Alþýðublaðið - 27.07.1985, Side 2
2
Laugardagur 27. júií 1985
■SUNNUDAGSLEIÐARl
Albert
Deilan um siglingar bandaríska skipafélags-
ins Rainbow Navigation Inc. fyrir varnarliðið
hefur vakið Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra til meðvitundar um það, hvaða reglur
giltu I raun og veru um innflutning til varnar-
liðsins. Hingað til hafa flest allir Islendingar
vitað það, að óheimilt er að flytja til landsins
hrátt kjöt vegna hugsanlegrar smithættu. ís-
lenskir ferðalangar, sem komið hafa með ein-
hvers konar hrátt kjötmeti I fórum sínum til
landsins, hafa mátt sjá á eftir því í hendur toll-
varða og þaðan á eldinn. Það er því ágætt, að
einhverjir innan stjórnarráðsins hafa uppgötv-
að lög frá árinu 1928, sem banna varnarliðinu
að flytja inn hrátt kjöt. Utanríkisráðuneytiö hef-
ur hins vegar upplýst það, að fyrir liggi lög-
fræðileg greinargerð frá fyrrverandi hæstarétt-
ardómara, þar sem niðurstaðan væri ótvírætt
sú, að umræddir kjötflutningar væru heimilir
lögum samkvæmt. Margt er nú orðið furðulegt
f kringum utanríkisráðuneytið og fleira heldur
en veiðiferðin dularfulla á dögunum. Ef til eru
lög (landinu, sem taka af allan vafa um það, að
innflutninguráhrámeti til landsinsséóheimill,
þá getur lögfræðilegt álit eins lögfróós manns
ekki ógilt þau lög.
í ham
Fjármálaráðherra gaf þau fyrirmæli að láta
leita I flutningaskipinu Rainbow Hope, þegar
það lagðist að bryggju i Njarðvíkurhöfn á
fimmtudaginn var. Hann fyrirskipaði ennfrem-
ur að láta kyrrsetja frystigáma, sem höfðu inni
að halda matvæli. Skirskotað var til áður-
nefndra laga frá árinu 1928 um gin- og klaufa-
veiki. Þessum lögum hefur hins vegar ekki ver-
iðbeitttil þessaog hefurvarnarliðið sjálft ann-
ast matvælainnflutning til eigin þarfaallargöt-
ur frá árinu 1951. Matvæli þau, sem með þess-
ari ferð skipsins komu voru að visu flutt upp á
flugvöllinn, fjármálaráðherrann lýsti því yfir, að
ekki yrði um frekari innflutning að ræðameöan
lögin frá 1928 eru í gildi.
Auðvitaö er þessi leikur fjármálaráðherrans
gerður vegna þeirrar stöðu, sem upp kom er
bandaríska skipafélgið hóf siglingar hingað til
lands í skjóli bandarískraeinokunarlaga. Þessi
bandarísku lög hafa komið illilega við íslensku
skipafélögin, ekki sfst Hafskip en þar var Al-
bert Guðmundsson stjórnarformaður. Honum
hefur því greinilega þótt Geir Hallgrimsson ut-
anríkisráðherra linur i baráttunni fyrir rétti ís-
lensku skipafélaganna. Enda hefur engin
lausn á þvf máli verið sjáanleg og Bandarikja-
menn svara úr og I og drepa málinu sífellt á
dreif. Það er þvl rökrétt hjá Albert Guðmunds-
syni að nota nú islenska lagasetningu til þess
að knýja hermennina á Keflavíkurflugvelli til
þess að fara að borða þann mat, sem við höfum
alist upp á. Þeir verða að gera svo vel að fara að
látasér lynda soöninguna, íslenska lambakjöt-
ið, grjónagraut og slátur. Auðvitað á varnarliðið
einnig kost á því að snúa sér alfarið að „Corn
flakes" og „Baked beans“, en það getur orðið
dálitið leiðigjarnt til lengdar.
Það alvarlegasta við fréttir þessar er sú niður-
læging, sem fslensk tollyfirvöld hafa orðið að
sæta gagnvart þessu bandariska skipi. Venju-
legur gangur málsins hefur verið sá, að um-
boðsfyrirtækið hefur fengið senda skrá um
vörur I skipinu. Þegar öllum varningi hefur ver-
ið ekið til hersins, hefur skráin verið send til
tollyfirvalda í umdæminu, stundum fimm eða
sex dögum siðar. Eiginieg tollskoðun hefur því
aldrei farið fram. Það verðuráhugavert að fylgj-
ast með þessu máli á næstunni, hvort fjármála-
ráöherrann verður harður á meiningunni eða
hvort hann verður kúg.aður af utanríkisráðu-
neytinu.
Hvaleyri 1
var frá kaupunum, að ekki væri
nægilega vel um alla hnúta búið og
spurðum hvort kannað hefði verið
hvaða lánafyrirgreiðslu fyrirtækið
Á mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
fengi hjá bönkunum. Því var aldrei
svarað, enda kemur nú á daginn að
bankarnir eru ekki tilbúnir að veita
Hvaleyrinni lánafyrirgreiðslu. Það
hefur því komið á daginn að við
höfðum rétt fyrir okkur. En þetta
var bara eitt af þeim atriðum sem
gerðu það að verkum að við vorum
ekki tilbúnir að standa að sölu
BÚH, ýmis önnur áform um rekst-
urinn eru enn mjög óljós“
Hvaleyrin leitaði til Utvegsbank-
ans um afurðalán einsog fyrr er sagt
og samkvæmt reglunni hefði fyrir-
tækið átt að fá um 80% lán út á
birgðir sínar. En þar sem fyrirtækið
á engin veð og eignir BÚH eru veð-
settar í topp, er bankinn ekki áfjáð-
ur að taka upp viðskipti við fyrir-
Laus staða
í heimspekideild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar staða lektors í íslenskum bókmenntum.
