Alþýðublaðið - 06.08.1986, Blaðsíða 4
alþýðU'
■ nrr.rr.'M
Miðvikudagur 6. ágúst 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 81976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Danielsson, Ása Björnsdóttir, Kristján
Þorvaldsson, Margrét Haraldsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
Maó heilsar rauðvarðliðum á Torgi hins himneska friðar sumarið 1966
Sumarið
1966
Af litlutn ncista kviknar oft stórt
l>ál. Þannig komst ungur maður,
Maó Zedong að orði í grein sem
Siann skrifaði 1931.
Seinna á lífsleiðinni fékk hann að
reýna sannleiksgildi þessara orða.
Kínverski kommúnistaflokkurinn,
sem hann átti þátt í að mynda 1921,
var slíkur neisti og sjálfur kveikti
Maó neistann að hinni miklu menn-
ingarbyltingu öreiganna 1966, sem
breiddist út um landið og „brann“
á íbúum þess í 10 ár samfleytt. Þeg-
ar sá eldur var loks slökktur var for-
maðurinn látinn.
Nú eru 20 ár síðan þeir eldar
kviknuðu — þegar menningarbylt-
ingunni var hrundið af stað.
Þegar Maó dró byltingarfánann
að húni og hóf menningarbylting-
una höfðu völd hans lengi staðið á
veikum grunni í Beijing. Reyndar
var hann enn formaður flokksins,
en eftir hið misheppnaða „stóra
stökk“ 1958—9 sætti hann mikilli
gagnrýni frá flokksfélögum sínum.
Flokkurinn var byrjaður, undir for-
ystu Liu Shaoqi og Deng Xiaoping,
að losa um efnahagshömlur, sem
þegar voru farnar að ógna efnahag
landsins og voru liður í misheppn-
aðri umbótatilraun Maós.
—Deng Xiaoping er hættur að
ráðfæra sig við mig — sagði Maó
árið 1965 og nokkru síðar sagði
hann. — Vissir menn láta sem ég sé
ekki lengur í tölu lifenda—
Gagnárás
Haustið 1965 hóf Maó gagnárás
og sumarið þar á eftir var menning-
arbyltingin komin á fullt skrið. For-
maðurinn rökstuddi aðgerðir sínar
með því að segja að „áhrifamenn"
í flokknum hefðu lent á villigötum
kapitalismans. Bæði i landbúnaði
og iðnaði væru kapítalískar aðferð-
ir notaðar í vaxandi mæli. I
menntakerfinu væri áherslan lögð á
stagl og dauðan bóklærdóm og í
embættismannakerfinu væru menn
upp til hópa feitir og makráðir sem
aldrei fyrr. Öllu þessu vildi Maó
breyta, áður en það yrði of seint.
Maó vildi sýna öllum heiminum
að hann væri langt frá því að vera
dauður og í því skyni stakk hann sér
til sunds í gruggugt vatn Yangsteár-
innar. Þetta var í nágrenni milljóna-
borgarinnar Wuhan og næsta dag
bárust myndir af hinum syndandi
formanni um allan heim.
Lengi lifi Maó
í frásögn sinni af atburði þessum
vildi hin opinbera fréttastofa,
Xinhua, hafa það svo að Maó hefði
sett nýtt heimsmet í 1.500 m sundi á
73. aldursári. Fáir munu hafa lagt
trúnað á það, a. m. k. utan Kína, en
þessi aldraði foringi sýndi það á
næstu mánuðum að hann var enn
fær um að vinna afreksverk. Mán-
uði eftir sundið birti Xinhua frétt af
fjöldafundi á torgi hins himneska
friðar í miðbæ Beijing borgar:
— Við sólarupprás, kl. 5 í morg-
un kom hinn frábæri leiðtogi okkar
Maó formaður til Torgs hins
himneska friðar, þar sem mann-
fjöldinn var eins og hafsjór og
rauðu fánarnir eins og skógur. Maó
var íklæddur grænum einkennis-
búningi hersins og rauða stjarnan í
húfu hans Ijómaði í morgunsólinni.
Þegar hann lyfti hendinni til að
heilsa mannfjöldanum brutust út
gríðarleg fagnaðarhróp.
Allir teygðu hendur til himins og
þustu í áttina til formannsins.
Margir klöppuðu svo lengi að þeir
urðu sárir í lófunum, aðrir brustu i
grát, en allir hrópuðu í hrifningu:
— Maó formaður er kominn, Maó
er mitt á meðal okkar. —
Að svo búnu hófust samstillt
hróp, — Lengi lifi Maó formaður.
Megi hann lifa í tíu þúsund ár, tíu
þúsund ár og tíu þúsund ár. Hrópin
urðu háværari og kraftmeiri eftir
því sem þau urðu fleiri svo að him-
ininn yfir höfuðborginni hefur víst
rifnað. —
Rauða kverið
Vikur og mánuðir liðu og fjölda-
hreyfingunni óx fiskur um hrygg.
Brátt streymdu milljónir ævintýra-
þyrstra rauðvarðliða um landið
þvert og endilangt í leit að kapíta-
lískum blórabögglum. Allir höfðu
Rauða kverið formannsins með-
ferðis, bókina sem hafði að geyma
svör við öllum heimsins vandamál-
um. — Það er fjöldinn, sem sýnir
sannan hetjuskap. Sjáfir erum við
barnalegir og fáfróðir — var eitt af
spakmælum bókarinnar.
