Alþýðublaðið - 10.04.1987, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. apríl 1987
7
Sænskur grafíklistamaður sýnir:
Tage Asen á Krákunni
Sænskur myndlistamaður, Tage
Asen, sýnir grafíkmyndir í Krák-
unni, Laugavegi 22, frá 4. apríl til
31. april n.k.
Tage Asen er þekktur myndlista-
maður í heimalandi sínu og hefur
haldið sýningar víða, s.s. á öllum
Norðurlöndunum (nema á Islandi
og í Færeyjum), Þýskalandi, Frakk-
landi og Italíu. Einnig hefur Tage
unnið fyrir sænska sjónvarpið.
Tage Asen er fæddur 1944 í Sví-
þjóð og býr nú í Uppsölum. Verk
hans eru einkum symbólísk og real-
ísk. Tage vinnur með olíu og önnur
efni.
Aðalfundur Islenska
járnblendifyrirtœkisins hf:
Tap síðasta árs
nam 212 milljómim
Aðalfundur íslenska járnblendi-
félagsins hf. fyrir árið 1986 var
haldinn að Grundartanga 31. mars
s.l. Fundinn sátu fulltrúar hluthaf-
anna þriggja, iðnaðarráðherra f.h.
íslenska ríkisins, Elkem a/s í Oslo
og Sumitomo Corporation í Tokyo.
Auk þess sátu fundinn stjórn, vara-
menn í stjórn, framkvæmdastjórn
og fulltrúar starfsmanna fyrirtæk-
isins.
í ársskýrslu stjórnar, sem lögð
var fram á fundinum kom fram, að
reksturinn árið 1986 einkenndist af
mikilli og tæknilega vel heppnaðri
framleiðslu, mikilli sölu, lágu út-
flutningsverði og lélegri afkomu.
Tap á rekstrinum varð 212 milljónir
króna skv. hinni íslensku gerð
reikninganna, en 26 milljónir
nor.skra króna skv. þeim reikningi,
sem gerður er upp eftir norskri upp-
gjörsvenju.
Afkoman varð þessi, þegar 337
milljónir íslenskra króna og 54
milljónir norskra króna hafa verið
gjaldfærðar vegna afskrifta og fjár-
magnskostnaðar í reikningana
hvorn um sig.
Þessi niðurstaða verður af rekstr-
inum þótt framleiðsla hafi orðið
um 10% meiri en hún hefur áður
orðið og sala viðlika að magni því
sem áður hefur verið mest. Allt
stafar þetta af mjög óhagstæðri
verðþróun, því að öll rekstrargjöld
fyrirtækisins að frátöldum afskrift-
um og gengistöpum voru lægri en
fjárhagsáætlun miðaði að.
Eftir þetta tapár er eiginfjárhlut-
fall fyrirtækisins 18% skv. norska
reikningnum, en rúm 40% sam-
kvæmt hinum íslenska.
Á fundinum og stjórnarfundin-
um, sem á undan fór, var farið var-
lega í spádómum um þróun mark-
aðsmála. Þar kom fram, að raun-
verð kísiljárns hafi ekki í annan
tíma verið lakara, en greina megi
fyrstu teikn þess, að betri tíð kunni
að vera framundan.
Kosningaskrifstofur
Alþýðuflokksins um landið allt
REYKJAVÍK:
Aðalskrifstofa Alþýðuflokksins, Alþýðuhúsinu,
Hverfisgötu 8—10 og Kosningamiðstöð Alþýðu-
flokksins, Siðumúla 12 eru opnar daglega frá kl.
9.00—19.00. Þar er veitt öll sú aðstoð sem unnt er I
sambandi við komandi alþingiskosningar, svo sem
upplýsingar (þ.m.t. kjörskrárupplýsingar), gögn og
leiðbeiningar.
Slmar flokksskrifstofunnar eru 29244 og 29282.
Slmi kosningamiöstöðvarinnar er 689370.
REYKJANES:
Hafnarfjörður
Skrifstofan er aö Strandgötu 32. Opið daglega frá kl.
17—19 og 20.30—21.30 og laugardaga kl. 14—17.
Sími 50499, 51506, 51606. Kosningastjóri er Elfn
Harðardóttir.
Kópavogur
Skrifstofan er aö Hamraborg 14. Opið daglega frá kl.
13— 19 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 13—17.
Sfmi 44700. Kosningastjóri erGuðrún Emilsdóttir.
Garðabær
Skrifstofan er að Goðatúni 2 3. hæð. Simi 43333.
Kosningastjóri er Erna Aradóttir.
Kjalarnes
Skrifstofan er að Esjugrund 40. Opið daglega frá kl.
