Alþýðublaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 6. janúar 1987
RITSTJ6RNABGREIN ' . ...........
Embættismenn segja nú
stjórninni fyrir verkum
Margvíslegar hættur steðja nú að þeim
áformum stjórnvalda og verkalýðshreyfingar
að halda verðbólgunni i skefjum. Eitt megin-
markmið siðustu kjarasamningavarað tryggja
jafnvægi í efnahagsmálum, koma i veg fyrir
verðlagshækkanir og halda gengi krónunnar
stöðugu. Einlægurvilji fulltrúaverkalýðshreyf-
ingar, vinnuveitenda og ríkisstjórnar verður
ekki dreginn í efa, þótt afgreiðsla fjárlaga með
gifurlegum halla hafi brotið i bága við þau
markmið, sem menn höfðu sett sér.
Nú, nokkrum vikum eftir kjarasamningana,
dynja hverskonar opinberar hækkanir á þjóð-
inni. Þessar hækkanir eru þegar svo miklar, að
þær brjóta í bága við markmið kjarasamning-
anna og geta sett allt úr skorðum. Það er þó
öllu lakara, að þærmunu verðaöðrum fordæmi
um verðhækkanir, og er ekki að efa að á næst-
unni munu hverskonar verðhækkanir fylgja í
kjölfariðog þær réttlættar með auknum rekstr-
arkostnaði fyrirtækja af öllu tagi.
Það hlýturað vekjaverulegaathygli hversu lít-
ið vald .ríkisstjórnin virðist hafa til að koma í
veg fyrir hækkanir hjá opinberum fyrirtækjum.
Gleggst kemur þetta í Ijós, þegar ríkisstjórnin
fer fram á það við Landsvirkjun að hún fresti
verðhækkunum á rafmagni. Stjórn Landsvirkj-
unar hafði þessar óskir að engu og tilkynnti
hækkun. Þá hafa borgaryfirvöld í Reykjavík lít-
ið gert með óskir ríkisstjórnarinnar og farið
sínu fram; hafa í raun forgöngu um hverskonar
verðhækkanir. Og fleiri ríkisstofnanir hafa
fylgt í kjölfar Landsvirkjunar.
Það er skaplítil ríkisstjórn, sem lætur slíkt
viðgangast. Það er auðvitað óþolandi að ríkis-
stofnanirskuli ekki faraeftiróskum ríkisstjórn-
arinnaráhverjum tíma. í þessum tilvikum hefði
rikisstjórnin átt að krefjast þess, að viðkom-
andi ríkisstofnanir gerðu ráðstafanir til sþarn-
aðar í rekstri, sem gæti vegið upp á móti þörf-
inni fyrir verðhækkanir.
Hefði t.d. verið fráleitt að krefjast þess, að
Landsvirkjun skæri risnukostnað niður við
trog, dragi úr bílakostnaði, frestaði einhverjum
framkvæmdum og kannaði hvort ekki mætti
spara launakostnað, a.m.k. meðal æðstu yfir-
manna?— Pósturog sími hyggst leggjaí marg-
víslegar kostnaðarsamar framkvæmdir til að
þjóna hinni svokölluðu fjölmiðlabyltingu, sem
að skaðlausu mætti bíða í tvö til þrjú ár. —
Hitaveita Reykjavikur, sem nú fær umtalsverða
hækkun, er eitt stöndugasta fyrirtæki á land-
inu, og hafa ekki verið færð gild rök fyrir verð-
hækkunarþörfinni. Og svo mætti lengi telja.
En ríkisstjórnin lætur þessar verðhækkanir
yfirsig ganga. Embættismannavaldið segir, að
svonaskuli þettaveraog ráðherrarnir láta und-
an. Þetta eru ekki vinnubrögð, sem lýsa kjarki
eða skilningi á hlutverki ríkisstjórnar. — For-
sætisráðherra má eiga það, að hann stendur
uppi í hárinu áSeðlabankanum ívaxtadeilunni.
Það var eftirtektarvert að sjá þá hneykslun,
sem lýsti sér í viðbrögðum yfirmannabankans,
þegar ráðherrann leyfði sér að gagnrýna störf
hans. En menn skyldu hafa hugfast að Seðla-
bankinn er ekki ríki í ríkinu og hann er ekki haf-
inn yfir gagnrýni.
