Alþýðublaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 14
14
Fimmtudagur 18. desember 1986
Að loknu prófkjöri
— Hvað segja þátttakendur íprófkjöri Alþýðuflokks-
ins á Vesturlandi þegar prófkjörið er afstaðið?
Eiður Guðnason:
Niðurstaðan verður
sigurstranglegur
listi
Persónulega er ég mjög ánægður
með niðurstöður prófkjörsins og
þakka það traust sem stuðnings-
menn Alþýðuflokksins í Vestur-
landskjördæmi hafa sýnt mér.
Þetta var drengilegt og heiðarlegt
prófkjör og ég veit að niðurstaðan
verður sigurstranglegur listi.
Þátttakan í prófkjörinu var mjög
góð og sýnir vissulega vaxandi byr
Alþýðuflokksins, eins og reyndar
hver skoðanakönnunin á fætur
annarri gefur nú til kynna. En
skoðanakannanir eru ekki kosning-
ar og nú er hin raunverulega barátta
framundan. Þar má hvergi láta
deigan síga. Staða okkar er góð, en
við skulum gera hana ennþá betri.
Guðmundur
Vésteinsson:
Þetta prófkjör
var ómengað
Ég vil fyrst og fremst færa þeim
þakkir sem veittu mér stuðning í
þessu prófkjöri og láta í ljós
ánægju með þann stuðning sem ég
fékk. Það var nokkrum vafa undir-
orpið að því er sumum fannst, hvort
ég ætti að taka þátt í því, en mér
virðist að það fylgi sem ég fékk sýni
að það hafi verið rétt ákvörðun að
taka þátt í þessu og vera með í leikn-
um.
Við þetta er svo því að bæta að
mér virðist ekki hafa verið neitt um
það að ræða að fólk úr öðrum
flokkum væri að taka þátt í þessu
prófkjöri eins og stundum hefur
viljað við brenna að undanförnu.
Ég held að prófkjörið hafi verið
alveg hreint og ómengað að þessu
leyti og það er út af fyrir sig talsvert
ánægjuefni, þegar um opið próf-
kjör er að ræða.
- ef þú ÁTT MIÐA*
m II haanaðatvonogsíðasten
•ss&xgSsxzr
nœœBSSi®
o
TAPAR
Eiður Guðtiason formaður þingflokks Alþýðuflokksins
fékkflest atkvœði ífyrsta sœti íprófkjöri flokksins í Vestur-
landskjördœmi. Eiður fékk 529 atkvœði ífyrsta sœti og 116
í annað eða samtals 645 atkvœði.
Sveinn G. Hálfdánarson fékk flest atkvœði í annað sœti,
eða samtals 292. Sveinn fékk 61 atkvœði ífyrsta og 231 í ann-
að. Hrönn Ríkharðsdóttir fékk 53 í fyrsta og 217 í annað en
samtals 270 atkvœði. Guðmundur Vésteinsson hlaut 66 í
fyrsta og 145 í annað eða samtals 211 atkvœði.
Kosningin er bindandi fyrir fyrstu tvö sœtin fyrir nœstu al-
þingiskosningar.
Alls tóku 744þátt íprófkjörinu sem var opið öllum stuðn-
ingsmönnum flokksins 18 ára
seðlar reyndust gildir.
Hrönn Ríkharðsdóttir:
Fegin að þetta
er búið
Ég er fegin að þetta er búið. En
það var gaman að taka þátt í þessu
og það var mjög lærdómsríkt. Ég
kynntist t.d. mörgu skemmtilegu
fólki. Aðalatriðið er þó að þetta var
heiðarleg barátta, auk þess sem hún
var jöfn og spennandi og endaði
vel.
Ég stefndi að vísu að öðru sæt-
inu, en við vorum þrjú sem gerðum
það og það gat bara eitt okkar unn-
ið. Sveinn vann þetta sæti og mér
finnst hann vel að því kominn.
Ég vil gjarna nota þetta tækifæri
til að koma á framfæri þakklæti
mínu til allra sem studdu mig í
þessu prófkjöri. Ég á von á því að
listinn í endanlegri mynd verði
sterkur og ég vona að við vinnum
vel saman og náum a.m.k. því
marki að Eiður verði kjördæma-
kosinn. Það væri að vísu gaman að
fá tvo þingmenn og við stefnum að
því og að því munum við vinna
saman.
Sveinn Hálfdanarson:
Heiðarlegt
prófkjör
Ég er í heild ánægður með próf-
kjörið. Þátttakan var víðast hvar
mjög góð, þrátt fyrir að smala-
og eldri í kjördœminu. 723
mennska væri ekki stunduð. Það
fólk sem tók þátt í prófkjörinu,
gerði það ótfhvatt og vegna þess að
það hafði áhuga fyrir því.
