Alþýðublaðið - 21.03.1987, Side 2
2
Laugardagur 21. mars 1987
■RIT3TJ0RN4BGREIN'
Léttmeti Ijósmiðlanna
Nýju útvarpslögin hafa opnaö gamlar og
feysknar hurðir ríkiseinokunar Ijósmiðlanna.
Nýjar útvarpsstöðvar með Bylgjuna í farar-
broddináðufljótlega fótfestu og Stöð 2 virðist
hafa fest sig f sessi sem önnur sjónvarpsrás
landsmanna. Ljósvakabyltingin var rökrétt
framhald af þeim breytingum sem átt hafa sér
stað í fjölmiðlum á íslandi. Á sama hátt og
óeðlilegt á að teljast í lýðræðisríki að blöð séu
einungis gefin út af stjórnmálaflokkum og ríki,
er óeölilegt að Ijósmiðlarnir séu einokaðir af
ríki með flokkapólitísku eftirlitskerfi sem kall-
ast útvarpsráð.
En stöldrum aðeins við frelsið. Tilkoma nýrra
útvarpsstöðva og nýrrar sjónvarpsstöðvar hef-
ur að öllum líkum átt að auka fjölbreytni hlust-
enda og áhorfenda, vlkka sjóndeildarhring
þeirra og fræða hug þeirra og bæta. Hefur það
tekist? Hinar frjálsu stöðvar eru nefnilega ekki
svofrjálsarþegaráallterlitið. Þæreru Iviðjum
markaðshyggju og samkeppni um auglýsinga-
tekjur. Þar meö rekstur þeirra háður vinsæld-
um borgaranna sem auglýsendur meta hverju
sinni hvort sé hagstæður markaður. Ailt er
þettaeðlilegt í frjálsu markaðskerfi. En þarsit-
ur einnig hnífurinn í kúnni. Þegar dagskrár-
gerðarmenn og deildarstjórar nýrra Ijósmiðla
hafaþurft aðleggjahausinn íbleyti hvaðervin-
sælt efni og þar með söluvænlegt, hafa þeiryf-
irleitt dottið niður á sömu leiðina: léttmetið.
Utkoman hefur því miður orðið sú að efni
hinna nýju Ijósmiðla er skemmtiefni. Stöð 2
hefur byggt að mestu á bandarísku léttmeti en
þó gert lofsverðartilraunirtil að framleiða inn-
lenda þætti. Bylgjan hefur líkt og Rás 2 verið á
léttu nótunum en hlaut strax vinsældir fyrir
frískari efnistök. Nú hefur Rás 2 hins vegar
komið með svar við þessu og boöar fjölbreytt
efni allan sólarhringinn en leiðarahöfundur
hefur ekki getað séð stórvægilegar breytingar
frá léttu línunni. Léttmeti I Ijósvökum er likt og
sælgæti. Það er gott f hófi en afleitur aðalrétt-
ur. Þess vegna er ákveðinn leiði farinn að gera
vart við sig hjá hlustendum Bylgjunnar og Rás-
ar 2. Menn standa sig jafnvel að þvl að skrúfa
yfir á gömlu gufuna til að heyra sfðasta lagið
fyrirfréttireðagamalt og gott sinfónluvæl, svo
ekki sé talað um að hlýða á talað mál sem höfð-
ar a.m.k. til meðalgreindar hlustenda.
Sé litið á þróun Ijósvakanna, eru efnisvið-
brögð nýju, frjálsu stöðvanna ofureðlileg.
Stöðnun ríkisfjölmiðlanna og kæruleysileg
stjórnun samfara áhugaleysi og fyrirlitningu í
garð neytenda hafði alið af sér þunga og stirða
dagskrá sem ekki samrýmdist lífsvenjum nú-
tímafólks. Vandamál Ríkisútvarpsins voru fyrst
og fremst stjórnunarleg. Vond stjórnun á rætur
sínarað rekjatil slæms fjárhags stofnunarinn-
ar og misvitra ráðninga f stjórnunarstöður. Og
I báðum tilfellum er um pólitfk að ræða. Hin
léttu viðbrögð frjálsu stöðvanna voru því
hressandi nýmæli en nú verðurað siglaádjúp-
mið ef hinar nýju stöðvareigaað metta vitræna
hlustun og horfun. Rfkisútvarpið hefur einnig
fengið samkeppni sem örvar blóðstreymið um
stofnuninaen getur jafnframt rækt skyldursín-
ar áfram sem stöð fræðslu, menningar- og
skemmtunar.
