Alþýðublaðið - 19.02.1987, Side 11

Alþýðublaðið - 19.02.1987, Side 11
Fimmtudagur 19. febrúar 1987 11 HVERS VEGNA styðja þau Alþýðuflokkinn? Bjarni Sigtryggsson aðstoðarhótelstjóri í mínum augum snýst pólitík um það að velja sér samfélag að búa í og að velja sér og sínum framtíð. Stjórnmálaflokkar eru verkfæri til að ná settu marki í þessum efnum. Ég vel Alþýðuflokkinn vegna þess að eg tel að athafnafrelsi og aukinn markaðsbúskapur geti þok- að velferðarþjóðfélaginu á leið. Ég lít ekki á óheftan markaðsbúskap sem takmark í sjálfu sér eins og boðað er í Sjálfstæðisflokknum. Ég vel Alþýðuflokkinn vegna þess að ég tel þjóðinni hafa farnast vel í vestrænni samvinnu. Ég vil ekki fórna örygginu eins og boðað er í Alþýðubandalaginu. Ég vel Alþýðuflokkinn vegna þess að hann boðar nýjar og raun- hæfar leiðir til að viðhalda byggð í landinu. Ég vil ekki að neytendur verði þvingaðir til þess að borga brúsann, eins og boðað er í Fram- sóknarflokknum. Ég vel Alþýðuflokkinn vegna þess að ég tel konur eiga erindi inn á Alþingi en ekki í afmarkaða bása, eins og boðað er af Kvennalistan- um. Þess vegna er ég í hópi þeirra þús- unda sem koma nú til liðs við Al- þýðuflokkinn. Sigþór Sigurðsson, for- maður Nemendafélags Fjölbrautaskóians í Breiðholti. Hvers vegna styð ég Alþýðu- flokkinn? Fyrir því eru ótalmargar ástæður. Fyrst nefnir maður að sjálfsögðu það að ég sem ungur maður stend í dag frammi fyrir því að þurfa að fara að skipuleggja framtíð mína. Ég lýk stúdentsprófi í vor og fer væntanlega í áframhaldandi nám hér heima eða erlendis. Síðan taka við hvert af öðru verkefni sem hver maður þarf að kljást við. Eignast húsaskjól, fjölskyldu og örugga framtíð. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að ég styð Alþýðuflokkinn í komandi kosningum. Ég tel mig þurfa að hafa áhrif á framtíð mína og þess vegna vel ég flokk sem berst fyrir málefnum ungs fólks. Húsnæðismál, bætt menntakerfi og örugg framtíð. Ungt fólk sem fær að kjósa núna í fyrsta skipti verður að gera upp hug sinn. Hvaða stjórnmálaflokk- ur er það sem höfðar til ungs fólks? Ég var ekki í vafa eftir að hafa hugs- að málið vandlega. Alþýðuflokkur- inn höfðar til mín. Þar er baráttu- glatt fólk sem vill berjast fyrir bættu þjóðfélagi. Fólk sem vill berjast fyrir þig og mig. Ég held að allir ættu að hugsa sig vandlega um áður en þeir nota atkvæðisrétt sinn. Ég held líka að allir ættu að geta sameinast undir kjörorðunum „Frelsi, jafnrétti, bræðralag”. Kristín Björg Jónsdóttir, kennari. Stefna Alþýðuflokksins höfðar einfaldlega best til minna lífsskoð- ana. Hún er framfarasinnuð hag- sældarstefna, sem leitast við að tryggja réttláta tekjuskiptingu. Það má til sanns vegar færa að flestir ís- lenskir stjórnmálaflokkar hafa sömu grundvallar sjónarmið á stefnuskrá sinni, þ.e. lýðræði, eins- taklingsfrelsi og jafnrétti. Ég held hins vegar að Alþýðuflokknum hafi tekist öðrum flokkum betur að móta heildstæða og öfgalausa stefnu, og fylgja henni fast eftir á opinberum vettvangi. Ég held að grundvöllur jafnaðar- stefnunnar höfði til mjög margra og reyndar Iangt úr fyrir raðir AI- þýðuflokksins. Alþýðuflokknum hefur hins vegar tekist misjafnlega vel að höfða til þessa fólks í kosn- ingum. En nú virðist vera sterkur meðbyr. Þrjár nýjar kosninga- skrifstofur Alþýðuflokksfélag Kjalarness hefur opnað kosningaskrifstofu að Esjugrund 40. Síminn á kosninga- skrifstofunni er 666004. Opið er á skrifstofunni kl. 10-11 fyrir hádegi. Alþýðuflokksfélag Kópavogs - hefur opnað kosningaskrifstofu í Hamraborg 14 A. 2. hæð. Síminn er 44700 og er opið frá kl. 13—15. Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarð- ar hefur opnað skrifstofu í Dverg, Brekkugötu 2 og er síminn þar 50944. Skrifstofan er opin frá kl. 17—19.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.