Þetta prófkjör fór mjög heiðar-
lega fram og það var enginn leið-
indaáróður eða rógur á ferðinni.
Hvað mína útkomu varðar, er ég
mjög ánægður með hana og ég held
að ef útkoman úr prófkjörinu verð-
ur látin halda sér, þá verði hér á
ferðinni mjög vænlegur listi.
Það var áberandi hve undirtekir
við málsstað Alþýðuflokksins voru
góðar, hvar sem ég kom fyrir þetta
prófkjör. Ég vil þakka öllum þeim
sem tóku þátt í þessu prófkjöri og
þá sérstaklega þeim sem studdu mig
í því. Ég vonast til að eiga mjög gott
samstarf bæði við þá sem með mér
verða á listanum og alla aðra al-
þýðuflokksmenn í kjördæminu.
Allir vinningar
dregnir út
— SÁÁ vill reyna nýjar leiðir og eyða tortryggni
Nú um nokkurt skeið hafa líkn-
arfélög á íslandi treyst einna mest á
happdrætti til fjáröflunar. Velvild
almennings hefur verið aflgjafi
þeirrar starfsemi, sem hvert félag
hefur haft með höndum. Hefur þá
verið farið að reglum, sem dóms-
málaráðuneytið hefur sett. Megin-
reglan er sú, að heildarverðmæti
vinninga skuli nema sjötta hluta
verðmætis útgefinna miða. Þegar
upp er staðið hefur selst ákveðinn
hluti miða og vinningar þar af leið-
andi dregist út í svipuðu eða sama
hlutfalli. Til dæmis ef selst hefur
fjórðungur miða, þá dregst út um
fjórðungur vinninga.
Þetta fyrirkomulag hefur sætt
gagnrýni, sem er skiljanleg. Hefur
umræða í samfélaginu verið nokk-
uð neikvæð og viðbrögð á þann
veg, að þessi fjáröflunarleið hefur
ekki verið líknarfélögunum eins
gjöful og áður.
SÁÁ vill nú í jólahappdrætti sínu
koma til móts við fram komin sjón-
armið og langar um leið að eyða
tortryggni, sem uppi hefur verið.
SAÁ fór þess á leit við dóms-
málaráðuneytið, að það heimilaði
að dregið yrði úr seldum miðum
eingöngu. Var það leyft að nýjum
skilyrðum uppfylltum.
SÁÁ dregur því eingöngu úr seld-
um miðum í jólahappdrætti 1986.
Vinningar eru þó engu að síður
glæsilegir sem fyrr:
1 Daihatsu Rocky jeppabifreið að
verðm. 567.700 kr.
3 Daihatsu Charade fólksbifr. að
verðm. 322.200 kr. pr. stk.
10 Daihatsu Cuore fólksbifreið að
verðm. 269.600 kr. pr. stk.
8 JVC videotökuvélar GR 7C að
verðm. 125.900 kr. pr. stk.
75 JVC tvöf. kassettuútvarpst. að
verðm. 11.750 kr. pr. stk.
75 BMX luxus reiðhjól að verðm.
9.900 kr. pr. stk.
Heildarverömæti vinninga er því
6.861.250f krónur.
Þar sem eingöngu er dregið úr
seldum miðum má sjá að samtökin
taka hér vissulega mikla áhættu.
Mikilvægt er að greiða heim-
senda miða fyrir kl. 12 á hádegi á
aðfangadag. Síðan verður dregið úr
seldum miðum í beinni útsendingu
á Rás II milli kl. eitt og þrjú e.h. á
gamlársdag.
Stuðningur þjóðarinnar hefur
allt frá stofnun SÁÁ verið styrkur
samtakanna. SÁÁ reiðir sig enn á
þennan stuðning um leið og SÁÁ
kemur til móts við gagnrýni og at-
hugasemdir með nýju fyrirkomu-
lagi happdrættisins. Vonandi til
endurnýjunar trausts og til hags-
bóta beggja.
SÁÁ nefnir happdrættið nú
„Jólagjöf SÁÁ“ og hefur það tví-
þætta merkingu. Við teljum stuðn-
ing fólksins í landinu vera jólagjöf
til SÁÁ og þeir, sem hreppa ein-
hvern hinna 172 vinninga fá jóla-
gjöf frá SÁÁ. Vinningar fara allir,
því eins og fyrr segir er aðeins dreg-
ið úr seldum miðum. Vinningarnir
eru auk þess skattfrjálsir.