Alþýðublaðið - 19.02.1987, Page 12

Alþýðublaðið - 19.02.1987, Page 12
12 Fimmtudagur 19. febrúar 1987 Bryndís skrifar um leikiist Og svo stingur síldin sér í hlutverkum farandsöltunar- stúlkna og Lilli, Þorkell Björns- son, sem sýndi ótrúlega látbragðs- fimi. Ég er illa svikin, ef þetta leikrit þeirra systranna á ekki eftir að nýtast áhugamannaleikhópum um allt land í framtíðinni. Um- gjörðin, efnið, persónurnar, allt hittir þetta í mark, vekur söknuð og þrá eftir því, sem aldrei kemur aftur, en lifir bara í minningunni — og í þessu snjalla leikverki. ' m LAUGAVEG 55 SIMI 11066 SÉRVERSLUN MEÐ BORÐBÚNAÐ Í 29 ÁR Leikfélag Húsavíkur sýnir: Síldin kemur og síldin fer Höfundar Kristín og Iðunn Steinsdætur Leikstjóri: Rúnar Guðbrands- son í seinustu viku átti ég mjög skemmtilega kvöldstund með Húsvíkingum. Húsvíkingar eru fyrir löngu orðnir að goðsögn meðal leikhúsáhugafólks um Iand allt fyrir einlægan stuðning við leiklistina. Árum saman hafa þeir haldið uppi fjörugu leiklistarlífi, og beri leikhópa að garði, fylla þeir samkomuhúsið og hvetja leikendur til dáða með góðum undirtektum. Og það er greinilegt, að Hús- víkingar standa með sínu fólki, jafnvel þótt þeir flytji milli lands- hluta. Það var þéttskipað í Bæjar- bíói í Hafnarfirði, og hafi leik- endur verið eitthvað hikandi til að byrja með í framandi umhverfi, í ókunnu byggðarlagi, þá breyttist það fljótlega, því að undirtektir voru slíkar sem á heimavelli væri. „Síldin kemur og síldin fer“. Þetta bráðsmellna leikrit þeirra systranna Kristínar og Iðunnar Steinsdætra vekur upp margar minningar frá þeim dýrðardög- um, þegar síldin ærði upp í mönn- um peningaþorsta og ævintýra- fíkn. Á þeim árum geri ég ráð fyr- ir, að hin steingelda þjóðfélags- mynd okkar hafi gliðnað í sundur, og að fólk af öllum stéttum hafi náð saman í sameiginlegri leit að lífshamingju. Að vísu á ég engar ljúfar minn- ingar frá þessum árum. Fór einu að komast til Ameríku og verða ríkur, gellurnar að sunnan, sem alltaf eru þar sem fjörið er. Til í allt. Saklausa sveitastúlkan, kom- in í plássið til þess að ná sér í afla- kóng. Nú og svo eru það skips- hafnir, alls kyns gaurar, heima- menn í landi og útgerðarmaður- inn, sem heldur i alla spotta. Og það gerist svo sem ýmislegt á síldinni. Það er ekki bara verið að bogra yfir tunnum. Brælan er til margra hluta nytsamleg. Sveitastúlkan fær ósk sína upp- fyllta, og það fær örlagabyttan líka, þó með óvæntum hætti væri, og svona mætti lengi telja. Saga af síldarsumri hefur kannski burði til að vera væmin og rómantísk. Saga þeirra systra er full af rómantík, en þær sneiða algerlega hjá allri væmni. Samtölin eru hnyttin og hnit- miðuð, atburðarrásin hröð, jafn- vel spennandi og sagan í heild skýr og klár. Engir lausir endar. Leikstjórnin er í höndum Rún- ars Guðbrandssonar. Honum hef- ur tekizt þokkalega, en ekki meir. Mér fannst vanta meiri hreyfingu á sviðinu. Hann nýtti sér ekki tón- listina. Það hefði óneitanlega lífg- að upp á sýninguna að láta fólkið dansa við lögin, en ekki bara standa eins og þvörur. Að öðru leyti var staðsetning leikenda þægileg fyrir augað, jafnvel þótt margt væri um manninn á svið- inu. Það var mjög góð hugmynd að nýta talsímakonuna á milli atr- iða, hvort sem það var hugmynd Ieikstjóra eða höfunda. Aldrei dauður punktur. Áhugaleikarar