Tíminn - 22.06.1967, Side 13

Tíminn - 22.06.1967, Side 13
FIMMTUDAGUR 22. júní 1967. ÍÞRÓTTIR TÍMINN i ÍÞRÓTTIR 13 \ Næstu leikir Sundmeistaramót íslands hófst á mánudagskvöld I nýju laugunum I Laugardal. Á myndinni sóst viðbragð i 400 metra skriðsundi karla, en sigur- vegari í þeirri grein varð Árni Kristjánsson, SH (á 5. braut), Um helgina fer svo aðalhluti mótsins fram. (Tímamynd ísak). Næsti leikur í 1. deild í knatt- spyrnu er leikur Vals og KR á mánudagskvöld á Laugardalsvelli. Á þriðjudaginn verða háðir tveir leikir, en þá leika Akureyri og Akranes á Akureyri og Fram og Keflavík á Laugardalsvelli. Ellert Schram og Ársæll leika með landsliðinu í dag Jahsin, hinn tffeimsfrægi markvörður, varði mark Sovétríkjanna í leiknum f Helsinki í fyrrakvöld. Á myndinni hér að ofan sjáum við kempuna á æfingu daginn fyrir leikinn. Magnús Pétursson var fulltrúi Islands í leiknum í Helsinki Urvalslið Norðurlanda, skip- að 5 finnskum leikmönnum, 2 &vrám, 2 Norðmönnum, og 2 D&uun, gerði jafntefli við Rússa í afmælisleik finnska knattspyrnu sambandsins, sem háður var í Hels infei í fyrrakvöld. Urðu lokatölur MMaMWMHW 2-2. Leikurinn vakti mikla athygli og mikið skrifað um hann í blöð- um á Norðurlöndum. Eins og koniið hefur fram, átti íslatul eng an fulltrúa í úrvalsliði Norður- landa, en Magnús Pétursson, dóm ari, var af blöðunum talinn full- Næsta NM haldið á fslandi Á norrænni knattspyrnuráð- stefnu, sem haldin var í Hels- inki nýlega, var samlþykkt, að næsta Norðurlandamót ungl- inga í knattspyrnM, verði hald ið á íslandi. Hér er átt við, lið sem skipuð eru leikmönn- um 18 ára og yngri. Yrði það í fyrsta skipti, sem slíkt mót er haldið á íslandi, en mótið hefur áður verið haldið á öll- um hinum Norð-urlöndun um nema Finnlandi, en í næsta mánuði verður mótið fyrir ár- ið 1967 haldið þar. Frá þessu er skýrt í danska blaðinu Ber- lingske Tidende” í fyrradag. ísiland tók fyrst þátt í Norð- urlandamóti unglinga 1965, en þá var mótið haldið í Svíiþjóð. í fyrra var mótið haldið í Nor- egi og gerði ísl. liðið þá jafn- tefli við Svía. Dagana 8. — 16. júlí n.k. verður mótið háð í Finntandi. trúi íslands í leiknum — og þar með áttu öll Norðurlöndin aðild að honum. Þess má geta, að meðal áhorf- enda að leiknum voru Kekkonen, Finnlandsforseti og Sir Stanley Rous, forscti alþjóðaknatt- spyrnusambandsins. Alf — Reykjavík. — Síðari landsleikurinn milli íslendinga, og Spánverja verður háður í Mad rid í dag og hefst Ieikurinn klukk an 5.15 eftir íslenzkum tíma. fs- lenzka landsliðið hefur nú verið tilkynnt, og í Ijós kemur að tvær breytingar eru frá síðasta leik. Ellert Scliram, KR og Ársæll Kjarlansson, KR, koma inn fyr ir þá Ingvar Elíasson og Högna Gunnlaugsson. Ekki liggur alveg ljóst fyrir, hvaða leikaðferð íslenzka liðið mun leika í dag, en samkvæmt uppslillingunni verður líklega leik ið „4-3-3“. Verður Ellert Sohram þá tengiliður á miðjunni ásamt þeim Eyleifi Hafsteinssyni og Magnúsi Torfasyni. Annars verð- ur liðið þannig skipað: Markvörð- ur Guðmundur Pétursson, KR. Bakverðir Árni Njálsson, Val, og Jóhannes Atlason, Fram. Mið- verðir Sigurður Albertsson, Ketla vík og Ársæll Kjartanss’on, KR, Tengiliðir Ellert Sohram, KR, Magnús Torfason, Kcflavík os Eyleifur Hafstcinsson, KR. Fram- íherjar Elntar.Geirsson, Fram, Her mann Gunnarsson, Val og Kári Árnason Akureyri. Engu skal spáð um úrslit lei'ks- ins, en minna má á ummæli Reyn- is Karlssonar, landsliðsþjálfara í viðtali við íþrótlasíðu Tímans fyr- ir utanferðina, en hann sagði, að íslenzka liðið væri samstillt, en aðstæður væru erfiðar. Var Reyn- ir greinilega hræddur við hinn mikla hita, sem er á Spáni um þetta leyti, og jafnframt ótt- aðist hann, að hið þunna loft í Madrid gæti háft slæm áhrif á ísl. piltana. En hvað um það, við skul um vona, að liðinu gangi vel í dag, og að við getum birt góðar fréttir í blaðinu á morgun. Halda ut- dag an í Alf — Reykjavík. — ís- lenzka landsliðið í frjáls- íþróttum heldur utan í dag en um helgina fer^ fram keppni í Dulblin á frlandi milli íslands, írlands og Belgíu í undanrás Evröpu bikarkeppninnar í frjáls- íþróttum. Alls eru 13 keppendur í hópnum, auk fararstjóra, Þórðar B. Sig- upðssonar o| þjálfarans Jó- hannesar SæniUndssonar. Keppnin í Dublin fer fram á laugardag og sunnu dag en á þriðjudag munu nokkrir úr ísl. hópnum taka þátt í alþjóðlegu móti í Cork. — íþróttasíðan óskar ísl. frjálsíþróttamönnun um góðrar ferðar og góðs gengis. Frá aðalfuaidi Bridgesambands íslands: Fríirík Karísson var endur- kjörinn formaíur sambandsins Aðalfundur Bridgesambands ís- Iands var haldinn í Domus Med- ica þann 13. júní. Á aðalfundin- um voru mættir fulltrúar frá bridgefélögunum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Kefla- vík. Forseti sambandsins, Friðri'ít Karlsson og gjaldkeri, Kristjana Steingrímsdóttir, fluttu skýrslu stjórnarinnar. Var hagur sam- bandsins góður á sl. ári. Góð þatt taka var í öllum mótum, sem gengizt var fyrir og m.a. haldið fjölmennarsta Islandsmótið til þessa. Nú er unnið að því að ssnda sveit til keppni á Evrópumeistara mótið í Dublin í haust en þa-ngað m-un fara sveit Halls Símonar- sonar, íslandsmeistari árið 1967. Á næsta ári eru einnig mikil verkefni fyrir höndum, þar sem er Norðurlandamótið í Svíþjóð og Olympíumótið í Frakklandi. Þá kom fram mikill hugur hjá stjórn sambandsins og þingfull- trúum þess efnis, að reynt yrði að festa kaup á húsnæði fyrir sam tökin. Fyrrverandi forseti sambands ins, Sigurjón Guðmundsson, Framhald á bis. 15.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.