Fyrirhugað er að ráða í stöðuna til þriggja ára frá
1. september 1985 að telja.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísinda-
störf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo
og námsferil og störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og
skulu þær hafa borist fyrir 20. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið, 25. júli 1985.
LAUSAR STOÐUR HJA
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Hjúkrunarforstjóri til afleysinga tímabilið
01.10.’85 til 31.05.’86, við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur.
• Hjúkrunarfræðingar við heilsugæslu í skól-
um, heimahjúkrun og barnadeild Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavikur. Sérnám í heilsugæslu
æskilegt. Um er að ræða bæði fullt starf og
hlutastarf.
• Sjúkraliði við heimahjúkrun.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavikurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð, ásér-
stökum umsóknareyðublöðum, sem þarfást, fyrir
kl. 16.00, þriðjudaginn 6. ágúst 1985.
tækið. Hvaleyrin leitaði því til bæj-
aryfirvalda um stuðning þeirra við
að komast í bankaviðskipti.
Guðmundur Árni sagði að eins-
og málum væri nú háttað vildi Al-
þýðuflokkurinn að bæjaryfirvöld
aðstoðuðu Hvaleyrina til að kom-
ast í bankaviðskipti. „Við viljum
gera allt sem við getum til að starfs-
fólk fiskiðjuversins haldi vinnu
sinni. Nógur hringlandaháttur hef-
ur verið með atvinnu þessa fólks, af
hendi bæjaryfirvalda. Hinsvegar
vil ég að það komi skýrt fram að
það kemur ekki til mála að bæjarfé-
lagið gangi í neinar fjárskuldbind-
ingar fyrir fyrirtækið. Það er ekki
bæði hægt að sleppa og halda. Við
viljum engan pilsfatakapítalisma í
rekstur Hvaleyrarinnar“
Að lokum benti Guðmundur
Árni Stefánsson á að svona lipurð
hefðu bæjaryfirvöld vel mátt veita
þegar bærinn sá sjálfur um rekstur
BUH. „Þá hefðu málin kannski
staðið öðruvísi í dag.“
Albert 1
gömlum bandarískum lögum, þá
skuli þeir gjöra svo vel að fá að gera
hið sama hér á landi.
Svo virðist sem Albert sé enn einu
sinni kominn í ham. Hann hefur
valdið fjaðrafoki með því að aug-
lýsa hlutabréf ríkisins í Eimskip,
Flugleiðum og Rafha til sölu á tí-
földu nafnverði og strax í kjölfarið
sagt varnarliðinu stríð á hendur
fyrir illa meðferð á íslensku skipa-
félögunum. Það gustar af Albert
um þessar mumdir. í skipafélaga-
málinu hefur hann svo sjálfur hags-
muna að gæta sem innanbúðar-
maður hjá Hafskip — var þar meira
að segja stjórnarformaður. Við-
brögðin hafa ekki látið á sér standa.
Bandaríska sendiráðið hefur mót-
mælt aðgerðinni og sveittir starfs-
menn utanríkisráðuneytisins vita
varla í hvorn fótinn á að stíga.
Okkur á Alþýðublaðinu er sem
við heyrum andvörpin í Valhöllinni.
Frumkvæði Alberts hefur svo nú
orðið til þess að Framleiðsluráð
landbúnaðarins hefur sent frá sér
frétt þess efnis að kjöt það, sem hafi
komið með gámum til Keflavíkur
verði eytt strax! Er vísað til þess að
nóg sé af kjöti til í landinu af öllum
„venjulegum dýrategundum" og
enginn vandi að fullnægja „kjöt-
þörf“ varnarliðsins. Þá er vísað til
ákvæða nýju Framleiðsluráðslag-
anna þar sem segir: „Áður en
ákvarðanir eru teknar um inn- og
útflutning Iandbúnaðarvara skulu
aðilar, sem með þau mál fara, leita
álits og tillagna Framleiðsluráðs
landbúnaðarins. Innflutningur
landbúnaðarvara skal því aðeins
leyfður að Framleiðsluráð staðfesti
að innlend framleiðsla fullnægi
ekki neysluþörfum“. þess — í ljósi útilokunarinnar á ís-
Einnig vísar ráðið til bréfs sem lensku skipafélögúnum — að
það sendi Geir Hallgrímssyni í júlí skylda varnarliðið til að kaupa ís-
1984, þar sem hann er hvattur til lenskar búvörur til neyslu.
Laus staða
í læknadeild Háskóla íslands er laus til
umsóknar staða dósents í lífefnafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og
rannsóknir, svo og námsferil og störf,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu
þær hafa borist fyrir 25. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið, 25. júlí 1985.
1 lÚMiæöisstotnun ríkisins
SVEITARSTJÓRNIR
og STJÓRNIR
VERKAMANNABÚSTAÐA
Við minnum á
að umsóknir
varðandi byggingu
verkamannabústaða
á árinu 1986
verða að hafa borist
stofnuninni
fyrir 1. ágúst nk.
Reykjavík, 27. júlí 1985
^Húsnæðisstofnun ríkisins
Auglýsing
Verkakvennafélagið Framsókn fer í
sumarferðalag sunnudaginn 11. ágúst kl.
8.00 árdegis. Farið verður í Veiðivötn.
Nánari upplýsingaráskrifstofu félagsins
í síma 26930.