Alþýðublaðið - 21.03.1987, Side 1
alþýöu-
Laugardagur 21. mars 1987 56. tbl. 68. árg.
Suðurland:
Tölvusetjarar óánœgðir:
Verður verkfall hjá
Blaðaprentsblöðunum?
— „Teljum okkur ekki geta hækkað launin yið þetta fólk eingöngu“, seg-
ir Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Tímans
„Erum í
baráttuhug“,
segir Elín Alma
Það stendur mikið til hjá Krötum
á Suðurlandi þessa dagana. í dag,
laugardag, verður kosningaskrif-
stofan á Selfossi formlega opnuð.
Elírt Alma Arthúrsdóttir
Ljósm.: ÖB
Við væntum þess að allir sem vilja
leggja flokknum lið í komandi
kosningum láti sjá sig. Skrifstofan
er að Austurvegi 24, og opin á laug-
ardögum kl. 14—19 og á virkum
dögum kl. 17—22. Sunnudaginn
22. mars ætla svo 4 Alþýðuflokks-
konur — sem allar eiga það sameig-
inlegt að eiga möguleika á þingsæti
— að funda á Hótel Selfoss kl. 20.
30.
Þetta er 1. fundurinn í fundar-
herferð kvennanna um allt land, og
væntum við þess að Sunnlendingar
mæti vel, enda kjörið tækifæri til
að kynnast sjónarmiðum þeirra Jó-
hönnu Sigurðardóttur, Láru V. Júl-
íusdóttur, Rannveigu Guðmunds-
dóttur og Elínar Olmu Arthurs-
dóttur, sem skipar 2. sæti listans á
Suðurlandi.
„Við erum í baráttuhug, höfum
allt að vinna og gefum ekkert eftir“,
sagði Elín Alma í stuttu spjalli við
Alþýðublaðið.
Á fjölmennum fundi stjórnar og
trúnaðarmanna Starfsmannafélags
ríkisstofnana sem haldinn var 19.
mars, voru samþykktar ályktanir
um kjarasamninga sem nú standa
yfir og um frumvarp til laga um
starfsemi lífeyrissjóða lagt fram af
lífeyrisnefnd ASI, FFSI, VSÍ og
VMS.
í fyrri ályktuninni segir m.a.:
Fundur trúnaðarmanna Starfs-
mannafélags ríkisstofnana,
haldinn 19. mars 1987 mótmæl-
ir harðlega framkomnum drög-
um að frumvarpi til laga um
starfsemi lífeyrissjóða. í frum-
varpinu, sem samið er af
bræðrabandinu ASÍ—VSÍ er
lagt til að lífeyrisréttur opin-
berra starfsmanna verði stór-
lega skertur og um leið gerð að
engu áratuga fórn samtakanna
og barátta fyrir bættum kjörum
lífeyrisþega.
Frumvarp ASÍ—VSÍ gerir ráð
fyrir verulegri skerðingu á líf-
eyrisréttindum opinberra starfs-
manna, sem þeir hafa áunnið
sér með áratuga réttindakaup-
um og með samningum við rík-
isvaldið um tryggingu lífeyris-
réttinda sinna.
Fundur trúnaðarmanna skorar
„Það er komin fram krafa um
innanhússsamninga hjá okkur á
Timanum, frá því fólki sem vinnur
á setningartölvunum, um að samn-
ingarnir verði endurskoðaðir. Sum-
ir vilja þó meina að þessir samning-
ar séu enn í gildi, en við litum svo á
eftir síðustu samninga, að búið
væri að taka inn allar aukagreiðslur
sem voru í laununum. Þetta var
rætt mjög ítarlega í síðustu samn-
ingum. Því er hins vegar ekki að
leyna að í prentiðnaðinum hafa
menn verið að skoða sín mál og
staðan virðist viðkvæm í dag, en Fé-
lag prentara hefur ekki enn gert
neinar kröfur og við bíðum eftir
þeim“, sagði Kristinn Finnbogason,
á stjórn BSRB að beita sér af al-
efli til að hindra framgang
frumvarps ASÍ—VSÍ um starf-
semi lífeyrissjóða og um leið af-
þakka afskipti þessara samtaka
af málum opinberra starfs-
manna.
Fundurinn ítrekar fyrri sam-
þykktir SFR um lífeyrissjóð fyr-
ir alla landsmenn er tryggi eftir-
launafólki rúman efnahag síð-
ustu æviárin.
