Alþýðublaðið - 10.04.1987, Blaðsíða 6
Föstudagur 10. apríl 1987
6
Herjað með eitri á valmúabændur
Fyrir tveimur árum hvarf einn ill-
ræmdasti eiturlyfjasali í Suðaustur-
Asíu, Khun Sa, 53 ára að aldri.
Hann féll í bardaga við landamæra-
verði, að sögn thailensku blaðanna.
En nú hefur hann skotið upp
kollinum aftur, í fjöllunum á landa-
mærum Burma og Thailands. Þar
hefur hann haldið blaðamanna-
fund og gortað hástöfum af met-
uppskeru á valmúaökrunum, sem
gefur í ár 900 tonn af ópíum, 200
tonnum meira en vanalega. Þessu
verður svo smyglað út úr „Gullna
þríhyrningnum“, landamærasvæði
á mörkum landanna Burma, Laos
og Thailands og nægir til að sjá
milljónum eiturlyfjaneytenda í
Asíu, Evrópu og Bandaríkjanna
fyrir nægum birgðum af efninu.
Þetta þótti formanni stjórnar-
flokksins í Burma, Ne Win, of langt
gengið. í febrúar var hafin herferð á
hendur valmúaframleiðendum á
svæðinu. Hermenn fóru þar um
með báli og brandi og eyðilögðu
uppskeruna og thailenski herinn
hefur gert svipaðar aðgerðir sín
megin landamæranna.
Eltingaleikurinn við Khun Sa
hefur staðið í meira en 30 ár. Hann
hefur barist ásamt skæruliðahópi
sinum, „ShanUnited Army“ (SUA)
fyrir sjálfstæðu Shan-ríki á landa-
mærunum og fjármagnar starfsem-
ina með hluta af andvirði ópíums-
ins sem Shan-bændur rækta. Efnið
er flutt til Thailands með múldýra-
lestum og þar taka við embættis-
menn sem hafa orðið spillingunni
að bráð og sjá um að koma því
áfram.
Víetnam-vopn
En nú hefur eiturlyfjastríðið í
Gullna þríhyrningnum tekið á sig
nýja mynd. Stjórn Burma í
Rangoon, sem annars verst öllum
utanaðkomandi áhrifum af öllum
mætti og hefur komið á sjálfsþurft-
arbúskapsósíalisma í landinu, hef-
ur nú útvegað bandarísk vopn sem
að gagni mega koma í baráttunni
við valmúabændur. Það er plöntu-
eitrið 2,4 D sem sprautað er úr flug-
vélum Bandaríkjahers yfir akra val-
múabændanna.
Plöntueitrið 2,4D (phenoxed-
dikesyre) er eitt af uppistöðuefnun-
um í „Agent Orange“ efninu, sem
Bandaríkjamenn notuðu í striðinu í
Víetnam til að aflaufga frumskóg-
inn svo að fjandmennirnir ættu erf-
iðara með að dyljast þar. Enn þann
dag í dag þjást Víetnamar undan
langtímaáhrifum eitursins. Jörðin
er ennþá eitruð og það fæðast van-
sköpuð börn.
Bandarísk yfirvöld eiturlyfja-
mála telja að nýja eitrið sé mjög
áhrifamikið tæki í baráttunni við
valmúabændur. Þegar hafa verið
eyðilagðir 9750 ha valmúaakra með
eiturúðun úr lofti. Eitrið vinnur á
blaðplöntum með stór blöð, þar á
meðal sojabaunum, kartöflum og
fleiri matjurtum að sjálfsögðu og
Gullni þríhyrningurínn á landa-
mœrum Laos, Burma og Thai-
lands. W
Leggið tennurnar í banka
Þær framfarir sem hafa orðið í
líffæraflutningum og hafa gert
mönnum kleift að skipta um hjarta,
lifur og nýru í fólki, eru nú komnar
á það stig að einnig er hægt að
flytja tennur milli manna og græða
þær í. Þetta hefur verið gert á Tann-
læknaháskólanum í Kaupmanna-
höfn.
Jafnframt hefur verið komið upp
banka með lifandi tönnum, sem eru
geymdar við mínus 200 gráður.
Þangað geta menn leitað eftir að-
stoð ef menn verða fyrir því óhappi
að missa tönn, í umferðarslysum til
dæmis.
