Tíminn - 30.06.1967, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.06.1967, Blaðsíða 9
V FÖSTUDAGUR 30. júní 1967 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benedjktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur t Eddu- búsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusímí 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300. Askriftargjald kr. 105.00 á mán innanlands — t lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Hvers vegna hélt ríkisstjómin velli? Menn ræða enn nokkuð um kosningaúrslitin og ástæður þess, að ríkisstjórnin hélt velli, enda þótt saman- lagt atkvæðamagn stjórnarflokkanna minnkaði talsvert. Vafalaust eru á þessu ýmsar skýringar. Aðalskýring er augljós. Ríkisstjómin hefur farið með völd á góðæris- tíma. Stjómarandstaða á jafnan örðugt uppdráttar u-ndir slíkum kringumstæðum. Þess eru vart dæmi, að rikis- stjórn hafi tapað kosningum, þegar sæmilega hefur árað. Þótt ríkisstjómir fremji afglöp, fyrirgefst þeim miklu meira, ef menn búa þrátt fyrir það við þolanlega af- komu. Það er tvímælalaust þetta, sem fyrst og fremst bjargaði ríkisstjóminni að þessu sinni. Að vísu var svo komið þegar á síðastl. vetri, að horf- urnar framundan voru engan veginn álitlegar. Á þetta bentu Framsóknarmenn rækilega í kosningabaráttunni. Stjómarflokkamir héldu því hinsvegar fram, að engin ástæða væri til að líta ástandið dökkum augum. Það væri fjarstæða, að gefa til kynna að grípa þyrfti til gengisfelílin'gar eða hliðstæðra ráðstafana. Ríkisstjómin gaf óspart í skyn, að verðstöðvunin gæti haldizt. Ráðherr- arnir prédikuðu flestir, að „grundvöllur viðreisnarinn- arM væri traustur. Bersýnilegt er, að fleiri hafi trúað þessum gyliingum stjómarflokkanna en aðvömnum Framsóknarmanna. Um margt minntu kosningarnar nú á kosningarnar 1946. Framsóknarmenn sýndu þá fram á fyrir kosning- amar, að ógætilega væri stjórnað og myndu skapast af því miklir erfiðleikar innan tíðar. Þetta var hinsvegar ekki komið nógu glöggt 1 ljós. Framsóknarmönnum var því ekki nægilega trúað. Þeir fengu þvi slæm kosninga- úrslit. Tæpu ári eftir kosningarnar, var hinsvegar svo komið, að grípa þurfti til ströngustu hafta og skömmt- unar. Þá sýndi sig, að Framsóknarmenn höfðu sagt satt. Og í kosningunum 1949 vann Framsóknarflokkurinn mikinn sigur, fyrst og fremst vegna þess að fólk sá þá, að talsmenn hans höfðu haft rétt fyrir sér í kosninga- baráttunni 1946. Reynslan á eftir að skera úr því, hvorir hafa flutt réttara mál fyrir kosningarnar 11. júní, stjórnarsinnar eða Framsóknarmenn. Þeim dómi kvíða Framsóknar- menn ekki frekar nú en 1946. Það borgar sig alltaf bezt að lokum að segja satt. 6 Aðalmál ráðherranna Það er nú staðfest, sem áður var búið að segja frá hér í blaðinu, að ráðherrarnir eru búnir að semja um, að ríkisstjórnin haldi áfram með sömu mönnum og áður. Miðstjórnarfundir í flokkunum hafa lagt blessun sína yfir þetta samkomulag ráðherranna. Ríkisstjórnin hefur birt tilkynningu sem staðfestir þetta. Það er einnig staðfest, sem Tíminn hélt jafnframt fram, að þótt búið sé að semja um áframlialdandi stjórnar- samstarf og óbreytta stjórn, er með öllu ósamið um þær efnahagsráðstafanir, sem óhiákvæmilegt er að gera næstu mánuðina. Eðlilegt virtist. að um þau mál hefði verið samið fyrst, og það látið ráðast af því. hvort stjórn- in héldi áfram eða ekki. En ráðherrarnir eru ekki að hugsa