Tíminn - 11.07.1967, Blaðsíða 14
14
TRÚLOFUNARHRINGAR
afgreiddir
samdægors.
Sendum um aHt land. —
H A L L D Ó R
SkólavörSustíg 2.
ÚTLENDINGAR
Framihald af bls. 16.
með þeim ungar íslenzkar stúlkur,
og ekki í sem beztu ástandi allar.
í kjallaranum og á efri hæðinni og
Eigendur hins hluta hússins búa
að því er einn ibúi í húsinu tjáði
blaðinu í dag þá hefur lögreglan
sex sinnum þurft að koma á stað
inn til að fólk í húsinu og ná-
grenninu gæti haft svefnfrið.
Eru íbúarnir að vonum orðnir
mjög þreyttir á þessu ástandi sem
von er, en sá sem leigir veit um
ástandið, en heldur samt áfram
að leigja útlendingunum, af
hvaða ástæðum svo sem það nú er.
Rannsóknarlögreglan og Barna-
verndamefnd hafa mál þetta nú
til meðferðar, en Barnaverndar-
nefnd er í málinu vegna hinna
slæmu áhrifa, sem útlendingamir
hafa á börnin. Getur fólkið í hús-
inu sagt ýmsar sögur af fram-
ferð: leigjendanna og m.a. þá að
jafnmikið sé gengið inn og út um
glugga og dyr, því stigar í húsa-
garðinum hafa verið teknir trausta
taki til þess að komast inn í
heihergin.
Ekki virðist neitt sérstakt þjóð
emi vera þama ráðandi, en mest
ber á Spánverjum, Hollendingum
og Englendingum.
Heyrzt hefur að húsaleigan sé
í hærra lagi, en það skal ekki
staðfest að sinni.
KONGÓ
Framhalda af bls. 1.
um að ræða 9 Belgíumenn,
einn Frakka, einn Vestur-Þjóð
verja og tvo Kongóbúa. Nöfn
þeirra hafa ekki verið gefin
upp-
Mobutu forseti sagði, að
hann hefði sjálfur gefið hern
um fyrirskipun þess efnis, að
hertaka ekki alla Kisangani,
þar sem hann hafi óttiast um
líf gíslanna, en meðal þeirra
munu einnig vera margir pró
fessorar við háskólann í Kis
angani.
Erlendir málaliðar lentu í
tveimur flugvélum á flug-
vellinum í Kisangiani s. 1- mið
vikudag, og réðust inn í borg
ina. Skömmu síðar gerðu
stjómarhermennirnir gagná-
hlaup, og málaliðarnir hörf-
uðu aítur til flugvallarins, þar
sem þeir bjuggu um sig.
Mobutu sagði einnig, að tvö
Afrí'kuríki hefðu tilkynnt, að
þau myndu senda tvær sveitir
orrustuflugvéla til Kongó, og
að flugvélanna væri að vænta
innan nokkurra klúkkustunda.
Síðar var opinberlega tilkynnt
í Addis Abeba, að Eþíópia
myndi veita stjórninni í Kins
hiasa aðstoð til þess að slá nið
ur uppreisn hvítu málaliðanna.
Talið er, að hitt Afríkuríkið
sé Ghana.
Þrjár bandarískar flutninga
flugvélar af C-130 gerð lentu
í Kinshasa í dag til aðstoðar
stjóminni. Getur hver flug-
vél flutt 64 fallhlífarhermenn
eða 90 landgönguliða.
Mike Mansfield, leiðtogi
demókrata í Öldungardeild
Bandarikjaþings, fordæmdi í
dag þessa aðstoð Bandaríkja
stjómar við Kongóstjórn.
Sagði hann, að þetta.gæti orð
ið upphaf að enn meiri íhlutun
Bandaríkjanna i innanríkismál
Afríkurikja.