Menning erafstætt hugtak. Þorsteinn Gylfa-
son dósent sagði nýverið á málþingi Alþýðu-
bandalagsins um Listirog menningu, að bara
asnar bæðu um menninguna; venjulegt fólk
vissi af menningunni allt í kringum sig og inn-
byrti hana af bestu lyst. Þetta er vissulega rétt
en f þessum orðum felst einnig hroki. Menn-
ingin erekkert einkamál innvígðra. Á sama hátt
og kennaverðurbarni að lesaog skrifa, verður
að kenna landsmönnum, sem ekki hafa haft að-
göngu að listum og menningu frá fæðingu, að
njóta þeirra fjársjóða sem góð list og menning
býr yfir. Og þær kennslustundir eiga ekki síst
að fara fram á öldum Ijósvakans.
Stórkostleg réttarbót
Einstæðir foreldrar geta nú leitað eftir rétti til framlaga vegna menntunar eða starfs-
þjálfunar barna sinna þótt meðlagskylds aðila njóti ekki við eða ekki reynist unnt að
innheimta greiðslur.
Um 2500 börn nutu ekki þessa réttar áður en ný lög voru samþykkt.
Myndlista- og
handíöaskóli íslands
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið
1987—1988.
Umsóknareyðublöö ásamt upplýsingum um skólann
fást hjá skrifstofu skólans Skipholti 1, 105 Reykjavík,
sími 19821 frá og með miðvikudeginum 25. mars n.k.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 09.00—12.00 og
13.00—15.00.
Umsóknarfrestur um skólavist rennur út 30. aprfl n.k.
Inntökupróf verður haldið dagana 1.—4. júní.
Árfðandi erað væntanlegirumsækjendurafli sérnauð-
synlegra gagna hið allra fyrsta.
Skólastjóri.
Áskrift hlutafjár í
Útvegsbanka íslands hf.
í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1987 gengst rfkis-
stjórnin fyrir stofnun hlutafélagsbanka um Útvegs-
banka Islands. Samkvæmt tillögu að samþykktum fyrir
hlutafélagsbankann, sem lagt er til að heiti Útvegs-
banki Islands hf„ er lágmarkshlutur kr. 10.000,- en að
öðru leyti skiptist hlutafé f hluti að nafnverði kr.
100.000. — , kr. 1.000.000.-, kr. 10.000.000,- oa
kr. 100.000.000.-.
Frá og með mánudeginum 23. mars n.k. mun áskrifta-
skrá ásamt tillögu að samþykktum fyrir Útvegsbanka
Islands hf. liggja frammi f viðskiptaráðuneytinu, Arnar-
hvoli, Reykjavík, f Utvegsbanka íslands, aðalbanka, 5.
hæð við Austurstræti f Reykjavík og f útibúum Útvegs-
banka Islands.
Frestur til aö skrifa sig fyrir hlutafé f Útvegsbanka ís-
lands h.f. stendur til kl. 16:00 föstudaginn 27. mars n.k.
Hlutafé ber að greiða eigi sfðar en hinn 30. aprfl n.k.
Stofnfundur Útvegsbanka íslands hf. veröur haldinn 7.
aprfl 1987 að Hótel Sögu, sal A og hefst fundurinn kl.
15.00. Skrá yfir áskrifendur hlutafjár mun liggja frammi
til sýnis fyrir áskrifendur í viðskiptaráðuneytinu í eina
viku fyrir stofnfund.
Viðskiptaráðuneytiö, 20. mars 1987.
Skömmu fyrir þinglok sam-
þykkti Alþingi frumvarp frá alls-
herjarnefnd sem felur í sér stórkost-
lega réttarbót fyrir rúmlega 2500
börn í landinu og tæplega 1700 ein-
stæða foreldra. Yfirleitt fer hljótt
um slík mál í þinginu, jafnvel þó um
sé að ræða réttlætismál sem skiptir
sköpum fyrir afkomumöguleika
fólks sem hefur verið mismunað í
kerfinu.
/þrjú ár höfðu Jóhanna Sigurðar-
dóttir og Guðrún Helgadóttir bar-
ist fyrir málinu á Alþingi.
