Alþýðublaðið - 20.05.1987, Side 2
MÞBUMMB
öimi: 681866
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Blaðamenn: Orn Bjarnason, Asa Björnsdóttir,
Kristján Þorvaldsson og
Jón Daníelsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir.
Setning og umbrot: Filmurog prent Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn er 681866
Öryggi í flugi
IMýverið sendi Flugslysanefnd frá sér ársskýrsiu
sína. Þarkomamargvíslegarog fróðlegarupplýsingar
fram, sú gleðilegasta er þó ef til vill sú, að dauðaslys
í íslenskum loftförum hafa vart aukist á undanförnum
10 árum, (1—8 dauðaslys á ári) ef undanskilið er hið
hörmulega flugslys 1978 er 183 létu lífið í Douglas
DC-8 leiguvélinni sem fórst I aðflugi að flugvellinum
við Colombo á Sri Lanka. í inngangi skýrslunnar kem-
ur fram að flugslysanefnd hafi lengi haft áhyggjur af
því að aukin tækni við flugleiðasögu og staðsetningu
flugvéla, bæði með tilkomu vandaös tækjabúnaðar
um borð í flugvélum og á jörðu niðri, leiði til þess að
flugmenn vanmeti veðurfar á fyrirhugaðri flugleið en
láti sér nægja að kynna sér veður og lendingarspár
fyrir viðkomandi flugvelli. í þessu sambandi er bent á
að stundum gangi mjög skörp veðurskil yfir landið
með ísingarskilyrðum, sterkum vindi og tilsvarandi
fallvindum. í inngangi skýrslunnar kemur ennfremur
fram að rætt hafi verið um að ekki sé nægilega náið
samband milli flugmanna og Veðurstofu íslands og
bæta þurfi upplýsingastreymi milli þessara aðila.
Citt af aðalhlutverkum Flugslysanefndarerað leggja
fram tillögur og koma með ábendingar til að auka ör-
yggi í flugsamgöngum. Mikið hefur áunnist ( þessum
efnum, og eins og vikið var að hér að framan hefur
tíðni flugslysa minnkað verulega þegar tekið er tillit
til þess hversu mjög flug hefur aukist á síðustu árum.
Þrátt fyrir þá staðreynd að áætlunarflug er einn full-
komnasti og öruggasti ferðamáti sem til er, er þó þess
langt að bíða að flug verði alöruggt. Ein þeirra aðferða
sem flugmálayfirvöld beita i því skyni að auka öryggi,
er að setja lög og reglugerðir. Oft er þessu tekið með
lítilli ánægju af þeim sem flug stunda, þvl iðulega er
með þessu móti gengið inn á hagsmuni þeirra I efna-
legu tilliti. Endanlega ber hinn almenni flugfarþegi
kostnaðinn I formi fluggjalda..Hins vegar eru þeir far-
þegar fáir sem ekki vilja greiða ögn meira fyrir miða
slna gegn bættu flugöryggi. Eins og skýrsla flug-
slysanefndar bendir réttilega á, ber ríkinu einnig að
stuðla að meira öryggi I flugi. Flugrekendum er ekki
að öllu leyti sköpuð þau skilyrði til að hagnýta sér nýj-
ustu og hagkvæmustu tækni. Til dæmis má benda á
ástand flugvalla á íslandi. Flugbrautir eru oft lélegar
og viðhald þeirra ekki sem skyldi.
Fjölgun einkaflugvéla hefur haft í för með sér að
auka ber fræðslu og kynningu einkaflugmanna á
hættum sem valdaslysum sem samkvæmt mati Flug-
slysanefndar eru yfirleitt þau sömu. Hin stöðugu
óhöpp og slys tengjast yfirleitt veðrinu. Á íslandi eru
gildandi reglursem Flugmálastjórn hefurlagt bless-
un sína yfir, um lágmarksskyggni og skýjahæð á hin-
um ýmsuflugvöllum sem flogiðertil. Slík opinber lág-
mörk eru hins vegar ekki til fyrir einkaflugið, heldur
aðeins lágmörk sem gætnir einkaflugmenn setja sér
sjálfir. Flugslysanefnd hefur nú lagt til að Flugmáia-
stjórn kanni, hvort ekki sé æskilegt að setja opinber
lágmarksveðurskilyrði fyrir flugvelli landsins eins og
vlða erlendis. Með því móti væri reynt að tryggja að
ekki sé flogið til og frá flugvöllum, ef veðurer þar lak-
ara en það sem talið er nauðsynlegt fyrir lágmarks-
öryggi I flugstarfsemi. Með þessu væri enn stigiö
stórt skref I öryggisátt varðandi flug á íslandi.
