Alþýðublaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 7. janúar J987 ^ 3. tbl. 68. árg.
Karl Steinar Guðnason:
„Siðleysi“
— hlýtur að koma til kasta dómstóla
„Það er siðleysi hvernig atvinnu-
rekendur standa að þessum upp-
sögnum núna og á þetta verður að
reyna fyrir dómstóluin. Það er frá-
leitt að túlka þessa hluti eins og at-
vinnurckendur gera. Andi sam-
komulagsins er allur á annan veg,
þannig að uppsagnir fólksins hlýtur
að verða algert undantekningar-
atriði,“ sagði Karl Steinar Guðna-
son, varaformaöur Verkamanna-
sambandsins.
„Ef menn hefðu ætlað að segja
upp starfsfólki vegna verkfalls sjó-
manna, hlytú að hafa verið hægt
að gera það með tilsk ildum fyrir-
varaí'
Karl Steinar Guðnason telur sem
sagt að hér sé um algert siðleysi að
ræða og að hér verði dómstólar að
koma til og skera úr í svo alvarlegu
máli. Verði gripið til slíks er eins víst
að það geti tekið nokkurn tíma og
Karl Steinar
er því óhætt að fullyrða að málið
hefur tekið alvarlegri stefnu en
nokkurn óraði fyrir í upphafi.
„Brjótum múrinríV________
„Góð stemmning“
— segir Jón Baldvin. Fundaherferð Al-
þýðuflokksins á Austurlandi gengur vel.
„Það hafa verið rífandi fjörugar
umræður og góð stemmning. Það
virðist því mælast vel fyrir að við sé-
um þetta snemma á ferðinniþ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson formað-
ur Alþýðuflokksins í samtalli við
Alþýðublaðið í gær. Jón Baldvin
var þá staddur á Egilsstöðum á
fundaferð með Guðmundi Einars-
syni og öðrum alþýðuflokksmönn-
um á Austurlandi. Fundaherferð-
ina nefna þeir „Brjótum múrinn“.
Jón Baldvin sagði að aðsókn á
fundina hefði verið mjög góð og
þeir að sama skapi vel heppnaðir,
„t.d. á Vopnafirði þar sem við vor-
um með 40 manna fund. — Þar er
kominn upp áhugasamur hópur
eindreginna stuðningsmanna sem
telst nýmæli hér um slóðir,“ sagði
Jón Baldvin.
í gær höfðu fundir verið haldnir
á Egilsstöðum, Vopnafirði, Reyðar-
firði, Eskifirði og Seyðisfirði og í
gærkvöldi var fundur á Fáskrúðs-
firði. I kvöld verða fundir á Djúpa-
vogi og Höfn í Hornafirði. Um 30
til 60 manns hafa mætt á hvern
fund.
Um næstu helgi verður kjör-
dæmisráðstefna Alþýðuflokksins á
Austurlandi þar sem endanlega
verður gengið frá röðun listans fyrir
Alþingiskosningar. Guðmundur
Einarsson hefur komið sér upp að-
stöðu á Egilsstöðum svo og starfs-
maður A-listans á Austurlandi.
Halldór Biörnsson hjá Dagsbrún:
„Málið í sjálfheldu“
— hafnarvinnan aðaláhyggjuefnið
„Málin standa engan veginn í
augnablikinu, ef svo má segja. Það
var haldinn fundur i fyrradag með
Dagsbrúnarmönnum og Vinnuveit-
endasambandinu sem stóð frá kl.
13.00—17.00. Annar fundur var
ekki ákveðinn, en gert ráð fyrir að
menn hittust fljótlega aftur. Þetta
eru viss vandamál núna sem menn
standa frammi fyrir sem tengjast
meðal annars hafnarvinnunni, —
en það er hins vegar mjög við-
kvæmt mál einmitt á þessu augna-
bliki,“ sagði Halldór Björnsson,
varaformaður Dagsbrúnar, í sam-
tali við blaðið í gær.
„Því miður þá held ég að segja
megi að málið eins og það er statt
núna sé í hálfgerðri sjálfheldu.
Einnig er málið frekar erfitt innan
dyra hjá okkur sjálfum, — alla vega
vegna hafnarmannanna. En það
„í sambandi við okkar kjarabar-
áttu er það að segja að það verður
fundur 12. janúar þar sem við mun-
um koma okkur saman um okkar
kröfur, en fyrst verðum við trúlega
búnir að tala saman á fimmtudag-
inn kemur. En þetta fer allt í gegn-
um samninga við Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar, en þar crum við
aðilar að,“ sagði Kjartan Þórólfs-
son, sem er einn af fjórum í við-
ræðunefnd Strætisvagna Reykja-
víkur gagnvart Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar.
Mikið álag
„Tónninn í mönnum hefur verið
svolítið þungur. Það er nokkuð
mikið álag um þessar mundir og
það er vitað að t.d. sumir bílstjór-
arnir hjá okkur eru ekki ánægðir.
Þeim finnst þeir vera á lágu kaupi
og lítið við þá talað o.s.frv. En það
er sem sagt núna alveg á næstunni
sem farið verður að ræða þessi mál
við Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar.