Samkvæmt FP frétt frá Jó
hannesarborg hafa tveir fyrr
verandi málaliðar, sem m. a.
hafa barizt í Kongó, sagt það
hlægilegt, að tengja uppreisn
ina í Kongó við Moi.se
Tshombe, fyrrum forsætisráð-
herra. Töldu þeir víst, að
franskur málialiði, Robert Den
ard ofursti, sem er á mála hjá
Mofoutu, hafi stjórnað upp-
reisninni. Töldu þeir þetta
hemaðarlega brjálæði, eins og
það var orðað, einkennandi fyr
ir Denard. Ef Tshombe hefði
staðið að baki uppreisnarinnar,
þá hefði árásin verið gerð á
höfuðfoorg landsins, Kinshasa.
NÍGERÍA
Framhaida af bl«. 1
— sem er lýst sem styrjöld
milli tveggja ríkja í Biafra —
er lokastig langra og harðra
átaka milli Ojukwus, leiðtoga
Austur-Nígeríu, sem nú heitir
Biafra, og Yakubu Gowons,
hershöfðingja, æðsrta manns
stjórnar samfoandsníkisins Níge
riu — en deila þeirra grund-
vallast einmitt á því, hvernig
skipulagi sambandsríkisins
skyldi hagað.
FLÓÐIN
irfamihalda af bls. 1.
sökum. Borgin Hiroshima og Hyo
go-ihéraðið _ Honshu-eyjunni urðu
verst úti. Á annað þúsund hús
eyðilögðust eða skemmdust, þar
af færðust 664 úr stað í flóðun-
um. Á þriðja hundrað brýr eyði
lögðust, járnforautarlest kast-
aðist af teinunum í flóðinu og
bílar fóru út aif vegum. Samgöngu
kerfið er allt í molum vegna flóð
anna, og rafkerfið einnig. Þús-
undir bóndabæja eru að meira
eða minna leyti undir vatni.
HESTAR
Framhald af bls. 16.
bar á ölvun á mótinu, og í
heild fór það fram með mdk-
illi prýði. Einnig vakti atbygli
hversiu mikið var af fallegum
og vel gengum hrossU'm á mót-
inu, og telja hestamenn, að ]>ar
sé að koma í Ijós árangur
hrossakynfoóta síðustu ára.
Uirslitin í einstökum greinum
á mótinu voru sem hér segir:
Gæðingakeppni, alfoliða góðhest
ar: 1. Blær frá Langfooltskoti,
eigandi Hermann Sigurðsson. 2.
Viðar Hjaltason frá Reykjavík,
eigandi Gunnar Tryggvason. 3.
Sörli frá Efra-Langlholti, Árn., eig-
andi Jóhann Einarsson.
Klárhesbar með tölti: 1. Stíg-
andi, eigandi Sig\'aldi Haraildsson,
Mosfellssveit. 2. Blakkur frá
Reykjavíik, eigandi Ragnheiður
Vilmundardóttir. 3. Ljúfur úr
Mýrdal, eigandi Anton Guðlaugs-
son.
Kynbótahross, hryssur með af-
kvæmuim: Perla, eigandi Jón
Bjarnason, Selfossi. Hryssur án af
kvæma, 6 vebra og eldri: Stjarna
frá Fjalli, eigandi Ingveldur Jóns
dóttir. Ilryssur án afkvæma, 4—5
vetra: Gloría frá Meðalfelli í
Kjós, eiigandi Gfeli Erlendsson.
Stóðhestar með afkvæmum: 1.
Skýfaxi frá Selfo.ssi, eigandi
lírossaræktarsamband Suður-
lands. 2. Ljúfur frá Blönduósi,
eigandi Kirkjubæjarbúið. 3. Silfur
toppur frá Reykjadal, eigandi Þor
geir Sveinsson.
Stóðhestar án aflkvæma, 6 vetra
TlMINN
og eldri: Stjamá frá Bólubjáleigu,
eigandi Sigurður Karlsson, 5
vetra: Hrafn frá Bfra-Langbolti,
eigandi Sveinn Kristjánsson. 4
vetra: Öðlingur frá Hofi, eigandi
Guðmundur Gislason. 2—3 vetra:
Stíigandi frá Selfiossi, eigandi Páll
Jónsson.