Að nokkrum tíma liðnum var
það orðið tjóst að varðliðar Maós
Iétu sér ekki nægja að klekkja á fá-
einum fylgjendum kapítalismans,
heldur var um umfangsmiklar
hreinsanir að ræða. Að lokum varð
Þjóðfrelsisherinn að skerast í leik-
inn til að koma í veg fyrir allsherjar
ringulreið. Síðar sagði Maó að
hann hefði aldrei ímyndað sér að
Rauða kverið myndi hafa slík áhrif
sem raun bar vitni.
Þremur árum síðar, þegar Maó
tók á móti bandaríska blaðamann-
inum og rithöfundinum Edgar
Snow, viðurkenndi hann að menn-
ingarbyltingin hefði ekki verið alls
kostar velheppnuð tilraun. Engu að
síður urðu einkunnarorð menning-
arbyltingarinnar hin opinbera hug-
myndafræði í landinu næstu 7 árin.
Reikningsskil
Eftir dauða Maós og handtöku
fjórmenningaklíkunnar var svo
komið að reikningsskilum. Árið
1979 komst flokksblaðið, Dagblað
alþýðunnar að þeirri niðurstöðu að
nálægt 100 milljónum Kínverja
hefðu orðið fyrir óþægindum eða
ofsóknum á þessu 10 ára tímabili.
Sama ár hafði franska fréttastofan
AFP það eftir áreiðanlegum
kínverskum heimildum að um
400.000, manns hefðu verið Iátnir
gjalda fyrir „misgerðir" með Iífi
sínu.
Ári síðar féll dómur í máli fjór-
menningaklíkunnar. Þau voru
fundin sek um að hafa ofsótt
750.000 manns, þar af tekið 34.380
af lífi. í Mongólíu hafði „klíkan“
ranglega ákært 346.000 manns fyrir
að hafa myndað leynilegan flokk;
16.000 voru drepnir.
Á meðan réttarhöldin stóðu yfir
sagði fréttastofan Xinhua frá því að
öryggismálaráðherrann, Xie Fuzhi,
hefði komið á hreinustu ógnar-
stjórn í Beijing í ágúst og september
1966. Á 40 dögum voru 1.700
manns teknir af lífi, 33.000 heimili
voru rannsökuð og 65.000 voru
reknir burtu úr höfuðborginni.
Þannig mætti lengi telja, svo mörg
voru dæmin um valdníðslu og yfir-
gang við pólitíska andstæðinga,
ímyndaða og raunverulega.
Horft fram á við
í lok 7. áratugarins var mörgum
Kínverjum gjarnt á að líta til baka
og gera upp tímabil menningarbylt-
ingarinnar og leggja á það sitt eigið
mat. Margir fóru til Beijing til að
koma kvörtunum á framfæri. Rit-
höfundar hafa tekið þetta tímabil
til meðferðar og reynt að kryfja til
mergjar það sem gerðist þá. En nú
einbeita Kínverjar sér að því að
leysa vamdamál dagsins í dag og
horfa fram á við. Það sem er liðið,
er liðið, segja þeir og áreiðanlega
verða engin hátíðarhöld í tilefni af
20 ára afmæii sundafreks Maós í
ánni Yangste.
Molar
Engin „mafíustarfsemi“
í Víkurfréttum, sem gefnar eru út
í Keflavík var fyrir skömmu getið
um dularfulla bifreið sem sést
hafði standa fyrir utan ákveðna
verslun þar í bænum. Af ýmsum
ástæðum þótti tilvist bifreiðar-
innar hin grunsamlegasta og
varpaði blaðið fram þeirri spurn-
ingu, fyrir hvern væri verið að
njósna.
Svarið við þessari spurningu
birtist svo reyndar i næsta tölu-
blaði í formi bréfs frá Jóni Ás-
bergssyni, forstjóra Hagkaups.
Bréfið var svona:
„Reykjavík, 28. júlí 1986
Ágæti ritstjóri.
í VIKUR-fréttum 17. júlí og 24.
júlí er fjallað um „dularfulla" bif-
reið sem staðsett hafi verið utan
við verslun Nonna og Bubba við
Hringbraut í Keflavík, og er spurt:
„Fyrir hvern var verið að
njósna?“
Til að svara þeirri spurningu
staðfestist hér með að dagana 7.
til 12. júií lét Hagkaup telja um-
ferð gangandi fólks inn í 3 versl-
anir í Keflavík og Njarðvík, þ.e.
verslun Nonna & Bubba, Sam-
kaup og Hagkaup. Var talningin
framkvæmd af starfsmönnum
fyrirtækisins Securitas. Tilgangur
könnunarinnar var að átta sig á
hvenær dagsins mest væri verslað
og hvaða vikudaga og hvernig
verslunin dreifðist milli fyrr-
nefndra búða. Þar með fáum við
í hendur upplýsingar um hvernig
Hagkaup stendur sig á þessu
verslunarsvæði í samkeppninni
um viðskiptavinina. Teljum við
slíkar upplýsingar mikilvægar við
markvissa stjórnun fyrirtækisins
og vísum á bug öllum ásökunum
um að við höfum með þessari
könnun sfundað „mafíustarf-
semi“ og „almenningsnjósnir",
eins og haft er eftir forsvarsmönn-
um Nonna og Bubba i blöðunum.
Með þökk fyrir birtinguna.
F.h. Hagkaups hf.
Jón Ásbergsson,
forstjóri.“
Það virðist sem sagt vera að
færast fjör í verslunarsamkeppn-
ina hérlendis. Við skulum bara
vona að það skili sér að lokum í
hagstæðara vöruverði til neyt-
enda.