Alþýðublaðið - 20.05.1987, Blaðsíða 1
Burðarþol húsa kannað:
ENGIN BYGGING STÓÐST PRÚFIÐ
Teikningar ekki til hjá byggingafulltrúa. Tíu skrifstofu-
og iðnaðarbyggingar kannaðar með tilliti til jarðskjálftaálags.
íbúðarhúsnæði ekkert betra?
Ekkert þeirra tíu húsa sem Rann-
sóknastofnun byggingariönaðarins
kannaði með tilliti til burðarþols,
stóðst þær kröfur sem gerðar eru í
þessu efni. Svo virðist sem eftirlit
með húsbyggingum í þessu tilliti sé
gersamlega í molum, auk þess sem
staðla vantar í ýmsum tilvikum og
samkvæmt nefndarálitinu þarf
mjög að herða á þeim reglum sem
nú gilda, ef takast á að skapa viðun-
andi ástand.
Könnun sú sem hér um ræðir var
framkvæmd að tilhlutan félags-
málaráðherra í framhaldi af niður-
stöðum nefndar sem ráðherra skip-
aði á sínum tima og skilaði áliti fyr-
ir u.þ.b. ári. Húsin sem könnunin
náði til voru ýmist valin af handa
hófi eða vegna þess að ytra útlit
þeirra benti til að burðarþoli gæri
verið áfátt.
Könnunin fór þannig fram að
óskað var eftir teikningum að bygg-
ingunum tíu hjá embætti bygging-
arfulltrúa og burðarþolið kannað
út frá þessum gögnum. Því fór hins
vegar víðs fjarri að allar umbeðnar
teikningar væru til staðar hjá em-
bættinu, eins og þó mun vera
lögskylt.
í upphafi var ákveðið að sann-
prófa burðarþol þriggja bygginga.
Var þetta gert með því að kanna
stöðugleika bygginganna gagnvart
járðskjálftaálagi samkvæmt ís-
lenskum staðli sem um það efni
gildir. Eftir að í ljós kom að engin
þessara þriggja bygginga stóðst
settar kröfur, var ákveðið að kanna
fleiri hús.
Það mat sem í könnuninni var
lagt á burðarþol húsanna var gert út
frá þeim teikningum sem fáanlegar
voru. í tveimur tilvikum voru engar
eða nánast engar teikningar til o§
burðarþol því ekki kannað nánar. í
þeim tilvikum sem teikningar feng-
Von/Veritas:
Skulda 49 milljónir
í Danmörku
Skuldir Von/Veritas, íslensku
meöferðarstöðvarinnar í Dan-
mörku nema um 8.6 milljónum
danskra króna eða um 49 millj. ísl.
kr. Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins í Danmörku eru kröfuaðil-
ar um 50 talsins.
Von/Veritas bað um greiðslu-
stöðvun er danskir iðnaðarmenn
fóru fram á gjaldþrot fyrirtækisins
vegna vangoldinna skulda að upp-
hæð 2 millj. danskra kr. Greiðslu-
stöðvun var veitt til 25. maí. í kjöl-
far greiðslustöðvunarinnar hafa
aðrir aðilar sett fram kröfur.
Stærsti lánadrottinn Von/Veritas er
Amager Bank (AB-Finas) sem fé-
lagið skuldar 3.3 millj. danskra kr.
ust reyndist borðarþoli alls staðar
vera áfátt að einhverju leyti.
Þótt ekki megi draga miklar
ályktanir af ástandi húsa almennt
af þessari könnun, benda niður-
stöðurnar engu að síður til að veru-
legra úrbóta sé þörf. Þau hús sem
nú voru könnuð eiga það sammerkt
að vera iðnaðar- eða skrifstofuhús-
næði, en þegar þessar niðurstöður
voru kynntar blaðamönnum í gær,
kom m.a. fram að aðstandendur
könnunarinnar töldu fulla ástæðu
til að ætla að burðarþoli íbúðar-
húsa sé einnig verulega áfátt að
þessu leyti í mörgum tilvikum. Mun
það eiga við bæði um fjölbýlis- og
einbýlishús.
Kvennalistinn hjá Þorsteini
í gær kallaði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins fulltrúa Kvennalistans á sinn fund I Borgartúni
til viðræðna um stjórnarmyndun. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins þingar I dag um viðræöur Þorsteins við for-
menn flokka aö undanförnu.
Skipulag verkalýðshreyfingarinnar:
Erfitt að framfylgja ákveðinni launastefnu
— miðað við núverandi skipulag launþegasamtakanna, segir Björn Þórhallsson.
