Alþýðublaðið - 03.01.1987, Síða 4
alþyðu-
Laugardagur 3. janúar 1987
Alþýðublaöið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor-
valdsson og Jón Daníelsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
Samvinna — friðar og
leiðin til framfara
Þannig hljóðar boðskapur Sameinuðu
þjóðanna við lok alþjóðlegs friðarárs.
Nœsta ár verður alþjóðlegt ár heimilis-
lausra og á vegum S.Þ. verða haldnar ráð-
stefnur um friðsamlega notkun kjarnorku
og afvopnunarmál.
„Mannkynið stendur nú á vega-
mótum. Önnur leiðin, sú sem vísað
er á í sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, getur leitt til friðar með fjöl-
þjóðasamvinnu um að leysa vanda-
málin í veröld þar sem menn eru
hver öðrum háðir. Hin leiðin, sem
oftast hefur verið farin í ailri mann-
kynssögunni, auðkennist af eigin-
hagsmunum, stórkostlegri söfnun
vopnabirgða og þröngum sjón-
deildarhring þeirra sem ráða ferð-
inni.“
Þannig farast aðalritara Samein-
uðu þjóðanna, Javier Pérez de Cu-
éllar orð, nú þegar líður að lokum
alþjóða friðarársins 1986.
„í heimi sem búinn er kjarnorku-
vopnum er síðarnefnda leiðin vís-
asti vegurinn til sjálfseyðingar, en
sú fyrrnefnda getur flutt okkur
heilu og höldnu inn í nýja öld sem
yrði öld framfara og friðar um allan
heimþ segir hann. „Á alþjóðlega
friðarárinu sem nú er senn á enda,
hafa milljónir manna látið í ljós
vilja til að vinna að friðarmálum.
Viljayfirlýsingar hafa borist hvað-
anæva að um að styðja starf Sam-
einuðu þjóðanna til uppbyggingar
réttlátu og friðsamlegu samfélagi
allra þjóða. Nú er rétti tíminn fyrir
ríkisstjörnir og allan almenning að
sameinast um þetta markmið —
rétti tíminn til að ákveða að leið al-
þjóðlegrar samvinnu skuli valin og
henni fylgt inn í nýja og betri fram-
tíð“
Alþjóðlegt ár
heimilislausra 1987
Aðalnefnd Sameinuðu þjóðanna
hefur ákveðið að næsta ár verði al-
þjóðlegt ár heimilislausra, vegna
þeirrar miklu neyðar sem meira en
milljarður manna í þróunarlöndun-
um býr við — án mannsæmandi bú-
staða, í strákofum þéttum með leir,
í skúrum sem hrófað hefur verið
upp úr járnplötum eða spýtum, án
allra nútíma þæginda.
Einnig í iðnaðarlöndunum eru
mikil húsnæðisvandamál, sem ætl-
unin er að takast á við á komandi
ári. Áformað er að beina athyglinni
að vandamálum þeirra sem eru
verst settir félagslega á næsta ári,
þ.e. þeirra húsnæðislausu bæði í
þróunarlöndunum og iðnríkjun-
um.
í skýrslum þeim sem liggja til
grundvallar ákvörðun um alþjóð-
legt ár heimilislausra, kemur það
fram að:
c Fjórðihlutimannkynshefurekki
sómasamlegan bústað og lifir við
mjög óholl skilyrði.
c Meira en 50.000 manns deyr á
hverjum degi úr vannæringu og
sjúkdómum, sem að miklu leyti
orsakast af lélegu húsnæði, vönt-
un á hreinu vatni og skorti á al-
mennu hreinlæti. Flest fórnar-
lambanna eru börn.
c Nálægt 100 milljónum manna
hafa alls ekkert þak yfir höfuðið.
Engan stað sem hægt er að kalla
heimili. Þeir sofa, lifa og deyja á
götunum, undir brúm, í opnum
portum og húsarústum.
Jarðarbúum fjölgar óðfluga. Ár-
ið 2000 verða 2,5 milljörðum fleiri
menn á jarðkringlunni en nú er.
Mest verður fólksfjölgunin í borg-
um og bæjum og því munu hreysi
fátækrahverfanna spanna enn
stærri svæði en nú. Alþjóðlega árið
sem nú fer í hönd er ákall til okkar
allra um að leggja nokkuð af mörk-
um til þeirra sem verst eru settir í
samfélaginu, að þeir fái að minnsta
kosti fastan samastað og þak yfir
höfuðið og það gildir jafnt um íbúa
þróaðra og vanþróaðra ríkja.