Heljarstökk Alberts úr yfirlýstri stjórnarandstöðu I lendingu á fjórum fótum fyrir framan Steingrlm Hermanns-
son mun hafa verið æft og skipulagt af mönnum I Borgaraflokki og Framsóknarflokki.
Guðmundar-gambíturinn
— eða fjöltefli Framsóknar
Nú hefur Borgaraflokkurinn kú-
vent og segir sig til þjónustu reiðu-
búinn i þriggja flokka ríkisstjórn
með Framsóknarflokki og Sjálf-
stæðismönnum, að því tilskyldu að
Steingrímur Hermannsson verði
forsætisráðherra. Þessu slær Tím-
inn að sjálfsögðu stórt upp á for-
síðu og segir að þessi yfirlýsing
Borgaraflokksins verði að skoðast í
ljósi þess að Þorsteinn hafi haft
umboð forseta til stjórnarmyndun-
ar án þess að formlegar stjórnar-
myndunarviðræður hafi hafist.
Með öðrum orðum er blaðið að
segja að Albert sé að hjálpa Þor-
steini að taka ákvörðun í málinu.
Hvernig bregst svo Þorsteinn við
þessu óvænta bónorði? Jú, í Morg-
unblaðinu í gær segir Þorsteinn, að
sér sýnist þeir í Borgaraflokknum
svolítið seinir að hugsa: „Þeir
hefðu átt að láta sér detta þetta í
hug meðan Steingrímur Hermanns-
son hafði umboðið til stjórnar-
myndunar og lýsa því þá yfir að þeir
væru reiðubúnir að setjast í ríkis-
stjórn undir hans forsætiþ segir
formaður Sjálfstæðisflokksins orð-
rétt. Það má ætla að Þorsteinn sé
reiður og móðgaður út í Albert og
Borgaraflokkinn sem setur fram þá
kröfu án þess að hiksta að Stein-
grímur verði í forsæti í hugsanlegri
þriggja flokka stjórn Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknar og Borgara-
flokks. Sennilega bætti það ekki
skap Þorsteins ef hann hefur hlust-
að á fréttatíma Bylgjunnar í gær-
morgun klukkan níu, en þar voru
ummæli Þorsteins í Morgunblað-
inu borin undir Albert sem svaraði:
„Þorsteinn er búinn að segja svo
margt vitlaust og gera svo margt vit-
laust, að ég hef engu við það að
bæta. Hann er sinnar eigin gæfu
smiðurý Þokkaleg byrjun á stjórn-
arsamstarfi.
En meðan Þorsteinn Pálsson tek-
ur á móti formönnum flokka í
gömlu rúgbrauðsgerðinni og kann-
ar hugi þeirra til hugsanlegrar
þriggja flokka stjórnar, eins og ný-
sköpunar eða stjórn Sjálfstæðis-
flokks, Kvennalista og Alþýðu-
flokks, hafa f ramsóknarmenn far-
ið að óttast að þeir yrðu úti á leið-
inni i Borgartún. Samkvæmt áreið- urskoðun varnarsamningsins og ar.
anlegum heimildum Alþýðublaðs-
ins munu hugmyndasmiðirnir bak
við samstarf Framsóknar og Borg-
araflokks í ríkisstjórn vera Guð-
mundur G. Þórarinsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins í Reykja-
vík, og Benedikt Bogason, 4. mað-
ur á lista Borgaraflokksins í
Reykjavík. Þeir hafa áður unnið
saman bak við tjöldin þegar ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsen var
mynduð 1980. Hins vegar er þriggja
flokka stjórn ekki eina tilbrigðið
við stef Framsóknar og Borgara-
flokks. Nýjasta afbrigðið gengur í
sölum Alþingis undir heitinu „Guð-
mundar-gambíturinn" og er fjög-
urra flokka stjórn Framsóknar,
Borgaraflokks, Alþýðubandalags
og Kvennalista. Mun eiga að grípa
til þessa Ieiks ef Þorsteini tekst ekki
að koma saman þriggja flokka
stjórn. Enn er ekki farið að ræða
við Kvennalistann um þennan
möguleika, en Alþýðubandalags-
menn munu hafa séð ýmsa kosti í
þessari fléttu.