í kappreiðunum urðu úrslitin
'þessi: 250 m skeið: 1—2. Hrollur
Sigurðar Ólafssonar og Neisti Ein
ars Magniússonar 24.2 sek. 3. Móri
Ingólifs Guðnasonar 24.5 sek. 300
m stökik: 1. Faxi Magnúsar Magn-
ússonar 22.4 sek. 2. Iæiri Þorkels
Bjarnasonar 22.5 sek. 3. Glæsir
Matthildar Ingiibergsdóttur 22.5
sek. 800 m stökk: 1. Þytur Sveins
K Sveinssonar 66.0 sek. . Reyk-
ur Jólhönnu Kristjánsdóttur 68.1
sek. 3.—4. Glanni Böðvars Jóns-
sonar og Víkingur Magnúsar
Gunnarssonar 68.2 sek.
SKIP
tramhalda af bls. 1
ins þýðir „ísbjörn“. í gærkvöldi
um attaleytið var skipið enn fast
í ísnum og staðarákvörðunin var
þá ca. 65 gnáður norður og 38
gráður 30 mín. vestur.
Gloudmaster-flugvél Flugfélags-
ins TF-ISC fór í gær með ferða-
fólk til Kulusuk og á leiðinni heim
var farinn smákrókur til að svip-
ast um eftir skipinu. Var Jensen
með í þeirn ferð, en flugstjóri var
Viktar Aðalsteinsson. Fannst smá
læna fyrir skipið til að sigla
eftir i austur ca. 22 mílur.
Jensen sagði við fréttamann
Tímans að óvenjumikill ís væri nú
á þessum slóðum miðað við árs'-
tfma nokkur s.l. ár, og tefði þetta
siglingar til grænlenskra hafna.
Hann sagði að aðstaða til ís-
könnunar við Grænland hefði
versnað mjög þegar samningar
við Flugfélagið um ísflug hefðu
runnið út nú í sumar, en félagið
hefði reynt að hlaupa undir bagga
þegar það hefði vélar aflögu, og
eins væri ísinn kannaður eftir
því sem hægt væri, þegar vélar
félagsins væru á ferðinni til Græn
lands núna með ferðafólk. Jen
sen sagði að áhafnir Fiugfélags-
vélanna, sem annazt hefðu ísflug
ið á undanförnum árum, hefðu
leyst verk sitt mjög vel af hendi
og samvinna öll um ísflugið eins
og bezt yrði á kosið.
I ágúst sagði hann að þeir
fengju vél á leigu frá Bergen Air
Transport, og yrði það DC 4 vél
eins og Straumfaxi, en fyrir dyr-
um stendur að selja Straumaxa.
— Þessi vél, sem við fáum í ágúst
er vélin sem Eisenhower Banda
ríkjaforseti notaði þegar hann var
við völd, og er vélin mjög vel
útbúin öllum tækjum, — sagði
hann.
Núna höfum við aðeins litla
þyrlu og Cataiínaflugbát til is-
könnunar, — sagði Jensen, —
og það er allt of lítið, sérstaklega
þegar tillit er tekið til þess, að
ísinn er óvenju mikill núna, eða
þekur 9/10 hluta sjávarins úti
fyrir Angmasalik og þar í kring.
í dag var Straumfaxi fenginn
á leigu til ískönnunarflugs og
til að finna leiðir fyrir flutninga
skipið „Nanok S“ og var farið frá
Reykjavík um þrjú leytið.
ÞEIR ÞINGA
Ftamha rii- a; nh i
að koma til Kaíró til viðræðna
við þessa þjóðailt/ii! a Kr tal-
ið, að fundur þessi gcti haft
mikla þýðingu varðandi stefnu Ar
abaríkjanna í framtíðinni.
