Alþýðublaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 2
MMLMIID
Slmi: 681866
Útaefandi: Blaö hf.
Ritstjóri:-; ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfuiltrúi: jón Danlelsson
Blaöamenn: Orn Bjarnason, Asa Björnsdóttiiog
Kristján Þorvaldsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guömundsdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Slöumúla 12
Áskriftarslminn er 681866
Enn hefur verðbólgu-
draugurinn í hótunum
Hagstofa íslands birti í fyrradag útreikninga sína á
vísitölu framfærslukostnaðar. Um sfðustu mánaða-
mót reyndist hún 1,75% hærri en f júníbyrjun. Þetta
jafngildir þvf, að sföustu tólf mánuði hefur vísitalan
hækkað um 18,8%. Ef hins vegar er litið á hækkun
vfsitölunnar sfðustu þrjá mánuði, þá jafngildir sú
hækkun 21,8% verðbólgu á heilu ári.
Þetta er alvarleg viðvörun til nýrrar ríkisstjórnar um
verðbólguþróun, sem virðist hafa farið úr böndunum
sfðustu mánuði. Rfkisstjórnin verður nú að beita öll-
um tiltækum ráðum til að hemja verðbólguna og
lækkahanaverulegaáþessu og næstaári. Hún hefur
sjálf sett sér það markmið, að koma verðbólgunni nið-
ur f 10% á næsta ári.
Þaðer hins vegar Ijóst, að rfkisstjórnin hefurekki öll
ráð f hendi sér I þessari baráttu. Væntanlegir kjara-
samningar geta haft mikil áhrif á verðbólguþróunina,
svo og margvfsleg ytri skilyrði. En ríkisstjórnin getur
beitt þeim tækjum, sem hún hefur vald á, og þau verð-
ur hún að nota, m. a. við næstu fjárlagagerð.
Það er mjög mikilvægt að draga úr þeirri glfurlegu
þenslu, sem verið hefur vfða f þjóðfélaginu. Ekki er
vafi á þvf, að hvers konar þensla f verklegum fram-
kvæmdum, einkum á höfuðborgarsvæðinu, hefur haft
óheillavænleg áhrif á launa- og verðlagsþróun. Glfur-
legur innflutningur á bílum og hverskonar tólum og
tækjum hefur einnig aukið vandann, en verðmæti
vöruinnflutnings fyrstu fimm mánuöi þessa árs var
23% meira en á sama tfma f fyrra.
Viðbrögð banka og lánastofnana við aukinni verð-
bólgu koma fram ( vaxtahækkunum, og þótti flestum
nóg komið. Þá hefur lánskjaravfsitalan hækkað um-
talsvert, og enn á ný eykst vandi skuldugra hús-
byggjenda. Áhrif hárra vaxta á efnahagslífið eru mjög
umdeild. Margir telja, að svonefnd hávaxtastefna,
sem lánastofnanir kalla vörn gegn verðbólgu, hafi
mjög lamandi áhrif áeðlilegaþróun allsatvinnulffsog
kalli á viðbrögð, er hafi áhrif til hækkunar verðbólgu.
Um þettamálengi deila. En hvermaðurgeturséð, að
hækkun verðbólgunnar hefur mjög alvarleg áhrif á allt
efnahagslífið og snertir hag hvers einasta launa-
manns í landinu. Það er því grundvallaratriði að rfkis-
stjórninni takist að hemja verðbólguna, stöðva verð-
hækkanir á vörum og opinberri þjónustu og geti
stuðlaö að jafnvægi á lánamarkaði og lækkun vaxta.
Um þetta er öll þjóðin sammála, þótt ágreiningur
kunni að vera um leiðir að markinu.
Það er mikið áhyggjuefni, þegar vextir og lánskjara-
vísitala hækka jafnmikið og raun ber vitni, hvernig
unnt verði að bæta hag misgengishópsins, sem enn
og aftur sér eftirstöðvar lána sinna hækka látlaust,
þrátt fyrirstöðugarafborganir. í stjórnarsáttmálanum
ergert ráð fyrir, að þeim, sem lent hafa í greiðsluerfið-
leikum vegna öflunar fbúðarhúsnæðis á undanförn-
um árum, gefist kostur á endurfjármögnun á lánum
með vaxtakjörum húsnæðislánakerfisins. Hluti af
ráðstöfunarfé Húsnæöisstofnunar á að ganga til
þessara lána. Nú er Ijóst, að huga þarf að þessum
málum.
Láglaunahóparnirverðaeinnig illaúti. í þeim aðgerð-
um, sem nú verður að grípa til, og munu snerta hag
hvers einasta heimilis f landinu, er það algjört for-
gangsverkefni að jafna kjörin svo, að láglaunahópun-
um verði hlíft. Það er stór hópur í þjóðfélaginu, sem
geturtekiðásig byrðar.án þessaðfinnaverulegafyrir
þeim.
Miðvikudagur 15. júlf 1987
Stjórnarkreppunni er loksins lokið og ný stjórn tekin við, en hvað svo?
AÐ LOKINNI
STJÓRNARKREPPU
Stjórnarkreppunni sem búin var
að standa á þriðja mánuð er lokið.
Við hefur tekið ný ríkisstjórn AI-
þýðu, Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokks. Úrslit síðustu alþingiskosn-
inga gáfu ekki tilefni til skjótrar
stjórnarmyndunar. Ýmsar tilraunir
voru gerðar í þá veru að fá annars
konar stjórnarmynstur. Þær runnu
allar út í sandinn af ýmsum ástæð-
um sem best er að fjölyrða ekki um
hér. Auðvitað má segja að það hafi
legið fyrir frá fyrsta degi að þessar
tilraunir væru árangurslausar en
þær urðu þó til að sannfæra menn
um það að sá kostur sem ofan á
varð að lokum var sá eini mögu-
leiki. Ekki ríkir sérstakur fögnuður
innan núverandi stjórnarflokka
með þessa niðurstöðu og hefðu
margir innan þeirra kostið að hafa
hlutina á annan veg, en hinn póli-
tíski veruleiki hlaut að ráða.
