Alþýðublaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 1
^TDFMAf)
Miðvikudagur 15. júlí 1987 1919 j 131. tbl. 68. árg.
Þenslan í byggingariðnaðinum á höfuðborgarsvæðinu:
BJÓÐA 150 ÞÚSUND KRÓNUR
Á MÁNUÐIFYRIR DAGVINNU
„Ég veit um einn múrara hér á
Akureyri, sem var boðin vinna í
Reykjavík og 150 þúsund krónur á
mánuði í föst laun fyrir dagvinnuna
eina,“ sagði einn af forystumönn-
um í byggingariðnaði á Akureyri í
viðtali við Alþýðublaðið í gær.
Hann kvað þetta ekkert einsdæmi,
en hann gæti staðfest þetta tilvik.
Vegna hinnar gífurlegu þenslu,
sem verið hefur í byggingariðnaði á
höfuðborgarsvæðinu, hafa verk-
takar leitað eftir vinnuafli, einkum
iðnaðarmönnum, um land allt. Þeir
hafa boðið gull og græna skóga.
Hæst laun hafa þeir boðið, sem eru
orðnir á eftir áætlun með verk sín
og þurfa að greiða dagsektir, sem
geta verið mjög háar.
Fyrir nokkrum dögum skorti
einn verktaka í Reykjavík a. .m .k.
50 múrara, og mun honum ekki
hafa tekist að fá nema 30, þrátt fyrir
há launatilboð. Þessi eftirspurn eft-
ir iðnaðarmönnum hefur haft þau
áhrif úti á landsbyggðinni að verk-
takar þar hafa þurft að hækka til
muna laun sinna iðnaðarmanna,
aðeins til að halda í þá.
Annað dæmi hefur Alþýðublað-
ið fengið um áhrif þenslunnar í
Reykjavík á vinnumarkaðinum.
Byggingafyrirtæki hafa ráðið iðn-
aðarmenn sem undirverktaka og
boðið margvísleg skattfríðindi og
aukagreiðslur. Hvort þessar greiðsl-
ur koma nokkurs staðar fram er
ógjörlegt að segja, en ljóst er, að
flestum ráðum er nú beitt til að laða
iðnaðarmenn inn á þenslumarkað-
inn.
Þessi yfirboð hafa síðan þau
áhrif, að nánast er ógjörlegt að fá
iðnaðarmenn til starfa við almenn
og minni verk. Stóru verktakarnir
heilla þá til sín með háum launum.
LÁRA AÐSTOÐARMAÐUR
FÉLAGSMÁIARÁÐHERRA
Félagsmálaráðherra, Jóhanna urvarðhún 1980. Húnhefurverið
Sigurðardóttir, hefurráðiðsérað- lögfræðingur Alþýðusambands
stoðarmann, sem er Lára V. íslands frá 1982 og var kjörin for-
Júlíusdóttir, lögfræðingur. maður Kvenréttindafélags íslands
Lára er fædd 1951. Stúdent frá vorið 1986.
Verslunarskóla íslands 1972. Hún Eiginmaður Láru er Þorstein
lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Haraldsson, löggiltur endurskoð-
íslands árið 1977. Var kennari við andi.
Verslunarskóla íslands 1977— Lára mun hefja störf í félags-
1982 og vann þá jafnframt á lög- málaráðuneytinu þann 20. júlí
fræðistofu. Héraðsdómslögmað- n.k.
ÞENSLA Á VINNUMARKAÐI:
AÐEINS 9000 ATVINNU-
LEYSISDAGAR í JÚNÍ
í júnímánuði sl. voru aðeins
skráðir 9000 atvinnuleysisdagar á
landinu öllu eða nánast jafnmarg-
ir og í mánuðinum á undan. Þess-
ar tölur svara til þess að 400
manns hafi að meðaltali verið á
atvinnuleysisskrá í mánuðinum,
sem jafngildir 0,3% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði í mán-
uðinum samkvæmt spá Þjóð-
hagsstofnunar. í júnímánuði í
fyrra voru skráðir 15000 atvinnu-
leysisdagar á landinu, en flestir
hafa þeir orðið í júnímánuði 1983
20.000 eða rösklega helmingi
fleiri en nú.