um slíka smámuni. Aðalmál þeirra er að tryggja sér stólana áfram. TÍMINN Tom Wicker, New York Times: Gerir Ky forsetakjöriö í Suður- Vietnam að sýndarmennsku? Ósennilegt að tiigangi Bandaríkjamanna verði náð ÞÆR miklu vonir, sem rík- isstjórn Johnsons forseta hef- ir gert sór um skjótar og blessunarríkar framfarir sem afleiðingar af valdatöku kjör- inmar ríkisstjómar í Suður- Vietnam, kunna að hafa ver- ið óitímabærar. Væntanlegar kosningar í þessu hrjáða landi virðast ætla að snúast á sömu sveif og svo margt ann- að, eða að framvindan verði allt önnur en áætlað var. í fyrsta lagi er þess að geta, að tveir valdamestu mennirn- ir í lierforin g j as tjórn i n n i, sem með völdin fer í lamdinu, eða þeir Nguyen Cao Ky og Nguyen Van Thieu, keppa um forsetakjörið. f þessu er sú hætta fólgin, að klofningur verði í hemum, en hann er nú samsitæðast þeirra afla, sem andstæð eru kommúnistum í Suður-Vietnam. Klofningur innan hersins gæti aftur leitt til kjörs for- setia úr borgarastétt, — og þá sennilega Tran Van Huong, sem virðist mætur maður og nýtur virðingar. Og þetta gæti horft til góðs út af fyrir sig. En kjör borgaralegs forseta gæti einnig leitt til óánægju inman hersins og valdið þvi, að hann styddi ekki Huomg sem forseta, en það horfði senni- lega til óheilliau í ÖÐRU lagi neytir Ky for- sætisráðhenra þess á margan hátt að hann er æðsti maður og má vera að hann grípi til þessa fyrir þær sakir, eð hætta virðist á að hann kunni að lúta í lægra haldi vegna hins óvænta framboðs Thieus. Ky forsætisráðherra hefir þegrir hækkað laun opinberra starfs manna, dreift um allt land auglýsingaspjöldum, þar sem afirek hans em lofuð á hvert reipi, en spjöldin em kostuð af opinbem fé, lagt fyrir eftir litsmenn sína með bliaðaút- gáfumpi í landinu að líða ekki neina gagnrýni á gerðir ríkis- stjórnarinnar og heimilað sér afnot af þyrlum ríkisstjórnar- innar og útvarpsstöðvum sjálf um sér til framdráttar í kosn ingabaráttuna samkvæmt lög- um. Meðal almennings í Saigon em á kreiki ýmsar getgátur um, að hve miklu leyti Ky forsætisráðhenra kunni að reyna að létta sér róðurinn í kosningabaráttunni með hag- nýtingu lögreglunnar, sem lýt ur stjórn hans, svo og hersins, en mikill hluti hans er opinn Lnn fyrir áhrifum forsætisráð herrans, og ennfremur opin- berra starfsmanna á landssvæð um þeim, sem verið er að reyna að friða. KY forsætisráðherra hefir einnig gefið til kynna, að hann muni ekki láta sér lynda kjör borganailegs forseta, sem hyggst stefna að því að binda endi á styrjöldina með samn- ingum. „Verði hann kommún isti eða hlutleysingi“ sagði Ky, „beiti ég hiklaust her- Ky marskálkur valdi í baráttunni gegn honum. í lýðræðisríiki hefir hver og einn rétt til þess að vera á öndverðum meiði við aðra.“ Þetta er nokkuð einstætt við- horf til lýðræðis, en sennilega er sá háski, að Ky kunni að reyna að standa við hótunina, sýnu minni en hinn, hve hótun- in sjálf er líkleg til að slæva allar rökræður í kosningabar- áttunni Þegar þessi ógnun Kys og algert vald hans yfir eftir- litsmönnum ríkisstjórnarinnar með blaðaútgáfunni leggst á eitt, má heita loku fyrir það skotið, að friðartillögum eða uppástungum um viðræður við Vietcong eða valdamenn í Hanoi verði hreyft á opinberum vett- vangi. En sannarlega er þó rík ástæða til að leggja hlustir við áliti almennings í Suður-Viet- nam einmitt á þessum málum. Allt eykur þetta á vanda