Takmörkun verkfallsréttar ekki á dagskrá. Vinnustaðasamningar koma til greina.
Björn Þórhallsson, varaforseti
ASI, er samrnála vissum atriðum í
málflutningi Þórarins V. Þórarins-
sonar, varðandi þörf fyrir breyting-
ar á skipulagi verkalýðshreyfingar-
innar, einkum að því er varðar
stærri einingar. Hann kveðst út af
fyrir sig fagna umræðu um þessi
mál, en snýst hins vegar öndveröur
við tillögum Þórarins um takmörk-
un verkfallsréttar. Björn telur einn-
ig vel koma til greina að samið verði
í einu lagi fyrir alla starfshópa á
stærri vinnustöðum en telur ekki að
breyta þurfi skipulagi verkalýðs-
hreyfingarinnar þess vegna. Þetta
kom m.a. fram í samtali sem Al-
þýðublaðið átti við Björn í gær.
Björn kvaðst ekki vita til þess að
neins staðar í verkalýðshreyfing-
unni væri áhugi fyrir því að tak-
marka verkfallsrétt. Hins vegar
sagði hann ljóst að ef takast ætti að
framfylgja þjóðarsátt um
ákveðna launastefnu, þyrftu allir í
launþegahreyfingunni að vera sam-
mála um hana. „Það hefur ekki
verið“, sagði Björn.
Varðandi hugmyndina um vinnu-
staðafélög, eða vinnustaðasamn:
ing, sagði Björn að innan ASÍ
hefðu menn alltaf verið opnir fyrir
hugmyndum í þá veru að samið
væri fyrir stærri vinnustaði í einu
lagi. Hann nefndi ÍSAL sem dæmi
um þetta og sagði að til viðbótar
mætti vel hugsa sér að svipaðar að-
ferðir yrðu teknar upp hjá t.d. Flug-
leiðum og Eimskipafélaginu.
„Það þarf hins vegar ekki að
kljúfa verkalýðshreyfinguna eins og
hún er nú, eða breyta skipulagi
hennar til þess“, sagði Björn. Þótt
þessi háttur yrði tekinn upp, yrði
verkfallsrétturinn áfram á sömu
höndum og nú, sagði hann, þ.e.a.s.
hjá verkalýðsfélögunum.
Björn Þórhallsson kvaðst telja
mjög æskilegt að unnt væri að
halda þjóðarsátt á vinnumarkaðn-
um í þeirri merkingu að mótuð væri
ákveðin launa- og efnahagsstefna
og henni framfylgt. Hann sagði
hins vegar að þetta væri mjög erfitt
miðað við núverandi skipulag laun-
þegasamtakanna.
„Ég held að verkalýðshreyfingin
þurfi, þvert gegn þvi sem talað hef-
ur verið um að kljúfast niður í
vinnustaðafélög og hinar og þessar
áttir, þá þurfi hún að efla sig og
mynda eitthvert sameiginlegt
apparat. Ég er ekki þar með að
segja að BSRB ætti að ganga í ASÍ
eða öfugt, heldur að fólk eigi að
taka saman höndum.
Björn kvaðst t.d. aldrei hafa skil-
ið hvers vegna skrifstofufólk hjá
opinberum stofnunum á að vera
eitthvað öðruvísi sett en skrifstofu-
fólk hjá heildsölum. „Mér finnst
satt að segja að skrifstofufólk,
hvort sem það vinnur hjá opinber-
um stofnunum eða öðrum ætti að
vera í verslunarmannafélagi“, sagði
hann. Björn kvaðst vera sammála
því atriði í málflutningi Þórarins V.
Þórarinssonar að verkalýðssamtök-
in þyrfti að skipuleggja í stærri ein-
ingum en nú er. „Ég held að það sé
öllum til ills að menn séu að bítast“,
sagði hann.
Björn Þórhallsson kvaðst á hinn
bóginn vera andvígur því að tak-
marka verkfallsrétt smærri hópa
eins og Þórarinn V. Þórarinsson
stakk upp á í erindi sínu á aðalfundi
VSÍ um daginn. Hann benti í því
sambandi á fjöldauppsagnir þær
sem opinberir starfsmenn án verk-
fallsréttar hafa iðulega gripið til.
Það sem þyrfti til að samstaða næð-
ist urn þjóðarsátt og frið á vinnu-
markaði, væri því kannski öllu
fremur hugarfarsbreyting.