Ráðstefna um friðsamlega
notkun kjarnorku
Alþjóðleg ráðstefna á vegum
Sameinuðu þjóðanna um friðsam-
lega notkun kjarnorku hefur verið
á dagskrá alveg síðan 1977, að mót-
uð var stefnuyfirlýsing varðandi
notkun kjarnorkunnar. Þar var
sagt að; 1) Notkun kjarnorku í frið-
samlegum tilgangi hefði mikla þýð-
ingu fyrir mörg lönd, 2) öll ríki
hefðu rétt til að móta eigin áætlanir
VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 30, 108 REYKJAVÍK SÍMI 681240
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á94 tveggja
til fjögurra herbergja íbúðum, sem eru ( byggingu í Grafarvogi ( Reykjavík.
UMSÓKNIR
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um u.þ.b. 100 eldri (búðir sem koma til endur-
söiu síðari hlutaárs 1987og fyrri hlutaárs 1988. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskil-
mála þessara íbúða gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, frá mánu-
deginum 15. desember 1986, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga—föstudaga kl. 9—12 og 13—16. Umsóknum skal
skila eigi slðar en 16. janúar 1987.
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík.
um friðsamlega notkun kjarnorku-
tækninnar, 3) öll ríki án undan-
tekninga ættu að hafa möguleika á
að afla sér nauðsynlegrar tækni og
búnaðar til að hagnýta sér kjarn-
orku og 4) alþjóðlegt samstarf ætti
að vera á þessu sviði undir eftirliti
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar (IAEA) til að koma í veg fyrir
útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Samþykktin frá 1977 verður lögð
til grundvallar á ráðstefnu sem
verður haldin í Genf dagana 23.
mars—10. apríl 1987 um þetta efni.
Þátttakendur verða fulltrúar ríkis-
stjórna allra aðildarlandanna og
þar að auki verða áheyrnarfulltrúar
frá fjölmörgum alþjóðlegum sam-
tökum. Þetta verður í fyrsta skipti
sem haldin er alþjóðleg ráðstefna
með það að markmiði að stuðla að
hagnýtingu kjarnorku í þágu þró-
unar og framfara. Eitt af því sem
lögð verður áhersla á er það hvernig
unnt sé að tryggja sem mest öryggi
og sem minnsta umhverfisröskun
samfara notkun kjarnorkunnar.
Ráðstefna um þróun
og afvopnun
Upphaflega var ráðgert að Sam-
einuðu þjóðirnar gengjust fyrir
ráðstefnu um sambandið milli þró-
unar og afvopnunar s.l. sumar og
ráðstefnustaðurinn var París. En
franska stjórnin fór fram á að henni
yrði frestað, á þeim forsendum að
ekki lægi fyrir nógu skýrt hver ættu
að vera markmið og tilgangur ráð-
stefnunnar.
Nú hefur það verið ákveðið að
halda ráðstefnuna í New York síðla
sumars 1987, áður en 42. þing Sam-
einuðu þjóðanna kemur saman.
Framkvæmdastjóri ráðstefnunn-
ar verður Svíinn Jan Mártenson
sem fram að þessu hefur verið
deildarstjóri í þeirri deild sem fer
með afvopnunarmál á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Eitt af því sem lagt verður til
grundvallar á þessari ráðstefnu er
skýrsla frá 1982 um samband af-
vopnunar og þróunar, en ein af
meginniðurstöðum hennar er þessi:
Heimurinn hefur um tvennt að
velja. Að halda vopnakapphlaup-
inu áfram, eða taka nýja stefnu sem
hefur í för með sér meira öryggi og
jöfnuð í félags- og efnahagslegri
þróun, sem hefur lífvænlegri mark-
mið bæði efnahagslega og pólitískt.
Það verður að velja á milli þessara
tveggja leiða. Þær eru ósamrýman-
legar.
Auglýsing frá ríkisskattstjóra
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr.
laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hef-
ur ríkisskattstjóri reiknaö út vísitölu almennrar
verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa á árinu 1987 og er þá miðað við að vísi-
tala 1. janúar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vfsitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 visitala 1.109
1. janúar 1986 vísitala 1.527
• 1. janúar 1987 vísitala 1.761
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar
miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eðaf rá 1. janúar
næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborg-
unar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar við
vlsitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunar-
hlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík 2. janúar 1987
Nýtt heimili —
Þroskaþjálfar og almennt
starfsfólk
Við opnun á nýju skammtímavistheimili fyrir fötluð
börn við Álfaland, vantar okkur til starfa þroskaþjálfa,
almennt starfsfólk, starfsmann ( eldhús og á nætur-
vaktir, vaktavinna — hlutastarf.
Umsóknarfrestur er til 07.01.1987.
Upplýsingar veitir forstöðumaður I síma 18797.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.