Alþýðublaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 6. janúar 1987 3 Áramótaávarp forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur: „...að gleyma hvorki fortíð né framtíð í kapphlaupinu eftir stundargæðum“ Frú Vigdís Finnbogadóttir Góðir landsmenn, góðan dag, gleðilegt ár. Enn á ný sem svo oft áður höfum við verið minnt á það hversu óblíð náttúruöfl þjóð okkar þarf einatt við að etja. Skuggi hefur hvílt yfir hátíðarhöldum okkar við fregnir af miklum sjóslysum undan ströndum Iandsins. Á slíkum raunastundum kemur ávallt í ljós hinn mikli sam- hugur sem býr með íslendingum. Missir eins er missir fyrir alla. Sam- úð okkar er einhuga um þessar mundir með fjölskyldum látinna sjómanna og allra annarra sem að hefur verið höggvið. — Að því mæltu flyt ég héðan frá Bessastöð- um þær hugleiðingar sem ég vildi fá samtíðarmenn mína til að eiga hlut- deild í við þessi áramót. „Vér stöndum nú í dyrum nýs árs. í dag er fyrsti dagur hins fyrsta mánaðar í nýju ári, fyrsti janúar. Mörgum er kunnugt að þetta mán- aðarnafn er úr latínumáli og dregið af orði sem merkir bogi eða hlið og einnig er það nafn hinna fornu Rómverja á goðmagni dyra og hliða, sem sýnt var á myndum í líki mannveru með andlit í tvær önd- verðar áttir, aftan og framan á höfði. Eins og guðinn horfa dyr bæði út og inn, aftur og fram í senn. Það gera áramótin einnig, mánað- arnafnið minnir okkur á það, dyra- mánuður" Þannig hóf Kristján Eldjárn ávarp sitt til þjóðarinnar í ársbyrj- un 1978. Þau orð hef ég kosið að gera að mínum nú af ýmsum ástæð- um. Á árinu sem nú er nýliðið hefði Kristján Eldjárn orðið sjötugur og það rifjaðist enn upp fyrir okkur hve allt of snemma við máttum sjá á bak svo dýrmætum manni sem hann var. Kristján Eldjárn hafði gert það að ævistarfi sínu að rýna í fortíðina og grandskoða hana. Engu að síður horfði hann ávallt til framtíðar þeg- ar hann tók til máls fyrir hönd þjóðar sinnar og las í framtíðina í krafti þekkingar sinnar á fortíð og sögu. Og hann tók jafnan til máls með þeim hætti að rækilega var tek- ið eftir. í framhaldi af þeim orðum sem ég vitnaði til úr ávarpi Kristjáns Eldjárns vék hann að því að það að skyggnast um, horfa til átta, væri ríkur þáttur í mannlegu eðli en hins vegar misjafnt til hverrar áttar væri fastast horft. Orð hans voru hvatn- ing til þjóðarinnar um að halda jafnan vöku sinni og gleyma engri áttinni, gleyma hvorki fortíð né framtíð í kappinu eftir stundar- gæðum. Hver sá sem stendur í dyrum er jafnan staddur á tímamótum. Hann þarf að taka ákvörðun og oft nokkra áhættu. Víst getur hann kosið að snúast á hæli á þröskuldi sínum og hverfa aftur inn í húsið, una við hið þekkta og heimakunna, fullviss þess að það sé rétt sem í Hávamálum segir að „dælt er heima hvat“. AUt sýnist mun auð- veldara heima fyrir því þar þekkj- um við allar aðstæður, vitum hvað getur gerst Oftar en ella er þó nauð- synlegt að taka aðra ákvörðun: að stíga yfir þröskuldinn, ganga út til móts við hið ókunna, út í það land þar sem fen og foröð kunna að leyn- ast. í dyragætt nýs árs eigum við ekki þessara kosta völ. Okkur stendur ekki til boða að snúa aftur inn í það hús sem var í fyrra heldur er okkur nauðugur sá kosturinn að ganga yf- ir þröskuldinn. Undan því verður ekki vikist en hins vegar kann það að varða alla heill okkar, alinna og óborinna, með hvaða hugarfari og hverskonar ásetningi við stígum skrefin. Þær kynslóðir sem nú byggja þetta land, ísland, hafa stigið stærri skref út í óvissuna en nokkrar fyrri kynslóðir. Á hálfri öld höfum við orðið vitni að þvílíkum breytingum að umhverfi okkar væri óþekkjan- legt fyrri tíðar fólki. Vissulega hef- ur tæknibyltingin breytt mörgu fyr- ir öðrum þjóðum en við getum hæglega leitt að því rök að hér á landi hafi umskiptin orðið miklu stórfelldari og sneggri en víðast annars staðar. Þegar við horfum á myndir af fátækt og neyð með öðr- um þjóðum hættir okkur til að gleyma hve örskammt er liðið frá því forfeður okkar stóðu andspæn- is þeim aðstæðum að þeir gerðust landflótta hundruðum og þúsund- um saman. Því það er ekki einu sinn full öld liðin frá Vesturferðum ís- lendinga, flóttanum