Alþýðublaðið - 30.08.1986, Page 11
Laugardagur 30. ágúst 1986-
11
höföu ágætar hugmyndir. Þeir
kvörtuðu yfir því að þeir fengju
ekki fyrirgreiðslu. í nokkrum til-
fellum kannaði ég hvort þessir
menn vildu, ef hugmyndir þeirra
yrðu fjármagnaðar, að sá aðiíi ætti
þá meirihluta í fyrirtækinu. í lang-
flestum tilfellum kom í ljós að
menn höfðu ekki áhuga á þessari
leið. Menn geta ekki bæði gleypt og
geymt.
„Hvað með að stuðningur ríkis-
insyrði íformi lengri og hagstœðari
lána?“
— Skortur á lausafé er ekki
vandamál heldur að útvega veð fyr-
ir lánunum.
„Ertu fylgjandi einkaframtaki í
iðnaði?“
— Ég er fylgjandi því, en hins
vegar sé ég ekkert því til fyrirstöðu
að reknir séu sjóðir með áhættu-
fjármagni. Það er deild í Iðnlána-
sjóði sem veitir áhættufjármagn í
vöruþróunarverkefni. Ég er einnig
mjög hrifinn af hugmyndinni með
Þróunarfélag íslands. í því tilfelli
myndi Þróunarfélagið leggja fram
hlutafé í fyrirtækjum sem eru með
álitlegar hugmyndir. Hins vegar
finnst mér ekki að ríkið eigi að
leggja fram fé án nokkurra trygg-
inga um endurgreiðslu ti! þess að
einhverjir aðilar úti í bæ geti stofn-
að fyrirtæki og orðið fram-
kvæmdastjórar.
Einkarekstur-ríkiseign
„Er þetta ekki eins konar örygg-
isventill fyrir að fyrírtœki eins og
Álafoss að hafa ríkið sem óbeinan
aðila að fyrirtœkinu?“
— Það er kannski óbeinn örygg-
isventill. Hins vegar telja þeir sem
til þekkja að eignaraðild ríkisins
hafi alls ekki auðveldað rekstur
Álafoss á undanförnum árum. Eig-
in fjárstaða fyrirtækisins hefur
ekki verið góð og veltufjárstaðan
heldur ekki góð. Eignaraðild hefur
þau áhrif að menn gera meiri kröf-
ur til Álafoss og gott dæmi um það
er þetta kanínumál.
„Er það samt ekki ákveðinn
hvatiþegar menn eiga hlutina sjálf-
ir til að gera enn betur?“
— Þau fyrirtæki sem ganga best
í heiminum í dag eru ekki endilega
einkafyrirtæki. I iðnaði erlendis
eru stjórnendur fyrirtækjanna í
fæstum tilfellum jafnframt eigend-
ur. Þeir eru ráðnir af stjórn sem eru
fulltrúar eigenda, sem gera ákveðn-
ar kröfur.
Það hefur komið fram hjá Fram-
kvæmdarsjóði að þeir gera þá
kröfu í framtíðinni að fá 10%
ávöxtun á hlutabréfunum.
„Ella?“
— Skipta þeir sjálfsagt um for-
stjóra.
„Hvaðþarf til að reka gott fyrir-
tœki?“
— Það þarf að framleiða vöru á
lágu verði, markaðurinn á að vera
tilbúinn að borga hátt verð fyrir
vöruna og varan á helst að vera
vanabindandi. Þeim sem tekst þetta
gengur vel.
IFélagsmálastofnun
______ Hafnarfjarðar
Óskar að ráða starfsmenn til eftirfarandi starfa
strax.
1. Fóstru eftir hádegi á leikskólann Arnarberg og
þroskaþjálfa eða stuðningsfóstru í 3 stundir eftir
hádegi.
2. Fóstru eftir hádegi á leikskólann Norðurberg
og þroskaþjálfa eða stuðningsfóstru í 2 stundir
fyrir hádegi.
3. Fóstrur eftir hádegi á leikskólann Álfaberg.
4. Fóstru í fullt starf í 3 mánuði á skóladagheimil-
ið v/Kirkjuveg 7.
5. Dagvistarfulltrúi óskast í hálft starf á Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar um óákveðinn tíma.
Upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi.
6. Staða félagsráðgjafa á Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar er laus til umsóknar, helmingur
stöðunnar er afleysingarstaða í 8. mánuði. Upp-
lýsingar veitir Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf skulu
fylgja framangreindum umsóknum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu 4.
Umsóknarfrestur er til 9. sept. 1986.
Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
43.
FLOKKSÞING
Alþýöuflokksins verður haldið í
Hótel Örk í Hveragerði dagana
3. til 5. október næstkomandi.
Dagskrá þingsins verður nánar auglýst siðar.
Fyrir hönd Alþýðuflokksins,
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður.
Árni gunnarsson, ritari.
SAMViNNUBANKi iSLANDS HF.
Veistu allt sem
þú þarft að vita um
bankamál?
Þarftu að kynna þér lánamöguleika?
Innlánsreikninga? Vaxtakjör? Eða aðra
þætti bankaþjónustu?
í Spjaldhaga Samvinnubankans finnur
þú gagnlegar upplýsingar um þjónustu
bankans:
H-vaxtareÍkningur Samvinnubankans er
óbundinn sparireikningur, verðtryggður með
vöxtum. Hann ber í upphafi almenna spari-
sjóðsvexti sem stighækka. Kjör H-vaxtareikn-
ings eru reglulega borin saman við kjör 3 og
6 mánaða verðtryggðra reikninga bankans.
Reynist kjör verðtryggðu reikninganna betri
leggst Hávaxtaauki við áunna vexti H-vaxta-
reiknings.
Verðtryggðir reikningar Samvinnubankans
eru bundnir í 3, 6,18 og 24 mánuði. Vextir
leggjast við höfuðstól um áramót og eru lausir
til útborgunar næstu 12 mánuði þar á eftir.
Reikningarnir eru verðtryggðir miðað við láns-
kjaravísitölu.
Sparivelta, Húsnæðisvelta, Ferðavelta
og Launavelta veita allar rétt til láns eftir
ákveðnum reglum sem háðar eru tímalengd
viðskipta og innlánum reikningseigenda.
í Spjaldhaga Samvinnubankans finnur þú
nánari upplýsingar um þessa þætti og aðra í
þjónustu bankans, t.d. erlendan gjaldeyri, VISA-
greiðslukort, vaxtakjör, gengisskráningu og
margt fleira.
Bankinn gefur út ný spjöld eftir þörfum - þú
skiptir um í þínum Spjaldhaga. Þannig hefur þú
alltaf við höndina réttar upplýsingar um þjón-
ustu Samvinnubankans.
Til fróðleiks
má geta þess að orðið Spjaldhagi
er ekki nýyrði heldur er Spjaldhagi forn
þingstaður Eyfirðinga. Árið 1492 var haldið þar
þriggja hreppa þing og frá sama ári er til
skiptabréf gert í Spjaldhaga. í sóknarlýsingu
Grundar- og Möðruvallasóknar frá 1840 nefnir
síra Jón Jónsson (1787-1869) Spjaldhagahól
„hvar til forna var og enn skal sjást leifar af
einum dómhring."
Okkur fannst orðið hins vegar vel við hæfi og
ákváðum að glæöa það nýrri merkingu.
Líttu inn í næsta Samvinnubanka og
fáðu Spjaldhaga - eða hringdu og við
sendum þér hann.
SPJALDHAGI - ALLAR UPPLÝSINGAR Á EINUM STAÐ