Lögin fela í sér að tryggð eru
framlög vegna menntunar og
starfsþjálfunar barns ef meðlags-
skyldur aðili er ekki lengur á lífi og
ef af öðrum orsökum reynist ókleift
að innheimta framlög svo og vegna
barna örorku — og ellilífeyrisþega
sem barnalífeyris hafa notið.
Frumvarp allsherjarnefndar sem
nú er orðið að lögum var efnislega
samhljóða frumvarpi sem Jóhanna
Sigurðardóttir og Guðrún Helga-
dóttir höfðu barist fyrir í þinginu í
þrjú ár. Frumvarp Jóhönnu og
Guðrúnar fól í sér breytingu á
barnalögum frá ’81, en frumvarp
allsherjarnefndar felur í sér breyt-
ingar á lögum um almannatrygg-
ingar.
Jóhanna og Guðrún töldu að
þegar barnalögin voru lögfest hafi
ekki verið hugað að því að tryggja
sambærilegan rétt eða stuðning við
einstæða foreldra eða börn þeirra ef
meðlagsskyldur aðili er ekki lengur
á lífi eða ef af öðrum ástæðum
reyndist ókleift að innheimta
greiðslu. í greinargerð þeirra kom
fram að samkvæmt upplýsingum
frá Tryggingarstofnun var á árinu
’85 um að ræða 1073 einstæða for-
eldra með 1564 börn á framfæri
sínu, sem ekki gátu leitað til með-
lagsskylds aðila með framlag vegna
menntunar barna sinna eftir 18 ára
aldur. Barnalögin veita hins vegar
þeim, sem til meðlagsskylds aðila
geta leitað, slíkan rétt.
Samkvæmt þessu voru því um
12-13% einstæðra foreldra sem ekki
gátu leitað réttar til framlaga vegna
menntunar eða starfsþjálfunar
barna sinna samkvæmt ákvæðum
barnalaganna.
IIAUSAR STÖDUR HJÁ
____I REYKJAVÍKURBORG
Fóstra óskast á skóladagheimili Breiöagerðis-
skóla í 50% eða 75% stöðu.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 84558.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð, á sér-
stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Tilboð I
Óskast 1 eftirtaldar bifreiöar og tæki sem veröa til sýnis
þriöjudaginn 24. mars 1987 kl. 13-16 f porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7, Reykjavík og víóar.
Tegund Arg.
1 stk. Saab 900 GLE fólksb. bensln 1980
1 ” ” 90 »* 1980
1 ’’ Toyota Tercel station 4x4 i> 1983
1 ” Subaru 1800 station 4x4 II 1983
1 ” Toyota Tercel fólksb. H 1983
1 ” Toyota Cressida DL fólksb. ii 1982
1 ” Ford Taunus 1600 GL fólksb. n 1982
1 ” Toyota Cressida fólksb. ii 1980
1 ” Chevrolet Nova ii 1977
1 ’’ Lada Station 1500 i* 1983
1 ” Man vörub. m/krana 4x4 diesel 1975
1 ” Toyota Hi Lux Double Cab 4x4
skemmd eftir veltu 1986
1 ” Toyota Hi Lux 4x4 bensln 1981
1 ” Ford Bronco pick up m/húsi »i 1979
1 ” Chevrolet pick up m/húsi n 1979
1 ” Volvo Lapplander 4x4 ii 1980
1 ” Lada Sport 4x4 »i 1984
1 ’’ Lada Sport 4x4 ii 1981
1 ” Chevi Van sendib. 1977
1 ’’ Kawasaki Drifter 440 snjósleði 1980
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Véladeild Sætúni 6, Rvík:
1 stk. Vegþjappa, vibration valtari, 8 tn
Bomag BW-160 AD 1, I góöu lagi bensin 1982
1 stk. Caterpillar D-333 dieselmótor uppg. 115 h.ö. SAE
1 ’’ Volvo TD-70 ” 210 n ll
1 ” Perkins V8.510 ” 170 ll 1»
1 ” Leyland AU-600 ” 163 „
Tilboöin veröa opnuö sama dag kl. 16.30 aö viöstöddum bjóð-
endum. Réttur er áskilinn aö hafna tilboðum sem ekki teljast
viðunandi.
■H INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
H Borgartuni 7. simi 25844 i
i