Tíminn - 16.08.1967, Page 9
MIÐVTKUDAGUR 16. ágúst 1967.
9
TÍMINN
Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Kramkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Heleason og indriði
G Þorsteinsson Pulltrút ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug-
lýsingastjóri: Steingrimur Gislason Ritstj.skrifstofur • Eddu-
búsinu. simar 18300—18305 Skrifstofur Bankastræti 7 Af-
greiðslusimi 12323 Auglýsingasimi 19523 AOrar skrifstofur.
sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands - t
tausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA b. t
Útivistarþörfin og
skipulag landsins
Áður hefur verið rætt hér í blaðinu um nauðsyn
þess að gera skipulagsáætlun í stórum dráttum um hag-
nýtingu landsins all langt fram í tímann. í sumar hefur
þess gætt bæði í ræðu og riti að áhugi og skilningur
á þessu máli er vaxandi.
í þessu máli þarf fleiri sjónarmið að hafa í huga
þegar dr.egnir eru megindrættir í heildarskipulag lands-
ins en þau, sem lúta að landbúnaði. Við eigum mörg
og stór verkefni framundan við að bæta landið. Öll eru
þau verkefni skyld og miða að því að gera landið arð-
bærra, fegurra og betra og hjartfólgnara heimkynni
íbúum þess. Þó má segja að verkefnin séu næsta ólík
A.m.k. virðist svo hafa verið álit þeirra, sem löggjöf hafa
sett á undanfömum áratugum um þá aðila, sem að þess-
um málum hafa unnið hér á íandi, svo sem skógiækt,'
landgræðsla, náttúruverndarráð, ferðamálaráð, veiðimála
stofnun o.fl. Með þessum stofnunum höfum við stigið
fyrstu sporin og tekizt á við nokkurn hlúta verkefnanna.
en öðrum höfum við iítið sinnt ennþá og sumum ekkert.
Það þarf að sameina krafta peirra aðila, sem að þessum
málum vinna, samræma átök þeirra og sinna um leið
fleiri verkefnum og mikilvægum, sem vanrækt hafa ver-
ið. Með hvaða hætti það yrði farsælast gert skal látið
ósagt að sinni en með góðum vilja mætti finna heppileg-
asta formið.
Við þurfum að gera okkur grein fyrir í stórum
dráttum, hvernig við viljum láta byggðina þróast sem
heppilegast með tilliti til nýtingar landsins og gæða þess.
Hvaða svæði eru bezt fallin tii landbúnaðarframleiðslu,
hver til afréttarlanda, hvar á að beina kröftunum mest
að landgræðslu og hvar til skógræktar. Þetta þarf að
íella sem bezt að þéttbýlismyndun í landinu, þar sem
við teljum að hún verði mest á næstu áratugum.
Með þéttbýlismynduninni skapast nýtt og hraðvax-
andi verkefni í þessum málum, hvað snertir nýtingu og
framtíðarskipulag landsins. Það er að fullnægja þörf
íbúa þéttbýlisins til útivistar á fögrum stöðum í náttúr-
unni, tryggja óhefta umferð nins almenna borgara um
fagra staði og aðstöðu hans til viðlegu þar auka stang-
veiði í vötnum með fiskirækt öryggisgæzlu á fjölsótt-
ustu stöðum og fl.
í tillögu, sem Helgi Bergs og fl fluttu á síðasta þingi
um umráðarétt ríkisins yfir ónotuðu landi, sögðu flutn-
ingsmenn m.a. i greinargerð:
„Þó að hagkvæm nýting landsins til landbúnaðar sé
í þessu sambandi aðalatriðið, er fjölmargt fleira, sem
hafa verður > huga. Sífellt þarf meira land til ýmissa
annarra þarfa þjóðfélagsins. ekki aðeins fyrir iðnað og
þéttbýlismyndun, heldur barf einnig sívaxandi fjöldi
bæjarfólks að hafa skilyrði til heilbrigðrar útivistar og
samskipta /ið náttúru landsins. Það má ekki verða til-
viljunum undirorpið"
Það má ekki dragast að endurskoða þessi mál í heild,
þar sem fullt tillit er tekið til r.essp sjónarmiðs, sem
allt of lítið hefur verið sinnt ennþa.