Forsenda hamingjuríks ævi-
kvölds er m.a. góð heilsa,
áhyggjuleysi og sæmilega trygg
afkoma. Þessum markmiðum
hafa opinberir starfsmenn
stefnt að umfram aðra launþega
með forsjálni og stofnun Iífeyr-
issjóða sinna, áratugum á und-
an öðrum launþegum.
Síðari ályktunin sem samþykkt
var, fordæmir tregðu félagsmála-
ráðherra að hefja alvöru viðræður
um nýjan kjarasamning fyrir fé-
lagsmenn SFR og lögð áhersla á að
fjármálaráðherra standi við það
samkomulag og fyrirheit sem gerir
ráð fyrir innbyrðis samræmingu á
launakjörum starfsmanna við hlið-
stæð störf og koma á auknu jafn-
vægi kjara starfshópa og starfs-
stétta.
framkvæmdastjóri Timans í gær.
„Allt tölvufólkið er í Félagi bóka-
gerðarmanna. Þetta fólk sendi okk-
ur bréf, þar sem einn trúnaðarmað-
ur skrifaði undir frá hverju Blaða-
prentsblaðanna, en enginn frá fé-
laginu sjálfu. En við teljum nokkuð
hart að það sé verið að sækj'a að
blöðunum hér í Blaðaprenti en ekki
hjá öðrum blöðum, þrátt fyrir það
að þau borgi sömu laun og við.
í umræddu bréfi er sagt að við
höfum brotið samninga. En það er
auðvitað ekki um það að ræða.
Samningar sem ekki eru til, þeir eru
ekki brotnir. Þeir samningar sem
við erum með eru frá NT tímabilinu
og síðan þá höfum við ekki gert
neina samninga. En við viljum
gjarna ræða við fólkið.
Við hjá Tímanum teljum okkur
ekki geta hækkað laun þessa fólks
eingöngu. Við erum með blaða-
menn og annað starfsfólk, sem eru
með bundin laun eins og aðrir. Ef
við færum að hækka laun við
tölvufólk eingöngu, um 10, 20 eða
30%, þá mundi það kalla á hækkun
yfir alla línuna. Það gengi aldrei“,
sagði Kristinn Finnbogason.
Hallgrímur Pétur Helgason,
trúnaðarmaður í prentsmiðju DV:
„Það er einhver órói alls staðar
núna hjá blöðunum og víðar. Hér
hjá DV setja blaðamennirnir inn
textann sjálfir að mestu leyti, en
ekki öllu þó. Það er ýmislegt aðsent
efni, kjallaragreinar og slíkt sem
verður að setja hér í prentsmiðjunni
og stúlkurnar sem það vinna eru
núna fjórar, en voru tíu eða tólf áð-
ur.
Stúlkurnar í setningunni eru þó
lægri í launum heldur en strákarnir
í umbrotinu. Samt sem áður þegar
samningar voru gerðir í janúar sl.
þá hækkuðu laun stúlknanna
nokkuð, vegna þess að það gleymd-
ist að skera niður hjá þeim laun á
sama hátt og hjá öðrum. Þetta
gerðist á þann hátt að yfirborgunin
lækkaði, en menn héldu sinni
krónutölu þó nókkurn veginn. Að
vísu hækkuðu þeir sem vinna í um-
brotinu vegna þess að þeir vinna
fasta yfirvinnu.
Stelpurnar unnu einnig fasta yf-
irvinnu aðra hverja viku, en þegar
þessu var breytt í samningunum þá
fengu þær óvart inn i dæmið óunna
yfirvinnu í annarri hverri viku. Þær
voru síðan lækkaðar um það og þá
varð sprenging. En þær sættu sig
við það vegna þess að þrátt fyrir
þetta þá voru þær orðnar hærra
launaðar en útlærðir menn hérna á
staðnum. Og útkoman hjá þeim í
launum með þessari vaktavinnu
aðra hverja viku, er eitthvað um
13.500 kr. á viku, þ.e.a.s. fyrir vakta-
vinnuvikuna", sagði Hallgrímur
Pétur Helgason.
Kristinn Finnbogason, framkvœmdastjóri Tímans, óttast að erfitt muni
reynast að hœkka laun aðeins við hluta þeirra sem við Blaðaprentsblöðin
starfa.
