Alþýðublaðið - 31.05.1985, Page 3
Föstudagur 31. maí 1985
3/
Friðarávarp
íslenskra kvenna
í tilefni af lokum kvennaáratug-
ar Sameinuðu þjóðanna gengst
Friðarhreyfing íslenskra kvenna í
samvinnu við ’85-nefndina (sem er
samstarfsnefnd um lok kvennaára-
tugar S.Þ.) fyrir geysivíðtækri und-
irskriftasöfnun í júní undir Friðar-
ávarp íslenskra kvenna. Markmiðið
er að safna undirskriftum allra
kvenna á íslandi 18 ára og eldri eða
um 80 þúsund talsins. Kjörorð
kvennaáratugarins eru: JAFN-
RÉTTI — FRAMÞRÓUN —
FRIÐUR. Munu fulltrúar íslands
síðan afhenda listana á kvennaráð-
stefnu S.Þ. í Nairobi, sem haldin
verður dagana 15.—26. júlí.
Sjálfboðaliðar eru hvattir til að
hafa samband við miðstöð Friðar-
hreyfingarinnar, sem hefur aðsetur
á Hallveigarstöðum, Túngötu 14,
Reykjavík, sími 91—24800.
Þetta er fjárfrek aðgerð og mun
Friðarhreyfing íslenskra kvenna
leita eftir fjárstuðningi til félaga-
samtaka og fyrirtækja og vonast til
að þau bregðist vel og skjótt við
beiðninni. Avísanareikningur okk-
ar er í Landsbanka íslands aðal-
banka nr. 24070.
Islenskar konur hafa sýnt að þær
geta staðið saman að mikilvægum
verkefnum. Friðarávarp íslenskra
kvenna verður framlag okkar árið
1985 til friðar og réttlætis í heim-
inum.
Við viljum undirbúa jarðvegfriðar-
ins með því að stuðla að réttlceti,
vináttu og auknum samskiptum
milli þjóða.
Við viljum að fjármagni sé varið til
þess að seðja hungur sveltandi
fólks, til heilsugœslu og menntun-
ar, en ekki til vígbúnaðar.
Við viljum leggja áherslu á uppeldi
til friðar með því að sporna við of-
beldi í kvikmyndum, myndböndum
og stríðsleikföngum.
Við viljum að Islendingar leggi lið
sérhverri viðleitni á alþjóðavett-
vangi gegn kjarorkuvopnum og
öðrum vígbúnaði.
Við viljum glæða vonir manna um
betri heim og bjartari framtíð án
kjarnorkuvopna og gereyðingar-
hœttu.
Við viljum ekki að Island verði vett-
vangur aukins vígbúnaðar á norð-
urslóðum og höfnum kjarnorku-
vopnum á landi okkar og í hafinu
umhverfis, hvort sem er á friðar-
eða stríðstímum.
Við viljum frið sem grundvallast á
réttlæti, frelsi og umhyggju í mann-
legum samskiptum.
K-tilboðum vel tekið
Viðskiptavinir K-kaupmanna fengu
á sl. ári í það minnsta 6 milljón
króna afslátt, vegna K-tilboðanna,
sem boðið var upp á. Þetta kom
fram í máli Daníels G. Björnssonar,
framkvæmdastjóra K-samtakanna
á aðalfundi þeirra nú nýlega. Á sl.
ári buðu K-kaupmenn upp á 26 K-
tilboð, alls 157 vörutegundir.
Óhætt er að fullyrða að K-tilboð-
unum hefur verið vel tekið af al-
menningi, sem nýtir sér þau kjara-
boð sem boðið er upp á hverju
sinni. Telja kaupmenn ljóst að þetta
sé rétta svarið við stórmörkuðum
og þeirri samkeppni sem frá þeim
stafar. Er það vilji margra kaup-
manna að færa út kvíarnar til að
geta boðið enn betur. Á fundinum
ríkti mikill einhugur K-kaup-
manna. Aðild að samtökunum eiga
nú 46 kaupmenn víða um land.
Samtökin gera samninga við inn-
flytjendur matvöru og innlenda
framleiðendur um magnafslátt af
kaupum.
Á aðalfundinum kom fram að
kaupmenn heyra í sívaxandi mæli
hjá viðskiptavinum sínum að þeir
telji hag sínum betur borgið í sinni
hverfisverslun en að fara um langan
veg í stórmarkað.