ERLENT YFIRLIT
Johnson heíur látið undan fálk-
unum og aukið loftáráslrnar
Samningaviðræður um Vietnam eru f jarlægari en áður.
QM FYRRI helgi upplýstu
sKeðanakannanir í Bandaríkjun
um, að í fyrsta sinn síðan
■Johnson varð forseti, væri
meiri hluti almennings óá-
nægður með styrjaldarrekstur-
inn í Vietnam. Um 52% þeirra,
sem voru spurðir, lýstu óá-
nægju sinni yfir því, hvernig
forsetinn ræki styrjöldina,
33% lýstu fylgi við stefnu for-
setans, en 15% tóku enga af-
stöðu.
Fyrir réttu árj lýstu aðeins
35% þeirra, sem spurðir voru,
óánægju sinni yfir því, hvern-
ig forsetinn hagaði styrjaldar-
rekstrinum. Mikil breyting hef-
ui ovi orðið síðan, og mest
hefu- hún orðið seinasta mán-
uðinn. Fyrir mánuði voru þeir,
sem voru óánægðir með styrj-
aldarreksturinn. 43% þeirra,
sem spurðir voru
ÞAÐ FER hins vegar fjarri
því, að þeir, sem eru óánægðir
með styrjaldarreksturinn, séu
sammála um það. hvernig heir
vilja láta haga honum. Milli
þéirra stendur þvert á móti
aðaldeilar um það, hvernig
haga beri rekstri styrjaldarinn-
ar Þeir skiptast í tvo hópa og
gengur annar hópurinn undir
nafninu fálkar en hinn undir
nafninu dúfur Fálkarnir vilja
láta auka styrjaldaraðgerðir,
einkum vilja þeir láta herða
loftárásir á Norður-Vietnam.
Sumir þeirra, eins og t.d. Ford,
formaður republikana í fulltrúa
deildinni, vilja til viðbótar
leggja hafnbann á Norður-Viet
nam, enda þótt þvi fylgi að
stöðva siglingar rússneskra
skipa þangað, en það mundi
leiða til beinna átaka milli
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna- Fálkarnir seeja sð <mkn
ar loftárásir muni þvinga Han-
oistjórnina að samningaborð-
borðinu. Dúfurnar vilja hins
vegar draga úr styrjaldarrekstr
inum og þó einkum hætta eða
fresta loftárásum á Norður-Viet
nam, því að þeir treysta á, að
það muni leiða til þess, að Han
oi-stjórnin fallist á samninga-
viðræður, en hún sé ófáanleg
til þess meðan haldið sé uppi
loftárásum á Norður-Vietnam
Mjög fáar dúfur eru fylgjandi
því, að Bandaríikin dragi síg
alveg frá Vietnam, án samn-
inga. Helztu leiðtogar dúfn-
anna hafa verið þeir öldunga-
deildarþingmennirnir Fulbright
og Kennedy, en New York Tim
es hefur verið aðalmálgagii
þeirra.
Johnson forseti hefur fylgt
þeirri stefnu að fara nokkurn
veginn bil beggja milli fálka
og dúfna. Þess vegna hefur
hann látið halda uppi svoköll
uðum takmörkuðum loftárás-
um á Norður-Vietnam. Þegar
herstjórnin í Vietnam fór ný-
lega fram á, að fá a. m. k.
100 þús. manna herlið til við-
bótar, ákvað Johnson að senda
aðeins 45—50 þús. Þessi meðal
vegur Johnsons virðist fram
HATFIELD
að þessu hafa notið fylgi meiri
hluta amerískra kjósenda.
FYRIR NOKKRU síðan skip
aði hermálanefnd öldungadeild
arinnar undirnefnd til að skila
áliti um loftárásirnar á Viet-
nam- Álit þessarar undirnefnd-
ar var birt í síðastl viku.
Nefndin eða meiriihluti henn-
ar lagði til, að loftárásirnar á
Norður-Vietnam yrðu auknar.