Þúsundir manna voru á flugvel!
inum, þegar Hussein kom til Kaí-
ró í morgun, Nasser forseti
tók á móti honum. Boumedienne
kom til Kaíró í gær.
Áður en Hussein fór fram Amm
an, höfluðborg Jórdaníu, hélt hann
ræðu í útvarp og hvatti til fund-
ar æðstu manna Arabarikjanna.
Sagði hann, að öll Araibariki urðu
að leggjast á eitt til þess að leysa
sameiginleg vandamál. Væri ein
ing Araba nauðsynlegri í dag en
nok.kru sinni fyrr.
Boumedienne ræddi í dag við
ambassadöra Sýrlands og íraks
í Kairó, og hefur þetta leitt til
orðróms um, að leiðtogar þess-
ara ríkja — þeir, Al-Atassi, for-
seti Sýrliands, og Abdel Rahman
Arif, forseti íraks, — kunni að
halda til Kaíró. Ekkert benti þó
til þess i d"' . þeir hetðu
slíka ferð í hyggju.
Talið er, að í viðræðum sín-
um við Nasser og Iíussein muni
Boumedienne leggja áherzlu á
nauðsyn nánara bandalags milli
vinstrisinnuðu Arabaríkjanna.
Hussein hefur nýverið heimsótt
leiðtoga íiNew York, Wasfoing-
ton, London, París og Róm og
ræU -við þá um ástandið í lönd-
unum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Mun hann væntanlega skýra hin-
um Araibaleiðtogunum frá þessum
viðræðum sinum.
I dag komu sovézk hersikip í
heimsókn til egypzku hafnairborg
anna Port Said og Alexandríu og
sagði yfirmaður flotadeildarinn
ar, Igor Nikolajevits, aðmíráll,
að flotadeildin væri reiðubúin til
samstarfs við egypzka herinn um
að hrinda sérhyerri árás.
MÝVATN
Framhald ai bls. 16.
Þá er verið að vinna að bygg-
ingu vatnsgeymis fyrir þetta
yngsta þorp landsins, sem nú rís
í Reykjahlíðarlandi og ekki hefur
verið gefið nafn ennþá, eftir því
sem blaðið veit bezt.
Við fraimkvæmdir i samibandi
við verksmiðjuna vinna núna um
hundrað manns, og eru þá með
taildir þeir, sem vinna við húsin
á vegum Iðju á Akureyri. Péitur
Pétursson forstjóri hefur aðsetur
nyrðra um þessar mundir, en kana
dískur verkfræðingur hefur um
sjón með uppsetningu tækja í
verksmiðjunni. Flutningaerfið-
leikar hafa verið nokkrir, þar sem
flytja hefur þurft stór og þung
stykki eftir lélegum vegum. Sagt
hefuir verið frá í fréttum, að 27
tonna þurrkari fór af dráttarvagni
í Reykjadal, en vel tókst til með
flutninig á tveim öðrum þurrkur-
um til verksmiðjunnar.
Mótorfoljóð frá dælupramm-
anum á Mývatni be'rst nú yfir
vatnið, þegar verið er að dæla
gúrnum í laijd, en áætlað er að
vinnsla í verksmiðjunni geti
hafizt í byrjun nóvember n.k.
STYRKIR
Framnald ai ois 2.
fimm ár, enda leggi hann árlega
fram fullnægjandi greinargerð
um námsárangur. Þeir einir koma
til greina við úthlutun, sem
luku stúdentsprófi nú í vor með
hárri fyrstu einkunn.
Umsóknum, ásamt staðfestu
afriti stúdentsprófsskírteinis og
meðmælum, skal komið til mennta
málaráðuneytisins, Stjórnarráðs-
húsinu við Lækjartorg, fyrir 15.
ágúst n.k., Umsóknareyðuhlöð.
fást í menntamálaráðiineytinu.
Menntamálaðráðuneytið.
7. júlí 1967
B.Th
■ '?OTTiR
Framhald ai bls. 12.