Gætum hagsmuna okkar
manna
Á okkar vinnustað eru kosnir
fjórir fulltrúar fyrir þessa deild sem
stendur þannig á því að það hefur
verið mikil breyting við höfnina og
menn telja að þeir hafi ekki fengið
þá hlutdeild í henni sem sanngjarnt
væri. En þetta er auðvitað alltaf
matsatriði.
Já, því miður þá sýnist mér að
þetta geti orðið erfitt mál að leysa.
Ég er hins vegar ekki að segja að
ekki sé hægt að leysa það, en það er
augljóst að þetta getur orðið við-
kvæmt.
Vinnuveitendur eru nýbúnir að
gera ákveðinn samning við ASÍ, og
þeir eru ekkert tilbúnir til að ganga
út úr þeim farvegi átakalaust, þann-
ig að við erum í dálítið mikilli sjálf-
heldu og þeir eflaust líka. Þetta get-
ur sem sagt orðið bæði viðkvæmt
og erfitt mál“ sagði Halldór
Björnsson, varaforntaður Dags-
brúnar.
er 9. deild starfsmannafélagsins og
þessir fjórir eru Hannes Skaptason,
Geir Kristinsson, Ögmundur
Stephensen og ég. Við erum fulltrú-
ar hjá S.V.R. og við reynum að gæta
hagsmuna þeirra eins og við getum,
— að sjálfsögðu. Nú, við berum
okkar skyldur og þeir líka, þannig
að þetta verður allt að vera í sam-
ræmi við hvað annað.
Skæruhernaður í
áminningarskyni
Strákarnir á vögnunum beittu
þarna svolitlum skæruhernaði um
Halldór Björnsson, varaformaður •
Dagsbrúnar.
daginn. Þeir vildu láta minna á sig,'
en við vorum ekki þar í hópi þannig
lagað séð, það er að segja við þessir
fjórir sem erum í fyrirsvari fyrir
Strætisvagna Reykjavíkur gagnvart
Reykjavíkurborg," sagði Kjartan
Þórólfsson hjá S.V.R.
Barátta Alþýðublaðsins
ber augljósan árangur!
í gær kl. 19.00 var lckin fyrsta skófluslungan að nýjum Veslur-
bæjarskóla á mólum Framnesvegar og Hringbrautar. Og í dag mið-
vikudag kl. 17.00, verður tekin fyrsta skóflustungan að húsi fyrir
aldraða og jafnframt heilsugæslustöð að Vesturgötu 7, — sem liggur
á mótum Vesturgötu og Garðastrætis.
Eins og menn muna ef til vill, þá hamaðist Alþýðublaðið dag eftir
dag við að benda á svívirðinguna sem látin var viðgangast í Vestur-
borginni, og er vel að sá sviti sýnist nú vera að skila sér í einhverju!
Kjartan Þórólfsson hjá S.V.R.
„Viðræður að
fara í gang“
— tónninn í mönnum hefur verið þungur
Ástandið í heilbrigðismálum á íslandi:
Theodór Jónsson, formaður Lands. fatlaðra:
Framkvæmdasj óðurinn
rýrnar ár frá ári
Hátún 12 hefur verið
20 ár í byggingu og
fyrirsjáanleg mörg ár
eftir enn!
Skerðing frá upphafi
„Framkvæmdasjóðurinn hefur
auðvitað rýrnað. Hann er ekki
nemahelmingurafþvísem hann
hefði átt að vera, ef við miðum við
það að hann hefði ekki verið skert-
ur alltaf jafnt og þétt frá upphafi.
Þeir hjá Þroskahjálp hafa gert á
þessum hlutum mjög nákvæma út-
tekt og þar sést vel að þetta hefur
sífellt verið að minnka og dragast
saman hlutfallslega, — því miðurþ
sagði Theodór Jónsson, formaður
Landsambands fatlaðra í samtali
við Alþýðublaðið. )
Alltaf sami barningurinn
„Það sem við erum að berjast við
er því miður alltaf það sama,
þ.e.a.s. að reyna að klára þetta hús
okkar að Hátúni 12. Og það verður
að segjast eins og er að það hefur
gengið frekar illa og ástæðan fyrir
því er ekkert annað en fjármagns-
skortur. Fjárframlög til byggingar-
innar hafa komið frá fram-
kvæmdasjóði og hann var 80 mill-
jónir í fyrra, en umsóknin hljóðaði
upp á 200 milljónir. Þannig að það
má segja að það sé mikið skorið
niður, varlega orðað.
Stanslaus rýrnun
Og það er okkar skoðun og allra
þeirra sem til þekkja, að raungildi
þá hafi þessir fjármunir rýrnað
mjög í gegnum árin.
Hitt er hins vegar rétt að miðað
við það sem það var í fyrra þá
hækkar það nokkuð í ár, eða úr 80
í 130 milljónir króna í ár. Húsbygg-
ingin hefur nú þegar tekið 20 ár og
fyrirsjáanlegt að enn líði allmörg ár
þar til byggingunni er lokiðý sagði
Theodór Jónsson, formaður
Landssambands fatlaðra í samtali
við blaðið.