Af framanskráðu má ráða að
veruleg eftirspurnarþensla ríki á
vinnumarkaðinum þó mannekla
sé fyrst og fremst bundin við
ákveðnar starfsgreinar s.s. þjón-
ustu, mannvirkjagerð og vissar
greinar verksmiðjuiðnaðar.
FERÐAMÖNNUM FJÖLGAÐI
UM NÆRRIFJÓRÐUNG
Alls komu 35 þúsund manns til
íslands í júní mánuði sl. og hefur
fjölgað í þessum hópi um ríflega
sex þúsund manns frá sama mán-
uði í fyrra. Stór hluti af þessum
fjölda ferðamanna var þó íslend-
ingar, en útlendingar voru þó
nærri 19 þúsund talsins.
Það sem af er þessu ári hafa 50
þúsund erlendir ferðamenn kom-
ið til landsins og hefur þeim fjölg-
að um nærri 25% frá því í fyrra.
Þessar tölur sýna sjálfsagt betur
enn nokkuð annað þá gífurlega
fjölgun ferðamanna sem sækja
okkur heim. Ekkert lát virðist á
þessari fjölgun. Vinsældir íslands
meðal ferðamanna aukast í sífellu
ár frá ári.
Ferðalögum okkar íslendinga
fjölgar einnig og ferðum okkar
virðist reyndar það sem af er
þessu ári, hafa fjölgað meira en
ferðum útlendinga. íslendingar
sem komið hafa til landsins á
fyrra helmingi þessa árs eru ríf-
lega 51 þúsund og hefur fjölgað
um tæp 12 þúsund frá því á sama
tíma í fyrra.
Forseti íslands, Vigdls Finnbogadóttir, fékk hlýlegar móttökur i heimsókn sinni til Manar I fyrri viku. Hér sést hún
skoða handavinnu eyjarskeggja. Takiö eftir stráþakinu I baksýn.
Jóhanna Sigurðardóttir tekur til hendinni:
Skiptir á ráðherrabílnum
og húsnæðissérfræðingi!
— Ráðuneytið þarf mann með sérþekkingu á húsnæðismálum
og fasteignamarkaði. Minni þörf fyrir ráðherrabíl.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, hyggst afþakka ráð-
herrabil með bílstjóra en vonast í
staðinn til þess að geta ráðið sér-
fræðing í húsnæðismálum til að
vinna að sérstökum verkefnum, en
hún telur að ráðuneytinu sé brýn
þörf á starfsmanni sem hafi sér-
þekkingu á húsnæðismálum og
fasteignamarkaði.
Jóhanna sagði í stuttu samtali
við Alþýðublaðið í gær að ýmis
verkefni í sambandi við húsnæðis-
málin biðu úrlausnar í ráðuneytinu.
„Húsnæðismálin eru stór og viða-
mikill málaflokkur og það er alveg
ljóst að ráðuneytinu er afar nauð-
synlegt að hafa mann með sérþekk-
ingu á húsnæðismálunum og fast-
eignamarkaðnum," sagði hún.
Jóhanna staðfesti einnig að hún
hyggðist afþakka ráðherrabíl og
bílstjóra. Hún sagðist ekki hafa
kannað að hve miklu leyti það fé,
sem annars hefði farið í þann
kostnað, myndi hrökkva til að kosta
ráðningu sérfræðings í húsnæðis-
málum, en hún kvaðst gera sér von-
ir um að þeir peningar myndu alla
vega slaga eitthvað upp í.
Það sem af er þessu ári, væri auð-
vitað búið að nota talsverðan hluta
af bilakostnaðarliðnum, sagði Jó-
hanna og bætti því við að enn væri
óljóst hvort unnt yrði að breyta
þessu stöðugildi.
„En það er allavega ljóst,“ sagði
Jóhanna, „að það er nauðsynlegt
að hafa sérþekkingu á húsnæðis-
málunum í ráðuneytinu og ég
hyggst leita mér heimildar til að
ráða slíkan starfsmann."