10—11. Simi 666004. Kosningastjóri er Hulda
Ragnarsdóttir.
Mosfellssveit
Skrifstofan er f Þverholti 2. hæð. Opið daglega kl.
17.30—19 og 14—18 um helgar.
Keflavík
Skrifstofan er að Hafnargötu 31. Opið daglega frá kl.
14— 19. Sfmi 92-3030. Kosningastjóri er Haukur
Guðmundsson.
VESTURLAND:
Akranes
Skrifstofan er að Vesturgötu 53 Röst. Símar 93-1716,
93-3384 og 93-3385. Opið daglegafrákl. 10-22. Kosn-
ingastjóri er Sigurbjörn Guðmundsson.
Borgarnes
Skrifstofan er að Svarfhóli v/Gunnlaugsgötu. Opið
daglega frá kl. 20.30—21.30 og 14—17 um helgar.
Slmi 93-7412. Kosningastjóri er Sæunn Jónsdóttir.
VESTFIRÐIR:
ísafjörður
Skrifstofan er í Alþýöuhúsinu Hrannargötu 2 Opið er
frá kl. 16.30—22. Simi 94-4479 og 4469. Kosninga-
stjóri er Árni S. Geirsson.
NORÐURLAND—EYSTRA:
Akureyri
Skrifstofan er að Strandgötu 9. Opið er frá kl. 9—17
daglega. Slmi 96-24399. Kosningastjóri er Jón Ingi
Cesarsson.
Húsavík
Skrifstofan er ( Félagsheimilinu Húsavik. Simi
96-42077. Opið er f rá kl. 20.30—22.30 daglega og frá
kl. 16—18 um helgar.
AUSTURLAND:
Egilsstaðir
Skrifstofan er að Bláskógum 9. Opið er daglega frá
kl. 9—24. Slmi 97-1807. Kosningstjóri er Karl Th.
Birgisson.
Fáskrúðsfjörður.
Skrifstofan er að Skrúð. Opiö er daglega frá kl.
20—22. Simi 97-5445. Kosningastjóri er Rúnar
Stefánsson.
Neskaupstaður
Skrifstofan er að Hafnarbraut 22. Opið á kvöldin og
um helgar. Simi 97-7801.
Seyðisfjörður
Skrifstofan er að Hafnargötu 26 kjallara. Opiö á
kvöldin og um helgar.
Eskifjörður
Skrifstofan er opin öll kvöld og um helgar eftir kl.
14.00. Síminn er 97-6198.
SUÐURLAND:
Selfoss
Skrifstofan er að Eyrarvegi 24. Opið daglega frá kl.
17—19 og 20—22. Slmi 99-1055. Kosningastjóri er
Sigurjón Bergsson.
Vestmannaeyjar
Skrifstofan er að Heiðarvegi 6. Opið daglega frá kl.
17—19. Slmi 98-1422. Kosningastjóri er Þorbjörn
Pálsson.
NORÐURLAND—VESTRA:
Siglufjörður
Skrifstofan er i Borgarkaffi. Opið er frá kl. 16—19
daglega. Slmi 96-71402.
Sauðárkrókur
Skrifstofan er i Sælkerahúsinu. Opið daglega frá kl.
17—19 og 20—22 og um helgar frá kl. 14—19.
HAPPDRÆTTI
Alþýóuflokksfólk.
Munið heimsenda happdrættismiða. Miðar fást á
öllum kosningaskrifstofum flokksins.
KOSNINGASJÓÐUR
Alþýðuflokksfólk
Munið kosningasjóði Alþýðuflokksins.
Oft er þörf en nú er nauðsyn.
SJÁLFBOÐALIÐAR
Við hvetjum allt Alþýðuflokksfólk til að hafa sam-
band við kosningaskrifstofurnar og láta skrá sig til
vinnu, bæði dagana fram að kjördegi og á kjördag.
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING
Utankjörstaðaskrifstofa Alþýöuflokksins i Reykja-
vlk er i Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10. Skrifstofan
er opin frá kl. 9.30—22.00. Sfmar 15020—29282—
623244—623245.
KJÖRSKRÁR
Upplýsingar eru veittar um kjörskrár á öllum
kosningaskrifstofum Alþýðuflokksins.
Athygli kjósendasem ekki verðaheimaákjördag 25.
aprll n.k. er vakin á þvf að utankjörstaðakosning er
hafin og fer fram hjá hreppstjórum og sýslu-
mönnum utan Reykjavikur. í Reykjavík fer kosning
fram í Ármúlaskóla daglega frá kl. 10.00—12.00,
14.00—18.00 og 20.00—22.00 og um helgar frá kl.
14.00—18.00. Lokað er á föstudaginn langa og
páskadag.