Á aðalfundi K-samtakanna var
Jónas Gunnarsson, kaupmaður í
Kjötborg í Reykjavík, endurkjörinn
formaður samtakanna. Með hon-
um í stjórn eru þeir Jónas Ragnars-
son í Nonna og Bubba Keflavík,
varaformaður, Jón Einarsson í
Sunnukjöri er gjaldkeri, Máni Ás-
geirsson í Versl. Ásgeir er ritari,
Baldvin Eggertsson í Kársneskjöri
meðstjórnandi. Varamenn eru þeir
Ingibjörn Hafsteinsson í Hamra-
kjöri og Júlíus Jónsson í Versl.
Nóatún.
Framkvæmdastjóri K-samtakanna
er Daníel G. Björnsson, en skrif-
stofa samtakanna er hjá Kaup-
mannasamtökum íslands á 6. hæð
í Húsi verslunarinnar.
Gjafir og áheit til Stokkseyrarkirkju árið 1984
Áheit:
RÓ og SG ...........
Hjördís Ingvarsdóttir .
EG..................
Ragnhildur Jónsdóttir
Dúa frá Sæborg .....
NN .................
Sigríður Þórarinsdóttir
JG .................
BGB ................
GS .................
kr. 1.000,00
— 2.200,00
— 500,00
— 1.000,00
— 1.000,00
— 100,00
— 500,00
— 100,00
— 400,00
— 500,00 kr. 7.300,00
Gjafir:
Ágúst Bjarnason .. .
Ingólfur Gunnarsson
kr. 500,00
— 300,00
Minningargjöf frá Ágústi og Ingveldi
Bjarnadóttur til minningar um foreldra
sína, Herdísi Magnúsdóttur og Bjarna Sig-
urðsson frá Sjónarhóli ............. — 2.500,00
3.300,00
Agóði af hlutaveltu, sem eftirtalin börn
stóðu fyrir: Nína Björg Borgarsdóttir,
Guðrún Jóna Borgarsdóttir, Svanhvít Ósk
Jónsdóttir og Jón Reynir Jónsson .... kr. 900,00 — 900,00
Ágóði af annarri hlutaveltu, er þessi börn
stóðu fyrir: Anna Margrét Gunnarsdóttir,
Hulda Ósk Gunnarsdóttir, Nína Björg
Borgarsdóttir og Guðrún Jóna Borgars-
dóttir................................. |<r.
Seld minningarspjöld ..................
1.482,00
Alls kr.
— 1.482,00
18.600,00
31.582,00
Þökkum gefendum velvild og hlýhug í garð kirkjunnar.
Sóknarnefndin.
F. h. sóknarnefndar,
Haraldur G. Júlíusson.
Myríam Bat-Yosef
5 sýningar á
Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 1. júní verða opnað-
ar fimm sýningar á Kjarvalsstöð-
um, og verður þá hver krókur og
kimi hússins nýttur fyrir sýningar.
í vestursal sýna 18 félagar List-
málarafélagsins málverk.
í austursal sýnir Tryggvi Árnason
grafíkmyndir.
í vesturforsal sýnir Myriam Bat-
Yosef málaða hluti ýmisskonar.
í austurforsal sýnir Örn Ingi
skúlptúra og myndverk.
Og fyrir framan kaffistofuna verð-
ur sýning á þeim sex tillögum sem
valdar voru til frekari útfærslu í
hugmyndasamkeppni um hlutverk
og mótun Arnarhóls.
Landsfundur friðar-
hreyfingar kvenna
Annar landsfundur Friðarhreyfing-
ar íslenskra kvenna verður haldinn
Iaugardaginn 1. júní kl. 13.00 að
Hamragörðum við Hofsvallagötu.
Friðarhreyfingin hefir nú starfað i
rúm 2 ár og er þetta annar lands-
fundur þeirra. Friðarhóðpar
kvenna víðsvegar að af landinu og
frá hinum ýmsu kvenfélögum, stétt-
arfélögum og kvennasamtökum
allra stjórnmálaflokka og óháðra
einstaklinga eru grunneiningar
friðarhreyfingarinnar. Hóparnir
starfa sjálfstætt á sem breiðustum
grundvelli að sameiginlegu tak-
marki okkar allra: friði og afvopn-
un á jörðu hér.
Miðstöð hreyfingarinnar er í
Reykjavík og er hlutverk hennar að
vera samtengjandi aðili hinna ýmsu
hópa og einstaklinga, sem vilja
leggja fram sinn skerf.
Gefið er út fréttabréf í þessu augn-
miði þar sem reynt er að fræða og
upplýsa um þá starfsemi sem fram
fer á hverjum tíma og frétta leitað
af líku starfi innanlands og utan.
