um
20% að minnsta kosti miðað við
hraða minnkun frjósemis. í Asíu
leit dæmið hins vegar skár út, þar
sem hlutfallsleg fátækt taldist
munu minnka um allt að 40%. Mið-
að við hraða minnkun frjósemis var
áætlað að fátækum í rómönsk
Ameríku, Miðausturlöndum og N-
Afríku gæti hlutfallslega fækkað-
um allt að 70% og um 80—90% í
Kína.
Almennt eru tengslin milli fólks-
fjölgunar og fátæktar talin vera
mjög sterk, þegar þau fara saman
við vaxandi þjóðartekjur, aukna
fjárfestingu í menntun og aukinn
kaupmátt.
MOLAR
T
Eins og íslensk náttúra
Hljómsveitin Mezzoforte gaf út
hljómplQtuna Rising núna
skömmu fyrir jól. Fékk hún mjög
góðar viðtökur hér heima og svo
virðist einnig sem fleiri kunni að
meta tónlist þeirra félaga. Eftir-
farandi dóm rákumst við á i
danska dagblaðinu Aktuelt, nán-
ar tiltekið gamlársdagstölublaði
þeirra: „Hin nýja hljómplata ís-
lensku hljómsveitarinnar Mezzo-
forte uppfyllir þær kröfur, sem
gera verður til góðrar diskótón-
listar; það er auðvelt að dansa eft-
ir henni og hún hljómar vel. En
hér er líka upptalið það sem þessi
tónlist á sameiginlegt með meðal-
mennskusmellunum. Því þetta er
nefnilega góð tónlist — fínt jass-
funk á mörkum poppsins, en upp-
full af ósvikinni leikgleði dug-
legra tónlistarmanna. Öll lögin
eru spennandi og vel samin. Á
plötunni er ekkert uppfyllingar-
efni, heldur ekki með auka hljóð-
færum. Auk þess er öll framleiðsl-
an til fyrirmyndar og hljóðið
framúrskarandi. „Rising“ hlýtur
að höfða til dýrkenda fullkom-
innar popptónlistar. Hún er hrein
og tær eins og íslensk náttúra. Og
haldiði kj...., sveiflan er stórkost-
leg!“ Strákarnir í Mezzoforte geta
vel við unað, eða hvað finnst ykk-
ur.
„Þú stendur á“
Þetta gerðist á árinu sem var að
líða. Mitterrand Frakklandsfor-
seti var í opinberri heimsókn í
Bandaríkjunum og var Danielle
eiginkona hans með í förinni.
Reagan Bandaríkjaforseti bauð
þeim í samsæti í Hvíta húsinu,
eins og venja er við slíkar uppá-
komur.
Og þar sem siðvenja er fylgdi
hann Danielle til borðs en Mitter-
rand leiddi Nancy. Allt í einu
stoppaði Danielle og yrti á Reag-
an. Þar sem hann skilur ekki
frönsku reyndi hann að ávarpa
hana á ensku, en Danielle endur-
tók bara sama hlutinn aftur á
frönsku. Þannig stóðu þau graf-
kyrr í góða stund og Danielle end-
urtók hvað eftir annað setning-
una, sem Reagan skildi ekki. Að
lokum var þetta orðið hálf vand-
ræðalegt og einhver góðhjartaður
ofurhugi, sem skildi báðar tung-
urnar kom til hjálpar. Upplýsti
hann Bandaríkjaforseta um að
frú Mitterrand væri að reyna að
segja honum, að hann stæði á
kjólfaldi hennar.
•
Merkilegt nokk
Efnaðasta bæjarfélag landsins
— þar sem efnaðasta fólkið býr
að meðaltali — er Garðabær. Það
hlýtur því að vekja athygli er listi
yfir stærstu fyrirtæki landsins er
skoðaður — en þar eru meðallaun
tíunduð — að af 13 stærstu sveit-
arfélögunum eru meðallaunin í
Garðabæ allra lægst.
Þar eru meðallaun 192 starfs-
manna Garðabæjar 146 þúsund
krónur árið 1983, en næst lægst
voru þau hjá 141 starfsmönnum
Selfoss, 155 þúsund kr. Til saman-
burðar má svo nefna að meðal-
laun voru hjá 4.627 starfsmönn-
um Reykjavíkurborgar 256 þús-
und kr. og hjá 192 starfsmönnum
Isafjarðar 246 þúsund kr. Hjá
Garðabæ og ísafirði unnu sem sé
sami fjöldi starfsfólks, en meðal-
launin á ísafirði voru að meðaltali
68,5% hærri...
•
Eldfimur formaður
Þjóðviljinn gumaði sig af því á
forsíðu sl. fimmtudag, að for-
maðurinn þeirra hefði selst upp á
gamlársdag. Þótti málgagninu
mikið til þess koma að íslending-
ar voru áfjáðir í að skjóta Svavari
á sporbaug og sjá hann springa
þar með miklu Ijósasjóvi. Einkum
þótti þeim þó athyglisvert að
meiri áhugi virðist á að sprengja
Svavar en þá Steingrím og Albert
og það jafnvel þó að verðlagið á
ríkisstjórnarmönnunum væri
mun lægra en á formanni Alþýðu-
bandalagsins.