Alþýðublaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. desember 1986
3
Umsjón: Jón Daníelsson
alþýðu
i n fT'TT'M vesturland
SKAGINN
Fiskvinnslufólk á Skaganum:
Uppsagnir um helgina
Uppsagnir verkafólks í fisk-
vinnslu á Akranesi taka gildi nú um
helgina og mun mega áætla að á
þriðja hundrað manns verði at-
vinnulaust af þessum sökum fram
yfir áramót og jafnvel fam undir
miðjan janúar á næsta ári, — auk
þess sem það fólk er fengið hefur
uppsagnarbréf í hendur, hefur auð-
vitað enga tryggingu fyrir því að
verða endurráðið, þótt vinna hefjist
að nýju.
Ekker bólar á
fjárhagsáætlun
Fjárhagsáætlun Akranesbæjar
fyrir næsta ár er ekki farin að taka
á sig neina verulega mynd ennþá og
hefur lítið verið rædd í bæjarstjórn,
þótt nýja árið sé nú alveg á næsta
leiti. Að sögn Gísla Einarssonar,
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins, er
þetta þó í sjálfu sér ekkert nýmæli,
þar eð fjárhagsáætlun bæjarins
hefur iðulega verið afgreidd í janú-
ar eða jafnvel febrúar.
Nú hefur hins vegar tekið gildi ný
reglugerð frá félagsmálaráðuneyt-
inu, um fjárhagsáætlanir bæjarfé-
laga, þar sem ætlast er til að fjár-
hagsáætlanir séu gerðar til þriggja
ára, þótt bindandi áætlun skuli eft-
ir sem áður aðeins ná til eins árs.
Gísli Einarsson, sagði í samtali
við Alþýðublaðið í gær, að sér
kæmi ekki á óvart þótt endanleg
samþykkt fjárhagsáætlunarinnar
kynni að dragast eitthvað á langinn
af þessum sökum.
Gísli kvaðst hins vegar óttast
mest að lítið fé yrði afgangs til
framkvæmda á vegum bæjarfélags-
ins á næsta ári. Hann kvað skerð-
inguna á jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga koma illa við Akurnesinga
ekki síður en önnur sveitarfélög.
„En aðalmálið hjá okkur verður
að reyna að þoka sundlaugarbygg-
ingunni eitthvað áfram á næsta
ári“, sagði hann.
Atvinnuástand á Akranesi hefur
annars verið tiltölulega jafnt að
undanförnu og lítið um stórar
sveiflur, fyrr en nú að uppsagnir
fiskvinnslufólks taka gildi um helg-
ina.
Með nýjum kjarasamningum í
febrúar á þessu ári, öðlaðist fisk-
vinnslufólk í fyrsta sinn eins mán-
aðar uppsagnarfrest eins og annars
gildir yfirleitt á vinnumarkaðinuip.
Var vonast til þess að sú breyting
hefði í för með sér aukið atvinnuör-
yggi fyrir verkafólk í þessari undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarbúsins,
en nú er að koma á daginn að þetta
nýmæli í samningum hefur tiltölu-
lega lítil áhrif og miklu minni en
gert var ráð fyrir.
Uppsagnir þær sem nú koma til
framkvæmda í fiskvinnu á Akra-
nesi voru gefnar út með löglegum
fyrirvara, enda fyrir séð, þegar fyrir
mánuði síðan, að fiskiskipaflotinn
myndi stöðvast á þessum tíma.
Uppsagnir á Akranesi eru heldur
ekkert einsdæmi, heldur er sami
háttur hafður á víðar um landið og
má t.d. benda á frétt Alþýðublaðs-
ins í gær um uppsagnir fiskvinnslu-
fólks á Fáskrúðsfirði.
Frá Akranesi.
A
0$%tn $<ún\Hnnu{ó(^
^rum Qndsr'
oaoorum umúsmonmnb
ýlm(e<Tfrd jóíf árs oýjr&el
@ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Hótel
Stykkis-
hólmur
Viö minnum á
okkar árlegu
þrettándagleöi
sem haldin
veröur meö
heföbundnu
sniöi.
Óskum
Vestlendingum
og öörum viö-
skiptamönnum
um land allt
gleöilegra jóla
og farsæls
komandi árs.
Hótel
Stykkis-
hólmur
;-k
. m'tvVu ji'",
ts ; aiIM
« •
KJÖRBÖKINOG
IhjálpaþérI
ABNÁENDUM
Þegar lítið fólk ræðst í stórar
fjárfestingar er gott að minnast
þess að margt smátt gerir eitt
stórt. Smámynt sem safnað er
í sparibauk og síðan lögð á
Kjörbók stækkar og ávaxt-
ast hraðar en þig grunar.
Bangsa baukurinn fæst í öllum
sparisjóðsdeildum Lands-
bankans. Þegar spariféð úr
honum er lagt inn er Kjörbók-
m
tölumar hækka og að lokum
ná endar saman.
Kennum börnunum okkar að
spara peninga og ávaxta þá,
það er gott veganesti og
gagnlegt.
in vísasta leiðin að settu
marki. Barnið, baukurinn og
bankinn leggjast á eitt;
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna f 100 ár