Alþýðublaðið - 20.05.1987, Qupperneq 3
Miðvikudagur 20. maf 1987
3
Þing Delta Kappa Gamma:
Myndbandamenningin og börnin
Þing Landssambands Delta
Kappa Gamma, var haldið að
Varmalandi í Borgarfirði lr3. maí
s.l. Innan þessara samtaka eru kon-
ur sem vinna að fræðslu- og
menntamálum. Á íslandi starfa nú
4 deildir og var fjórða deildin stofn-
uð á hátíðafundi að Varmalandi.
Tíu ár eru nú liðin frá stofnun
samtakanna á íslandi, en þau eru
hluti af alþjóðasamtökum kvenna.
Meginverkefni samtakanna er að
styrkja konur til framhaldsnáms,
og hafa nokkrar íslenskrar konur
hlotið slíka námsstyrki.
Gestur fundarins var Dr. Theresa
Fechek, framkvæmdastjóri frá að-
alstöðvum í Austin í Texas. Á
kvöldvöku á föstudagskvöldið,
kynntu konur úr Beta-deild á Akur-
eyri verk listakonunnar Elísabetar
Geirmundsdóttur, sem lifði og
starfaði á Akureyri. Sýndu þær Iit-
skyggnur af útskurði og höggmynd-
um eftir listakonuna, en auk þess
voru um 20 málverk eftir hana til
sýnis þingdagana. Einnig voru flutt
ljóð og lög eftir Elísabetu. Aðalefni
þingsins var: Áhrif myndefnis á
börn og unglinga: Framsöguerindi
fluttu, Þorbjörn Broddason, dós-
ent og Anna G. Magnúsdóttir.
Spunnust miklar umræður út frá
erindunum. Myndefni er svo sterk-
ur áhrifavaldur i nútíma þjóðfélagi,
að full ástæða er til að vekja uppal-
endur til umhugsunar um hann.
Myndbönd og myndefni ýmislegt
gefur ótæmandi möguleika í
kennslu, á hinn bóginn vekur hið
gífurlega flóð myndefnis sem hellist
yfir börn og ungmenni ugg í brjósti
margra, og töldu þingfulltrúar rétt
að beina því til foreldra og forráða-
manna barna að þeir fylgdust eftir
megni með því myndefni, sem börn
þeirra horfa á, og ræddu efni mynd-
anna við börn sín.
Fráfarandi forseti samtakanna er
Pálína Jónsdóttir, Kópavogi, en
forseti til næstu tveggja ára var
kjörin Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
Reykjavík. Aðrar í stjórn eru, Jó-
hanna Þorsteinsdóttir, Akureyri,
Jenny Karlsdóttir, Akureyri, Gerð-
ur G. Óskarsdóttir, Reykjavík og
Sigrún Klara Hannesdóttir, Reykja-
vík.
w Danskeppni í Blackpool:
Island sendir par
í fyrsta skipti
Jón og Esther I léttri dansstellingu.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Bygg-
ingardeildar óskar eftir tilboðum I framkvæmdir vfó
byggingu fyrstu hæöarog þaks heilsugæslustöðvar
viö Hraunberg 6 í Reykjavík. Um er að ræöa uppsteypt
einingarhús.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3, Reykjavi'k gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin
verðaopnuð ásamastað miðvikudaginn 10. júní n.k. kl.
14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Pósthólf 878 — 101 Reykjavik
Námsbraut í iðnrekstrar-
fræði á Akureyri
Kennsla á námsbraut í iðnrekstrarfræði á há-
skólastigi hefst á Akureyri á hausti komanda.
Námsbrautin verður rekin í nánu samstarfi við
hliðstæða námsbraut í Tækniskóla íslands og eru
inntökuskilyrði þau sömu.
Umsóknir um námsvist ásamt staðfestu Ijósriti af
stúdentsprófsskírteini skulu sendar fyrir 1. júlí
n.k. til Bernharðs Haraldssonar, skólameistara
Verkmenntaskólans á Akureyri, sem veitir nánari
upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið,
18. maí 1987
Árlega er haldin danskeppni í
Blackpool í Englandi, sem allir
bestu dansarar heimsins taka þátt í,
bæði atvinnumenn og áhugamenn.
þar er einnig keppt i riðlum fyrir þá
sem eru orðnir 35 ára og eldri,
munsturdönsum (formation) og
síðast en ekki síst unga fólkið 16 til
19 ára.
ísland hefur aldrei sent par í
þessa keppni, en nú er timi til kom-
inn að aðrar þjóðir fái að sjá hvað
við getum gert þótt fá séum.