Það virðist hins vegar svo, að bæði Alþingi og
ríkisstjórn hafi misst sjónar á þvi eftirlitshlut-
verki og því stjórnunarhlutverki, sem þeim er
ætlað samkvæmt lögum og stjórnarskrá lýð-
veldisins. Það er vissulega kominn tími til
þess, að stjórnmálamenn geri sér grein fyrir
þvi, að þjóðin hefurfaliðþeimvaldtil aðstjórna
og stjórna vel. Það er óþolandi hvernig emb-
ættismenn hafa á síðustu árum tekið valdið í
sínar hendur vegna linku stjórnmálamanna við
að gegna hlutverki sínu. — Og nú er það þróun
efnahagsmála, sem er í veði. Ríkisstjórnin á
ekki að látaembættismenn ráðaþví hvort tekst
að viðhalda nauðsynlegu jafnvægi eða ekki.
Menn og málefni
Setið fyrir svörum
Það var athyglisvert að fylgjast með sjónvarpsþætti Ólafs Sig-
urðssonar 16. des. s.l., er hann ræddi við fjármálaráðherra og hafði
sér til aðstoðar Þröst Ólafsson, hagfræðing. Umræðuefnið var fjár-
lög fyrir árið 1987.
Þröstur lagði fyrir ráðherrann nokkrar valdar spurningar, sem
honum varð þó ekki skotaskuld úr að svara, enda kann hann vel að
koma fyrir sig orði. Ein spurningin varðaði aukningu erlendra
skulda. Ráðherrann kvað skuldirnar hafa minnkað, en ekki vaxið,
ef tekið er mið af landsframleiðslu.
En er hún hin rétta viðmiðun í þessu tilviki? Nei. Landsfram-
leiðsla og aðrar þjóðhagsstærðir af svipuðum toga spunnar, eru að-
eins til leiðsagnar um það, hvenær komið er yfir hættumörk í
skuldasöfnun ríkisins. Það, sem nærtækast er til viðmiðunar, eru
ríkisskuldir — og erlendar skuldir sérstaklega — á hvern einstakling,
því að skattþegnanna er að greiða þessar skuldir. Langtíma erlend
lán hafa aukizt hröðum skrefum að undanförnu og eru fyrir Iöngu
komin fram úr því, sem heilbrigt getur talizt, enda í námunda við kr.
300 þús. á hvert mannsbarn í landinu.
Aukin landsframleiðsla er síður en svo nein hvöt eða hvatning til
að auka erlendar lántökur — eða heldur nein réttlæting á slíkum
lántökum. Þvert á móti á að greiða niður ríkisskuldir í góðæri. Ekki
verður það gert í hallæri.
Árið 1986 var annað mesta aflaár landsins og verðmæti sjávar-
fengs meira en nokkru sinni. Á sama tíma eru erlendar skuldir aukn-
ar og ríkissjóður rekinn með halla. Það er vissulega léleg fjármála-
stjórn, en í því efni eru íslendingar ýmsu vanir. Þessarar ríkisstjórn-
ar verður hinsvegar minnzt í sögunni fyrir afnám kaupgjaldsvísitölu
— meðan lánskjaravísitala fær að leika lausum hala og ógna fjárhag
heimilanna.
Auglýsing
frá menntamálaráöuneytinu
um gildistöku laga
Hinn 1. janúar s.l. tóku gildi lög nr. 48/1986 um lög-
verndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn-
skólakennara, framhaldsskólakennara og skóla-
stjóra.
Jafnframt féllu úr gildi lög nr. 51/1978 um embætt-
isgengi kennara og skólastjóra.
Hin nýju lög veröa send öllum skólastjórum,
skólanefndum, fræðslustjórum og trúnaðar-
mönnum kennara.
Eyðublöð vegna umsókna kennara um leyfi til að
nota starfsheitin grunnskólakennari eða fram-
haldsskólakennari er hægt að fá ( skólum,
fræðsluskrifstofum, skrifstofum kennarasam-
taka og í menntamálaráðuneytinu.
Reykjavík, 2. janúar 1987
30.000 vörunúmer
á boöstólum
Bílanaust í2200 m2
húsnœði;
Laugardaginn 3. janúar opnaði
Bílanaust hf. nýjan og glæsilegan
stórmarkað fyrir bílaeigendur í
Borgartúni 26. Þessi nýbreytni
markar tímamót í þeirri viðleitni að
gera rekstur bifreiða á íslandi ódýr-
ari og þægilegri.
