Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 19. febrúar 1987 alþýðu- ■ n FT.rr. Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Danielsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot Alprcnt hf., Ármúla 38 Prentun: Blaðaprcnt hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 .RITSTJÓRNARGREIN. Þess vegna veljum við Alþýðuflokkinn jjEg er mjög hrifinn af þeim ferskleika, sem mér finnst einkenna Alþýðuflokkinn ( dag. Og ég sé Al- þýðuflokkinn sem eina raunhæfa valkostinn sem sterkt afl gegn Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki." ÞettasegirÓttarGuðmundsson, læknir, (Al- þýðublaðinu I dag, þegar hann svarar spurningunni: „Hvers vegna styður þú Alþýðuflokkinn?" Og hann bætir því við, að hann treysti Alþýöuflokknum betur en öðrum flokkum til að vinna að slnum helstu áhugamálum, sem eru á sviði heilsugæslu og fé- lagsmála. Alþýöublaöiö I dag er helgað framboðslista Al- þýðuflokksins I Reykjavlk, sem nefndur hefur verið sigurlistinn. Þessi listi hefur vakiö mikla athygli, enda skipar hann framúrskarandi fólk á flestum sviðum þjóðmálanna, og er hlutur unga fólksins mjög áberandi. í blaðinu eru viötöl við karla og kon- ur, sem nú hafa ákveðið að koma til liðs við Alþýðu- flokkinn, en hafa ekki áður lýst opinberlega stuðn- ingi við hann. M eðal þessa fólks er Atli Heimir Sveinsson, tón- skáld, sem segir stutt og laggott: „Ég er fylgjandi mannúðlegri umbótastefnu. Þess vegna styó ég Al- þýðuflokkinn. Þetta er nú ekki flóknara en það.“ — Skúli Johnsen, borgarlæknir, segir: „Fyrst og fremst finnst mér málefnaleg staða Alþýðuflokksins mjög góð. Flokkurinn hefur komið fram með mikið af góð- um þingmálum á undanförnum árum, sem sýnir, að það erverulegur vaxtarbroddurog góð endurnýjun ( flokknum." Skúli segir ennfremur, að flokkurinn hafi verið opn- aður mjög mikið, og það hafi haft mjöcj jákvæð áhrif á ýmsa starfshætti innan flokksins. I raun og veru hafi átt sér stað endurnýjun á algildum hugmynd- um, sem áttu þátt í þvi, aö gerajafnaðarmannaflokka að stærstu stjórnmálaflokkum á Norðurlöndum. Gunnar Dal, rithöfundur, kveðst styðja Alþýðu- flokkinn vegna þess að hann hafi alltaf stutt mann- úðarstefnu, og jafnaðarmannaflokkar hafi verið bestu talsmenn hennar ( heiminum. Það sé fyllilega kominn tími til, að sama saga gerist á íslandi og á hinum Norðurlöndunum, þ.e. að jafnaðarmenn eign- ist sterkan flokk. Hann segir, að það yrði farsælast fyrir íslendinga, ef sterkur „húmanlskur" flokkur jafnaðarmanna réði ferðinni. Skúli Steinsson, varöstjóri, kveóst styðja Alþýðu- flokkinn vegna þess að hann trúi því, að jafnaðar- stefnan stuðli að réttlæti manna á meðal. Alþýðu- flokkurinn sé i sókn og þvl sé raunhæft að gera sér vonir um réttlátara og betra þjóðfélag. — Rögnvald- ur Sigurjónsson, pianóleikari, kemur víöa við ( svari sinu. Hann kveðst styðja blandaö hagkerfi. Menn eigi að vera frjálsir að því að gera það sem þeir vilja, en allir eigi að hafa jafnan rétt, bæði til almanna- trygginga og annarra hluta. Bjarni Sigtryggsson, aðstoðar-hótelstjóri, nefnir einnig ýmsar ástæður fyrir fylgi sínu við Alþýðu- flokkinn. Hann nefnir athafnafrelsi, vestræna sam- vinnu, nýjar og raunhæfar leiðir sem Alþýðuflokkur- inn boðartil að viðhalda byggð í landinu, og segir að lokum: „Þess vegnaerég (hópi þeirraþúsunda, sem koma nú til liðs við Alþýðuflokkinn." ÞEGAR FÆRÐ OGVEÐURGERA AKSTUR ERFIÐAN TERŒL 4WD Á reynslubrautum Toyota hefur Tercel 4WD farið í gegnum erfið próf. Hann heldursínu striki í frosti, hita, regni og þurrki og hefur sannað ágæti sitt við erfiðustu aðstæður. En prófraun tímans er samt mikih vægust. Ánægðir ökumenn um allan heim hafa reynt Tercel 4WD á því prófi og farið með sigur af hólmi. TOYOTA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.