Alþýðublaðið - 20.05.1987, Blaðsíða 4
m
MMBUBIIBIÐ
Miövikudagur 20. maí 1987
Vor í Póllandi
Gdansk 1. mal 983. Yfirvöld kveða niður mótmæli Samstööu. í dag hefur Jaruselski hershöföingi gert út af viö Sam-
stööu — og stjórnin I Kreml ber aukiö traust til stjórnarinnar I Varsjá.
Á þessu vori er lítið talað um
ástandiö í Póllandi. Það fellur í
skugga meiri tíðinda frá nágrann-
anum í austri, „glasnost"—pólitík-
ur Gorbatjovs, útgáfu á fyrstu köfl-
unum úr bókinni Dr. Zivago og
auknu og bættu sambandi Sovét-
ríkjanna við lönd í vestri.
I Póllandi hefur hinn kaldi vetur
verið mönnum erfiður í skauti, 47
manns hafa látist af völdum kuld-
anna og í pólska útvarpinu hefur
verið sagt frá því að í Varsjá hafi
menn verið án hita og símasam-
bands á þúsundum heimila vegna
sprunginna röra og slitinna síma-
strengja.
Pólska stjórnin lítur svo á að í
umbótaáætlunum Sovétmanna
endurspeglist þeirra eigin umbóta-
tilraunir, t.d. i menningarmálum, í
málum pólitískra fanga og á efna-
hagssviðinu. Flest af boðorðum
Gorbatjovs eru fyrir löngu komin
til framkvæmda í Póllandi og/eða í
Ungverjalandi og þess vegna eru
það Sovétmenn sem þurfa að fara í
smiðju til Varsjár eða Búdapest til
að fá fyrirmynd, en ekki öfugt.
En póiski kommúnistaflokkur-
inn hefur hvergi slakað á forræði
sínu í samfélaginu. Pólskir flokks-
foringjar vilja eigna sér bróður-
partinn af þeim hugmyndum sem
Gorbatjov hyggst gera að veruleika
austan tjalds og skapa sér þannig
áhrifaaðstöðu ineðal austantjalds-
landa.
Sama stefnan
Upp úr 1980, þegar óháðu verka-
lýðssamtökin, Samstaða, voru
mynduð, féllu Pólverjar niður í
annað sætið að þessu leyti, næst á
eftir Austur-Þýskalandi.
Nú, þegar Jaruzelski hershöfð-
ingi hefur barið niður Samstöðu, er
hann taiinn hafa endurheimt traust
Sovétmanna, en engu að síður mun
hann hafa fullan hug á að tryggja
sérstöðu sína og halda til streitu
sinni eigin efnahagspólitík næstu
árin. Áhersla er á það lögð í pólsk-
um fjölmiðlum að uppgjör Gor-
batjovs við Bresjnev-tímabilið ein-
kennist m.a. af meira olnbogarými
fyrir einstök lönd, leyfi til að þau
nái hinum sósíölsku markmiðum
hvert með sinni aðferð. Þannig falla
umbótatilraunir pólskra kommún-
ista saman við boðskap Gorbatjovs
og mismunandi áherslur þurfa ekki
að valda ágreiningi.
Gagnrýni
Hinir gömlu andstæðingar
Jaruselskis hafa fyrir löngu verið
fjarlægðir úr lögreglunni, á sama
hátt og Gorbatjov hefur losað sig
við Bresjnev-klíkuna. Sömuleiðis
þeir sem sýndu sig í e.k. andófi gegn
stjórninni eins og fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, Olszowski, sem er nú
alveg áhrifalaus. í pólskum fjöl-
miðlum er mikið hamrað á þörfinni
á umbótum og væg gagnrýni hefur
komið fram á opnum flokksfund-
um.
Tónninn í dagblöðunum, meira
að segja í flokksblaðinu Trybuna
Ludu, er frjálsari en verið hefur áð-
ur, en þó segja blaðamenn að efnið
sem blöðin birta sé eintóna og inn-
antómt og langt frá því að þar hafi
skapast sú frjálsa og gagnrýna um-
ræða sem þarf til að halda úti góðu
dagblaði.
Engu að síður er umræðan hafin,
þótt í litlu sé og snýst mikið um hið
nýja hlýviðrisskeið í Sovétríkjun-
um. Pólland var fyrst austur-
evrópskra landa til að gefa Dr.
Zivago út eftir að grænt ljós var
gefið á það frá Sovétríkjunum. Út-
gáfa á ritum annarra bannhöfunda
mun vafalaust fylgja í kjölfarið.
Neðanjarðarútgáfa
Það er kunn staðreynd að útgáfu-
starfsemi neðanjarðar er meiri i
Póllandi en í nokkru öðru austan-
tjaldsríki. „Nowa“ er stærsta út-
gáfufélag neðanjarðar í Póllandi.
Það hefur gefið út um 300 rit, sem
eru samtals kringum eina milljón
að upplagi og er dreift um allt land.
Efnahagsvandi
Efnahagsvandi Pólverja er enn
verulegur. Margir búa við mjög
kröpp kjör, erlendar skuldir eru
miklar (33 milljarðar dollara) og
mikið dulið atvinnuleysi. Virtur
pólskur hagfræðingur hefur áætlað
að dulið atvinnuleysi sé þar a.m.k.
5—10%, sem virki mjög letjandi á
efnahagsuppbyggingu í landinu.