Bílanaust hf. er fjölskyldufyrir-
tæki, stofnað 1962 af hjónunum
Matthíasi Helgasyni og Elínu
Ragnarsdóttur ásamt fleiri aðilum.
Matthías hefur verið forstjóri fyrir-
tækisins frá upphafi.
Nú eru starfsmenn Bílanausts hf.
32 talsins. Umsjón með innkaupum
hafa Reynir og Baldvin Matthías-
synir. Fyrir heildversluninni er Lúð-
vík Matthíasson. Skrifstofustjóri er
Lovísa Matthíasdóttir, Jónas R.
Sigfússon veitir tölvudeild forstöðu
en stjórnarformaður er Reynir
Matthíasson.
Með tilkomu nýja húsnæðisins
verður vöruvalið aukið til muna.
Ráðgert er að bæta við allmörgum
vöruflokkum, t.d. viðtækjum og
hljómflutningstækjum í bíla;
vinnufatnaði og hlífðarbúnaði;
járnvörum og verkfærum; raf-
magnsvörum og rafmagnsverkfær-
um; og málningu. Aðaláhersla
verður þó sem endranær lögð á
varahluti í nær allar gerðir bifreiða.
Bílanaust flytur nú inn um 90%
þeirrar vöru sem fyrirtækið selur.
Með aðstoð háþróaðrar tölvutækni
Happdrætti
Alþýðuflokksins
Dregið var f Happdrætti Al-
þýðuflokksins hjá borgar-
fógeta 11. des. 1986. Upp
komu eftirtalin númer.
1. 14727 4. 13682
2. 10426 5. 9171
3. 3584 6. 17328
Vinninga skal vitja á Skrif-
stofu Alþýðuflokksins Hverf-
isgötu 8—10. Slmi 29244.
við innkaup, birgðastjórn og af-
greiðslu hefur fyrirtækinu tekist að
halda vöruverði í algjöru lágmarki.
25 ára reynsla segir okkur ótvírætt
hvaða þjónustu bíleigendur vilja fá.
Nú höfum við 2200 fermetra hús-
næði, nægan mannafla og hátt í
30.000 vörunúmer fyrirliggjandi til
að mæta óskum þeirra betur en
nokkru sinni fyrr.
Útboð — Staflanlegir stólar
Innkaupastofnun Reykjavfkurborgar fyrirhönd íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavfkur, fyrir Laugardalshöll,
félagsmiðstöðvar o.fl. óskar eftir tilboðum í alltað1500
stóla. Stólarnir þurfa að vera með áklæði, staflanlegir
og auðveldir i flutningum og æskilegt að þeir séu sam-
tengjanlegir.
Óskað er eftir tilboðum annars vegar í:
a) 1500 stk. stóla og hins vegar
b) 1000 stk. stóla.
Enn fremur er óskað eftir tilboðum í flutninga vagna
fyrir sama magn af stólum.
Tilboð merkt „Staflanlegir stólar“ er innifelur einingar-
verð, afhendingartfma og nafn bjóðenda sendist skrif-
stofu vorri Fríkirkjuvegi 3 fyrir fimmtudaginn 22. jan.
1987, kl. 11 og verða þau opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavík
Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Dagskóli
Stundatöflur nemenda verða afhentar fimmtudaainn 8.
jan. kl. 15 gegn greiðslu gjalds í nemenda- og skólasjóð
kr. 1.400,-.'
Nýnemar á vorönn 1987 fá þó stundatöflu hjá umsókn-
arkennara kl. 13 sama dag. Kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá mánudaginn 12. jan.
Öldungadeild.
Enn er hægt að innritast I öldungadeild.
Vakin er athygli á fjölbreyttu framboði námsgreina t.d.
er kennsla f dönsku, ensku, þýsku, frönsku, spænsku
og ítölsku.
Staðfestingargjald kr. 500,- og skólagjald kr. 3.600,-
greiðist við innritun, sem fer fram miðvjkudaginn 7. og
fimmtudaginn 8. jan. kl. 16—19.
Stundatöflur verða einnig afhentar eldri nemendum á
sama tfma gegn greiðslu skólagjalds.
Kennsla I öldungadeild hefst samkvæmt stundaskrá
mánudaginn 12. jan.
Deildarstjórafundur verður miðvikudaginn 7. jan. kl. 14
og kennarafundur fimmtudaginn 8. jan. kl. 10.
Rektor