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Mótmælir frumvarpsdrögum
um starfsemi lífeyrissjóða
Albertsmálið:
Dæmið gekk ekki upp
— Formaðurinn situr eftir í súpunni
„Þorsteinn Pálsson er búinn að
mála sig út í horn,“ sagði Ásgeir
Hannes Eiríksson, hulduhers-
maður, einn dyggasti stuðnings-
maður Alberts Guðmundssonar, í
samtali við Alþýðublaöið í gær.
Ásgeir sagði að miklar hringingar
væri í gangi meðal stuðnings-
manna, Helena á leiðinni heim og
hulduhcrinn vígbúinn.
Viðmælendur Alþýðublaðsins
úr stuðningsliði Alberts voru i
gær á einu máli um að uppákoma
formanns Sjálfstæðisflokksins
væri liður i áætlunum hans um að
koma Albert á kné. Vildu sumir
þeirra halda því fram að enginn
nema Þorsteinn Pálsson og hans
menn hefðu getað lekið í Helgar-
póstinn. Tímasetningar hefðu því
fyrirfram verið ákveðnar. „Heift-
in er geigvænleg, og þegar pólitík-
in er komin á þetta stig skera þeir
allt sem fyrir er. ”
Ásgeir Hannes sagði að fram-
koma Þorsteins kæmi sér ekki á
óvart. „Við sem höfum verið inn-
vígð í þessi átök höfum alitaf bú-
ist við þessu. Ég var strax í próf-
kjörinu búinn að spá um fram-
vinduna. — Þetta er líklega næst
síðasta skrefið. Síðasta þrepið er
að láta Framsókn beita ákæru-
valdinu. Það verður gert ef allt
annað þrýtur. Menn skulu þó
muna að það hindrar ekki fram-
boð, því þetta er spurning um
óflekkað mannorð og ákæra er
ekki sama og dómur. “
Einn viðmælenda blaðsins
sagði að spilin hefðu gersamlega
snúist við í höndum Þorsteins
Pálssonar.Formaður Sjálfstæðis-
flokksins hefur viðurkennt að
hann vissi strax fyrir landsfund
sjálfstæðismanna, að Albert
„Þorsteinn hefur málað sig út i
horn“, segir Asgeir Hannes Ei-
ríksson hulduhersmaður.
hefði meðtekið greiðslur fráHaf-
skip meðan hann var fjármála-
ráðherra og að greiðslurnar hefðu
ekki verið taldar fram til skatts.
Menn benda á að Þorsteinn hafi
ekki verið tilbúinn að mæta „fé-
laga sínum“ Albert Guðmunds-
syni og fara tafarlaust fram á af-
sögn hans heldur hafi hann beðið
færist fram á síðustu stundu til að
koma í veg fyrir sérframboð
hulduhersins. Vilja því sumir
draga þá ályktun að eftir að upp-
lýsingar höfðu lekið í fjölmiðla
hafi formaðurinn talið tíma til
kominn að halda blaðamanna-
fund á ameríska vísu. — Albert
erlendis og hægt að segja hvað
sem var.
í samtölum við Alþýðublaðið í
gær bentu stuðningsmenn Al-
berts á að, áður hafi formaðurinn
farið á bak við félaga sína.
Skemmst væri að minnast drama-
tískrar uppákomu hans í þinginu
í vetur í sjómannaverkfallinu,
þegar hann þóttist frelsa deilu-
aðila undan lagaánauð. Bentu
þeir á að Þorsteinn hefði, þá eins
og nú, gert sjálfum sér mestan
óleik. Menn hafi séð að vafasamt
gæti verið að treysta manninum.
Heimildarmenn blaðsins telja
að Þorsteinn hafi vanmetið
stjórnmálamanninn Albert
Guðmundsson, sem segir einfald-
lega að formaður Sjálfstæðis-
flokksins hafi aldrei farið þess á
leit við sig að hann segði af sér.
Þingflokkurinn kannast heldur
ekki'við það, og Þorsteinn sjálfur
hefir neitað að svara fullyrðingum
þar að lútandi. Þorsteinn og Al-
bert eru náttúrlcga einir til frá-
sagnar. — „Ég veit ekkert um
tveggja manna tal“ segir Friðrik
varaformaður.
Að margra mati er málið því
einfalt: Dæmið gekk ekki upp.
Albertsmálið þvi orðið að Þor-
steinsmáli. Nú bíði flokkurinn
ekki bara áiitshnekki vegna Al-
berts, heldur líka vegna flokks-
formannsins.