hafa ekki sömu burði og atvinnufólk. Enda ætlast enginn til þess. En oft vantar kannski bara herzlumuninn, meiri tæknivinnu, raddbeitingu, hreyfingar, örlitla tilsögn. Það eru mjög góð leikaraefni í hópi Hús- víkinga. Sumir hafa jafnvel náð atvinnubragnum með áralangri þjálfun. Nefni ég þar til Sigurð Hallmarsson, sem sýndi agaðan leik. Auk hans eru mér minnis- stæðir Ingimundur Jónsson í hlutverki Ofeigs bónda, Málfríð- ur talsímastúlka, hreint óborgan- leg kjaftakerling, Sigríður Harð- ardóttir og Geirþrúður Pálsdóttir Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. GÓÐAFERÐ! sinni á síld norður til Raufarhafn- ar. Það var stöðug bræla. Ég lá uppi í rúmi og ýmist las eða prjón- aði. Jú, ég komst á eitt ball, og þá skynjaði ég þessa kynferðislegu spennu milli kynja. Allt var for- boðið en í senn leyfilegt. Á síld- inni héldu mönnum engin bönd, hvorki hjónabönd né önnur. Ég vildi bara óska þess, að Hús- víkingar hefðu haft lengri viðdvöl á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, svo fleirum hefði gefizt kostur á að rifja upp gamla daga. Höfundarnir Kristín og Iðunn eru frábær- lega hagmæltar, svo sem löngu kunnugt er orðið, en auk þess hafa þær gott auga fyrir leiksvið- inu. „Síldin kemur og síldin fer“ er saga af plássi fyrir norðan. Fólkið þyrpist að alls staðar af landinu, þessar alkunnu týpur eins og eilífðarbyttan, sem ætlar WILKENS BSF Starf námsbrautarstjóra við námsbraut í hjúkrunarfræði á Akureyri Ráðgert er, að haustið 1987 hefjist kennsla í hjúkr- unarfræði á háskólastigi á Akureyri í tengslum við námsbraut í hjúkrunarfræði í Háskóla Islands. Starf námsbrautarstjóra við námsbraut í hjúkrun- arfræði á Akureyri er hér með auglýst laust til um- sóknar. Námsbrautarstjóra er ætlað að undirbúa kennslunaog annast framkvæmdastjórn á náms- brautinni undir umsjón forstöðumanns háskóla- kennslu á Akureyri. Jafnframt máætlaað starfinu fylgi nokkur kennsluskylda. Gert er ráð fyrir að námsbrautarstjóri verði ráðinn til takmarkaðs tíma, þóekki skemuren til eins árs. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Sig- urjónsson, skólameistari Menntaskólans á Akur- eyri. Umsóknirmeð ítarlegum upplýsingum um náms- feril og störf skulu hafa borist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. mars n.k. Menntamálaráðuneytið, 16. febrúar 1987. Starf námsbrautarstjóra við námsbraut í iðnrekstrarfræði á Akureyri Ráðgert er, að haustið 1987 hefjist kennsla í iðn- rekstrarfræði á háskólastigi í tengslum við Verk- menntaskólann á Akureyri. Starf námsbrautarstjóra við námsbraut í iðn- rekstrarfræði á Akureyri er hér með auglýst laust til umsóknar. Námsbrautarstjóra er ætlað að und- irbúa kennsluna og annast framkvæmdastjórn á námsbrautinni undir umsjón forstöðumanns há- skólakennslu á Akureyri. Jafnframt má ætla að starfinu fylgi nokkur kennsluskylda. Gert er ráð fyrir að námsbrautarstjóri verði ráðinn til takmarkaðs tíma, þóekki skemuren til eins árs. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bernharð Haraldsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. Umsóknir með (tarlegum upplýsingum um náms- feril og störf skulu hafa borist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. mars n.k. Menntamálaráðuneytiö, 16. febrúar 1987.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.