Á ársfundi danska tannlækna-
sambandsins í Bella Center í Kaup-
mannahöfn í síðustu viku, greindi
Ole Schwartz sérfræðingur í tann-
ígræðslu frá nýrri tækni, sem lengi
hefur verið notuð á landbúnaðar-
háskólanum og kemur að góðu
gagni við að geyma tennurnar
óskemmdar í langan tíma. Þar hafa
lifandi dýrafóstur verið fryst með
góðum árangri, til notkunar síðar
meir og sama aðferð hentar vel til
geymslu á tönnum með lifandi rót-
himnu.
Nú eru nokkur ár síðan tann-
læknar gátu flutt tennur sjúklinga
sinna um set, en hér er um að ræða
ígræðslu á tönnum annarra manna.
Við þessháttar ígræðslu blasa við
sömu vandamál og við flutning
annarra líffæra; semsé það að
vefjasamsetning er mismunandi
eftir einstaklingum og ígræðslan
getur misheppnast þess vegna. Á
rannsóknastofu Ríkisspítalans hef-
ur verið unnið að rannsóknum og
tilraunum til að geta parað saman
gefanda og þiggjanda tannarinnar
þannig að aðgerðin geti heppnast
sem best.
Áður fyrr var öllum lausum
tönnum hent, en nú er það liðin tíð.
Þær eru lagðar inn í bankann og
græddar í aftur við hentugleika.
tækum bændum Iandamærahérað-
anna. Thailendingar hafa hafnað
eiturnotkuninni á sömu forsendum
og telja að aðgerðirnar beinist fyrst
og fremst að uppreisnaráformum
Shan-hópsins, en ekki eiturlyfja-
framleiðslunni.
í Burma standa stjórnvöld í sí-
felldum erjum við uppreisnarhópa,
og Ne Win flokksleiðtoga sem hef-
ur verið við völd í 25 ár hefur ekki
heppnast að hafa stjórn á ýmsum
minnihlutahópum, sem starfa neð-
anjarðar eða í útlegð í fjöllunum.
í vetur hertók hann bæinn
Panghsai sem liggur við landamæri
Kína og hefur lengi verið haldið af
öflugum skæruliðahópi með að-
stoð Kínverja. Sú sögufræga
Burmaleið, sem var Kínverjum lífs-
nauðsynleg i stríðinu við Japani,
liggur einmitt í gegnum Panghsai.
En nú er fyrnt yfir þá atburði og
bærinn hefur enga sérstaka hernað-
arlega þýðingu, að öðru leyti en því
að íbúarnir þar hafa verið ótryggir
þegnar og undir allmiklum kín-
verskum áhrifum, eins og best kom
í ljós þegar herfangið var skoðað.
íbúarnir flýðu flestir, en skildu eftir
sig ýmislegt sem hneykslaði mjög
hina ströngu og réttrúuðu Búdda-
trúar-herforingja, s.s. skemmti- og
sýningarsali með nuddstofum og
nægu úrvali klámmynda á vídeó-
spólum.
Ópíumkóngurinn Khun Sa ásamt Shan-skœruliðum.
það vita þeir mætavel sem að að-
gerðunum standa.
Þessar aðgerðir hafa vakið at-
hygli og einstöku mótmæli hafa
heyrst, m.a. frá Edith Mirnate,
bandarískri konu sem er ákafur
baráttumaður fyrir mannréttind-
um. Hún hefur reynt að fá aðgerð-
irnar stöðvaðar og lagt fram myndir
sem sýna eyðilagða matvælaupp-
skeru og veika bændur, sem hún
segir að séu fórnarlömb eiturhern-
aðarins. Hún heldur því fram að
eitrið sé jafn skaðlegt og það sem
var notað í Víetnamstríðinu.
Að vísu segja bandarískir efna-
fræðingar að eitrið 2,4D sé aðeins í
meðallagi eitur og sé ekki hættu-
legt, ef það sé notað í hæfilegum
skömmtum, en ný bandarísk rann-
sókn á vegum krabbameinsstofn-
unarinnar í Kansas hefur sýnt að
bandarískir bændur sem eru í snert-
ingu við þetta eitur, fá átta sinnum
oftar krabbamein en aðrir.
Bandaríski Burma-sérfræðing-
urinn Josef Silverstein, hefur látið í
ljós ótta um að þessar aðgerðir
komi að litlu gagni í baráttunni við
eiturlyfjamafíuna, en bitni illa á fá-