Nú mun í fyrsta sinn par frá ís-
landi taka þátt i keppninni. það eru
þau Esther Inga Söring 16 ára og
Jón Þór Antonsson 20 ára. Þau
koma til með að keppa fyrir íslands
hönd í flokki áhugamanna í Suður-
amerískum dönsum (Latin).
Með þeim í förinni verða þjálfar-
ar þeirra, sem eru kennarar frá Nýja
dansskólanum og stór hópur nem-
enda skólans ásamt foreldrum
sumra þeirra.
Vafalaust mun athygli margra
beinast að þessum fyrstu þátttak-
endum íslands í þessari keppni og
verður bæði ánægjulegt og spenn-
andi að fylgjast með þeim.
Alþýðuflokksfélag
Hafnarfjarðar
Furídurverður í félaginu fimmtudaginn 21. maí kl.
20.30 í Alþýðuhúsinu.
Gestur fundarins verður Jón Baldvin Hannibals-
son og fjallar um úrslit kosninganna og stjórnar-
myndunarviðræður.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Berðu ekki við
tímaleysi
í umferðinni.
Þaö ert sem
situr undir stýri.
IUMFERÐAR
RÁÐ
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir apríl mánuð 1987,
hafi hann ekki verið greiddur I síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viöbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. júní.
Fjármálaráðuneytið, 15. maí 1987.
Námsbraut í hjúkrunar-
fræði á Akureyri
Kennsla á námsbraut í hjúkrunarfræði á háskóla-
stigi hefst á Akureyri á hausti komanda.
Námsbrautin veröur rekin í nánu samstarfi við
hliðstæða námsbraut f Háskóla íslands og eru
inntökuskilyrði þau sömu.
Umsóknir um námsvist ásamt staðfestu Ijósriti af
stúdentsprófsskírteini skulu sendar fyrir 1. júlí
n.k. til Ólínu Torfadóttur, hjúkrunarforstjóra,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, sem veitir
nánari upplýsingar.
Margrét Tómasdóttir, M.S., námsbrautarsjtóri,
verðurtil viðtals I Fjórðungssjúkrahúsinu mánu-
daginn 1. júní og skv. samkomulagi.
Menntamálaráðuneytið,
18. maí 1987
Frá menntamálaráðuneytinu
í lögum nr. 48/1986 um lögverndun ástarfsheiti og
starfsréttindum grunnskólakennara, framhalds-
skólakennara og skólastjóra er grein til bráða-
birgða sem hljóðar svo:
„Þeir, sem fyrir gildistöku þessara laga hafa
starfað sem settir kennarar sex ár eða lengur
en fullnægja ekki skilyrðum laganna til starfs-
heitis og starfsréttinda, skulu eiga kost á því
að Ijúkanámiavegum Kennaraháskóla íslands
eða Háskóla íslands til að öðlast slík réttindi.
Um tilhögun námsins skal setjaákvæði í reglu-
gerð.
Heimilt er að ráða eða setja þá, sem slíka
starfsreynslu hafa að baki, í kennslustarf til
eins árs í senn en þó ekki til lengri tímaen fjög-
urra skólaára samtals frá gildistöku laga þess-
ara.
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. má setja eða ráða sem
framhaldsskólakennara þann sem hefur verið
setturí samastarf í fjöguráreðalengurog hef-
ur lokið fullgildum prófum í kennslugrein þótt
ekki hafi hann réttindi smkvæmt lögum þess-
um. Þessi undanþága gildir næstu fjögur ár
eftirgildistöku lagannaen til lokastarfsævinn-
ar ef um er að ræða kennara sem náð hefur 55
ára aldri við gildistöku laganna.11
Nám, byggt á þessu lagaákvæði, mun fara fram
við Kennaraháskóla íslands og Háskóla íslands
eftir því sem við á. Vegna skipulagningar þessa
náms er nauðsynlegt að fá vitneskju um hverjir
hafaáhugaáað stundaslíkt nám og hvaðamennt-
un þeir hafa. Námið verður skipulagt að mestu
sem sumarnám, heimanám og námskeið áskóla-
tíma þannig að unnt verði að stunda það samhliða
kennslu.
Þeir sem hafa hug á að stunda nám samkvæmt
framansögðu eru beðnir um að snúa sér til
Menntamálaráðuneytisins, framhaldsskóladeild-
ar, fyrir 25. maí n.k.
Menntamálaráðuneytið
flAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Hitaveita Reykjavfkur óskar eftir aö ráða rafeindaverk-
fræðing eða tæknifræðing til starfa við stjórnkerfi og
rafeindabúnað veitunnar. Upplýsingar um starfið veitir
Árni Gunnarsson ( s(ma 82400.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 1987.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð ásérstökum eyðu-
blöðum sem þar fást.