Meðai þeirra öldungadeildar-
þingmanna, sem lýstu sig
fylgjandi auknum lofárásum,
voru demókratarnir Stennis frá
Missisippi, Jackson frá Wash-
ington og Cannon frá Nevada
og republikanarnir Miller frá
lowa og Thurmond frá South
Carolina.
Vitnisburður Sharp flotafor-
ingja, yfirmanns Bandaríkja-
hers á Kyrrahafi, mun hafa
haft mikil áhrif á nefndina.
Vitnisburður hans var sá, að
það jnyndi mjög lama hernaðar
þrótt Norður-Vietnam og
draga úr ílutningum þaðan til
Suður-Vietnams. ef loftárásirn
ar yrðu látnar ná til fleiri
staða.
Það er nú komið í ljós, að
Johnson forseti hefur gengið
til móts við þetta sjónarmið
nefndarinnar, a. m. k. að
mjög verulegu leyti Seinustu
daga hafa verið gerðar loft-
árásir á ýmsa nýja staði í
Norður-Vietnam, einkum na
lægt iandamærum Kína. en
Bandaríkjastjórn hefur ekki
viljað láta gera árásir á þá
áður af ótta við, að þau mis
tök gætu orðið, að loftárásir
yrðu gerðar á staði í Kína
vegna mistaka.
DUFURNAR haía ekki látið
á sér standa að mótmæla þess
um auknu loftárásum. Þeir
telja að hér sé um að ræða
útfærslu á styrjöldinni, sem
aukd hættuna og útiloki samn-
ingaviðræður. Meðal þeirra,
sem þegar hafa fordæmt hin-
ar auknu árásir, eru Mansfield,
formaður demókrata í öldunga
deildinni- og Fulbright, for-
maður utanríkismálanefndar
deildarinnar.
Margt bendir til, þótt John
son hafi metið það öðruvísi,
að dúfurnar hafi heldur verið
að vinna á undanfarið. Meðal
þingmanna, sem nýlega hafa
gengið í lið með þeim má
nefna öldungadeildarþingmenn
ina Franek Lausche frá Ohio
og Symington frá Missouri, en
þeir voru báðir taldir fálk
ar áður. Þeir hafa nýlega lagi
til. að hætt verði loftárásum á
Norður-Vietnam til að freista
þess að koma á samningavið-
ræðum. Það hefur ýtt undir
þetta viðhorf, að Bandaríkja-
stjórn hefur viðurkennt, að
Kosygin hafi lýst þeirri skoð
un sinni, er hann ræddi við
Johnson, að Hanoistjórnin
myndi fljótlega fallast á samn
mgaviðræður eftir að loftárás-
um á Norður-Vietnam yrði
hætt, en að hún væri ófáan
leg að samningaborðinu meðan
þeim væri haldið áfram.
Þeir Lausche og Symington
eru báðir demókratar Af hálfu
repubUkana í öldungadeildinni,
sem hafa lýst sig mótfallna loft
árásum á Norður-Vietnam, má
nefna þá Cooper frá Kentucky
og Aiken frá Vermont. í þeim
hópd er einnig að finna hina
ungu efnilegu öldungadeildar-
þingmenn republibana, Percy
frá Illinois og Hatfield frá
Oregon.
Mikla athygli hefur það vak
ið, að þekktur katólskur bisk-
up, Fulton J Sbeen. hefur ný-
iega bvatt Johnson til að
kveðja Bandaríkjaher heim frá
Suður-Vietnam. Þá hefur einn
þekktasti fyrrv. hershöfðingi
Bandaríkjanna, Gavin, sem
Kennedy skipaði sendiherra í
París, eindregið lýst sig mót-
fallinn loftárásum og jafnframt
tekið fram, að hann muni ekki
styðja Johnson í forsetakosn-
ingunum næsta ár.
Johnson forseti virðist hins
vegar ekki líta svo á, að dúf-
urnar séu að vinna á i Banda
ríkjunum en hann lætur oft
stjórnast helzt tii mikið af
stundarviðhortfi almenningsálits
ins- Þess vegna hefur hann lát
ið að vilja fálkanna og aukið
loftárásirnar á Norður-Viet-
nam- ÞJ».