Mikið starf hefir verið unnið og allt
gengið vonum framar. Fræðslu-
fundir hafa verið haldnir og fyrir-
lesarar fengnir til að fjalla um af-
vopnunarmál og annað málefninu
skylt.
Á landsfundunum munu Helga Jó-
hannsdóttir og Una Bergmann
segja frá „friðarferðinni miklu”
sem þær tóku þátt í í vor, þar sem
Kona,
ný plata
frá Bubba
í júní næstkomandi verða liðin
fimm ár frá því að ísbjarnarblús,
fyrsta plata Bubba Morthens, kom
út. ísbjarnarblús var upphafið á
ferli Bubba, með þeirri plötu var
lagður grunnurinn að stofnun Ut-
angarðsmanna, hljómsveit sem
stokkaði rækilega upp í íslenska
poppheiminum með hljómleika-
haldi um allt land og eftirminnileg-
um hljómplötum. Síðan hefur
Bubbi Morthens jafnan staðið í
fylkingarbrjósti í islenskri rokktón-
list bæði sem sólóisti og með hljóm-
sveitunum Egó og Das Kapital.
í tilefni af þessum tímamótum á
ferli Bubba er von á sjöttu sóló-
plötu hans. Plata þessi ber heitið
„Kona” og ber að líta á hana sem
eitt verk í ýmsum stílbrigðum og
þema hennar er ástin með öllum
þeim sáru og Ijúfu tilfinningum
sem henni fylgja. Áætlaður útgáfu-
dagur plötunnar er 6. júní sem er
jafnframt 29. afmælisdagur Bubba
sjálfs. Það er hljómplötuútgáfan
Gramm sem gefur plötuna út.
friðarhópar ýmsra samtaka í
Evrópu ferðuðust milli landa í álf-
unni og lögðu fram almennar
spurningar um friðarvilja Forsætis-
og utanríkisráðherra þeirra landa
sem eru í S.Þ. Seinna er áætlað að
heimsækja allar aðrar þjóðir heims
sem eru í samtökunum.
Fræðsluerindi mun verða flutt á
landsfundi og einnig mun næsta
stóra verkefni verða kynnt. Það er
söfnun undirskrifta sem flestra
(allra) landskvenna, undir almennt
friðarávarp, sem fulltrúar hópanna
(miðstöð) hefir komið sér saman
um og ætlunin er að senda á ráð-
Verölagsstofnun hefur gert könn-
un á veröi á æfingagöllum og æf-
ingaskóm fyrir börn og fullorðna í
44 verslunum á höfuðborgarsvæö-
inu. Ástæðan fyrir því að þessi
könnun er gerð nú, er sú að 1. júní
verður felld úr gildi hámarksálagn-
ing á ýmsum vöruflokkum, m.a. á
æfingagöllum og æfingaskóm.
Verð á æfingagöllum barna var á
bilinu 465 kr. til 3.733 kr. og á æf-
ingagöllum fullorðinna frá 697 kr.
til 3.990 kr. Lægsta verð á æfinga-
skóm barna var 290 kr. en hæst
tæpar 1.500 kr. Verð á æfingaskóm
fyrir fullorðna var á bilinu 470 kr.
stefnu sem haldin verður í Nairopi í
sumar i tilefni loka kvennaáratug-
arins.
Á landsfundi verður skýrsla mið-
stöðvar flutt, reikningar lagðir fram
kosning í miðstöð og önnur málefni
tekin fyrir. Allir eru velkomnir og
hvattir til að leggja fram hugmyndir
sem til heilla horfa.
Konur utan félaga sem innan sem
vilja leggja fram sinn skerf til þessa
vísis að heimsfriðarstarfi eru hvatt-
ar til að gerast aðilar að hreyfing-
unni og starfa sem einstaklingar
eða í hópum að því að sambúð
þjóða megi verða friðsamleg.
til 2.500 kr. Körfuboltaskór kost-
uðu frá 545 kr. til 2.655 kr.
í ljós kom að yfirleitt var frekar
lítill munur á verði sömu vöruteg-
undar af æfingagöllum á milli
verslana. Þó reyndist 80% verð-
munur á lægsta og hæsta verði á
æfingagalla fyrir fullorðna af gerð-
inni Adidas Sweatsuit og 45% verð-
munur á æfingagalla af gerðinni
Hummel New York. Einnig var
65% verðmunur á Adidas Stock-
holm GT æfingaskóm eftir versl-
unum.
Enginn marktækur munur
reyndist á verðlagi í stórmörkuðum
og smærri verslunum.
Verðlagskönnun á æfingagöllum og skóm
Mikill verðmunur
milli merkja