Lítum nánar á þessa stjórnar-
samsetningu. Af fimm mögulegum
meirihlutastjórnum fjögurra
flokka er þetta sú eina sem útilokar
bæði Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
flokk. Það er vissulega freistandi
fyrir Framsókn sem hefur mátt
þola afneitun frá Þorsteini og Jóni
Baldvin gegnum stjórnarmyndun-
artímann sem komið er. Það er
einnig góð lausn fyrir Albert og fé-
laga sem koma Sjálfstæðisflokkn-
um í stjórnarandstöðu a la Thor-
oddsen, en þá sátu 5 þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn
og nú hefur gamli stuðningsmaður
Gunnars, Albert Guðmundsson
klofið sig út úr Sjálfstæðisflokkn-
um og komið 7 mönnum á þing.
Mynstrið er því til staðar. Alþýðu-
bandalagsmenn sjá ýmislegt já-
kvætt við þessa þróun. í fyrsta lagi
geta þeir rofið samleik Þorsteins og
Jóns Baldvins sem mjög hefur farið
fyrir brjóstið á þeim og komið þeim
báðum, íhaldsseggjunum, í stjórn-
arandstöðu. Þeir sjá möguleika á
ríkisstjórn sem komið gæti fram
þeirra stefnumálum í félagshyggju
og vararmálum, t.d. stöðvun hern-
aðarframkvæmda í Keflavík, end-
jafnvel brottflutning varnarliðsins í
áföngum. Samstarf við Kvennalist-
ann gæti ennfremur orðið lúnu Al-
þýðubandalagi liðsstyrkur og þessir
tveir flokkar eiga fjölmörg mál
sameiginleg eins og jafnréttismál og
friðarmál. Ennfremur myndi slík
stjórn gefa flokknum meira sjálf-
stæði gegn verkalýðsforystunni —
grýlunni í Alþýðubandalaginu —
og tækifæri til að móta sína eigin
launastefnu. Kvennalistinn gæti
verið á líku hugsanaróli og Alþýðu-
bandalagið, fyrirstaðan væri einna
helst samvinna með Borgaraflokki
og ihaldsöflunum í Framsókn.
En meðan öllu þessu vindur fram
bak við tjöldin með vitneskju og
þöglu samþykki Steingríms Her-
mannssonar sem er þó nógu klókur
til að koma hvergi nærri plottinu,.
heldur Þorsteinn áfram að taka á
móti formönnum og varaformönn-
um í gömlu rúgbrauðsgerðinni.
Kvennalistinn kom til hans í gær og
þingflokksfundur Sjálfstæðis-
manna mun fjalla um viðræður
formannsins undanfarna daga.
Þessi fundur Kvennalistans og
Sjálfstæðisflokksins var síðasta
von Þorsteins að koma saman ríkis-
stjórn Sjálfstæðismanna, Alþýðu-
flokks og Kvennalista.
Nýsköpunarstjórn dó eftir end-
anlegt sjálfsvíg Alþýðubandalags-
ins á Varmalandi þar sem ágrein-
ingsmálunum var ýmist sópað und-
ir teppið eða sett í dauðar nefndir
flokksforystunnar sem þessa dag-
ana er að skrifa heimastíla fyrir
landsfundinn. Sumir segja að
starfsnefndin sé verkfærið sem not-
að verði til að hreinsa upp í flokkn-
um að hætti... þið vitið.
Það er hugsanlegt að Þorsteini
takist að leiða saman Sjálfstæðis-
flokk, Alþýðuflokk og Kvennalista.
Það veltur mikið á afstöðu Kvenna-
listans til varnar- og utanríkismála.
Springi sú tilraun er fjórflokka-
samsæri Framsóknar og Borgara-
flokks hangandi yfir Þorsteini sem
gæti leitt til þess að menn færu að
hugleiða stjórnarsamstarf Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknar og Al-
þýðuflokks sem þrautalendingu.
Og þá getur Steingrímur glott út í
annað að loknu fjöltefli Framsókn-