í nýrri skoðanakönnun svöruðu
18,4% aðspurðra því að þeir teldu
sig búa við kröpp kjör eða mjög
slæman efnahag. 54,9% töldu kjör
sín viðunandi. Fimmta hver fjöl-
skylda, 21% landsmanna, fær að-
stoð frá því opinbera. Mest af þeirri
hjálp gengur til elli- og örorkubóta,
sem voru hækkaðar um 20—25% á
síðasta ári, en eru engu að síður
ótrúlega lágar.
Útvarpssendingar sem koma frá
vestrænum stöðvum á pólsku, eru
enn truflaðar svo að ekki er hægt að
hafa af þeim nein not. Bréf sem er
sent með flugpósti frá Danmörku
til Póllands er 2—3 vikur á leiðinni.
Bið eftir símtali frá Danmörku til
Póllands er frá 4 og allt upp í 12
tíma.
í landi þar sem allir hafa vanist
því að öll boð og bönn komi ofan
frá, er tæplega hægt að búast við að
sá ótti og tortryggni sem er rótgró-
inn meðal þjóðarinnar hverfi eins
og dögg fyrir sólu þótt boðorð
dagsins í dag sé „glasnost".
Coldwater Seafood, dótturfyrir-
tæki S.H., getur nú aftur selt Veit-
ingahúsakeðjunni Long John Silv-
er’s þorskflök á markaðsverði. Verð
til framleiðenda á íslandi hækkar
því um 14% fyrir þorskflök í
þriggja og fimm punda pakkning-
um. Verð á þorskblokk hefur einnig
verið hækkað, um 3%. Long Johns
Silver’s er stærsti einstaki kaupandi
á íslenskum fiski í Bandaríkjunum.
Þessi verðhækkun hefur því að
sjálfsögðu áhrif á afkomuna hjá
fiskvinnslunni, sem þó er sögð rek-
in fyrir ofan núllið þessa dagana.
Þótt undarlegt megi virðast þá
hafa sumir áhyggjur af þessari ann-
ars jákvæðu þróun. Menn benda á
að allt tal um góðar horfur og af-
komu hjá fiskvinnslunni sé til þess
fallið að ríkið komi með puttana
eina ferðina enn og geri mönnum
reksturinn ómögulegan.
Menn benda á að af þessum
ástæðum hafi til langs tíma verið
talið rangt að fyrirtæki skiluðu
hagnaði. Menn andi Iéttar eftir að-
alfundi þegar upp er staðið og for-
stjóri og stjórnarformaður hafa tí-
undað áföllin í rekstri síðasta árs.
Ár eftir ár hlusta menn því þegjandi
og hljóðalaust á sömu plötuna þar
sem raktar eru helstn ástæður taps-
hagnað í greininni. Menn benda á
að þegar farið er að tala um hagnað
í fiskvinnslu, hafi venjulega verið
séð til þess að hann væri tekinn aft-
ur. Einn viðmælanda Alþýðublaðs-
ins nefndi m.a. eitt dæmi úr skreið-
arframleiðslunni, frá þeim árum
þegar menn töldu hagkvæmt að
verka skreið. Þá kom ríkið, að
venju, og setti sérstakan skatt á
spírur sem notaðar voru í skreiðar-
hjalla. Einstaka verkandi reyndi þó
að bjarga sér og til varð ný atvinnu-
grein sem fólst í því að sækja reka-
við, m.a. austur á Langanes. Þessi
rekaviður var síðan með ærnum til-
kostnaði höggvinn niður og notað-
ur í skreiðarhjalla. Annað dæmi má
nefna þegar að menn voru svo
óheppnir að græða á genginu. Þá
var séð til þess að Seðlabankinn
safnaði summunni saman og ráð-
stafaði síðan gengishagnaðinum án
tillits til þess hver aflaði.
Það gerðist reyndar einn fisk-
verkandi, austur á Bakkafirði, svo
djarfur að fara í mál við ríkið. Öll-
um á óvart taldi Hæstiréttur að
brotið hefði verið á manninum.
Það hefur hins vegar ekki ennþá
frést hvernig staðið verður að end-
urgreiðslum og e.t.v. lítil von til, að
svo verði.
ins: „... sem er fyrst og fremst vegna
utanaðkomandi aðstæðna, gengis-
þróunarinnar, gengisstefnu stjórn-
valda, of hárra vaxta, hárra skatta,
of mikils launakostnaðar, olíuverðs
og verkfalla..:* — Það eru sem sagt
nægar ástæður og illviðráðanlegar,
en auðskiljanlegar. Á næsta ári
mæta menn síðan aftur til fundar
og hlusta á sömu rökin, sömu plöt-
una og sama forstjórann, sem síðan
er klappað lof í lófa fyrir að hafa
komið fyrirtækinu í gegnum hrell-
ingar síðustu ára og jafnvel ára-
tuga.
Það verða hins vegar stundum
einstaka undantekningar. Kannski
til að sanna regluna. Það gerist
stundum að framleiðandi þarf
nauðugur að sýna fram á hagnað.
Verðið hefur hækkað og olían
lækkað. Afskriftirnar dugðu ekki
og fyrirtækið var ekki nógu duglegt
að eyða. Síðan gerist það Iíka
stundum að hagnaður verður al-
mennur, þannig að farið er að tala
um góða afkomu í greininni. Þegar
síðan Þjóðhagsstofnun hefur stað-
fest þennan grun, þá verða blikur á
lofti. Þá klikkar eitthvað í kerfinu
og í skyndingu þarf að spila inn nýj-
an „gleðibanka", e.t.v. hægt og
hljótt.
Það er ekki að ástæðulausu að
forsvarsmenn fiskvinnslunnar rísa
upp og mótmæla kröftuglega, þeg-
ar Þjóðhagsstofnun staðfestir