mikla frá ör- b^rgðinni, þegar sárafátæku og matarlitlu fólki var beinlínis ýtt úr landi til að létta bagga hinna sem eftir sátu. í dyragætt hins nýja árs skiptir miklu að halda áttum, að kunna að skyggnast um áður en lengra er gengið. Þá ríður á að kunna að horfa allt í senn aftur og fram og til höfuðátta. Hverjum manni er það nauðsyn að staldra við öðru hvoru og freista þess að skilgreina og skilja sjálfan sig, að gera sér grein fyrir eigin verðleikum og hlutverki í samfélagi mannanna. Þá sem endranær verð- ur hann meðal annars að gera sér grein fyrir siðferðilegri ábyrgð sinni á sjálfum sér. Þá mun hann jafn- framt geta gert sér grein fyrir því að næst því að gæta sjálfs sín hlýtur hann að gæta bróður síns. Á sama hátt er hverri þjóð nauð- syn að vita deili á sjálfri sér, vita hvað það er sem hún hefur til mála að leggja i samfélagi þjóðanna, hvenær það er sem hún getur stolt lagt fram sinn skerf án tillits til stærðar og veraldlegs auðs á heims- vísu, hvenær hún getur krafist þess að menn leggi eyru við rödd hennar, — að á hana sé hlýtt. Það getur ekki sú þjóð sem gleymir að horfa til baka vegna þess að henni er ofbirta í augum af nútíð og framtíð. Það getur heldur ekki sú þjóð sem gleymir að taka siðferðilega ábyrgð á sjálfri sér. Þegar Atli Ásmundarson á Bjargi, bróðir Grettis, gekk um dyr heimilis síns til móts við banamenn sína þótti honum nokkuð til spjót- anna koma sem að honum beindust og hafði um þau orð að „þau tíðkast nú hin breiðu spjótin". Þar sem við stöndum nú, íslendingar, í dyrum nýrra tíma beinast að okkur mörg spjót og sum breið. Aldrei hafa menningaráhrif frá öðrum þjóðum átt jafngreiða leið til okkar og nú um stundir og eru þó smá- ræði ein í samanburði við það sem framtíðin virðist boða. Það er okk- ur mörgum áhyggjuefni hvort þjóð- in muni við þær aðstæður gæta1' uppruna síns, og geyma þau ómet- anlegu verðmæti sem þarf til þess að hún megi kallast sjálfstæð og sérstök þjóð um ókomin ár. Því einmitt án menningararfsins og þeirra andlegu verðmæta sem fyrri kynslóðir hafa skapað virðist hverri þjóð hætta búin. Um það vitna mörg dæmi í reynslusögu mann- kynsins. Með þessum orðum er ég ekki að taka afstöðu með þeim sem jafnan berjast gegn öllu öðru en heima- fengnum böggum. Ég er ekki að segja að öll erlend áhrif á menningu okkar og lífshætti séu hættuleg. Því fer fjarri. Það er eðli okkar allra að taka við áhrifum, læra af öðrum. Stórmenni sögu okkar voru gagn- kunnug erlendum menningar- straumum sinnar tíðar. En þau kunnu líka að fella þá strauma að íslenskum veruleika. Vitanlega þurfum við enn sem fyrr að vera viðtakendur áhrifa — einfaldlega vegna þess að við erum hluti af mannkyni og mannheimi. En hins vegar megum við aldrei vera svo áköf í nýjungagirni okkar að við gleymum eigin sérkennum, því sem gert hefur okkur að þjóð og gera mun um ókomna tíð ef rétt er á haldið. Við þurfum að vera sjálf- stæðir viðtakendur og kunna enn sem fyrr að laga hið nýja og erlenda að íslenskum aðstæðum. í því felast töfrar okkar meðal þjóða heims að vera eilítið öðruvísi, með okkar eig- in sniði. Þannig getum við komið færandi hendi með sitthvað sem öðrum þykir bragð að. Á hitt ber einnig að líta að jafn- hættulegt menningu og þjóðerni væri að horfa einasta til hins liðna, gleyma vökunni í nútíð vegna draumanna um fortíð. Því hverri hugsandi veru, hverri hugsandi þjóð, er nauðsyn á ögrandi við- fangsefnum, nauðsyn á einhverju nýju að glíma við. Vopn hennar í glímunni við hið nýja og ókunna eru þekking og menntun. Gleymist ekki að afla þekkingar, skipuleggja hana og hlú að henni munum við ávallt geta tekist á við hið óþekkta og vonandi jafnan hafa nokkurn sigur í þeirri glímu. Án þekkingar og reynslu verður hætt við þungri byltu. Af þeim sökum er okkur svo brýnt að gæta vel að skólum okkar og menningarstofnunum. Þar eru gróðrarreitir þekkingarinnar og þar verður að leggja grundvöll að skiln- ingi okkar á sjálfum okkur, eðli þjóðar okkar og hlutverki. Þannig tryggjum við einnig þekkingu á því menningarsamhengi sem við stönd- um í. Og samhenginu má íslensk þjóð aldrei gleyma. Hvorki hinu sögu- lega