þessu sinni, einkum vegna þess.
að Erlendur og Baldur voru
ekki i essinu sínu og byggðu
lítið upp. Það er jroin!ii>»t ð
Fran mátti illa við því að missa
Mrein EMiðason úr franmuunni
Hún er ekki nærri því eins beiti
á efltir.
Magnús Péturssiori dæmdi lei.k-
inn og átti léttan dag.
ÞRIÐJTIDAGUR 11. júlí 1967.
IÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
og sjaldan eins vel. Það gleði-
legasta er, að yngri fLokk-
arnir virðast ætla að spjara
sig í ár. Til þessa höfum við
aðeins tapað einum leik í 511-
um yngri flokkunum. Sú stað-
reynd er eins og sólargeisli í
sortanum.
— Eiittfovað að lokum, Helgi.
— Ekki nema það, að við
munu'm bregðast karlmann
lega við hrverju sem skeður.
Akranes hefur ekki sagt sitt
síðasta orð á knattspyrnu-
sviðinu þrátt fyrir stund-
arerfiðleika.
— alf.
A V/IÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
hins vegar ljóst, að hvað sem
borgarstjóri hefur um þetta
sagt í ræðu í borgarstjóm, var
Reykvíkingum ekki birt það
meginatriði hennar, sem hér
skiptir máli. Þeir vissu ekki,
að borgarstjórinn hugsaði sér
útsvarshækkun eftir kosning
ar, ef nokkur tök væru á, til
þess að greiða þessar skuld-
bindingar, og þess vegna er
25—30 millj. kr. hækkunin nú
bakreikningur, sem komið er
með aftan að þeim, og ekkert
annað.
Harla fróðlegt væri hins
vegar að fá skýringu borgar-
stjórans á því, hvernig stend
ur á hinum mikla mun hinn
ar gæsalöppuðu útgáfu af yf
irlýsingu hans í Mbl. 2. des.
1966 og þeirri, sem hann las
nú upp á borgarstjómarfundi
og lætur Mbl. birta sér til af-
sökunar. En hver sem sú
skýring er, þá er hitt víst,
að borgarbúar fengu ekki í
des. þá mynd af henni, sem nú
er birt, og því er komið aftan
að þeim núna.
BÖÐULLINN
Framhald af bls. 8.
menn klæddir sem verkamenn
að vagninum og hófu' skothríð
á ekilinn og Heydriöh. f stað
þess að stíga á benzínið, hægði
þessi nýi ekill á ferðinni. Hey-
dricfo hóf skothríð úr bíinum.
en þá kastaði annar árásarmað
urinn sprengju undir bílinn.
þar sem hún sprakk. Ekillinn
og Iíeydrieh særðust alvarlega.
Allt var gert tii þess að bjarga
lífi Heyrdidhs, en árangurs
laust. Hann lézt að morgni 4.
júní. Þá hófust hefndarráð-
stafanir, sem voru einsdæmi,
Tvö þorp, Lidice og Lezaki
vorn iöfnuð við jörðu og allir
íbúarnir skotnir, auk þessa
fóru fram fjöldahandtökur og
aftökur. Sagt var að Himml-
er hafi orðið feginn fréttinni
um endalok þessa keppinautar
sýns, hann er ságður hafa stillt
dauðagrímu Hevdriehs upp á
áberandi stað á skrifborði
sínu. Mönnum bar ekki saman
um í hvaða tilganai það var
gert.
(Þýtt otr endin-sagt).
TIL SÖLU
Drai'-tarveia .•>k«irð?rbfui —
v'Havaxvítitæk: - Jarðvinnsiu-
'æs: Vegavaitarai ítæsai'ioe
U' Generatorai tyrn and • un
sð Oie--ei”éiai & v^laa-ms'-’'
' Nýti oe uppgert. -- t.agl
verð.
A PORTELI (Esl 1920) —
-i tauri-nc’ Pountne\ Hitt,
umdon E C. 4, England.
Símnefni: VENIVIDl
Sími: Mincing Lane 6891.