rík- isstjórnar Bandaríkjanna. — Bandarískir forustumenn segj- a:t fyrst og fremst óska eftir ríkisstjórn sem fylgi hljóti í frj'álsum kosningum, en minna máli skipti, hvort hún sé af borgaralegum eða hernaðarleg- Tom Vicher, sem er höf- undur þessarar greinar, er einn af þekktusfu blaða- mönnum New York Times. Hann hefur nýlega verið í Suður-Vietnam. um toga. Meginatriðið sé, að stjórnin styðjist við almennt fylgi og verði af þeim sökum fær um að sameina þjóðina og stjórna landinu. ENNFREMUR ber að hafa það í huga, að stefna ríkis- stiórnar Johnsons forseta er byggð á þeirri forsendu, að Suður-Vietnam sé frjálst og oháð þjóðríki, sem orðið hafi tyrir árás og kúgun aðvífandi afla. Sé málum þannig varið :aun og veru koma kosning- arnar Suður-Vietnömum einum við og Bandaríkjamenn hafa þá ekki minmsta rétt til að blanda sér í gang þeirra á nokkurn hátt. En haldi Ky áfram að hag- ræða kosningaundirbúningnum hér eftir sem hingað til jafn mikið og berlega í eigin þágu og til samræmis við eigin hug- myndir um, hvað sé lýðræði og hvað ekki, eru litlar líkur á, að úrslit hinna „frjálsu“ kosninga verði sá sigur fyrir beilbrigð stjórnmál og eðlilegan áróður sem ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur gert sér vonir um. Enn síður er þess að vænta, að lir slitin leiði til myndunar ríkis- stjórnar, sem sé sannur fuli- trúi þjóðarinnar i Suður-Viet- nam. Komi hins vegar til þess, að snjall og hæfur borgaralegur fulltrúi, eins og Huong til dæm- is. beri sigur úr býtum fyrir þær sakir, að herstjórnin gangi klofin til kosninganna og berj- ist innbyrðis, hlýtur aðstaða væntanlegrar ríkisstjórnar að verða mjög svo tvísýn. Suður- Vietnamar hafa búið við styrj öld og eyðileggingu í tvo ára tugi og stjórnmálaþróunin beð ið slíkan hnekki af þeim sökum að ólíklegt er, að nokkur borg araleg ríkisstjórn haldist við völd nema við njóti öflugs stuðnings hersins. BANDARÍKJAMENN kynnu að geta komið því til leiðar með einbeittu áhrifavaldi að Ky gætti framvegis meira hófs í Kosningabaráttunni en hann hefur gert til þessa Næði borg- aralegur fulltrúi kjöri sem for- seti kynnu Bandaríkjamenn einnig að geta neytt valds síns til að vernda hann fyrir hern- um' í Suður-Vietnam. En hvorug þessi leið er lík- leg til að leiða til þeirrar út- komu, sem mest þörf er á. en það er traust og vinsæl rikís- stiórn. Stjórnin þarf að vera nægilega öflug til að sameina öll öfl. sem eru andstæð knmm úmstum í Suður-Vietnam, og hún þarf að njóta nægilega mik- illa vinsælda meðal almennings til að koma þeirri hugmynd inn his hinum hófsamari öflum Vietcong, — einkum þó sunn lendingum, — að hún geti veitt þjóðinni stjórn, sem fremur sé vert að semja við en kollvarpa. Aðferðir Kys i kosningabar- áttunni tii þessa sýna svart á hvitu. að mestar líkur eru á að mórg ár líði áður en unnt reyn ist að mynda í Suður-Vietnam þess konar ríkisstjórn, sem drepið er á hér á undan. Banda ríkjamenn hafa ekki aðeins lítij tök á að flýta fyrir tilkomu hennar, heldur er sennilega, að ef þeii lát.a kosningarnar í ár afskiptaiausar, þá muni Ky tak- asf að neyta yfirburðastöðu sinnar og tryggja sér völdin. Snn einu sinni virðast því no-fur a að hið eina, sem Suður Vistnamai geta ekki gert eða vilja ekm gera sjálfir. en Bandaríkjamenn geta fyrir þá gert sé að berjast. En sá kost- ur er ærið vafasamur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.