Reynslan ein getur skorið úr um
það hvernig þetta stjórnarsamstarf
mun gagnast þjóðinni. Allt of
snemmt er að spá einhverju um það
á þessarri stundu. Hvort hin nýja
ríkisstjórn mun aðeins verða
„starfsstjórn“ eða hvort hún nær
að skapa sér sess í stjórnmálasög-
unni sem „framfarastjórn“ mun
ráðast af því hvernig tekst að ráða
við þau grundvallaratriði sem máli
skipta.
Tekst henni að koma á jafnvægi í
ríkisfjármálunum og utanríkisvið-
skiptunum eða verður bara látið
reka á reiðanum eins og venjulega?
Tekst henni að tryggja réttlátari
tekjuskiptingu og réttlátari skatt-
heimtu ásamt því að stytta hinn allt
of langa vinnutíma? Eða verður
það hlutskipti alþýðunnar svo sem
oft áður að fá bara byrðarnar í sinn
hlut?
Tekst henni að halda þannig á
málum að landsbyggðin njóti sömu
réttinda og þétbýlið og verður skor-
ið á „línuna að sunnan“ sem hefur
ráðið bæði smáu og stóru þar?
Tekst henni að losa sjávarútveg-
inn úr viðjum skriffinnskubákns
kvótakerfisins og koma á heilbrigð-
ari reglum til að stjórna fiskveiðum
en nú eru notaðar?
Tekst henni að færa stjórnsýslu
ríkisins og opinberar stofnanir I
léttara og liprara form sem þjónar
almenningi en ekki öfugt?
Tekst henni það mikla verkefni
að vernda náttúru landsins gegn
eyðingaröflum sem herja á hana
nótt og nýtan dag? Og síðast en
ekki síst, tekst að vernda mannlífið
í heimi sívaxandi efnishyggju og
skrums?
Þessar spurningar og margar
aðrar munu liggja á borðinu allt
kjörtímabilið. Aðeins tíminn og
reynslan fá svarað þeim.
Miðað við þá miklu áraun sem
Lýðræðisríkið er búið að þola,
bæði með hatrömmum deilum og
klofningi flokka fyrir kosningar
ásamt langri stjórnarkreppu eftir
kosningar þurfum við ekki að vera
óánægðir með þá niðurstöðu sem
að lokum varð. Persónulegur metn-
aður og sært stolt eru aukaatriði
sem ekki skipta máli í þessu sam-
hengi. Það sem skiptir máli er það
að unnið sé að þjóðarhag og sótt
fram á veg.
Magnús Marísson
Þróunar-
samvinnu
Marel:
SÍS og
félag í
Á framhaldsaðalfundi Marels
h.f. er haldinn var miðvikudaginn
8. júlí 1987 var gengið frá kaupum
Þróunarfélags Isiands h.f. á 43%
hlutafjár í Marel h.f. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga og Sam-
vinnusjóður íslands eiga áfram um
52% hlutafjárins og ýmsir aðilar í
fiskvinnslu og starfsmenn Marels
h.f. eiga um 5%.
Upphaf að starfsemi Marel h.f.,
sem stofnað var 1983, má rekja til
samstarfs Sjávarafurðadeildar SÍS
og Raunvísindastofnunar Háskóla
íslands um hönnun og þróun á
skráningarkerfi fyrir fiskvinnslu. í
framhaldi þess kom fyrsta Marel-
vogin á markað 1978. Skráningar-
kerfi fyrir megin vinnsluþætti í
frystihúsum kom nokkru síðar á
markaðinn. Vogir og kerfi frá Mar-
el hafa síðan verið seld í fjölmörg
fiskvinnslufyrirtæki.
f upphafi miðaðist markaðs-
fræðsla á framleiðsluvörum Marels
við heimamarkað á íslandi, en
teygði sig síðan til nálægra landa
þar sem fiskvinnsla er með svipuð-
um hætti og hér á landi. í samræmi
við það var gengið frá samningum
við umboðsaðila í Noregi, Dan-
mörku, Færeyjum og Hjaltlandi og
eigið dótturfyrirtæki var stofnað í
Halifax, Kanada. Sala á þessum
mörkuðum hefur verið vaxandi og
á sumum mjög góð. í Noregi hefur
náðst sú staða að í hefðbundinni
fiskvinnslu má telja að Marel hafi
náð leiðandi stöðu.
Útflutningur hefur verið mjög
stór þáttur í starfsemi Marel og hef-
ur allt frá upphafi verið meira en
50% af veltu. Þannig var á síðasta
ári Marel meðal 60 stærstu útflutn-
ingsfyrirtækja á Islandi og þriðji
stærsti aðili í útflutningi á iðnaðar-
vörum ef undan er skilin stóriðja.
Á næstunni mun Marel kynna
ýmsar nýjar framleiðsluvörur, ný
vinnslukerfi fyrir frystihús, nýja
tímaskráningarstöð og nýja vog
með áður óþekkta möguleika.
Friðarbréf kvenna
Friðarhreyfmg íslenskra kvenna
hefur sent frá sér friðarbréf þar sem
kynnt er starfsemi hreyfingarinnar
og fjallað um friðarmál. Efni bréfs-
ins var tekið saman af nokkrum
konum í miðstöð friðarhreyfingar-
innar.
Bréfinu verður dreift á ýmsum
stöðum þar sem það kemur fyrir
margra augu.