samhengi við fortíðina né held- ur samhenginu milli veraldlegra gæða og andlegra gæða, samheng- inu milli framleiðsluvöru okkar, þeirrar sem við seljum á markaðs- torgum og hinnar sem fólgin er í listum okkar og menningarlífi á öðru sviði. Því aðeins að þetta sam- hengi sé ljóst getum við gert okkur og öðrum grein fyrir því hvað það er að vera íslendingur, hvers vegna við getum hiklaust sagt að íslendingar viljum við öll vera. Það er ekki af því að hér sé betra að sitja við kjöt- katlana en annars staðar. Úr dyragætt áramótanna horfum við til framtiðar og fortíðar í senn. Þekking okkar á fortíðinni verður undirstaða framtíðarsýnarinnar. Og hvernig er framtíðarsýn Islend- inga? Hvernig viljum við til dæmis að aðrar þjóðir líti til okkar og á okkur í framtíðinni? Hver er sú ímynd, sem við viljum sjálf skapa? Svörin verða eflaust misjöfn. Þó ætla ég að nokkuð verði þeim öllum sameiginlegt. Við munum áreiðan- lega öll komast að þeirri niðurstöðu að við viljum að aðrir geti horft til okkar sem sjálfstæðrar menningar- þjóðar. Þjóðar sem hefur hiklaust axlað þá ábyrgð sem felst í því að vera hluti mannkyns. Við viljum geta verið stolt af því sem við höf- um til þekkingar og menningar heimsins að leggja. Við viljum geta glaðst yfir sigrum okkar á sem flest- um sviðum, hvort heldur er í íþrótt- um hugar eða líkamans. Við viljum um hver áramót geta horft svip- djörf fram á veg og sagt: Hér kom- um við, fullgildir þátttakendur í samfélagi þjóðanna. Um undanfarin misseri hafa lær- dómsmenn okkar unnið að því að reyna að átta sig á framtíðinni og lýsa ytri ramma framtíðarsýnarinn- ar. Margt er þar sem ekkert verður um vitað en þó ber öllum sman um sumt. Þannig er ljóst að hlutföll kynslóðanna raskast svo um mun- ar: miklu fleiri en nokkru sinni fyrr verða í elsta aldursflokknum þar sem fyrirséð er að aldraðir verða full 17% þjóðarinnar uppúr alda- mótum og þá um leið mun færri sem sjá þurfa öldruðum, sem skilað hafa sínum hlut til samfélags þjóð- arinnar, fyrir góðu og sómaríku ævikvöldi. Óþarfi ætti að vera að vekja athygli á því að þeir sem ungir eru á þessari stundu eldast samtíma öðrum og verða einnig gamlir einn góðan veðurdag, ef þeim auðnast líf sem við öll vonum. Þeir vilja eins og aðrir geta gengið að umhyggju nýrra kynslóða í eigin elli. Hér er um að ræða þátt komandi tíma sem við vitum um og getum þess vegna búið okkur undir. Þeirra tíma vegna megum við ekki láta nokkurs ófreistað til að efla mennt- un og þekkingu barna okkar og búa þau þannig undir þá framtíð sem við viljum eiga með þeim. Því mennt er máttur til að takast á við þær aðstæður sem skapast hverju sinni. Sú þjóð sem gengur til móts við tæknivædda tíma án þess að vera brynjuð þekkingu og almennri menntun hún mun ekki aðeins tapa fyrstu orrustunni heldur stríðinu öllu. Framtíðin spyr ekki um ver- aldarauð sem auðvelt er að sóa heldur þekkingu til að skapa auð- sæld. Á nýju ári er gott að minnast mikils sannleika sem felst í skoðun Einars skáld Benediktssonar og hann setti fram í DAGSKRÁ sinni fyrir réttum hundrað árum, í tilefni þess hve fólk var vanbúið til að mæta framtíðinni á ættjörð sinni og neyddist til að segja skilið við hana. „. . . Mesti og besti auður hvers lands“, ritar hann, „er fólkið sjálft, sem lifir þar, hugsar og starf- ar . . “ Þessi orð skáldsins brýna okkur til að búa æsku íslands sem best undir að eiga hér heima með víðsýni yfir heimsbyggðina, til fyr- irmyndar í hagleik og kunnáttu. Til þessa markmiðs megum við aldrei spara sameiginlega fjármuni okkar, því þannig er þeim varið til þjóðar- heilla, — til heilla okkur sjálfum hverju og einu. Því beini ég þeim orðum til þeirra sem ábyrgð bera á nánasta umhverfi sínu eða heildinni allri að láta það aldrei úr huganum hverfa að við eigum engan auð meiri en mann- fólkið sjálft og að við skuldum hverri mannveru að rækta hana til þeirra verðmæta sem enginn getur frá henni tekið — og það eru þekk- ing og menntun: meginatriði sem í framtíðinni verða höfuðundirstaða þess sem í askana verður látið. Gleðilegt nýár, gleðiríka framtíð. )

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.